Alþýðublaðið - 29.08.1995, Side 1
Þriðjudagur 29. ágúst 1995
Stofnað 1919
129. tölublað - 76. árgangur
■ íbúum á Neskaupstað hefur fækkað um 200 á síðustu árum í kjölfar kvótakerfisins
w
Astæðan erfækkun smábáta
■ Sambandsstjórnar-
fundur SUJ
„Hægt er að
útiloka aðild
- segir Guðmundur Bjarna-
son, bæjarstjóri á Neskaup-
stað. Trillum hefur fækkað úr
100 niðurí30.
„Það fer ekki milli mála að um-
skipti urðu með kvótakerfínu. Hér var
mesta smábátaúterð landsins á ára-
tugnum frá 1980 til 1990. Síðan fóru
smábátaeigendur að selja kvóta sinn
og því fylgdi brottflutningur fólks.
Héðan hafa flutt um 200 manns á síð-
ustu fimm árum og íbúum heldur
áfram að fækka ár frá ári,“ sagði
Guðmundur Bjarnason bæjarstjóri
á Neskaupstað í samtali við Alþýðu-
blaðið.
Eftir að kvótakerfinu var komið á
hefur sífellt þrengt meira og meira að
■ Hrun smábáta-
útgerðar vegna
kvótakerfisins
Menn
seinir að
áttasig
- segir Arthur Bogason, for-
maður Landssambands smá-
bátaeigenda og vísar þar
meðal annars til ástandsins á
Neskaupstað.
„Það eru ekki mörg dæmi um
svona mikil umskipti vegna kvóta-
kerfisins eins og á Neskaupstað
enda var þetta stærsta smábáta-
pláss landsins. Hins vegar er ég
mjög undrandi á því hvað sveitar-
stjórnarmenn almennt hafa verið
seinir að átta sig á þvi hve mikil
vinna fylgir smábátaútgerð en
vona að þessi ólög sem samþykkt
voru í vor verði til að hrista upp í
þeim,“ sagði Arthur Bogason, for-
maður Landssambands smábáta-
eigenda, í samtali við Alþýðublað-
ið.
Arthur var spurður hvort finna
mætti dæmi um jafn mikið hrun í
smábátaútgerð og á Neskaupstað í
kjölfar kvótakerfisins. Hann sagði
svo ekki vera en benti jafnframt á
að Síldarvinnslan í Neskaupstað
hefði keypt mikið af kvóta smá-
bátanna til að halda honum á
staðnum sem væri útaf fyrir sig
jákvætt fyrir bæinn. En fólksflótt-
inn frá Neskaupstað samfara
samdrætti í útgerð smábáta kæmi
ekki á óvart.
„Sveitarstjórnarmenn verða að
átta sig á því að með því að standa
vörð um útgerð smábáta eru þeir
að treysta byggðina. Einstakling-
arnir á landsbyggðinni verða að
hafa einhverja möguleika til
sjálfsbjargar. Sveitarstjórnar-
menn hafa almennt ekki viljað
hlusta á það sem við höfum verið
að segja þegar við tölum um mik-
ilvægi smábátanna. Það er eins og
þeir hafi frekar litið á viðvaranir
okkar sem eitthvert áróðurs-
bragð. En við höfum bara sagt
sannleikann með því að benda á
þá atvinnusköpun sem fyigir smá-
bátunum. Nú er kannski komið að
því að þeir fari að kveikja á þess-
um sannindum,“ sagði Arthur
Bogason.
Albýðublaðið í daq
• „Vaxtaflónið" og garp-
urinn frá Brúnastöðum
Leiðari 2
• Þegnréttur fanga
Einsog gengur 2
• Er Hallgrímur Helgason
miðaldra?
Pallborðið 3
smábátaútgerð í landinu. Stærri út-
gerðir hafa keypt upp aflaheimildir
smábátanna á útgerðarstöðurh vítt og
breytt um landið en trillukarlar flutt á
brott með fjölskyldur sínar. Þessi þró-
un hefur komið greinilega í ljós á
Neskaupstað eins og bæjarstjórinn
staðfestir í samtali við blaðið.
„Um eða eftir miðjan síðasta áratug
þegar kvótakerfinu var komið á voru
gerðar héðan út um 100 trillur en
núna ég hugsa að fjöldi þeirra sé
kominn niður í um 30. Meginskýring-
in á þeirri fólksfækkun sem hefur orð-
ið hér í Neskaupstað er niðurskurður-
inn á smábátaútgerðinni. Þetta er dap-
urleg staðreynd,“ sagði Guðmundur.
,,Menn hafa ekki gert sér grein fyrir
því hvað það var afskaplega mikil at-
vinna í kringum smábátaútgerðina.
Fólksfækkun samfara samdrætti í út-
gerð smábáta hefur haft margvísleg
áhrif og til dæmis hefur fasteignaverð
lækkað. Hins vegar hafa tekjur íbúa á
Neskaupstað hækkað á sama tíma og
fólki fækkar sem er svolítið merki-
legt. Það hefur orðið veruleg breyting
á útgerðarmynstri og frystiskip komið
til sögunnar. Það var mjög mikið
verkað hér í salt en nú er það orðið
sáralítið. Frystihúsið er hins vegar
rekið á svipuðum afköstum og áður
en það er einn ísfisktogara sem sér
því fyrir hráefni ásamt trillunum sem
eftir eru. En það hefur bæst ífystiskip
í flotann sem hefur gert það að verk-
um að staðgreiðslutekjurnar hafa
hækkað," sagði Guðmundur Bjama-
son. Eftir sameihingu Neskaupstaðar
og Norðfjarðarhrepps eru íbúar nú
1.638 samkvæmt síðasta manntali.
Aður en brottflutningurinn hófst voru
um 1.740 íbúar á Neskaupstað einum
og um 80 í Norðfjarðarhreppi. Guð-
mundur bæjarstjóri sagði að hins veg-
ar hefði það verið svo, að nokkuð af
fólki hefði átt lögheimili í Neskaup-
stað en búið annars staðar á landinu.
Á móti kæmi að þá hefði verið mikið
af farandverkafólki í bænum en nú
væri það fátt.
„Vissulega veldur það okkur
áhyggjum að íbúum skuli halda áfram
að fækka ár frá ári. Maður heldur allt-
af að þetta fari að stöðvast en því
miður hefur raunin ekki orðið sú enn-
þá,“ sagði Guðmundur Bjamason.
að Sjálfstæð-
isflokknum"
„Hægt er að útiloka aðild að Sjálf-
stæðisflokknum. Einnig er hægt að
útiloka aðild Sjálfstæðisflokksins að
rfkisstjóm íslands. Ýmislegt fleira er
mögulegt, þar með talið að útiloka að-
ild Islands að Evrópusambandinu, en
það er óráðlegt að svo stöddu og ber
vott um heimóttarskap og vantrú á
getu íslendinga til að taka þátt í sam-
starfi Evrópuþjóða á jafnréttisgrund-
velli,“ segir í ályktun sem sambands-
stjómarfundur Sambands ungra jafn-
aðarmanna samþykkti síðastliðinn
sunnudag, 27. ágúst.
I niðurlagi ályktunarinnar segir:
„Ungir jafnaðarmenn bera mikið
traust til íslensku þjóðarinnar og hafa
fyllstu trú á að henni geti famast vel í
samstarfi við þær þjóðir sem næstar
henni standa í menningarlegu, sögu-
legu og efnahagslegu tilliti. - Ungir
jafnaðarmenn útiloka ekki aðild Is-
lands að Evrópusambandinu.“
Getgámm hefur verið leitt að því að
þessi ályktun Sambands ungra jafiiað-
armanna sé tilkomin vegna umtalaðrar
Evrópuályktunar sem kollegar þeirra í
Sambandi ungra sjálfstæðismanna
samþykktu á þingi sínu fyrir
skemmstu. I upphafi þeiiTar ályktunar
var einmitt sagt, að hægt væri að úh-
loka aðild Islands að Evrópusamband-
inu, en kostum og göllum aðildar og
hugsanlegri tímasetningu á skoðun á
henni var hinsvegar velt upp síðar í
plagginu.
Hálf öld í blaðamennsku og pólitík „Það síðasta sem ég kom til leið-
ar í Sósíalistaflokknum var samþykkt sem þar var gerð í miðstjórn um að slíta öll flokksleg tengsl við þá flokka
sem stóðu að innrásinni í Tékkóslóvakíu 1968," segir Magnús Torfi Ólafsson fyrrum menntamálaráðherra meðal
annars í ítarlega viðtali við Alþýðublaðið í dag. Margt ber á góma: nú í haust er hálf öld liðin síðan Magnús Torfi
hóf störf í blaðamennsku á Þjóðviljanum, hann starfaði innan Alþýðubandalagsins, fylgdi Hannibal þaðan og átti
þátt í stofnun Samtaka frjálslyndra og vinstrimanna, sat í ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar 1971-74 - og var
fundarritari á ríkisstjórnarfundum í heilan áratug, 1979-89. - Siá miðopnu.
• Krónprins gömlu komm-
anna
Jón Baldvin skrifar
um Svavar 6
• Hallgerði langbrók sem
forsætisráðherra!
Umfjöllun 7
I Steingrímur J. Sigfússon vill samvinnu vinstri flokka í útgáfumálum
Slíkt blað yrði afskaplega mikill geðklofi
//
n
- segir Össur Skarphéðins-
son, þingmaður Alþýðuflokks-
ins, og Mörður Árnason,
varaþingmaður Þjóðvaka, telur
að flokkar eigi ekki að standa í
blaðaútgáfu.
„Eg hef verið hálf hræddur við allar
hugmyndir um að sameina hina svo-
kölluðu vinstri pressu frá því fyrir
nokkrum árum þegar menn voru
komnir með módel af slflcri útgáfu. Eg
held að slíkt blað yrði afskaplega mik-
ill geðklofi," sagði Össur Skarphéð-
insson, þingmaður Alþýðuflokksins, í
saintali við Alþýðublaðið.
I Morgunblaðinu síðastliðinn
sunnudag sagðist Steingrímur J. Sig-
fússon, þingmaður Alþýðubandalags-
ins, leggja áherslu á að stjórnarand-
stöðuflokkamir reyndu að samræma
málflutning sinn í stjómarandstöðu.
Mestu skipti að koma á stað þróun í
átt til meira samstarfs flokkanna. Þar
ætti hann við málefnalega samvinnu
og samvinnu um tiltekin pólitísk verk-
eftii og tiltók útgáfumál sem dæmi um
slíkt verkefni. Það kæmi til greina að
flokkamir stuðluðu að því að félagsleg
og vinstri sinnuð viðhorf eignuðust
öflugri málsvara.
,A sínum tíma var rætt um sameig-
inlegt blað þar sem flokkamir áttu að
vera með puttana inn í kviku þessa
nýja miðils. Jafnvel að settar yrðu upp
tvær eða þrjár leiðarasíður þar sem
mismunandi stjómmálaviðhorf kæmu
fram gagnvart sömu málum. Slflct blað
yrði afskaplega mikill geðklofi. Ég tel
ekki æskilegt að stjómmálaflokkamir
standi að slflcri útgáfu,“ sagði Össur.
„Ég er hins vegar sammála Stein-
grími J. Sigfússyni að því leyti til að
það er pláss á markaðnum fyrir ein-
hvers konar blað sem fylgir viðhorftun
frjálslyndra jafnaðarmanna. En það
þarf frumkvæði einstaklinga fremur
en flokka til að hrinda því úr vör. Ef
menn em að velta fyrir sér sameiningu
flokka, sem ég tel af hinu góða, eiga
menn frekar að tala sig saman um
hugmyndir og aðferðir en láta mæta
afgangi að eyða tíma og peningum í
að búa til fjölmiðil. Þar að auki er ég
afskaplega sáttur við Alþýðublaðið
eins og það er nú,“ sagði Össur Skarp-
héðinsson.
„Fylgi hér hugur máli hlýtur maður
að fagna þessum áhuga Steingríms og
þeirra Alþýðubandalagsmanna. Það er
þeim mun ánægjulegra að sjá þetta frá
honum vegna þess að ummæli Al-
þýðubandalagsmanna um sameining-
armál hafa verið ákaflega þokukennd
og véfréttaleg í vor og sumar," sagði
Mörður Árnason, varaþingmaður
Þjóðvaka.
„Um málefnið sjálft er það að
segja að ég hef ekki trú á að flokkar
eigi að standa að blaðaútgáfu. Ég hef
nokkra reynslu af slflcri útgáfu og hún
er ekki mjög ánægjuleg en ég tek eftir
því að Steingrímur orðar sína hugsun
ekki í þessa átt. Hins vegar geta flokk-
ar haft mikið hlutverk við að búa til
aðstæður fyrir frjálsa fjölmiðla. Mér
fyndist ekki út í hött að forystumenn
stjórnarandstöðuflokkanna ræddu
saman um hvemig þeir gætu skapað
þær aðstæður að hér verði til stór fjöl-
miðill sem gæti vegið upp á móti veldi
Morgunblaðsins og DVþ sagði Mörð-
ur Ámason.