Alþýðublaðið - 29.08.1995, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n
77/ miðaldra myndlistarmanna
I Alþýðublaðinu síðastliðinn föstu-
dag skrifar annar Vikupilta blaðsins,
Hallgrímur Helgason, fína grein þar
sem mér hlotnast sá heiður að fá
nokkur umvöndunarorð frá barna-
kennaranum.
Pallborðið
Það er rýmið sem er Hallgrími
hugleikið eins og „evrópskum list-
heimi í dag“. Hann er semsagt að
skamma mig fyrir að nota klisjur um
rýmið uppi í Gerðubergi í texta í sýn-
ingarskrá fyrir sýningu mína, sem
stendur þar yfrr.
Hallgrímur heldur að ég, sem ung-
ur myndlistarmaður, hafi ekki gert
mér grein fyrir því að það sé búið að
gera allt í myndlist og það oft. Og
sem „listsjúklingur" vilji ég gera eitt-
hvað nýtt, sem í sjálfu sér sé vonlaust
markmið.
Ég vil nota tækifærið og þakka
Hallgrími ábendingarnar til mín og
„listaáhugamanna hér uppá heims-
hjara“, svo notuð séu urð skáldsins.
Leiðinlegra finnst mér þó að Hall-
grímur skuli skipa sér á bekk með
Braga Ásgeirs í sífelldu nöldri yfir
því að of margir myndlistamemar út-
skrifist úr „listaskólum heimsins".
Miðaldra myndlistarmenn virðast
alltaf hafa áhyggjur af því að of
margir nýir keppinautar skáki veldi
þeirra gömlu á myndlistarsviðinu og
að hátt hlutfall myndlistarnema
standi sem bein ógnun við lífsviður-
væri þeirra.
Mér þykir líka sorglegt að Hall-
grími hafi aðeins þótt „um stund“ að
frétt Alþýðublaðsins hafi verið „með-
vitaður brandari af hálfu listamanns-
ins“ (það er undirritaðs).
Það að Hallgrímur kalli þá Richard
Long, Donald Judd og Roni Horn
„æðstupresta meinlætalegrar, and-
lausrar, sexlausar, ískrandi þurrk-
untustefnu" kemur mér hins vegar
ekki á óvart.
Nýjungamar sem Hallgrímur sting-
ur uppá fengu mig hins vegar til að
halda um stund að hér væri um með-
vitaðan brandara af hálfu miðaldra
myndlistarmanns að ræða. Því það að
fjalla um sýningarskrána hafa Dada-
istar fyrir löngu gert og Piero Manz-
oni er fyrir löngu búinn að kúka í
niðursuðudósir svo Hallgrímur þarf
ekki að bíða við klósettskálina öllu
lengur.
Vikupilturinn Hallgrímur hittir
ennfremur sjálfan sig í þumalputtann
þegar hann bendir ungum myndlist-
armönnum á „nokkur þemu“ sem
vinna ætti með. Tillögur Hallgríms
em þessar: Kynlíf, ást, dauði, atriði
eins og „að reyna við kvenmann",
„baráttan við áfengisbölið“ og „að
alast upp í ljótu umhverfi".
Þreytulegri klisjur er ekki hægt að
finna í vestrænum menningarheimi
og að allt sé betra en rýmið hlýtur að
lýsa hugarástandi Hallgríms um þess-
ar mundir betur en vandamálum
ungra myndlistarmanna yfirleitt.
Líkingin um „barnlausan barna-
skólakennara" á því sennilega ekki
illa við eins og hann bendir sjálfur á.
Þó ég gangi út frá sýningarrýminu
sjálfu upp í Gerðubergi þar það ekki
að þýða að sýningin sé ekki um neitt
annað. Þessar flísar sem em á gólfinu
buðu hins vegar upp á að vera notað-
ar eins og Hallgrímur mun komast að
ef hann les allan textann í sýningar-
skránni en ekki bara þann hluta sem
birtist í Alþýðublaðinu.
Nú hvet ég því Hallgrím til að taka
strætó númer 12 upp í Breiðholt og
skoða sýninguna.
Við miðaldra myndlistarmenn vil
ég svo að lokum segja: Rímið. ■
Höfundur er myndlistarmaður
„Vikupilturinn Hallgrímur hittir ennfremur sjálf-
an sig í þumalputtann þegar hann bendir ungum
myndlistarmönnum á „nokkur þemu" sem vinna
ætti með ... Þreytulegri klisjur er ekki hægt að
finna í vestrænum menningarheimi og að allt
sé betra en rýmið hlýtur að lýsa hugarástandi
Hallgríms um þessar mundir betur en vandamál-
um ungra myndlistarmanna yfirleitt."
Kunnugir í leikhúsheiminum
teija fullvíst að Þórhildur
Þorleifsdóttir verði næsti
leikhússtjóri Borgarleikhúss-
ins. Tíu sóttu um stöðuna en
tveir óskuðu nafnleyndar. Af
þeim átta sem vitað er um, er
aðeins talið að Guðjón Peter-
sen geti skákað Þórhildi. Hún
sótti hinsvegar um á síðustu
stundu, sem þykir benda til að
hún hafi fengið vilyrði flokks-
systur sinnar, Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur, fyrir
stöðunni. Leikfélagsmenn telja
að Þórhildur sé eini umsækj-
andinn sem geti fengið
Reykjavíkurborg til að auka
framlög til Borgarleikhússins
en það er í grafalvarlegri
fjárþröng...
Ein stutt en ánægjuleg bóka-
frétt: Steinunn Sigurðar-
dóttir sendir í haust frá sér
nýja skáldsögu hjá Iðunni.
Steinunn hefur skapað sér
sess sem einn vinsælasti höf-
undur landsins og verður þvi
áreiðanlega í toppbaráttu
metsölulistanna fyrir jólin...
Skákáhugamenn bíða nú af-
mælismóts Friðriks
Ólafssonar með mikilli eftir-
væntingu, en það hefst form-
lega í Þjóðarbókhlöðunni 1.
september. Þar leiða saman
hesta sína gamalreyndir refir á
borð við Friðrik, Bent Larsen
og Smyslov fyrrum heims-
meistara og nánast gervöll
stórmeistarasveitin íslenska.
Á dögunum heltust hinsvegar
tveir erlendir skákmenn úr
lestinni, Bandarikjamaðurinn
Robert Byrne og Ungverjinn
Peter Leko. Byrne er gamall í
hettunni en má muna sinn fífil
fegurri: hann bar því við að
hann þyrfti að skýra skákir
Kasparovs og Anands í
heimsmeistaraeinvígi þeirra í
IMew York í september. Leko,
sem er 15 ára og yngsti stór-
meistari heims, forfallast hins-
vegar af öðrum ástæðum.
Honum hefur sumsé gengið
allt í haginn uppá siðkastið og
hefur í framhaldi af því tileink-
að sér prímadonnustæla af
ýmsu tagi. Skáksambandið
hafði samþykkt að kosta ferðir
og uppihald móður Lekos,
sem í Ijósi aldurs stórmeistar-
ans er ekki tiltökumál, en á
dögunum setti hann fram
kröfu um að fá þrefalt hærri
þóknun en um var samið, þrjú-
þúsund dollara í stað þúsund.
Það fannst Guðmundi G.
Þórarinssyni og liðsmönnum
hans hjá Skáksambandinu full
mikið af því góða og báðu
Leko litla vel að lifa. Þrátt fyrir
þetta er efalaust að skák-
áhugamenn munu flykkjast í
Þjóðarbókhlöðu í september...
Doktor Hannesi Hólm-
steini Gissurarsyni fellur
aldrei verk úr hendi. Hinir
fornu fjendur hans í Háskólan-
um verða nú að sætta sig við
að Hannes er vinsæll kennari,
en aukþess fer vitanlega tals-
veröur tími hans í að gefa
Davíð Oddssyni holl og stað-
góð ráð. Og ekki nóg með
þetta: síðustu ár hefur Hannes
sent frá sér hverja bókina á
fætur annarri, stundum fleiri
en eina á ári. Við heýrðum af
að minnsta kosti einni bók
sem Hannes er að taka saman:
það munu vera fleyg orð af ís-
lensku bergi brotin. Bók-
menntir af þessu tagi njóta
mikilla vinsælda en hingað til
hefur ekki verið fáanleg ítarleg
alíslensk tilvitnanabók. Við
leyfum okkur að veðja á, að
þeir félagar Jón Þorláksson
og Davíð eigi nokkur fleyg
orð í safni Hannesar- hins-
vegar er ekki áhættulaust að
veðja á hlutdeild Þorsteins
Pálssonar...
"FarSido" eftir Gary Larson
„Shhhh... Grafarþögn, takk. Sæmundur Guð-
vinsson ætlar að gera malarengil fyrir okkur!!!
© 1984 FarWorks. Inc /Dist by Universal Press Syndicate
/*/S (^<^7
Hefur þú eitthvað fylgst með atburðum á Óháðri listahátíð í Reykjavík?
Sverrir Einarsson, Fram-
ari: Nei, ég hef engan tíma
haft í svoleiðis.
Vilborg Guðbjartsdóttir,
nemi: Já, ég fór á lokatónleik-
ana.
Ólafur Þórðarson, nemi:
Nei, ég hef lítinn áhuga á
henni.
Rakel Garðarsdóttir, nemi:
Nei, ég var að koma til lands-
ins.
Ingibjörg Gréta, flugfreyja:
Nei, ég hef ekki verið á land-
inu. Er alltaf á ferð og flugi.
v i t i m e n n
ísland - vemdaður vinnustaður.
Haraldur Jónsson rithöfundur og
myndlistarmaður hefur formað í slagorð
stefnu Höllustaða-Páls gagnvart útlendu
vinnuafli. Kaffileikhúsið á laugardagskvöldið.
Ef maður hins vegar horfir á hvað
sé vænlegt til fylgis fyrir flokka;
einhver upp-poppuð ímynd eða
eitthvað annað, viðurkenni ég að
ég hef ekki á mér yfirbragð
einhvers poppara í stjómmálum.
Steingrímur J. Sigfússon formannskandídat
í pólitískri sálgreiningu í Degi.
Sjálfur nenni ég ekki að taka þátt í
stjórnmálum ef þau eiga að snúast
um eitthvað annað, ef þetta á að
verða einhver fegurðarsamkeppni
eða slík vinsældasamkoma.
Steingrímur aftur.
Hver bóndi lánaði 20-25 þúsund.
Tíminn á laugardag upplýsti að bændur eru
- þrátt fyrir allt - vel aflögufærir: lífeyrissjóður
þeirra lánaði flugfélaginu Emerald
Air 90 milljónir.
Lánatöp bankanna samsvara 400
þúsund krónum á fjölskyldu.
Tíminn - með tölfræðina á hreinu.
Landbúnaðarstefna
Evrópusambandsins hefur
lengi verið talin táknræn fyrir
nánast sovéskt skrifræðiskerfi,
gífurlega sóun verðmæta og
fjársvik í stórum stíl.
Elías Snæland Jónsson aöstoðarritstjóri var
skýr og skorinorður í DV á laugardaginn.
Vmtirá
Vefnum
■ Stefán Jón Hafstein, þetta er fyrir
þig! - Tímaritum fjölgar ört á Netinu,
en þrátt fyrir síaukna þekkingu á eðli
miðilsins hefur ekki nema örfáum tek-
ist að viðhalda ákveðnum gæðastaðli;
það er að segja að versna allavega
ekki við yfirfærsluna. Eftirtalin fjögur
tímarit verða að teljast alveg sérstak-
lega velheppnuð: ■ íhaldsblaðið Daily
Telegraph er besta netdagblaðið og
treður hér upp undir hliðarnefninu
The Electronic Telegraph. Á http://
www.telegraph.co.uk/ fá fréttafíkl-
ar sannarlega sitthvað fyrir sinn snúð,
en hinsvegar verður það að teljast
stór galli að myndir fylgja ekki frá-
sögnum - að vísu hraðast lesturinn
enn fremur við það... ■ Alþjóðlega
fréttatímaritið Time lætur heldur ekki
sitt eftir liggja og á http://www.
pathfinder.com/ time/ timehom
epage.html gefur á að líta besta net-
tímaritið. Myndirnar hefur það fram-
yfir The Daily Telegraph og hlýtur því
hæstu einkunn. Mögnuð heimasiða
atarna... ■ Time Out er síðan fyrir
samkvæmisljón hvort heldur í Lond-
on, París, Róm, Madríd, Reykjavík,
Amsterdam eða New York; kúl staðir,
kvikmyndir, tónleikar, veitingahús,
barir, söfn, sýningar... Smelltu þér á
http://www.timeout. co.uk/ og
finndu þér eitthvað menningarlegra
að gera en að hanga fyrir framan tölv-
una og sjónvarpið... ■ Að lokum skal
sagt frá heimasíðu Life, en á
http://www.pathfinder.com/life
/lifehomepage.html er eitt áreiðan-
legasta slúðurblað veraldar búið að
hreiðra um sig. Hvað er að frétta af
Michael Jackson og Lisu Mariu og
hvernig hafa börn O.J. Simpson það
ári eftir aftöku móður þeirra fyrir utan
villuna í Beverly Hills...
ataffanifcentrum.is
veröld ísaks
Ýmis undratæki hafa verið hönnuð
og fiamleidd svo mennimir fái litið
fiirður undirdjúpanna á skýran og
greinilegan hátt. Flotaaðmírállinn
R.J. Galanson varð þannig fyrstur
manna til að líta ákveðna hluta
Kyrrahafsbotnsins íyrir nokkrum
árum úr þartilgerðu köfunartæki.
Á tæplega sjöhundruð metra dýpi
gægðist hann til botns með aðstoð
tækisins, en sér til mikilla vonbrigða
uppgötvaði hann að eitt af sköpunar-
verkum mannsins hafði komið
þangað á undan honum: á botninum
velktist bjórdós í sakleysi sínu.
Byggt á Isaac Asimov's
Book ofFacts.