Alþýðublaðið - 29.08.1995, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1995
ALÞÝÐUBLAÐK)
7
ó r n m á I
■ Guðrún Vilmundardóttir lenti í þeim skelfilegu hremmingum síðastliðna miðviku-
dagsnótt að dreyma íslenska ríkisstjórn sem Egill Skalla-Grímsson veitti forsæti.
Andstutt sagði hún frá draumnum á ritstjórnarfundi og fékk samstundis það
verkefni að hringja í nokkra valinkunna einstaklinga... Spurt var:
Hvaða sögupersóna
íslenskra bóRmennta yrði
góður forsætisráðherra?
■ Þorvaldur Þorsteinsson
myndlistarmadur
Lffið er (léleg)
skáldsaga
, J3r Davíð Oddsson ekki persóna í
skáldsögu? Ég man ekki nafnið á
skáldsögunni, og ekki eftir hvem hún
er, hann varð nú aldrei metsöluhöfúnd-
ur blessaður. Það var einhver einnar
bókar maður sem skrifaði skáldsöguna
sem Davíð Oddsson er aðalpersónan í.
Líklega er hann þá bestur fyrir íslensku
þjóðina."
■ Guðrún Helgadóttir
rithöfundur
Að fara vel
með sitt fé
, Jvlér dettur helst í hug Bjöm í
Brekkukoti, hann er svo skynugur og
skynsamur maður. Ég held að Bjöm í
Brekkukoti hafi aldrei látið annað en
gott af sér leiða, auk þess sem hann fór
vel með það sem honum var falið. Ég
held samt að hann Bjöm gæti ekki verið
í neinum flokki, en hann myndi vinna
að hag allra manna og þjóðarinnar allrar
væri honum falið þetta verkefhi. Auk
þess var hann vandaður maður og fór
vel með það fé sem honum var falið.“
■ Drífa Kristjánsdóttir
starfskona Jafnréttisráðs
Fyrsti fslenski
femfnistinn
„Hallgerður langbrók. Af íslenskum
kvenkyns sögupersónum er hún sú eina
sem hefur næga pólitíska hörku til að
bera til að vera forsætisráðherra. Ég er
náttúrlega að leita að konu; ég held að
það sé mjög nauðsynlegt að við fáum
almennilega konu í forsætisráðherra-
stólinn. Og Hallgerður er auðvitað fyrsti
íslenski femínistinn sem sögur fara af.
Hallgerður myndi taka afstöðu út frá
kvennapólitískum sjónarmiðum, að hún
beri hag kvenna fyrir bijósti og láti
þessa karla ekki segja sér fyrir verkum.
Hennar forgangsverkefni í ríkisstjóm
væri auðvitað að eyða launamun karla
og kvenna svo konur geti lifað sjálf-
stæðu lrfi. Svona skvísa eins og Hall-
gerður gæti náttúrlega verið í ýmsum
flokkum - þó ég efist um að hún myndi
ná langt í Sjálfstæðisflokknum, og lrk-
lega væri hún heldur ekki í Framsókn-
arflokknum. Ætli Kvennalistinn
sé ekki líklegastur?“
■ Elsa Þorkelsdóttir
framkvæmdastjóri Jafnréttisráðs
Móðurleg
og vfðsýn
„Þóra í Hvammi, í bókinni Dalalíf
eftir Guðrúnu frá Lundi. Þóra var
vemlega skynsöm kona sem vildi hafa
þræðina í sínum höndum. Ef hún væri
færð inn í tuttugustu öldina held ég að
hún myndi vera víðsýn. Þóra í Hvammi
stóð frammi fýrir verulegum breyting-
um á samfélagi sinnar tíðar og það ger-
um við líka í dag, að öðm leyti en því
að samfélagið okkar er heimurinn. Hún
yrði ekki róttæk en ég held að hún yrði
traust. Ég sé hana ekki fyrir mér í nein-
uin flokki. En það er alveg sláandi með
kvenpersónur í íslenskum bókmennt-
um, hvað þær em mæðulegar. Salka
Valka er líka mjög sterk, Þóra er móð-
urlegri og ég held ég myndi treysta
henni betur til að vera víðsýn.“
■ Sigfús Bjartmarsson
rithöfundur
Ævintýralegar
vitleysur
„Úr því að kapítalisminn er nú einu
sinni orðinn svona kyrfilega ofaná, þá
held ég að það væri bót að því að
skipta út þessu hægra hugleysi og fá í
staðinn Íslands-Bersa; það yrði þá alla
vega gaman af fréttunum. Islands-Bersi
var síldarspekúlant Islands; sá yrði ekk-
ert ragur við nýjungar, heldur myndi
koma ansi mörgu í verk. Hann myndi
varla gera neitt fleiri vitleysur en hinir,
þær yrðu hins vegar stórkostlegar og
ævintýralegar. Hann færi á höfuðið
með stæl; það er ekkert volæði á hon-
um, það yrði hressilegt andrúmsloft í
landinu svona einu sinni. fslands-Bersi
hefði ffekar átt samleið með Albert
Guðmundssyni heldur en Sjálfstæðis-
flokknum - nema hvað hann hefði auð-
vitað kveðið Albert í kútinn á einni
kvöldstund. Hann hefði líklega
verið með eigin flokk.“
■ Hannes Hólmsteinn
Gissurarson prófessor
Sætt frjálslyndi
og fhaldssemi
„Þorgeir Ljósvetningagoði er náttúr-
lega skáldsagnapersóna Ara fróða og
hann væri ágætur. En ég vil líka nefha
persónu úr smásögunni Feðgar eflir
Gunnar Gunnarsson en sú persóna er
Snjólfur litli. Kjörorð Snjólfs var:
„Um að gera að standa í skilunt og
skulda aldrei neinum neitt og treysta á
forsjónina.“ Þorgeir var mannasættir og
vitur maður, en Snjólfur var skilvís og
áreiðanlegur. Svo má nefna þriðja
manninn: Snorra goða Þorgrímsson
eins og honum er lýst í Eyrbyggju.
Hann var ráðagóður og raunsær en að
vísu dálítið kaldlyndur, ef ég man rétt
var lýsingin sú að fólki þótti kuldi stafa
af ráðum hans. Það er ekki heppilegt að
hafa menn sem gefa tilfmningum laus-
an tauminn á valdastóli. Þorgeir myndi
reyna að halda ffið og leyfa mönnum
að sinna sínum óviðurkenndu málum
ef þeir færu vel með það; þetta er sætt
frjálslyndi og íhaldssemi. Snjólfur
myndi koma ríkisfjármálunum í lag.
Snonri goði myndi sigla raunsær og
kaldrifjaður inn í ffamtíðina og gæti
reiknað út hveijir hagsmunir okkar
væru. Sennilega myndi ég gera Bárð á
Búrfelli að menntamálaráðherra og
Búa Árland að menntamálaráðherra.
Þetta eru auðvitað allt sjálfstæðismenn
- nema Bárður á Búrfelli, ég held að
hann hafi verið Framsóknarmaður."
■ Mörður Árnason
íslenskufræðingur
Er húsfreyjan
forsætis-
ráðherra?
„Húsfreyjan á Útirauðsmýri í
Sjdlfstœðufólki. Er hún ekki annars
forsætisráðherra núna?“
■ Össur Skarphéðinsson
alþingismaður
Gjörvuleiki en
pólitfsk ógæfa
„Ég er nú maður hefðarinnar og lít þess
vegna langt aftur, en ég vil líka við-
halda þeirri hefð sem hefur komist á og
segi þess vegna Grettir Ásmundar-
son. Ég segi ekki að hann yrði góður
forsætisráðherra, en hann yrði í stíl við
tvo síðustu forsætisráðherra: Hann hef-
ur gjörvuleikann en ekki mikla pólit-
íska gæfu. Hann stendur reyndar síð-
ustu forsætisráðherrum mun ffamar að
gjörvuleika; hvorugur þeirra hefði leik-
ið það eftir að synda fyrst úr Drangey
og eiga síðan legorð við griðkonu á
næsta bæ. Hans helsta baráttumál yrði
að ffiða Drangey. Hann hefði án ef ver-
ið í Þjóðvaka ef hann væri uppi í dag,
þvf það er svo mikil söguleg
tragedía í honum.“
■ Sigurður A. Magnússon
rithöfundur
Einhvers
konar krati
,Ætli maður gæti ekki vel sætt sig við
Njál. Þó hann væri misvitur og honum
mislagðar hendur var hann réttsýnn og
réttlátur og óeigingjam - allt þetta sem
maður vill nú að leiðtogar séu. Ég held
að Njáll myndi stefna að meira réttlæti
og meiri jöfnuði, og leggja meiri
áherslu á menningarleg verðmæti og
andleg efni heldur en það sem hér ríður
ölluin húsum í dag. Njáll væri auðvitað
einhvers konar krati, en ég veit ekki
hvort hann væri í Alþýðuflokknum.
Hann væri kannski svona krati eins og
ég sem er aðeins vinstra megin við Al-
þýðuflokkinn, já ætli hatrn væri ekki í
Álþýðubandalaginu. Hann fengi auð-
vitað ekki inni í Kvennalistanum en
hann væri örugglega hliðhollur þcim.“
■ Siv Friðleifsdóttir
alþingiskona
Skynsemdar-
menn og
Framsóknar-
flokkurinn
„Njáll á Bergþórshvoli. Hann er
skynsamur maður, ffiðarsinni og djúp-
hygginn að mínu viti. Og ekki veitti af
slfkum forsætisráðherra í dag; þó ég sé
ekki að segja að sá sem við höfúm sé
slæmur. Hann myndi reyna að koma
málum þannig fyrir að sem flestum og
helst öllum Islendingum gæti liðið vel
hér í landinu, hann myndi nota þessi
tækifæri sem við höfum upp á að
bjóða. Njáll var skynsamur maður og
ég held að það þurfi mjög skynsamt
fólk við stjómvölinn núna því það þarf
að taka margar erfiðar ákvarðanir.
Hann væri auðvitað í Framsóknar-
flokknum, það er engin spuming.
Svona skynsemdarmenn passa
vel þar - og em þar í dag.“
■ Sigurður Þálsson
rithöfundur
Thor við
borðsendann
„Fyrst flýgur mér í hug tiltölulega aug-
ljós kostur: Njáll á Bergþórshvoli.
Hann er ákaflega snjall að samrýnta
sjónarmið, en hefur samt ákveðnar
hugmyndir um hvað sé rétt. Af 20. öld-
inni dettur mér Ásmundur sýslumað-
ur í hug, aðalpersóna Grómosans eftir
Thor Vilhjálmsson. Hann hefur svo
skemmtilegt innra líf. En Thor þyrfti
eiginlega að vera þama með honum;
það væri upplagt ef Thor væri ritari rík-
isstjómarinnar og gæti hvíslað að Ás-
mundi. Báðar persónumar yrðu góðar í
að skrifa stjómarsáttmála; en um hvað
veit ég ekki. En ég vil endilega hafa
Thor við borðsendann til þess að hvísla
að Ásmundi - og jafhvel að Njáli líka.
Ekki síst til þess að fundimir yrðu ekki
allt of leiðinlegir. Svo datt mér í hug
spákonan á Holtinu í Eyjabókum
Einars Kárasonar. Hún myndi halda
uppi vemlegu Ijöri í landinu, það yrði
óvenjuleg ríkisstjóm og allar ffam-
kvæmdir á óeðlilegu nómnum - sem
myndu vekja athygli erlendis. Þetta
yrði ákaflega mikil Islandskynning;
ekki endilega góð, en mikil.“
■ Steinunn Valdís Óskarsdóttir
borgarfulltrúi
Kvenskörungur f
karlmannsheimi
„Guðrún Ósvífursdóttir sem var
kvenskörungur í karlmannsheimi. Hún
myndi pluma sig mjög vel sem forsæt-
isráðherra og ekki láta vaða neitt yfir
sig. Ég myndi kannski ekki mæla með
þeim aðferðum sem hún beitti f sam-
skiptum sínum við karlmenn - að
drepa þá [tegar hún fékk ekki sitt ffam
- en ég held að manneskja gædd sömu
staðfestu og hennar karakter var gædd-
ur myndi standa sig vel sem forsætis-
ráðherra. Að sjálfsögðu væri hún í
Kvennalistanum, það kemur
ekkert annað til greina."
■ Emilíana Torrini söngkona
Frekian hún
Hallgerður
„Hallgerður langbrók. Hún er svo
mikil ffekja. Hennar helsm steftiumál
yrðu þau að verða forseti - og það
myndi henni örugglega takast ef hún
beitir bara sömu brögðum og hún er
vön. Hún væri örugglega ekki í neinum
stjómmálaflokki, hún væri löngu búin
að stofna eigin baráttuhóp; sem berðist
fyrir því að fólk fengi að beija
hvem sem það vildi.“
■ Helgi Skúlason
leikari
Réttlæti og
húmanismi
„Ég held ég myndi treysta Róbert
Belford í Marmara best. Vegna
mikillar mannúðarstefhu. Hann er mik-
ill húmanisti, það er hans aðal eigind
að sjá í gegn um og beijast, til síðasta
blóðdropa síns, fyrir réttlæti og mann-
úð í heiminum. Hans stefnumál
yrðu réttlæti og húmanismi
gagnvart fólkinu." ■
Laus staða
á skrifstofu
Dagvistar barna
Starf fjármálastjóra á skrifstofu Dagvistar barna er
laust til umsóknar.
Starfið felst í daglegri stjórnun fjármála- og rekstrar-
sviðs.
Umsækjandi þarf að hafa:
• Menntun á sviði viðskipta og/eða hagfræði.
• Reynslu í fjárhagsáætlanagerð og skildum verk-
efnum.
• Þekking og reynsla í stjórnun og samskiptum.
• Áhuga til að takast á við ábyrgðarmikið starf í
stofnun þar sem fram fer viðamikil
endurskipulagning.
Umsóknum skal skilað á þartil gerðum eyðublöðum
sem fást á skrifstofu Dagvistar barna, Tryggvagötu
17, sími 552-7277.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bergur Felixson
framkvæmdastjóri kl. 10-12 daglega.
Umsóknarfrestur um starfið ertil 18. september.