Alþýðublaðið - 29.08.1995, Síða 8
\WEVFILL/
-jóó jj 22
Þridjudagur 29. ágúst 1995
129. tölublað - 76. árgangur
\WREVF/ÍZ/
-jó'ó jj 22
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
I gær kom út ný frönsk-íslensk orðabók sem hefur 25 mannár í vinnu að baki sér
ff
Fyrst og fremst hjálpartæki
if
- segir Páll Bragi Kristjónsson, framkvæmdastjóri Arnars og Orlygs, í samtali við Alþýðublaðið.
„Orðabókin er unnin aðallega með
fjárhagslegum stuðningi frá mennta-
málaráðuneytinu og franska sendiráð-
inu. Okkur þótti við hæfi að mennta-
málaráðherra og fulltrúa ffanska ríkis-
ins yrðu afhentar bækur á útgáfudeg-
inum,“ sagði Páll Bragi Kristjónsson
framkvæmdastjóri Arnar og Örlygs
Stéttin
erfyrsta
skrefið
inn...
Mifaðúrval
afhelum
og steinum.
Mjöggottverð.
STÉTT
HELLUSTEYPA
HYRJARHÖFÐI 8
112 REYKJAVÍK
SÍMI 577 1700-FAX 577 1701
hf. í samtali við Alþýðublaðið.
Frönsk-íslensk orðabók sem hefur
verið í vinnslu í íjögur ár kom út hjá
Emi og Örlygi í gær. Af því tilefni var
efnt til fundar í Rúgbrauðsgerðinni þar
sem Birni Bjarnasyni menntamála-
ráðherra og Jean-Luc Wertheimer
staðgengill franska sendiherrans á ís-
landi voru afhent eintök af bókinni.
Orðabókin er samstarfsverkefni
menntamálaráðuneytisins, franska
bókmenntasjóðsins, frönsku mála-
nefndarinnar, franska utanríkisráðu-
neytisins og forlagsins og hún var
unnin hjá orðabókadeild Amar og Ör-
lygs.
„Bókin er gmndvölluð á menning-
arsamningi íslands og Frakklands ffá
1986, og samningur um útgáfu orða-
bókar var undirritaður þegar Mitter-
and Frakklandsforseti kom í heim-
sókn til íslands árið 1990. Var það
gert á fundi hans með forseta Islands.
Vinnsla bókarinnar hófst svo í ársbyij-
un 1991 og lauk í júní á þessu ári,“
sagði Páll Bragi. Forlagið lenti á verk-
tímanum í alvarlegum fjárhagslegum
erfiðleikum og var þá verklokum og
útgáfu bókarinnar stefnt í voða. Hins
vegar tókust nýir samningar, með nýj-
um hluthöfum forlagsins, mennta-
málaráðuneytinu og ffanska sendiráð-
inu, sem leiddu til farsællar lausnar
málsins og útgáfu bókarinnar. Síðast
var frönsk-íslensk orðabók gefin út
fyrir 42 ámm.
Ritstjóri bókarinnar er Þór Stefáns-
Þór Stefánsson ritstjóri oröabókarinnar, Jean-Luc Wertheimer staðgengill
franska sendiherrans, Björn Bjarnason menntamálaráöherra og Páll Bragi
Kristjónsson framkvæmdastjóri Arnar og Örlygs með eintak af nýju
frönsku orðabókinni.
son frönskukennari og orðabókarrit-
stjóri forlagsins er Dóra Hafsteins-
dóttir. Ritstjóra bókarinnar telst svo
til að varlega megi áætla að 25 mann-
ámm hafí verið í verkið. Fransk- ís-
lenska orðabókin er tæpar 1.200 blað-
síður og telur 35.000 orð. Bókin er í
veglegu bandi, með hlífðarkápu og
kostar 9.790 krónur.
Bókin er byggð á orðabók frá
franska forlaginu Le Robert: Micro-
Robert, sem til er á tölvudiskum. í
þessari íslensku útgáfú orðabókarinnar
A- mynd: E.ÓI.
er nokkuð aukið við orðaforða Micro-
Robert, einkum skammstöfunum,
landaheitum, orðum úr viðskipta- og
tæknimáli og orðum sem varða ís-
lenska náttúm.
„Það er mjög vel til bókarinnar
vandað og hún er vel upp byggð, með
hljóðritunum, málfræðileiðbeiningum
og öllu slílcu. Bókin er auðvitað fyrst
og fremst hjálpartæki fyrir þá sem
vilja skrifa og tala, og gagnast bæði í
viðskiptum og menntun," sagði Páll
Bragi að lokum.
■ Óháð listahátíð í kvöld
„Maður var auðvitað poppari í gamla daga
a
- „Þetta eru fjörug lög sem
eiga það sameiginlegt að vera
ekki mikið torf, eins og fólk er
kannski vant að nútímatónlist
sé," segir Lárus Halldór
Grímsson tónskáld í samtali
við Alþýðublaðið.
„Fjögur verk af átta sem em á dag-
skrá í kvöld em eftir mig,“ sagði Lár-
us Halldór Grímsson tónskáld í sam-
tali við Alþýðublaðið. Eitt verk er eftir
Báru Grímsdóttur og svo em þrjú
erlend verk, eftir Paul Smadbeck,
David Ellis og Alice Gomez. Mín
verk em öll svo til ný, og eitt þeirra
verður frumflutt; The mission. Þetta
em fjörug lög, tónlistin er mjög rytm-
ísk og kraftmikil. Allt em þetta nú-
tímaverk, en þau eiga það sameigin-
legt að vera ekki mikið torf, eins og
fólk er kannski vant að nútímtónlist
sé.
Ég hef verið að semja tónlist síð-
ustu 10 til 15 ár; ég hef samið fyrir
leikhús og sjónvarp og svona allra
handa, svo spilaði ég djass með Súld-
inni - og maður var auðvitað poppari í
gamla daga, ég var í hljómsveitinni
Eik. Fyrir þremur ámm gaf Tónverka-
miðstöðin út geisladisk með verkum
mínum, en það var aðallega leikhús-
músík; úr Koss köngulóarkonunnar,
Þórir Jóhann'sson, Geir Rafnsson, Arna Kristín Einarsdóttir og Helga Bryndís Magn-
úsdóttir. Tónleikarnir hefjast i Iðnó klukkan 20:30 i kvöld. A-mynd: E.ÓI.
Hótel Þingvellir, svo eitthvað sé nefnt.
Þijú verka minna sem flutt verða í
kvöld em fyrir hljóðfæri og segulband
og eitt er fyrir sólópíanó. Það er al-
gengt form að semja fyrir hljóðfæri og
segulband, þá hafa menn elektrónísk
hljóð eða sömpluð á segulbandinu. Ég
Vinningstölur
26. ágúst 1995
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆ< Á HVERN VINNING
Qj Saf 5 0 13.339.440
g+4af5 3 319.600
3 4af 5 216 7.650
El 3af 5 7.106 540
A>altölur:
@©@
BÓNUSTALA:
Heildarupphæ> flessa viku:
kr.19.787.880
UPPI4SINGAR, SfMSVARt 91- 68 15 11
LUKKULlNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
lærði elektróníska músík í. Hollandi á
sínum tíma og þá datt ég niður á þetta
form, þó ég noti það ekki eins mikið í
seinni tíð. Óll verkin em samin á síð-
ustu þremur til fjómm árum og eitt
verður frumflutt. Bragðlauka og
Boom Boom at Berklee samdi ég fyrir
hljóðfæraleikara í Hollandi. The
mission er einnig tilkomið vegna
beiðni erlendis frá. Fyrst gerði ég verk
fyrir tvo sembala og rafmagnsbassa,
en svo tók ég verkið til endurskoðunar
og endurvann það og þetta nýja verk,
sem er fyrir tvö píanó og segulband, er
byggt á því fyrra. Farvegi samdi ég
sérstaklega fyrir Þorstein Gauta Sig-
urðsson píanóleikara fyrir nokkmm
ámm. Hann spilaði verkið í Tónvaka-
keppni Ríkisútvarpsins, sem hann
vann 1993.“
Hljóðfæraleikaramir á tónleikunum
í kvöld eru: Arna Kristín Einars-
dóttir flautuleikari, Geir Rafnsson
slagverksleikari, Þorsteinn Gauti
Sigurðsson, Danícl Þorsteinsson og
Helga Bryndís Magnúsdóttir píanó-
leikarar og Þórir Jóhannsson bassa-
leikari. Tónleikarnir hefjast í Iðnó
klukkan 20:30.
■ Góð afkoma
Skeljungs
Hagnaður
80 milljónir
Samkvæmt árshlutauppgjöri
Skeljungs fyrri hluta ársins nam
hagnaður félagsins 80 milljónum
króna á því tímabili. Allt árið í fýrra
var hagnaðurinn um 125 milljónir
króna.
Rekstrartekjur fyrstu sex mánuði
ársins námu samtals liðlega þremur
milljörðum króna en rekstrargjöld
tæpum 2,9 milljörðum. Hagnaður
fyrir fjánnagnsliði og skatta var 126
milljónir en sambærileg tala í fyrra
var 217 milljónir króna. Til að mæta
harðnandi samkeppni hefur Skelj-
ungur opnað tvær nýjar bensín-
stöðvar og unnið við endurbætur og
endurbyggingar á fimm bensín-
stöðvum. Fjárfestingar á fyrri hluta
ársins námu samtals 337 milljónum.
Eigið fé félagsins nemur nær 2,6
milljörðum króna. Arðsemi eigin
f)ái fýrstu sex mánuðina nemur um
6% en var 5% í fýrra. Heildareignir
nema 5,7 milljörðum en voru í árs-
lok 1994 liðlega 5,1 milljarður.
Síðustu þriðjudagstónleikar sum-
arsins í Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar verða í kvöld klukkan 20:30.
Margrét Kristjánsdóttir fiðluleikari
og Nína Margrét Grimsdóttir pí-
anóleikari flytja verk eftir Beethoven,
Clöru Schumann og L. Janácek
Margrét hefur verið fastráðin hjá Sin-
fóníuhljómsveit íslands frá 1993 og
hún kennirviðTónlistarskóla Kópa-
vogs. Nína Margrét er í doktorsnámi í
píanóleik í New York og starfar auk
þess við tónlistarskóla þar í borg. Þær
Margrét og Nína Margrét hafa starfað
saman um árabil og haldið tónleika
bæði í Reykjavík og New York...
Þriðjudagsgöngur í Viðey hafa ver-
ið vinsælar í sumar. í kvöld verður
gengið um norðurströndina frá eystri
túngarðinum sem er rétt austan við
Stofuna og yfir að þeim vestari en
hann liggur þvert yfir Eiðið sem teng-
ir Vesturey og Austurey. Farið verður
með Viðeyjarferjunni klukkan 20:00
og komið afturfyrir klukkan 20:30.
Nóg er af kúmenplöntum í Viðey sem
eru nú að þroska fræ og er fólki bent
á að taka með sér skæri til að klippa
sveipina af og þá er hægt að afla
kúmens í bakstur...
A rangursrík námstækni sem bætir
/\árangur í prófum heitir handbók
sem íslenska hugmyndasamsteypan
hefur gefið út. Bókin er eftir Michéle
Brown, Sigurður Þór Salvarsson
þýddi. Bókin er um þau atriði sem eru
öllum námsmönnum sameiginleg;
það er að ná betri árangri í náminu. Á
95 blaðsíðum er fjallað um val á rétt-
um námsgreinum, skipulagðar náms-
venjur, einbeitingu, hraðlestur, glósu-
tækni, próftækni, prófkvíða, upprifj-
unartækni, ritgerðavinnu, heimildaleit
og fleira...
Kvikmynd Friðriks Þórs Friðriks-
sonar, Á köldum kiaka deildi
fyrsta sætinu með The Yong Poison-
ers Handbook eftir Benjamin Ross í
keppni um Rosebud- verðlaunin á al-
þjóðlegri kvikmyndahátíð í Edinborg.
Verðlaunin draga nafn sitt af frægu
kvikmyndasögulegu tákni í Citizen
Kane eftir Orson Welles, en þetta er
í fyrsta skipti sem þau eru veitt. Sam-
kvæmt fréttatilkynningu frá Edinborg-
arhátíðinni er verðlaununum ætlað
að verða „meðal þeirra eftirsóttustu í
heiminum." Á annað hundrað kvik-
myndir í fullri lengd og fjöldi stutt-
mynda hvaðanæva úr heiminum
tóku þátt i keppninni. Rosebud-verð-
launin eru veitt leikstjóra sem þykir
hafa „sýnt framúrskarandi hæfileika í
beitingu myndmiðilsins" með kvik-
mynd sem er „óvenjuleg nýsköpun
og utan alfaraleiðar"...