Alþýðublaðið - 23.11.1995, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 23.11.1995, Blaðsíða 10
HELGIN 23.-26. NÓVEMBER 1995 Morgunblaðið „Meö ritun þessarar bókar tókst Isabel Allende aö gera mesta harmleik lífs síns aö einum stærsta listræna sigri sínum. (...) Mesti styrkleiki þessa verks er sterk persónusköpun, ásamt tilfinningaríkri tjáningu, sem brýst fram á svo einlægan og sann-. færandi hátt að lesandinn kemst ekki hjá því aö vera gagntekinn af verkinu. Þetta er ein þeirra bóka sem menn gefast ekki upp á aö lesa. Þetta er bók sem heldur mönnum viö efnið, ekki einungis á meðan þeir lesa hana heldur einnig í þó nokkurn tíma eftir lesturinn." Kolbrún Bergþórsdóttir, Alþýðublaðinu „Þetta verk er mikil veisla sannfræði og skáldskapar sem saman mynda heilsteypt listaverk. Hér gefur að líta flest - ef ekki allt - það sem gott skáldverk hefur af að státa: Óduldar tilfinningar, litríkar lýsingar mannlífs og náttúru, ógleymanlegar persónu- lýsingar, hreinskilni og hispursleysi, allt samofið í listrænni fágun.“ Ólína Þorvarðardóttir, Morgunblaðinu Starfsemi Kaffileikhússins í Hlað- varpanum blómstrar um þessar mundir. Sagnakvöld, leiksýningar og tónleikar eru flest kvöld í viku og dagskráin jafnan metnaðarfull og áhugaverð. Næsta verkefni leikhúss- ins verður uppfærsla á tveimur ein- þáttungum. Þar mun Þórhildur Þor- leifsdóttir leikstýra manni sínum, Arnari Jónssyni, í verkum eftir Franz Kafka og Ólaf Hauk Sím- onarson. Einþáttungur Kafka heitir Fyrirlestur fyrir akademíu, og er meðal annars athyglisverður fyrir það, að leikarinn fullyrðir að hann sé api. Ólafur Haukur mun vera að leggja lokahönd á sinn einþáttung sem hann semur sérstaklega fyrir Arnar. í Kaffileikhúsinu hefur verið mörkuð sú stefna að gefa öndvegis- leikurum okkar kost á að takast á við verkefni að eigin vali. Eftir áramót verða sérstakarsýningar með leikur- um á-borð við Guðrúnu Gísladótt- ur, Kristbjörgu Kjeld og Ólafíu Hrönn Jónsdóttur... Kvennalistakonur eru að vonum lítt ánægðar með landsfund sinn, enda samdóma álit allra fjöl- miðla að hann hafi misheppnast al- gerlega og skaðað flokkinn. Þeim öflum vex fiskur um hrygg í Kvenna- listanum sem vilja samstarf á vinstri- væng, en til skamms tíma var slík umræða svo gott sem bönnuð innan flokksins. Konur í Reykjavík, sérstak- lega í yngri kantinum, eru hinsvegar að velta af sér flokksklafanum, eins- og meðal annars kom fram hjá Steinunni V. Óskarsdóttur borg- arfulltrúa á landsfundinum. Hún er áhugasöm um viðræður á vinstri- væng, rétt einsog Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri. „Flokkseig- endur" Kvennó eru hinsvegar óhressir með þessa þróun mála og vilja ekki fórna pólitísku skírlífi sam- takanna á altari sameiningar. Innan Kvennalistans gengur þessi flokks- eigendahópur undir nafninu dauða loppan - og segir kannski það sem segja þarf... Inæstirviku mun góðkunnur stjórn- málaskýrandi undirrita drengskap- arheit að stjórnarskránni: Mörður Árnason varaþingmaður Þjóðvaka tekursæti Jóhönnu Sigurðardótt- ur í tvær vikur eða svo. Mörður hef- ur síðasta árið grillað flesta stjórn- málamenn landsins ásamt Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni í þætti þeirra á Stöð 2. Það verður því gam- an að fylgjast með okkar manni - svona hinumegin borðsins. Við ef- umst ekki um að gömul og ný fórn- arlömb Marðartaki vel á móti hon- um... Vinnsla Bókatíðinda, sem Félag íslenskra bókaútgefenda gefur út, er vel á veg komin. Þar verða auglýstar um 330 bækur og er það svipað og á síðasta ári. Talsverðar sveiflur eru hinsvegar milli einstakra bókaflokka. Þannig eru nú mun færri ævi- sögur og endurminn- ingar gefnar út en síðast- liðin ár, skáldsögur eru einnig til muna færri en Ijóðabók- „ H % um snarfjölgar. Samkeppnin á ævi- sagnamarkaðinum verður samt spennandi að venju. Flestir veðja á að bók Ingólfs Margeirssonar um Maríu Guðmundsdóttur fyrirsætu verði metsölubókin í ár. Aðrar bæk- ur sem búist er við að seljist vel eru ævisaga Vilhjálms Stefánssonar landkönnuðar og endurminningar Valdimars Jóhannssonar sem Gylfi Gröndal skráir. Ingólfur og Gylfi eru báðir fyrrum ritstjórar Al- þýðublaðsins og einn til úr þeim hópi gefur líka út bók: Guðmundur Árni Stefánsson sem hefur nú lok- ið viðtalsbók við brottflutta íslend- inga... Inýlegu tölublaði Viðskiptablaðsins erfróðleg úttekt á umsvifum bandaríska hersins á íslandi, og þeim tekjum sem herinn skilar í þjóðarbúið. Blaðið reiknar út að á tíu árum, 1985-1994, hafi íslendingar haft 92 milljarða í tekjur af varnarlið- inu, en það samsvarar 340 þúsund krónum á hvern íslending. Viðskipta- blaðið bendir á, að tekjur af hernum jafngilda heilu álvéri... Talsverður kurr er meðal rithöf- unda, ekki síst þeirra sem nú senda frá sér bækur, vegna bók- menntagagnrýni Súsönnu Svav- arsdóttur í Dagsljósi. Súsanna sendi nýverið frá sér umtalað smá- sagnasafn og er því í ríkisfjölmiðlin- um að fjalla um verk keppinauta sinna. Ekki bætir úr skák að flestum finnst að Súsönnu hafi heldur dapr- astflugið um menningarumfjöllun síðan veldi hennar á Morgunblaðinu reis hæst. En rithöfundarnir sem eiga bækur í jólaflóðinu verða bara að bíða og sjá, hvernig útreið þeir fá hjá Súsönnu. Löglegt en siðlaust, sagði eitt úfið skáld við okkur um þessa tilhögun...

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.