Alþýðublaðið - 23.11.1995, Blaðsíða 12
12
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
HELGIN 23.-26. NÓVEMBER 1995
§
Ungir jafnaðarmenn kynna:
Stórfundur á efri hæð
Sólon íslandus, miðvikudagskvöldið
29. nóvember klukkan 20:30.
Stjórna prófkjör
verkum þingmanna?
Framsögumenn:
Margrét Frímansdóttir
formaður Alþýðubandalagsins.
Jón Baldvin Hannibalsson
formaður Alþýðuflokksins.
Gestur G. Gestsson
stjórnmálafræðingur
Láta þingmenn stjórnast af vinsældum
frekaren hugsjónum?
Hefur starfsemi þingsins breyst?
Er hægt að greina mun á milli starfa
„prófkjörsþingmanna" annarsvegar og
„flokksþingmanna" hinsvegar?
Spennandi umræður, f jölmennum
Málstofa um stjórnskipan
Flug og hótel kr. 19.930
Viðbótargisting á hinu ágæta ráðstefnuhóteli Earls Court sem við
bjóðum nú á frábæru verði í þessa brottför. Gott hótel með öllum
aðbúnaði. Öll herbergi með sjónvarpi, síma, baði og buxnapressu.
Veitingasalir, barir og fundaaðstaða.
Síðustu sætin til London í vetur
Verð 16.930 kr.
Verð með flugvallarsköttum, 27. nóv.
Verð 19.930 kr.
^ M.v. 2 í herbergi, Earls Court, 3 nætur, 27. nóv.
r yerð með flugvallarsköttum.
WM mm
f 'V-\
•. f 'á
30. nov.
Vimmtudagur
ti\ sunnudag •
HEIMSFERÐIR
. r >7
Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 562 4600.
IEinsog titill bókarinnar gefur til kynna hefur á stundum gustað um
Valdimar. Hann er í hópi sárafárra íslendinga sem dæmdir hafa verið
fyrir landráð, en í Ijósi sögunnar var dómurinn stórfurðulegur.
Þegar jólunum lýkur
á Þorláksmessu
Gylfi Gröndal:
Ég skrifaði mig í tugthúsið
Valdimar Jóhannsson bókaút
gefandi segir frá
Forlagið 1995
Þegar búðir lokuðu á Þorláksmessu
dæsti úrvinda bókaútgefandi: Jæja, þá
eru jólin búin! Þessari yfirlýsingu
Valdimars Jóhannssonar var skiljan-
lega tekið með litlum fögnuði af fjöl-
skyldunni sem stóð í þeirri trú að jólin
væru einmitt að ganga í garð.
Valdimar Jóhannsson var í áratugi
umsvifamikill útgefandi. Hann stofn-
aði Iðunni og rak fyrirtækið einsamall
framanaf, hafði afdrep fyrir það í dá-
lítilli skonsu. Iðunni óx fljótlega fiskur
um hrygg og var um tíma öflugasta
bókaforlag landsins. Þar lagðist allt á
eitt: Útsjónarsemi Valdimars, vænn
skammtur af heppni og höfundar sem
ýmist öfluðu Iðunni virðingar (Hannes
Pétursson) eða skófluðu inn peningum
(Alistair McLean).
Tilviljun réði mestu um að Valdi-
mar helgaði sig bókaútgáfu. Framan
af starfaði hann meðal annars við
blaðamennsku, og í bókinni er að
finna bráðskemmtilega frásögn af því
þegar hann var um skeið blaðamaður
á Alþýðublaðinu. Þá er ekki laust við
að hrollur fari um lesanda þegar hann
setur sig í spor Valdimars þegar hann
hóf störf á Nýja dagblaðinu, málgagni
Framsóknar: Fyrsta daginn kom í ljós
að Valdimar var eini blaðamaðurinn á
vakt og þurfti að skrifa blaðið frá upp-
hafi til enda, forystugrein meðtalin.
Einsog titill bókarinnar gefur til
kynna hefur á stundum gustað um
Valdimar. Hann er í hópi sárafárra ís-
lendinga sem dæmdir hafa verið fyrir
landráð, en í ljósi sögunnar var dóm-
urinn stórfurðulegur. Haustið 1941
skrifaði Valdimar grein í blað sem
hann gaf út og ritstýrði, Þjóðólf, þar-
sem hann gagnrýndi harkalega ný-
gerðan fisksölusamning við Breta.
Breska hemámsliðið brást ókvæða við
og krafðist þess að íslensk stjómvöld
þögguðu niður í þessum vandræða-
manni. Valdimar var þessvegna
dæmdur í tugthús og var í fjórar vikur
innanbúðarmaður í Hegningarhúsinu.
Þegar heimsstríðinu lauk 1945 áttu
flestir íslendingar, hvar í flokki sem
þeir stóðu, þá ósk heitasta að erlenda
herliðið hyríi úr landi sem fyrst. Óskir
Bandaríkjamanna um bækistöðvar á
íslandi vöktu úlfaþyt og deilur - og
sprengdu nýsköpunarstjórnina - og
næstu ár var hart tekist á um þessi
mál. Valdimar var einarður andstæð-
ingur eriendra herstöðva á íslandi og
frá þeirri baráttu er margt sagt og for-
vitnilegt. Hann varð formaður Þjóð-
varnarflokksins sem stofnaður var
gagngert til andófs gegn vem banda-
ríska hersins á íslandi. Þjóðvarnar-
flokkurinn náði þeim óvænta árangri í
kosningunum 1953 að fá tvo menn
kjörna á Alþingi. Annar þeirra var
Gils Guðmundsson sem síðar sat um
árabil á þingi fyrir Alþýðubandalagið,
en var auk þess náinn samverkamaður
Valdimars í útgáfumálum. Frásögn
Valdimars af Þjóðvamarflokknum er
mjög athyglisverð fyrir áhugamenn
um pólitík, enda hefur ekki margt ver-
ið skrifað um þennan skammlífa en
sumpart áhrifaríka stjómmálaflokk.
Helstu afrek og viðfangsefni Valdi-
mars vom þó ekki á vettvangi stjóm-
mála. Hann stofnaði Iðunni 1945 og
fyrirtækið fagnar því hálfrar aldar af-
mæli á þessu ári. Stríðsgróðinn varð
meðal annars til þess að bókaútgáfa
tók mikinn fjörkipp: bókum fjölgaði
til muna og þær vom í alla staði veg-
legri en áður. Valdimar hefði því ekki
getað byrjað á betri tíma, en næstu
áratugi skiptust á skin og skúrir: eitt
árið máttu útgefendur una því að bók-
sala snarminnkaði af því skyrtur kom-
ust í tísku sem jólagjaílr.
Valdimar Jóhannsson kemur les-
endum fyrir sjónir sem harðduglegur
vinnuþjarkur, blátt áfram í mannleg-
um samskiptum en jafnframt frekar
dulur. Einkamál em ekki borin á torg í
bókinni: ekkert er sagt frá stormasöm-
um viðskilnaði feðganna Jóhanns Páls
og Valdimars en þeir höfðu unnið
saman að uppbyggingu Iðunnar, og
átti Jóhann Páll sinn hlut óskiptan í
því að gera fyrirtækið að stórveldi.
En hvað um það. Gylfi Gröndal
hefur unnið framúrskarandi verk:
púslað saman heimildum af ýmsu tagi
og viðtölum við Valdimar af natni og
trúnaði við söguhetju sína. Frásögnin
er oft og tíðum stórfróðleg og margir
kunnir menn koma við sögu.
Valdimar hefur fyrir nokkm dregið
sig útúr amstri hversdagsins enda átt
við veikindi að stríða síðustu ár. Hann
hefur skilað drjúgu dagsverki og getur
þessvegna leyft sér að halda jólin á
jólunum. ■
Einar Már Guðmundsson
Ekki tala um
stórar þjóðir og litlar þjóðir
útkjálka, heimshorn og jaðra.
Þetta er hnöttur; miðjan
hvílir undir iljum þínum
og færist úr stað og eltir
þig hvert sem þú ferð
Ljóðið er úr nýrri Ijóðabók skáldsins iauga óreiðunnar.