Alþýðublaðið - 23.11.1995, Síða 20
Helgin 23.- 26. nóvember 1995
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
MPBUBLMÐ
■ Ný lög við Ijóð Tómasar Guðmundssonar
Ljóðið gefur mér lagið
-segir Þormar Ingimarsson sem er höfundar laganna.
,,Það eru ein tíu ár frá því að lög við
ljóð Tómasar Guðmundssunar fóru
að hlaðast upp í huga mér. Eftir því
sem ég kynnist ljóðum Tómasi meira
verð ég æ hrifnari af þeim. Vonandi
verður þessi útgáfa til þess að fleiri
kynni sér ljóð hans og að til dæmis
böm eigi þess kost að syngja ljóðin.
En þessi plata er fyrir aldurslausan
markað því hún hentar öllum,“ sagði
Þormar Ingimarsson í samtali við
Alþýðublaðið. Ut er komin hljómdisk-
urinn Sundin blá með lögum Þormars
við ýmis ljóð Tómasar. Þar má nefna /
Vesturbœnum, Japanskt Ijóð, Við
höfnina og Kvœðið um pennann.
Þekktir tónlistarmenn leika undir og
söngvarar em Ari Jónsson, Björgvin
179. tölublað - 76. árgangur
SUNDIN BLÁ
tCO i>C*UARS IMGIMARSS3MAH
VICIJC9 rðUASAR GJÐVJRjSSaAA*
Halldórsson, Ríó tríó, Guðrún
Gunnarsdóttir, Guðrún Óla Jóns-
dóttir og Pálmi Gunnarsson. „Ljóð
Tómasar er menningararfur sem ber
að varðveita og útbreiða til komandi
kynslóða. Ég bý til tónlistina út frá
stemmningu ljóðsins og það er ljóðið
sem gefur mér lagið. Tómas er því
kjaminn í þessu og síðan valdi ég allra
bestu tónlistarmenn til að koma lögum
til skila á þessum geisladiski og þá
söngvara sem mér fannst hæfa hveiju
lagi fyrir sig. Hugsunin var því að
halda gæðunum allt til enda og ég er
mjög ánægður með útkomuna," sagði
Þormar Ingimarsson.
Utgefandi er Hófaljón en Skífan sér
um dreifingu.
FJÖLSKYLDUDAGAR Á HORNI TRYGGVAGÖTU OG PÓSTHÚSSTRÆTI
THERN
rRIEi
CHICKEN
AVir
ar fái 9
Tumi Magnússon opnar um helg-
ina sýningu á verkum sínum í Ás-
mundarsal.
Tumi í
r
Asmundarsal
Laugardaginn 25. nóvember verður
opnuð sýning á málverkum eftir
Tuma Magnússon í Ásmundarsal við
Freyjugötu. Verkin á þessari sýningu
eru olíumálverk unnin með sprautu-
tækni á striga og sækja litina og nöfn-
in til ýmissa þeirra efna sem umheim-
urinn er samsettur úr. Sýningin stend-
ur til 10. desember og mun vera síð-
asta sýningin sem er setit upp í þessum
gamalgróna sýningarsal.
■ Aðalfundur Leigjenda-
samtakanna
Skatti af hús-
leigubótum
mótmælt
Alþýðublaðinu hefur borist álykt-
un frá aðalfundi Leigjendasamtak-
anna sem haldinn var um síðustu
helgi. Ályktunin fer hér á eftir í
heild: „Aðalfundur Leigjendasam-
takanna haldinn að Lögbergi, húsi
lögfræðideildar Háskóla fslands, 18
nóvember 1995 mótmælir stað-
greiðsluskatti af húsaleigubótum
sem ákveðinn var með reglugerðar-
breytingu síðastliðið sumar. Breyt-
ingin rýrir gildi bótanna og ruglar
greiðslu áætlunum leigjenda, en
bætir lítið hag ríkissjóðs. Þá mót-
mælir fundurinn mismunun fólks
eftir búsetu er sveitarfélög ráða
sjálf hvort þau greiða út bæturnar.
Fundurínn mótmælir einnig því að
fólki skuli mismunað eftir eigna-
formum húsnæðis, er húsaleigubæt-
ur eru skattlagðar en vaxtabætur til
húseigenda ekki. Allir greiða til
samfélagsins eftir sömu reglum og
ættu því að fá þaðan eftir sömu
reglum. Fundurinn skorar á ráða-
menn að viðurkenna að Ieiguhús-
næði er fullgilt og eðlilegt rekstrar-
form íbúðarhúsnæðis og koma hér
á einu húsnæðisbótakerfi þar sem
ailir eiga sama rétt“
■ Málþing í Lögbergi
Jafnt vægi
atkvæða
Á laugardaginn stendur Mannrétt-
indastofnun Háskóla íslands íyrir mál-
þingi. Til umræðu er spumingin: Er
jafnt vœgi atkvœða mannréttindi?.
Málþingið fer fram í stofu 101 í Lög-
bergi og hefst klukkan 13.30.
Frummælendur á málþinginu eru
Atli Harðarson heimspekingur, Jón
Baldvin Hannibalsson alþingismað-
ur, Ólafur Þ. Þórðarson fyrrverandi
alþingismaður og Sigurður Líndal
prófessor. Að loknum fyrirlestrum
verða almennar umræður.