Alþýðublaðið - 26.01.1996, Page 3

Alþýðublaðið - 26.01.1996, Page 3
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 s k o d a n i r Verkalýðshreyfing í vanda I öðru lagi leiddu þessar kosningar í Ijós hversu skipulag og starfshættir verkalýðsfé- laganna eru andlýðræðislegir. Verður ekki betur séð en að alræði öreiganna hafi snúist upp í andhverfu sína, alræði foringjanna, forréttindastéttarinnar. í dag heldur verkamannafélagið Dagsbrún upp á níutíu ára afmæli sitt. Astæða er til að óska félaginu til ham- ingju með þennan áfanga. Vegna ný afstaðina kosninga til stjómar og trún- Pallborðið Arnór Benónýsson skrifar aðarmannaráðs, hefur kastljós fjöl- miðlanna beinst að félaginu síðustu vikumar. Þessar kosningar voru um margt mjög lærdómsríkar og í þeim kristallaðist sá vandi sem verkalýðs- hreyfingin stendur frammi fyrir á þessum síðustu og verstu tfmum. Fyrir það fyrsta var kosningabarátt- an afar hörð og óvægin, raunar svo að ekki er ljóst á þessari stundu hvort gróa muni um heilt. An þess að hafðar séu uppi nokkrar slæmar óskir getur þessi ágreiningur varla komið á óvart. Það virðist nefnilega vera hluti af vanda hinna stóm verkalýðsfélaga að innan þeir hefur með breyttu samfé- lagi komið upp sterkur vísir að stétta- skiptingu, og þau standa frammi fyrir því að þurfa að gæta ólíkra hagsmuna. I slíkri stöðu er alltaf hætt við að upp komi ágreiningur og einhveijum hópi finnist sinn hlutur fyrir borð borinn. Hlutverk verkalýðshreyfingarinnar í hinu marg umrædda velferðarkerfi er líka stórt og hefur farið vaxandi á und- anförnum árum. Því hafa félögin breyst í nokkurs konar þjónustustofn- anir og grundvallar stefnumálin lent í útideyðu og átök undangenginna missera hafa raunar sýnt fram á van- mátt þeirra er til hinnar harðsnúnu launabaráttu kemur. Það er líka ein- kénnileg staða fyrir Verkalýðshreyf- inguna að vera orðin stærsti fjár- magnseigandi í landinu, með lífeyris- sjóði sem telja hátt í þrjúhundruð milljarða. Vaxandi kaup lífeyrissjóð- anna á hlutabréfum í fyrirtækjum hafa sett verkalýðsleiðtogana í sérkenni- lega stöðu, sem stjómarmenn í sjóð- unum er þeirn annt um að fyrirtækin skili sem mestum arði, en á hinn bóg- inn ber þeim sem leiðtogum launþeg- anna að beijast fyrir sem bestum kjör- um. Þótt þetta geti án efa farið saman í sumum tilfellum, verður að teljast ein- kennilegt að verkalýðsleiðtogamir sitji með þessum hætti ekki aðeins báðum megin við borðið heldur hringinn í kringum það. I öðm lagi leiddu þessar kosningar í ljós hversu skipulag og starfshættir verkalýðsfélaganna em andlýðræðis- legir. Verður ekki betur séð en að al- ræði öreiganna hafi snúist upp í and- hverfu sína, alræði foringjanna, for- réttindastéttarinnar. Víst var lífið ein- faldara í gamla daga, þegar menn vom annað hvort hvítliðar eða rauðliðar. Nýkjörinn stjóm Dagsbrúnar hafði uppi í kosningabaráttunni stór orð um að breyta lögum félagsins og raunar áherslum öllum, nú er bara að vona að ekki verði látið sitja við orðin tóm. En það eru fleiri tímamót í sögu Dagsbrúnar heldur en afmælið eitt. Guðmundur J, Guðmundsson er að láta af störfum sem formaður. Hvaða álit sem menn hafa á Jakanum verður því ekki á móti mælt að með honum hverfur af vígvellinum einhver litrík- asti og reyndasti foringinn. Maður sem hefur sett mark sitt á verkaíýðs- baráttuna undanfama áratugi, síðasti bardagamaðurinn sem bar með sér eldmóð fmmherjanna. Nú blasir við að verkalýðshreyfingin lendi í hönd- um trölla og „hagfræðingastóðsins" en þessi aldni foringi hefur hvað eftir annað lýst áhyggjum sínum af þeirri þróun sem átt hefur sér stað í hreyf- ingunni. Sem gengur eins og hver önnur eilífðarvél og báknið virðist lifa sjálfstæðu lífi óháð þeim einstakling- um sem við það starfa. Kannski má segja um Guðmund J. að hann hafi hin síðustu ár orðið fómarlamb báknsins, en eftir stendur að hann skilur þarfir lítilmagnans af tilfinningu þess sem sjálfur hefur reynt. Það er meira en sagt verður um marga af verkalýðs- rekendum nútímans. JÓN ÓSKAR v i t i m e n n Það yrði vitaskuld heimsfrétt, ef íslenskur ritstjóri yrði ákærður fyrir að kalla Jeltsín róna og bar- átta Jónasar gegn áfengis- bölinu fengi í leiðinni alþjóð- lega skírskotun. Garri í Tímanum í gær. Ég hef alltaf verið áhugasamur um Jóhönnu. Gallinn er sá að hún hefur ekki viljað mig. Svavar Gestsson í Tímanum í gær. Það er stundum meira mark tekið á Reykjavíkur- bréfi Morgunbiaðsins en kvennalistakonum, þótt þær hafi margt gott fram að færa. Kristín Halldórsdóttir þingkona. Mogginn í gær. í þjóðfélaginu vaða uppi alls kyns „heilarar“, sem lofa fólki lækningu við líkamlegum sem andlegum kvillum, frá þvagteppu að ástarsorg. Árni B]örnsson læknir í Morgunblaöinu í gær. Eftir allar hremmingarnar, sem Vesturlönd hafa sætt í Bosníu vegna heimsku og heigulsháttar fyrri umboðs- manna sinna, er nauðsynlegt að fylgja friðinum eftir. Jónas Kristjánsson í leiðara DV í gær. Besti forsetinn og sennilega sá eini sem allir gætu sætt sig við er enginn forseti, það er að embættið verði lagt niður. Glúmur Jón Björnsson. DV í gær. fréttaskot úr fortíð Er tréð morðingi? Fyrir nokkru síðan fannst lík af manni í miðaldabúningi í holum eik- arstofni skammt ifá þorpi einu. Sverðið, sem var við hliðina á beina- grindinni, var orðið svo ryðgað að það datt í sundur þegar snert var á því. Menn halda helst að maðurinn haft flúið inn í öjástofninn undan féndum sínum og ekki komist út aft- ur. Hafi hann því dáið úr hungri. Alþýðublaðið sunnudaginn 7. júní1936 h i n u m e g i n "FarSide" eftir Gary Larson Inýjasta tölublaði Viðskiptablaðs- ins kemur fram að skiptum á þrotabúi Blaðs hf. lauk með skiptafundi 8. september síðast- liðin. Blað hf. sem var í eigu Friðriks Friðrikssonar, var útgefandi að Pressunni þar til um áramótin 93/94. Engar eignir fundust í þrotabúi fyrirtækisins en lýstar kröfur voru að upphæð 29.859.271 auk vaxta og kostn- aðar. Islensku bók- menntaverð- launin verða afhent við at- höfn í Lista- safni íslands *'mz ' s * ' V • M " *■ X næstkom- andi mánu- dag. Við höfum eftir áreiðanleg- um heimild- um að Steinunn Sigurðar- dóttir rit- höfundur hljóti verð- launin í flokki fagur- bókmennta fyrir skáld- sögu sína Hjartastaður. í flokki fræðirita veðja spekingar á Ströndina eftir Guðmund P. Ól- afsson. Báðar bækurn- ar eru gefnar út af Máli og menningu. s r,^k ‘l' lirí HÖ Þaö var vel kunn staðreynd að sauðfjártegundin, sem ræktuð er vegna stálullarinnar sem hún gefur af sér, á enga náttúrulega óvini. fimm á förnu j Hvaða ár var Alþýðuflokkurinn stofnaður? Björn Karlsson leiksviðs- Sólveig Hólmarsdóttir stjóri: Það var árið 1913. nemi: 1914. Brynjólfur Björnsson Sigríður Ármansdóttir Árni Björnsson nemi: 1916. verslunarmaður: árið 1916. nemi: í mars 1916.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.