Alþýðublaðið - 13.02.1996, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n
Nesjavellir góöur virkjunarkostur
fyrir Reykvíkinga
En einokun Landsvirkjunar kemur í veg fyrir
að Reykjavík geti nýtt sér hagkvæman virkj-
unarkost sem nú er völ á, það er virkjun á
Nesjavöllum. Það er stórhagsmunamál fyrir
Reykvíkinga að geta nýtt sér þessa auðlind
sem við eigum.
Þarft er að taka upp umræðu um
breytingar á skipulagi raforkumála í
landinu í heild.
Landsvirkjun er langstærsti fram-
leiðándi og heildsöluaðili á raforku
með einkarétt til sölu nú á nánast öllu
landinu. Samkvæmt lögum ber Lands-
Pallborð |
virkjun að selja raforku á jafnaðar-
verði alls staðar á landinu. (Fyrirtækið
er stórt og ekki verður betur séð en
jm' sé vel stjórnað). En einokun
Landsvirkjunar kemur í veg fyrir að
Reýkjayík geti nýtt sér hagkvæman
virkjunarkost sem nú er völ á, það er
virkjun á Nesjavöllum. Það er stór-
hagsniunamál fyrir Reykvíkinga að
geta nýtt sér þessa auðlind sem við
eigurn. Talið er að framleiðslukostn-
aður rafmágns frá orkuveri þar sé um
■\ í nfdls á kW-stund en meðalverð
•Laúdsvjrkjunar til almenningsveitna
er'áætlað árið 1996, 38,7 mills á kW-
stund en það er meira en þrefalt hærra
verð. Þetta mill er verðeining sem not-
uð er þegar rætt er um orkusölu til
stóriðju (1/1000 úr USD). Kannski
ættum við frekar að tala um að orku-
verð frá Nesjavöllum sé u.þ.b. 0,75
kr./kW-stund en frá Landsvirkjun
u.þ.b. 2,50 kr./kW-stund. Ýmsir hlutir
eru til að raska þessum tölum, meðal
annars kostnaður við flutningslínur,
hvort um er að ræða forgangsorku eða
ekki .o.s.frv. og hef ég alla fyrirvara á
því- Mismunurinn gæti verið hátt í
mil|jarður króna Reykvíkingum í hag
á ári. Þetta er rúmlega 50% meira en
holræsagjaldið fræga gefur í tekjur og
það er svipað og öll útgjöld borgarinn-
ar til skipulags- og byggingamála, -
bruna- og almannavama og svo menn-
ingarmála til viðbótar.
Af þessu má sjá að þetta er ekki
smáræðis hagsmunamál fyrir Reyk-
víkinga. Á hitt ber líka að líta að ekki
má gleyma skuldbindingum okkar um
orkukaup frá Landsvirkjun. Við þau
orkukaup Reykvíkinga er rekstur og
íjárfestingar Landsvirkjunar miðuð og
segja má að hafi verið hagkvæmur
kostur áður en möguleikamir á Nesja-
völlum opnuðust. Fordæmi er um að
sveitarfélög hafi fengið sérstaka heim-
ild til að nýta ódýra virkjunarkosti í
héraði, þ.e. undanþágu lfá lögum urn
Landsvirkjun. Má þar nefna raforku-
verðið í Svartsengi sem skilar Hita-
veitu Suðumesja ódýrri raforku, Suð-
urnesjabúum til góða og ekki má
gleyma Andakílsárvirkjun, sem hefur
lengi skilað mjög ódýrri orku til íbúa
Borgarfjarðar. En þegar borgarstjórinn
í Reykjavík ljær máls á því að nýta
ódýra virkjunarkosti fyrir Reykvfk-
inga er jafnvel talað um stundarhags-
muni og þrönga sérhagsmuni Reyk-
víkinga. Munurinn á Reykjavík og
öðram sveitarfélögum sem ég nefndi
er að Reykjavík er stór, og getur ekki
leyft sér hentistefnusjónarmið hvað
svo sem hver segir og svo mun ekki
heldur verða.
En Landsvirkjun á ltka nokkra góða
virkjunarkosti, einkum á hálendinu,
þar sem raforka mun fást fyrir svipað
verð eða minna en frá Nesjavöllum.
Þeir kostir munu samt ekki nýtast til
mikillar orkuverðslækkunar alveg á
næstunni, því hamla m.a. lögin um
jafnaðarverð. Mikið er nú rætt um
möguleika á nýju álveri og hafa menn
rætt um Grandartanga sem heppilega
staðsetningu. Ef af því verður þarf
Landsvirkjun að útvega mikla raforku
fyrir árið 1997. Þrátt fyrir marga hag-
kvæma virkjunarkosti Landsvirkjunar
er nánast eini virkjunarmöguleikinn,
sem getur skilað nógu mikilli raforku
nógu fljótt að virkja gufuafl. Þá er
virkjun á Nesjavöllum nærtækasti
kosturinn. Eg tel sjálfsagt að Reykja-
víkurborg semji við Landsvirkjun um
nýtingu Nesjavalla bæði með hags-
muni Landsvirkjunar og Reykvíkinga
í huga. I mjög einföldu formi gæti
þetta litið þannig út að Reykvíkingar
virkjuðu á Nesjavöllum, en Lands-
virkjun seldi hluta þeirrar orku sem
Reykjavík kaupir nú til stóriðju. Þá er
bara spuming um verð og hagkvæmni
virkjana Landsvirkjunar síðar. Því ber
að fagna að nú er loksins hafin um-
ræða um breytt skipulag orkumála á
íslandi. Slík umræða hefur um langt
skeið verið nánast tabú þ.e. enginn
hefur vogað sér að tala um slíkt. Það
má líta á þetta greinarkorn sem inn-
legg í slíka urnræðu. En þegar mögu-
leikar á orkufrekum iðnaði til framtíð-
ar og virkjanir honum samfara eru
skoðaðir er nú svo sannarlega tími til
kominn að taka tillit til hagsmuna
Reykvíkinga.
Höfundur er í stjórn Landsvirkjunar
fyrir Reykjavíkurborg.
v i t i m e n n
Það ætti auðvitað öllum að
vera ljóst að sami maður gegn-
ir ekki embætti forsætisráð-
herra og forseta. Það Iiggur
síðan ljóst fyrir að ef forsætis-
ráðherra fer í forsetaframboð
þarf að mynda hér nýja stjórn.
Halldór Ásgrímsson formaður Framsóknar-
flokksins í viðtali við DV á laugardaginn.
Enginn flokkur hefur þróað
þetta skipulag betur en Sjálf-
stæðisflokkurinn. Þar snýst
veröldin umhverfis formann-
inn. Einstakir flokksmenn og
verkstjórar telja ekki hlutverk
sitt að reyna að hafa áhrif á
stefnuna, enda skiptir alls
engu máli, hver hún er á papp-
írnum.
Jónas Kristjánsson efnagreindi Sjálfstæðis-
flokkinn í leiðara DV á laugardag.
Sannleikskornið í þessum svo-
kölluðu fréttum Alþýðublaðs-
ins er það að verið er að end-
urskipuleggja rekstur og innra
starf flokksins. Það ætti ekki
að koma neinum á óvart.
Margrét Frímannsdóttir hafnar því alfarið að
nokkur ólga sé innan kærieiksheimilis alla-
balla. Tíminn á laugardag.
Að vera ánægður með sjálfan
sig, án þess að það komi fram í
rembingi eða monti, er hverri
manneskju dýrmætt.
Heiðar snyrtir gefur línuna í Tímanum.
Þetta er eina leyndarmálið,
sem ekki hefur verið dregið
fram í dagsljósið í Washington
undanfarin þrjú ár.
Bill Clinton að skamma blaðamenn fyrir að
hafa ekki komist að því, hver skrifaði sann-
sögulega skáldsögu með forsetann í aðal-
hlutverki.-
Handritið er einskis virði að
mínu mati og verra en ekkert
einsog fyrr segir. Þögla mynd,
takk!
Ingibjörg Elin Sigurbjörnsdóttir skrúðgarð-
yrkjufræöingur úthúðaði kvikmyndinni Ag-
nes í Mogganum á sunnudag.
fréttaskot úr fortíð
Gálgafrestur
Stjömufræðingur einn í Madrid spáði
einu sinni fyrir hirðmey Filips þriðja
og sagði að hún rnyndi deyja mjög
ung. Konungur varð reiður og lét.
kalla stjömuífæðinginn fyrir sig og er
hann hafði lagt fyrir hann eina spum-
ingu skyldi honum varpað út um
gluggann og ofan í fljótið. Stjömu-
spámaðurinn kom og konungur
spurði reiðilega:
- Þú þykist geta séð inn í framtíðina.
Hvenær áttu þá að deyja?
- Þrem dögum á undan yðar hátign,
svaraði stjömuspekingurinn rólega.
Konungur lét hann lausan.
Sunnudagsblað
Alþýðublaðsins
24. maí 1936
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson
H'eimsmynd er tímarit
sem hefur átt heldur
brokkgenga lifdaga frá því
stofnandi þess Herdís
Þorgeirsdóttir seldi Frið-
riki Friðrikssyni blaðið
fyrir um tveimur árum. Á
tíma hans var útkoma rits-
ins heldur betur stopul,
tveir ritstjórar þess, Vil-
borg Einarsdóttir og
Karl Th. Birgisson,
stóðu stutt við, og líklega
hafa flestir verið farnir að
halda að það kæmi ekki
framar út. En nú hafa bor-
ist fregnir um að standi til
að endurvekja Heims-
rpynd,.F.rjðrik og hans
menn m.unu vera að svip-
ast.um eftir ritstjóra, en
líklegt er að tímaritið verði
rekið í einhvers konar
samfloti við Helgar-
póstinn, enda er Friðrik
Friðriksson einn af útgef-
endum hans. Hefur reynd-
ar heyrst að eigendur
Helgarpóstsins séu þess
fýsandi að finna einhvern
aðila sem væri reiðubúinn
að kaupa vikublaðið og
tímaritið í einum pakka...
Hin sívinsæla spurn-
ingakeppni framhalds-
skólana hefur verið háð í
útvarpi að undanförnu, en
nú er komið að úrslitum
sem fara eins og endra-
nær fram í beinni útsend-
ingu í Sjónvarpinu. í fyrra
var Ómar Ragnarsson í
aðalhlutverki í keppninni;
hann þótti höfða alveg
mátulega mikið til ung-
linganna og kemur
kannski ekki á óvart að
kallaður hefur verið á vett-
vang nýr spyrill, háðfugl-
inn og Radíusbróðirinn
Davíð Þór Jónsson. Nýr
dómari tekur einnig við af
Ólafi Bjarna Guðnasyni
sem verið hefur í þáttun-
um um árabil. Það er eng-
inn annar en Helgi Ólafs-
son, stórmeistari í skák,
en hann semur einnig
spurningarnar og gerir
það raunar líka fyrir þætti
Hermanns Gunnarsson-
ar, Happ í hendi...
Að undanförnu hafa
birst í helgarblaði DV
miklar greinar um þá (s-
lendinga sem helst hafa
verið orðaðir við forseta-
framboð, fyrst um Pálma
Matthíasson, svo um
Guðrúnu Agnarsdóttur
og síðastliðinn laugardag
um Davíð Oddsson. Enn
hefur hins vegar ekki verið
fjallað um Guðrúnu Pét-
ursdóttur, sem þó er eina
alvöru forsetaefnið sem
hefur lýst yfir framboði
sínu. Raunar mun hafa
verið ákveðið að grein um
Guðrúnu birtist í blaðinu á
laugardaginn og mun hún
hafa verið nánast fullskrif-
uð. Þegar Eyjólfi Sveins-
syni, framkvæmdastjóra
DV, bárust spurnir af
þessu mun honum hafa
litist illa á, svo illa að hann
fór fram á að greinin yrði
látin bíða og í staðinn fjall-
að um Davíð. Eins og
kunnugt er var Eyjólfur til
skamms tíma aðstoðar-
maður Davíðs Oddsson-
If
,JX A -&/b j,; i
/XV31 3n~" <*3 '
Það leikur ekki nokkur vafi á áreiðanleika þessarar útkomu
Móði. Loksins hefur okkur tekist að reikna út hinn
raunverulega tilgang alheimsins með þessari nýju
samþjöppunar-líkanaaðferð. Ohh..., ég elska spennuna
sem fylgir þessum uppgötvunum sísindanna.
f i m m
förnum veg
Q[ Finnst þér að eigi að taka Guðmundar- og Geirfinnsmálin upp að nýju?
Kristín Geirsdóttir hús- Hrafnkell Sigurðsson
móðir: Nei, ég held að það myndlistarmaður: Já, það
hafi ekkert upp á sig. þarf að fást réttlát niðurstaða í
þessum málum.
Jóhann Gunnar Friðjóns- Anna Kristjánsdóttir veg-
son öryggisvörður: Nei, farandi: Já, alveg endilega.
þetta mál var svo mikið rugl.
Richarður Ásgeirsson
slökkviliðsmaður: Já, ég
væri mjög sáttur við það.