Alþýðublaðið - 28.02.1996, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 28.02.1996, Blaðsíða 1
MÞBVBLMÐ Miðvikudagur 28. febrúar 1996 Stofnað 1919 33. töiublað - 77. árgangur ■ Heildarsamtök opinberra starfsmanna, BSRB, BHMR og KÍ, setja á stofn sameig- inlega aðgerðanefnd til að berjast gegn því sem þau kalla leiftursókn ríkisstjórnar- innar gegn opinberum starfsmönnum Botnlaus fyrirlitning a samningum - segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB: Höfum nána samvinnu um að hnekkja frumvörpum ríkisstjórnarinnar. „Við höfum bundist fastmælum um að hafa nána samvinnu um að hnekkja þessum ffumvörpum ríkisstjómarinnar sem boða stórfellda réttinda- og kjara- skerðingu fyrir okkar félagsmenn. Fyrsta skrefið sem við ætkim að stíga í þá veru er að boða til sameiginlegra kynningarfunda, en síðan munum við meta frá degi til dags hvert framhaldið verður," segir Ögmundur Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, en gríðarleg óánægja ríkir meðal opinberra starfsmanna vegna þriggja frumvarpa sem ríkisstjórnin hyggst leggja fram: Um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna, um Lífeyris- sjóð starfsmanna ríkisins og um sátta- störf í vinnudeilum. Heildarsamtök opinberra starfs- manna, BSRB, Bandalags háskóla- manna og Kennarasambands íslands, hafa sett á stofn sameiginlega að- gerðanefnd til að bregðast við því sem Ogmundur Jónasson kallar „leiftur- sókn ríkisstjómarinnar inn í fortíðina". Aðgerðanefndin hefur þegar hafið störf og hafa heildarsamtökin þrjú þegar gefið út sameiginlegt dreifirit undir kjörorðinu „Stöðvum leiftur- sóknina". ,Afér finnst greinilegt á orðum rík- isstjórnarinnar að hún ætlar að sjá hvað hún kemst upp með að troða rétt- indin niður af fólki,“ segir Ögmundur Jónasson. „Mér sýnist að þau frum- varpsdrög sem upphaflega voru lögð fram hafi verið sett í nokkurs konar endurvinnslu; þau eru greinilega hjá snyrtisérfræðingum og lýtalæknum sem eiga að sníða af þeim einhverja annmarka. En mergurinn málsins er náttúrlega sá að það er verið að taka á réttindum og kjörum sem samið var um í kjarasamningum og sem skír- skotað er til í ráðningarsamningum starfsfólks. Þetta verður ekki riftð upp með rótum nema það verði gert í tengslum við kjaramninga og skoðun á heildarkjörum fólks. Sú aðferð að ætla á miðju samningstímabili að um- bylta öllu þessu kerfi sýnir að mínu mati botnlausa fyrirlitningu á kjara- samningum - og samnmg- um almennt.“ Forystumenn opinberra starfsmanna hafa kvartað mjög yfir því að enginn fulltrúi þeirra hafi komið nálægt gerð frumvarps- draganna um réttindi þeirra og skyldur, en einnig hafi tillögur þeirra verið fullkomlega sniðgengnar við samningu frumvarpanna um Líf- eyrissjóð starfsmanna ríkisins og um sáttastörf í vinnudeilum. Ögmundur segist telja það mikið áhyggjuefni hvemig ríkisstjómin hefur komið ffam í þessum málum: „Þetta sýnir ekki að- eins virðingarleysi gagnvart almennu launafólki, heldur er ríkisstjómin einn- ig að sýna sjálfri sér lítilsvirðingu, enda vom það stjómvöld sem gerðu þessa samninga á þessum tíma.“ Ögmundur telur að fundir forystu- manna opinberra starfsmanna með ríkisstjórninni vegna frumvarpanna hafi skilað litlum árangri: „Það hefur ekki komið fram það sem við vildum fá, að þessi frumvörp yrðu dregin til baka. Það er að vísu verið að endur- skoða þessi mál eitthvað, og það er Ögmundur Jónasson fundaði i gær með formönnum aðildarfélaga BSRB, en áköf fundahöld hafa ver- ið undanfarna daga í samtökum opinberra starfsmanna og ætla þau á næstunni að vinna sameiginlega að því að stöðva „leiftursókn ríkis- stjórnarinnar". auðvitað skref í rétta átt ef slæmt verð- ur skárra. Það breytir því ekki að það á að taka á þessum málum á allt annan hátt.“ Ögmundur segir að útgáfa dreifi- bréfsins sé fyrsta skref sameiginlegu aðgerðanefndarinnar. Næsta skref sé fundarherferð þar sem félagsmönnum BSRB, BHMR og KÍ verði rækilega kynnt áform ríkisstjómarinnar. Síðan muni menn bíða og sjá með frekari aðgerðir. ■ Kvennaathvarf en ekki Stígamót Biskup mis- mælti sig - Hef ekki brugðist trúnaði, segir Guðrún Jónsdóttir hjá Stígamótum „Ég skil ekki af hverju hann dró þessa fjárstyrki inn í umræðuna. Mér fmnst það úr samhengi og óskiljanlegt. Auk þess er farið rangt með,“ sagði Guðrún Jónsdóttir, starfskona Stígamóta í samtali við Alþýðublaðið í gær. I við- tali við Ólaf Skúlason biskup sem birtist í Sjónvarpinu í fyrrakvöld bar hann af sér allan áburð um kynferðislega áreitni, lýsti furðu á ásökunum þess efnis og færði í tal framlög kirkjunnar til Stíga- móta. Guðrún Jónsdóttir hefur staðfest í fjölrniðlum að þijár konur hafi leitað til Stígamóta vegna meintrar kynferðis- legrar áreitni frá hendi biskups og sagði hann í viðtalinu sjá eftir að hafa átt þátt í að skera niður framlag kirkjunnar til Stígamóta í fyrra. Guðrún Jónsdóttir segist hins vegar ekki kannast við að Stígamót hafi fengið neina styrki frá kirkjunni. Alþýðublaðið bar þau orð hennar undir séra Baldur Kristjánsson biskupsritara í gær og sagði hann að biskup hefði mismælt sig. „Hann talaði um styrki til Stígamóta, en átti við Kvennaathvarfið," sagði séra Baldur. Aðspurð um þau ummæli Ólafs Skúlasonar í sjónvarpsviðtalinu að hún hefði brugðist trúnaði umbjóðenda Stígamóta í þessu málj, sagði Guðrún Jónsdóttir: „Hann er með dylgjur um að ég hafi bmgðist trúnaði. Ég fellst ekki á það vegna þess að ég hafði heimild og raunar ósk frá konunum um að gefa um það yfirlýsingu að þær kæmu til Stíga- móta vegna þessa máls. Þá er náttúrlega óhjákvæmilegt að nefha hans nafri, enda er það búið að vera í umræðunni undan- famar vikur.“ Ólafur Skúlason átti í gær fund með Þorsteini Pálssyni dóms- og kirkjumála- ráðherra. Var niðurstaða hans í meginat- riðum sú að ráðherra myndi ekki beita sér í málinu, enda væri kirkjan sjálfstæð stofnun. Tröllakirkja á fjalirnar Ein helsta frumsýning vetrarins Þjóðleikhúsinu verður á föstudagskvöld, en þá hefjast sýningar á Trölla kirkju, leikgerð sem Þórunn Sigurðardóttir hefur unnið eftir ágætri skáld- sögu Ólafs Gunnarssonar. Meðal leikara í burðarhlutverkum eru Ingvar E Sigurðsson og Arnar Jónsson sem vanda hvor öðrum ekki kveðjurnar hér á myndinni. Rok nefnir Róska gerning sinn í Nýló ■ Nýlistasafnið Róska snýr aftur Eftir tuttugu ára hlé snýr Róska, myndlistarkonan góðkunna, aftur í Nýlistasafnið við Vatnsstíg á fimmtu- dagskvöldið. Þá ætlar hún að fremja þar geming og flytja fyrirlestur, en lið- in munu rúm tuttugu ár síðan Róska stóð síðast fyrir gerningum í Nýló. Róska tók á sínum tíma þátt í starf- semi Súmara í sömu húsakynnum og var einn af stofnendum félags Nýlista- safnsins. A myndlistarferli sem spann- ar ein þijátíu ár hefur hún fundið list sinni fjölbreyttan farveg og meðal annars tekist á við grafik, málverk, ljósmyndun, þrívíð verk, kvikmynda- gerð, tölvugrafík og geminga. Róska var um langt skeið búsett í Róm en þangað sótti hún myndlistaijnenntun sína. Hún býr nú og starfar á íslandi. Róska hefur gefið atburðinum á fimmtudaginn yfirskriftina Rok, en aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Viðtalstími Guðmundar Áma mm Guðmundur Árni Stefáns- son, varafor- maður Al- þýðuflokksins - Jafnaðar- mannaflokks íslands, verð- ur með við- talstíma á skrifstofu Alþýðuflokksins, Al- þýðuhúsinu, Hverfisgötu 8-10, á fimmtudag milli kl. 17-19. ■ 17. Reykjavíkurskákmótið er líka norrænt Grand Prix mót Nicolic, Gulko og Hansen - eru sterkastir sautján stórmeistara sem taka þátt í mótinu samkvæmt Elo-stigalista Predrag Nicolic frá Bosníu, Curt Hansen frá Danmörku og Boris Gulko, Rússinn landflótta sem býr í Bandaríkjunum, eru meðal helstu kappa sem tefla á 17. Reykjavíkur- skákmótinu, en það hefst í skákmið- stöðinni í Faxafeni 12 á laugardag. Nicolic er stigahæstur þessarra skák- manna með 2645 Elo-stig, en þeir Hansen og Gulko hafa hvor sín 2615 stig. Alls verða þijátíu erlendir þátt- takendur á mótinu. Af öðrum sterkum útlendingum sem væntanlegir em á mótið má nefha Litháann E. Rozentalis, sem metinn er á 2605 stig, Simen Agdestein frá Nor- egi sem hefur 2585 stig, Hollending- inn Paul Van der Sterren með 2545 stig og Stuart Conquest frá Englandi sem hefur 2540 skákstig. Af norræn- um góðkunningjum íslenskra skák- manna sem koma á mótið má nefna stórmeistarana Johnny Hector frá Sví- þjóð og Norðmennina Einar Gausel og Jonathan Tisdall. Öldungurinn David Bronstein frá Rússlandi hefur verið tíður gestur á fs- landi síðustu áratugi og kemur hingað eina ferðina enn á Reykjavíkurskák- mótið. Bronstein er skákmaður sem brúar bilið milli kynslóða í skáklist- inni; hann hefur teflt á skákmótum í marga áratugi og er enn að þótt hann sé kominn á áttræðisaldur. Bronstein hefur nú þá sómasamlegu stigatölu 2455. Allir íslensku stórmeistaramir sem iðka skáklistina að einhverju marki verða þátttakendur á mótinu; Margeir Pétursson, sem nú er stigahæstur ís- lenskra skákmanna með 2585 stig, Hannes Hlífar Stefánsson, Jóhann Hjartarsson, Helgi Ólafsson og Helgi Áss Grétarsson. Einna grennst verður þó líklega fylgst með Þresti Þórhalls- syni sem mun vafalítið gera harða at- lögu að síðustu hindrunninni sem stendur í vegi fyrir að hann verði ní- undi íslenski stórmeistarinn. Þröstur hefur nú 2445 skákstig, en þarf að ná árangri sem tryggir honum 2500 stig til að verða stórmeistari. íslenskir þátttakendur í mótinu verða hátt í fjörutíu talsins, en stór- meistaramir em alls sautján talsins, að viðbættum níu alþjóðlegum meistur- um. Að þessu sinni er mótið aukin- heldur hið fyrsta af fimm í nýrri móta- röð Norðurlandanna sem fengið hefur yfirskriftina Nordic Grand Prix og er Allra augu beinast að Þresti Þór- hallssyni sem freistar þess að ryðja úr vegi síðustu hindruninni að ní- unda stórmeistaratitli íslendinga á Reykjavíkurskákmótinu. því til mikils að vinna fyrir norrænu skákmennina sem taka þátt.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.