Alþýðublaðið - 28.02.1996, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 28.02.1996, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 s k o ð a n i r Freisting „Þá sagði Drottinn Guð við konuna: Hvað hefir þú gjört? Og konan svar- aði: Höggormurinn tældi mig svo að ég át. Þá sagði Drottinn Guð við höggorminn: Af því að þú gjörðir þetta skalt þú vera bölvaður meðal alls fénaðarins og alla dýra merkur- innar ..." ... „En við konuna sagði hann: Mikla mun ég gjöra þjáningu þína, er þú verður bamshafandi: með þraut skalt þú böm fæða, og þó hafa löngun til manns þíns, en hann skal drottna yftr þér.“ (Mósesbók 3:13-16) Þessi bölvun Drottins yfir Evu og dætmm hennar eftir að hún át af skiln- ingstré góðs og ills nær greinilega allt til dagsins í dag. Skömmu eftir fæð- ingu dóttur minnar varð mér hugsað til þessarar bölvunar og að Drottinn hljóti að vera karlkyns þrátt fyrir alla kvennafræði nútímans, kvenkyns Drottinn hefði aldrei gert kynsystmm sínum að ganga í gegnum aðra eins þjáningu, ^ama hversu óþekk Eva hefði verið. Það er sagt að fæðing breyti lífi konunnar og það er rétt. Núna veit ég að það er ekki til neitt sem heitir fullkomið jafnrétti kynj- anna. Það er ekki hægt að biðja mak- ann.að taka við í miðjum hríðum: „Nei takk, nú er ég farin. Elskan mín, ert’ekki til í að klára dæmið?" Nei, það varð bara að bíta á jaxlinn og koma krílinu í heiminn. Þegar nafla- strengurinn var klipptur tók önnur tenging við, brjóstagjöfin. Nú get ég ekki vikið írá heimihnu nema í mesta lagi þtjá klukkustundir án þess að gera varúðárráðstafanir, má ekki borða lauk, drekka appelsínusafa og náttúm- Evu Ótrúlegt hvað stjórnmálamenn geta haft mikil áhrif á líf einnar manneskju, allt frá því hvernig er tekið á móti henni og hvernig hún er kvödd úr þessum heimi. Kannski þyrfti að senda þingheim allan í fæðingarorlof. Þeim gefst þá tími til að hugsa og athuga hvað það er í lífinu sem skiptir máli í raun og veru lega alls ekkert áfengt. Hér er ekkert jafnrétti, ekki nema að gefa blessaða barninu pela sem er ekki vænlegur kostur. Eftir svefnlitla nótt er heldur ekkert jafnrétti, við mæðgur sofum áfram en nýbakaði faðirinn verður að drífa sig í vinnuna með stírumar í aug- unum. En fjölgun mannkyns er ekki bara púl og leiðindi, alls ekki. I bamseign- arfríi fæst nefnilega nokkuð sem er dýrmætt en alltaf vanmetið: tími. Dag- urinn líður án klukku, við mæðgur sofum þegar við erum þreyttar og borðum þegar við emm svangar. Þeg- ar hún fær að fókusera á andlit mitt verður mér hugsað til þess hvernig framtíð hennar muni verða. Hún byrj- aði ævina á sjúkrahúsi, þar sem hún mun sennilega enda ævina líka. Ætli það verði ennþá niðurskurður í heil- brigðiskerfmu þegar hún verður full- orðin? Ætti ég kannski að fara að leggja fyrir þannig að hún geti átt fyrir sjúkrahúskostnaði í framtíðinni og haft ráð á því að eignast börn sjálf? Mun hún eiga kost á því að mennta sig án tillits til þess hvemig okkur for- eldmnum vegnar fjárhagslega? Verð- ur gott að búa á íslandi í framtíðinni? Allt er þetta háð ákvörðunum stjóm- málamanna, hvort að fjármunum er varið í velferðarkerfið eða eitthvað annað. Ótrúlegt hvað stjómmálamenn geta haft mikil áhrif á líf einnar mann- eskju, allt frá því hvemig er tekið á móti henni og hvemig hún er kvödd úr þessum heimi. Kannski þyrfti að senda þingheim allan í fæðingarorlof. Þeim gefst þá U'mi til að hugsa og at- huga hvað það er í lífinu sem skiptir máli í raun og veru. Gjörðir og ákvarðanir nokkurra manna geta nefnilega haft afdrifarík áhrif á líf ann- arra, jafnvel um ókomna framtíð, rétt eins og eplaátið hennar Evu. Höfundur er viðskiptafræðingur. Borgarleikhúsið logar nú stafna á milli í deilum vegna þeirra breytinga á starfsmannahaldi sem Viðar Eggertsson nýráðinn leik- hússtjóri stendur fyrir. í síð- ustu viku skýrði Alþýðublað- ið frá því að hjónin Valgerð- ur Danog Þorsteinn Gunn- arsson hefðu hætt við þátt- töku í Hinu Ijósa mani, leik- gerð eftir sögu Halldórs Laxness sem Bríet Héðins- dóttir leikstýrir, en nú heyr- um við að hjónin hafi mætt til starfa á ný síðastliðinn mánudag, leikurunum sem hlupu í skarðið til sárra von- brigða. Er þetta haft til marks um að „Húseigenda- félagið" svokallaða hafi talið sig nokkuð víst um að ná sínum málum fram á félags- fundi Leikfélags Reykjavíkur sem haldinn var í gær- kvöldi... thygli hefur vakið að stjórn Leikfélagsins hef- ur ekki verið starfandi að undanförnu, þrátt fyrir að gusti um hana. Þannig er formaðurinn Kjartan Ragn- arsson nú staddur í Malmö við kennslu í leiklistarskólan- um þar, Sigrún Edda Björnsdóttir mun hafa tek- ið sér frí vegna anna og Þor- steinn Gunnarsson mun hafa hætt að starfa í stjórn- inni til að mótmæla því að Viðari væri falið alræðisvald um mannaráðningar. Vara- stjórnin sem nú ræður ríkj- um er skipuð þeim Sigurði Karlssyni sem er varafor- maður, Jóni Þórissyni leik- myndahönnuði og Kristjáni Franklín... Það er enn til marks um átökin innan Leikfélags- ins að undanfarna daga hafi gengið undirskriftarlistar meðal starfsfólks leikhússins og er þar skorað á Sigurð Hróarsson fráfarandi leik- hússtjóra að gefa kost á sér til áframhaldandi starfa skip- ist veður svo í lofti. Þá mun það ennfremur hafa vakið nokkurn urg hjá yngri leikur- unum í húsinu í flokkadrátt- um undanfarinna vikna, að komast að því hversu mikil áhrif tæknilið leikhússins hefur á störf og listræna stefnu Borgarleikhússins... Allt þartil henni var loksins skipt útaf framleiðslulínunni fyrir öllu banvænni - og þarmeð vitaskuld mun vinsælli - frænda sinn var Bowie-skeiðin langalgengasta vopnið sem menn notuðust við í Villta Vestrinu til að gera útum ágreining sín í millum.... fimm á förnum vegi Er rétt að byggja göng undir Hvalfjörð? Ingibjörg Reynisdóttir nemi: Já, ég er alveg óhrædd við að fara í þau. Valgerður Ólafsdóttir fé- lagsráðgjafi: Nei, ég mundi aldrei koma nálægt þeim. Rúnar Egilsson vegfar- andi: Já, Hvalljörðurinn er svo leiðinlegur yfirferðar þannig að það er betra að fara undir hann. Margrét Pálsdóttir kaup- maður: Já, ef þeir vita hvemig á að borga þau. Ólafur Jónsson vegfar- andi: Nei, það á að loka öllum vegum út á landsbyggðina. JÓN ÓSKAR v i t i m e n n Þessi mannaskítsárátta minnir óhjákvæmilega á þær sál- fræðikenningar sem segja að í einstaklingsþroska sínum gangi menn í gegnum ýmis mismunandi skeið. Garri í Tímanum í gær. Það getur algjörlega skipt sköpum um lífsafkomu og efnahag launamanna í þjóðfé- laginu að þeim takist að leysa húsnæðismál sín á skikkanleg- an hátt, án þess að lenda með öll sín fjármál í ólestri. Leiðari Tímans í gær. Trúnaðarbrestur getur verið á fleiri en einn veg sem verða ekki útskýrðir í blöðum. Geir Magnússon forstjóri Olíufélagsins. Tíminn í gær Það eru konur hjá Stígamót- um sem eiga bágt. Ég veit ekki hvað veldur því að þessar kon- ur eiga svona bágt, en ég vísa því algerlega frá að sú sök sé mín. Herra Ólafur Skúlason biskup í Morgunblaðinu í gær. Því meiri sem ábyrgð ríkisins verður á Hvalfjarðargöngun- um, þeim mun brýnna mun umboðsmönnum gatsins þvkja að þrýsta umferð landsmanna inn í það til að hafa meira upp í ört vaxandi kostnað, til dæm- is með aðgerðum gegn þjóð- veginum fyrir botninn. Á alþingi er líka spilling. Úr lesendabréfi í DV í gær. fréttaskot úr fortíð Tízkumenn Tízkumenn eru þeir, sem eiga Fordbflagerð 1935, ganga í fötum samkvæmt tízku 1936 og lifa á tekjum ársins 1937. Alþýðublaðið sunnudaginn 5. júlí 1936

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.