Alþýðublaðið - 28.02.1996, Blaðsíða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1996
s k o ð a n i r
UHNHJm
21072. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Símboði auglýsinga 846 3332
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Flutningi grunnskólans
stefnt í hættu?
Flutningur grunnskólans til sveitarfélaganna er eitt stærsta og við-
kvæmasta verkefnið sem núverandi iíkisstjóm fæst við. Bjöm Bjama-
son menntamálaráðherra hefur sýnt mikla lipurð í því að leysa viðkvæm
deilumál við kennara, sem em ein af forsendunum fyrir því að af flutn-
ingnum geti orðið. í byijun þessa mánaðar náðist samkomulag um mál-
ið og í kjölfar þess lagði menntamálaráðherra fram fmmvarp á Alþingi
um réttindamál kennara.
Vart var búið að leggja þetta fmmvarp fram í þinginu þegar fjármála-
ráðherra kynnir tvö fmmvörp sem hleypa málinu upp. Annars vegar er
um að ræða fmmvarp um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna og hins
vegar fmmvarp um lífeyrissjóð ríkisstarfsmanna. Þessi vinnubrögð
vekja furðu allra sem að málinu koma: niðurstaða þessara fmmvarpa er
mjög misvísandi og benda til þess að vinstri hendin viti ekki hvað sú
hægri gjörir. Ríkisstjómin mátti vita að hversu mikilvægar sem umbæt-
ur í þessum málaflokki em, þá var hún að fara inn á jarðsprengjusvæði.
Aðgátar og samstarfs við alla aðila var þörf. Fjármálaráðherra virðist
svo umhugað að reka af sér slyðmorðið að hann hefur með gassagangi
stefnt í hættu því góða starfi sem menntamálaráðherra hefur unnið í
málinu.
Eins og við var að búast hafa samtök kennara hætt öllu samstarfi við
ríkisstjómina varðandi flutning gmnnskólans. Það er því erfitt að sjá
hvernig menntamálaráðherra getur nú gengið frá samkomulagi við
sveitarfélögin í landinu um kostnað við flutninginn. Ríkisstjómin virðist
því um það bil að klúðra sínu stærsta máli til þessa. Þökk sé Friðrik
Sophussyni íj ármálaráðherra.
„Fullnýttur
samráðskvóti“
Vinnuveitendasamband Islands sendir landbúnaðarráðherra heldur
betur tóninn vegna samsæris eggjaframleiðenda og landbúnaðarráðu-
neytisins gegn neytendum í landinu. VSÍ bendir réttilega á að verðmun-
ur á eggjum og kjúklingum hér á landi og í nágrannalöndum okkar sé
„íjarstæðukenndur“. Ástæðan sé óeðlilegir viðskiptahættir og ofurtollar
á innflutning. Landbúnaðarráðherra brást við þeim ábendingum Sam-
keppnisstofnunar að samkeppnislög stönguðust á við búvömlög á þann
hátt að semja ætti við bændasamtökin um málið. Þetta telur VSÍ rétti-
lega fjarstæðukennda skoðun.
í samþykkt VSÍ segir: „Samtök eggjaframleiðenda sýnast hafa full-
nýtt samráðskvóta sinn svo tímabært er að landbúnaðarráðherra taki upp
samráð við atvinnurekendur og launþega um það hvemig endir verði
bundinn á óeðlilega viðskiptahætti í alifuglarækt.“
Ekki er við því að búast að sérstakur sendiherra Félags eggjaframleið-
enda í stjómaráðinu, Guðmundur Bjamason landbúnaðarráðherra, sinni
þessu í neinu. VSÍ verður að taka upp harðari aðgerðir gegn háu bú-
vömverði, enda hljóta atvinnufyrirtækin í landinu fyrr eða síðar að
greiða þann kostnað sem þessu fylgir. Íhaldsöíl hins óbreytta ástands í
landbúnaðarmálum verða ekki brotin á bak aftur með hverri ályktuninni
á eftir annarri. VSÍ og ASÍ verða að knýja fram breytingar í tengslum
við gerð næstu kjarasamninga.
Málfundarklúbbur
félagshyggjufólks
Á laugardaginn var haldinn fyrsti fundur málfundarklúbbs félags-
hyggjufólks, sem er óformlegur vettvangur flokksbundins sem óflokks-
bundins fólks á vinstri væng stjómmálanna. Fundurinn var íjölmennur
og skemmtilegur og nk ástæða til að ætla að framhald verði á þessu
starfi. Fólk þarf vettvang til að ræða stjómmál opinskátt án þess að vera
bundið á klafa flokkanna, þó að þeir séu auðvitað góðir og gildir til síns
brúks. Alþýðublaðið fagnar þessu framtaki félagshyggjufólks og vonar
að það skili ríkulegum árangri. ■
Tifandi tímasprengja
kirkjunnar
Á stjórnarárum Bush fyrrum
Bandaríkjaforseta - sællar minningar
- stóð til einu sinni sem oftar að skipa
nýjan dómara í Hæstarétt Bandaríkj-
anna. Eins og mörgum er kunnugt eru
skipanir Hæstaréttardómara stórvið-
burðir þar í landi. Eftir að Bush hafði
tilnefnt sinn mann í embættið og Öld-
ungadeild þingsins var í þann mund
að hefja yfirheyrslur sínar yfir mann-
ininum, komu fram mjög alvarlegar
ásakanir um kynferðislega áreitni af
hendi mannsins frá konu sem mörgum
árum áður hafði verið undirmaður
hins verðandi Hæstaréttardómara. Það
er skemmst frá því að segja að fá mál
- ef nokkur - ollu meira fjaðrafoki í
Pallborðið
bandarísku þjóðlífi það árið.
Það segir sig sjálft að mikinn kjark
þarf til að bera slíkar ásakanir fram,
með tilheyrandi fjölmiðlafári og
ófrægingarherferð og þrýstingi um að
draga ásakanirnar til baka. í þessu
bandaríska tilfelli þurfti konan að lýsa
nákvæmlega málavöxtum á opinber-
um vettvangi, meðal annars í yfir-
heyrslu hjá Öldungadeildinni sem
sjónvarpað var beint um öll Bandarík-
in. Reynt var að gera konuna og fram-
burð hennar - sem að sjálfsögðu var
neitað sem pólitískum ofsóknum -
tortryggilegan á allan máta og gengu
nokkrir öldungardeildarþingmenn
mjög hart fram í því efni. Þeir höfðu
sitt fram að lokum: Öldungadeildin
staðfesti skipun mannsins í embætti
Hæstaréttardómara og gerði þar með
Ktið úr framburði konunnar.
Þessi sigur varð dýrkeyptur þegar
upp var staðið. Viðkomandi Hæsta-
réttardómari nýtur engrar virðingar í
bandarísku þjóðlífi og heldur sig mest
til hlés. Þeir öldungadeildarþingmenn
sem harðast gengu fram í því að gera
framburð konunnar tortryggilegan
þurftu margir hveijir að gjalda fyrir þá
framgöngu með embætti sínu í næstu
kosningum. Bush forseti skaðaðist
verulega, sérstaklega í augum kvenna.
í heild sinni varð málið til þess að um-
ræða um kynferðislega áreitni gjör-
breyttist í Bandaríkjunum. Ekki var
hægt að vísa slíkum málum frá eins og
hverri annari hysteríu.
Einn af þeim sem fengu að finna
fyrir því í framhaldinu var öldunga-
deildarþingmaður frá Washingtonríki,
sem alræmdur var fyrir áreitni í garð
þeirra kvenna sem hjá honum unnu.
Alltaf hafði hann neitað, en nú var
málið tekið föstum tökum, enda ekki
einleikið að hver konan á fætur ann-
arri langt aftur í tímann hefði svipaða
sögu að segja. Siðanefnd þingsins
þvingaði manninn til afsagnar eftir
rækilega umfjöllun.
Þessi dæmi er rétt að hafa í huga
þegar kynferðislega áreitni ber á
góma. Ólafur Skúlason biskup hefur
verið borinn þungum ásökunum um
kynferðislega áreitni. Þar er ekki um
Þegar biskupinn brýst upp úr skotgröf sinni til
gagnárása kemur berlega í Ijós að hann hefur
viðlíka tengsl við raunveruleikann og góður
hershöfðingi úr fyrra stríði. Sjónvarpsviðtal
biskupsins á mánudagskvöld gerði endanlega
út um framtíð hans í embætti.
eitt einstakt mál að ræða, heldur mörg.
Sögur um kvensemi biskupsins hafa
raunar gengið lengi og sumir fjölmiðl-
ar verið komnir á fremsta hlunn fyrir
allnokkru að fjalla um málið. Ekkert
slíkt gerðist þó, enda erfitt að ríða á
vaðið. Biskupinn hefur einfaldlega
verið yfir opinbera gagnrýni hafinn.
Það er ljóst að kirkjunnar mönnum
hafa um ailnokkurt skeið verið þessar
ásakanir ljósar. Þær eru ekki nýjar
fréttir þar á bæ. Þetta var viðurkennt í
Morgunblaðinu á sunnudaginn var.
Þessi staðreynd segir sína sögu um
það tabú sem umræða um kynferðis-
Íega áreitni er og þá sérstaklega innan
kirkjunnar. Hvers vegna var slíkur
maður kosinn biskup til að byija með?
Þótti prestum kirkjunnar ekki ástæða
til að taka málið alvarlega? Greinilega
ekki. Hystería nokkura kvenna var
greinilega ekkert til að hafa áhyggjur
af.
Þangað til fjölmiðlar tóku við sér.
Blaðran er sprungin og kirkjan veit
ekki sitt rjúkandi ráð. Ekki er hægt að
þegja lengur þó að þrír karlar í siða-
nefnd Prestafélagsins hafi gert sitt
besta til að þvo hendur sínar af mál-
inu. Það er svo gamalt, það er ósann-
að! Kirkjan virðist í þann mund að
grafa skotgrafir í kring um biskups-
embættið, þar sem halda á úti skot-
grafahemaði gegn íjölmiðlum í land-
inu, Stígamótum og þeim konum sem
bera fram ásakanir á hendur biskupi.
Ráðherrar eru dregnir inn í málið líkt
og þeir geti gert biskupinn að hvít-
þvegnum engli. Málið mun ekki
hverfa. Spurningin stendur um sið-
ferðisstyrk kirkjunnar til að taka á
málum sem þessum. Biskupinn er
ekki maður til þess sjálfur; öll spjót
standa því á prestum landsins.
Þegar biskupinn brýst upp úr skot-
gröf sinni til gagnárása kemur berlega
í ljós að hann hefur viðlíka tengsl við
raunveruleikann og góður hershöfð-
ingi úr fyrra stríði. Sjónvarpsviðtal
biskupsins á mánudagskvöld gerði
endanlega út um framtíð hans .í emb-
ætti. Þá gerðist biskup svo ósmekkleg-
ur að blanda saman framlögum kirkj-
unnar til Stígamóta og konum sem
þangað hefðu leitað af hans völdum.
Af orðum biskupsins mátti skilja að
orsök málsins væri niðurskurður á
framlögum kirkjunnar til Stígamóta.
„Andleg björg“ þeirra kvenna sem til
Stígamóta hefðu leitað væru ekki af
hans völdum og því væntanlega
ímyndun ein; ofskynjanir sem best
væri að meðhöndla nieð geðlyfjum.
Þau bandarísku dæmi sem hér að
ofan var minnst á ættu að vera kirkj-
unni alvarleg áminning urn að mál af
þessu tagi geta haft langvarandi og
djúpstæð áhrif. Biskupinn reynir að
höfða til samúðar með sér sem ofsótts
manns, en gleymir því í leiðinni að
verulegan kjark þarf til að koma fram
með ásakanir af þessu taginu. Fómar-
lömbin - sem eru allmörg - liggja
undir ámæli um lygar og rógburð. Það
er alvarlegt mál fyrir konur að koma
fram undir nafni og saka biskupinn
um kynferðislega áreitni. Slíkt er ekki
gert að ástæðulausu eða vegna deilna
um innri mál kirkjunnar. Þessar ásak-
anir hafa um langt skeið verið tifandi
tímasprengja innan kirjunnar.
Eftir Verdun biskupsins á mánu-
dagskvöldið er ekki nema um eitt að
velja: Eg ætla að segja mig úr þjóð-
kirkjunni. Loksins. ■
Höfundur er stjórnmálafræðingur
dagatal 28. febrúar
Atburðir dagsins
1574 Spænski rannsóknarrétt-
urinn brennir tvo Englendinga
og einn íra á báli í Mexíkó.
Þeir voru fyrstu fórnarlömb
rannsóknarréttarins í nýja
heiminum. 1912 Albert nokkur
Perry framkvæmir fyrsta fall-
hlífarstökkið í Missouri. 1986
Olof Palme forsætisráðherra
Svíþjóðar skotinn til bana í
miðborg Stokkhólms.
Afmælisbörn dagsins
Sir John Tennicl 1820, bresk-
ur leikari. Charles Blondin
1824, franskur línudansarj sem
fór á stulltum yfir Níagara-
fossa. Sir Stephen Spender
1909, ljóðskáld og gagnrýn-
andi. llrian Jones 1942, einn
af stofnendum Rolling Stones.
Annálsbrot dagsins
Kom ofsókn á séra Þórð
Sveinsson í Skálholti, svo hann
varð sjónlaus, heyrnarlaus og
mállaus og vitlaus nær á einu
augabragði... En nokkru fyrir
sinn afgang færðist lítið af hon-
um máls; talaði í latínu, hebr-
esku og grísku og öðrum
tungumálum, þó óviti.
Eyrarannáll 1666.
Tilvitnun dagsins
Vopnin ein tryggja ekki frið-
inn, - það geta einungis menn.
John F. Kennedy.
Málsháttur dagsins
Oft mætir prettur pretti.
Orð dagsins
Á eld er best að ausa snjó,
eykst hans log við þetta.
Gott er að hafa gler í skó,
þá gengið er í kletta.
Bjarni Jónsson, Öfugmælavisur.
Skák dagsins
Drottningarfóm og mátsókn -
það er ekki hægt að biðja um
meira. Pcrez sem hefur hvítt
og á leik gegn Gonzalez fer á
kostum. Hvað gerir hvítur?
l.Rxe5!I Bxdl 2.Rxf7 Dh4
3.Bg5! Dd4+ 4.Khl Bc2
5.Hael Ra6 6.Rh6+ Bf5
7.Be7 mát Snilld!