Alþýðublaðið - 28.02.1996, Page 8
V *
\WRE Vffll/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
MIBUBIMO
Miðvikudagur 28. febrúar 1996
33. tölublað - 77. árgangur
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Hrafn Gunnlaugsson fer til Rússíá
með myndir sínar Hin helgu vé og
Hrafninn flýgur.
■ íslenskar kvikmyndir
í Rússlandi
Hrafn, Hilmar
og Óskar í
austurveg
Kvikmyndagerðarmennimir Hrafn
Gunnlaugsson, Hilmar Oddsson og
Óskar Jónasson og Bryndís Schram,
framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs,
eru heiðursgestir á íslenskri kvik-
myndahátíð sem í dag hefst í Moskvu
og Pétursborg, austur í Rússlandi.
Þetta mun vera í annað sinn á tíu árum
að íslenskar kvikmyndir em kynntar
rússneskum almenningi, en sex ís-
lenskar myndir hafa verið valdar til
sýninga á hátíðinni. Elst þeirra er
Hrafninn flýgur, öndvegismynd
Hrafns Gunnlaugssonar, en einnig
verður sýnd nýjasta mynd hans Hin
helgu vé. Hilmar fer í austurveg með
stórmynd sína Tár úr steini, en Óskar
hefur meðferðis Sódómu Reykjavík.
Að auki urðu fyrir valinu Veggfóður
eftir Júhus Kemp og Á köldum klaka
eftir Friðrik Þór Friðriksson. Hátíðin
stendur til 3. mars.
Ríkissjóður rekinn með 8,9 milljarða króna halla árið 1995
Öll ráðuneyti fóru
fram úr fjárlögum
- nema sjávarútvegsráðuneyti sem heldur sig 18 milljónum innan fjárlagarammans
Öll ráðuneyti, nema sjávarútvegs-
ráðuneyti, fóru fram úr fjárlögum á
síðasta ári, samkvæmt skýrslu fjár-
málaráðherra um ríkisfjármál árið
1995 sem lögð hefur verið fram á Al-
þingi. Alls voru útgjöld ríkisins 3,8
milljarðar króna umfram fjárlög, en á
móti kemur að tekjur ríkissjóðs voru
2,3 milljarðar umfram fjárlagaáætlun.
Hallarekstur ríkisins var því 1,5 millj-
örðum króna meiri en áætlað var, 8,9
milljarðar en ekki 7,4 milljarðar eins
og gert var ráð fyrir á fjárlögum.
Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið
fer mest fram úr fjárlögum eða sem
nemur ríflega 1,4 milljörðum króna.
Þar vont rekstrargjöld um 19,1 millj-
arður. I skýrslu ráðherra er um helm-
ingur útgjaldaaukans rakinn til
breyttra forsenda í kjarasamningum,
en útgjöld sjúkrastofnana vom um 560
milljónir umfram fjárlög og af því 242
milljónir hjá Ríkisspítölunum en 133
milljónir hjá Borgarspítala og Lands-
spítala.
Rekstarútgjöld menntamálaráðu-
neytisins fóru 345 milljónir fram úr
áætlun og eru alls 12,5 milljarðar. Þó
kemur fram að útgjöld ráðuneytisins
haft lækkað um 425 milljónir vegna
Ingibjörg Pálma-
dóttir heilbrigðis-
og tryggingaráð-
herra: 1,4 millj-
arða fram úr fjár-
lögum.
Björn Bjarnason
menntamálaráð-
herra: 345 milljón-
ir fram úr fjárlög-
um.
Þorsteinn Pálsson
dóms- og kirkju-
málaráðherra: 215
milljónir fram úr
fjárlögum.
Páll Pétursson fé-
lagsmálaráðherra:
200 milljónir fram
úr fjárlögum.
kennaraverkfallsins. Dóms- og kirkju-
málaráðuneytið fór 251 milljónir ffam
úr fjárlögum, en þar voru rekstrar-
gjöldin um 5,3 milljarðar. Af því fóru
löggæslustoíhanir 54 milljónir fram úr
áætlun en sýslumannsembætti 43
milljónir. Að auki varð viðhalds- og
stofnkostnaður 168 milljónum hærri
en gert var ráð fyrir og munar þar
mest um nýbyggingu Hæstaréttar.
Heilbrigðisráðuneytið fór um 200
milljónir króna fram úr fjárlögum.
Munar þar mest um aukið ffamlag til
Framkvæmdasjóðs fatlaðra, en einnig
er þess getið í skýrslunni að umfram-
greiðslur til Vinnueftirlitsins hafi ver-
ið sem nemur 22 milljónum króna.
Rekstrargjöld fjármálaráðuneytis fóru
120 milljónir króna fram úr fjárlögum,
en af þeirri upphæð er kostnaður
vegna snjóflóðanna á Súðavík og Flat-
eyri 91 milljón. Framúraksturinn í
utanríkisráðuneyti nam 118 milljónum
króna; þar af kostaði flutningur aðal-
skrifstofu ráðuneytisins 38 milljónir
en einnig var rekstur sendiráða kostn-
,floUWorJ?«„L.
rA
Trúarbrögð - Trúarbragðasaga
Ný námskeið í mars og apríl
Trúarbragðasaga - yfirlit
Gerð verður í stórum dráttum grein fyrir sögu, þróun og aðaleinkennum helstu trúarbragða mannkynssögunar.
Efnisleg skipting:
1. Einkenni sem eru sameiginleg öllum trúarbrögðum.
2. Trúarbrögð runnin upp í Austurlöndum nær.
3. írönsk og indversktrúarbrögð, þ.á.m. Konfúsíusarsiður, taó og shinto.
5. Trúarbrögð Evrópu fyrir Kristni.
6. Trúarbrögð Afríku -sunnan Sahara, þjóða norðurhjarans, Ameríku fyrir Kólumbus, Eyjaálfu o.fl.
6 vikna námskeið á þriðjudögum kl. 19.40-21.45
hefst 5. mars Kr. 4.800,-
Saga og trú Ameríku fyrir Kólumbus.
farið verður yfir sögu álfunnar framundir 1500 og gerð grein fyrir mismunandi menningu hinna ýmsu svæða.
Áhersla lögð á að kynna trúarbrögð índíána og eskimóa. Fjallað verður um útbreiðslu kristninnar í álfunni og
blöndun hennar og „innfæddra" trúarbragða. Viðhorf indíána og eskimóa skoðuð.
3 vikna námskeið á miðvikudögum kl. 19.40-21.45
hefst 6. mars Kr. 2.400,-
Trú og galdrar norðurhjarans.
Fjallað verður um „innfædd" trúarbrögð þjóða Norður- og Mið Asíu, norðurhjara Evrópu og Norður - Ameríku.
Skoðuð verða helstu einkenni trúarbragða svæðanna, einkum sjamanismans og komið inn á hugsanlegan skyld-
leika hans við skandinavískan galdur. Onnur mikilvæg atriði, svo sem verndarandatrú indíána, trú á dýradrottna,
menningargjafa, „trickstera" o.fl. verða einnig til meðferðar.
3 vikna námskeið á miðvikudögum kl. 19.40-21.45
hefst 27. mars Kr. 2.400,-
Upplysingar og innritun í síma 551 2992 og 551 4106
Svo lengi lærir sem lifir
Halldór Asgríms- Davíð Oddsson
son utanríkisráð- forsætisráðherra:
herra: 118 milljón- 40 milljónir fram
irfram úrfjárlög- úrfjárlögum.
um.
aðarsamari en áætlað var.
Landbúnaðarráðuneytið fór 63
milljónir fram úr fjárlögum og er
hækkunin mest hjá aðalskrifstofu
ráðuneytisins, 19 milljónir, en einnig
munar um 12 milljón króna hækkun
hjá embætti yfirdýralæknis og 15
milljónir hjá Bændaskólunum á Hól-
um. í skýrslunni er ráðuneytið áminnt
um að grípa til aðgerða til að halda
rekstrinum innan ramma fjárlagfa.
Forsætisráðuneytið fór 40 miiljóriír
króna fram úr fjárlögum og eru rekstr-
arúgjöld þar alls 206 milljónir. Þar
hafa orðið litlar hækkanir vegna kjara-
samninga, en greiðslur til embættis
Húsameistara ríkisins og vegna þjóð-
garðsins á Þingvöllum vega þungt í
kostnaðaraukanum.
I skýrslu fjármálaráðherra eru aukin
útgjöld samgönguráðuneytis, um-
hverfisráðuneytis, iðnaðarráðuneytis
og viðskiptaráðuneytisins að mestu
skýrð með auknum launakostnaði.
Hins vegar nýtur sjávarútvegsráðu-
neytið nokkurrar sérstöðu sem fyrr
segir; þar urðu útgjöld 18 milljónum
lægri en gert var ráð íyrir á fjárlögum
þrátt fyrir aukinn launakostnað. Kem-
ur fram að útgjöld flestra stofnana
ráðuneytisins hafí farið ögn fram úr
fjárlögum, nema Fiskistofu, en þar
tókst að spara 20 milljónir, einkum
með því að skera niður ferðakostnað
innanlands.
■ Upplýsingar
frá Hagstofu
Margir
segjasig
úr Þjóð-
kirkjunni
„Það virðist veruleg fjölgun úr-
sagna úr kirkjunni, því er ekki að
leyna,“ sagði starfsmaður Hag-
stofunnar sem Alþýðublaðið ræddi
við í gær. Starfsmaðurinn, sem
ekki vildi láta nafns síns getið,
sagði að mikið væri hringt og
spurt hvernig fólk færi að því að
segja sig úr Þjóðkirkjunni. Það
gengur þannig fyrir sig að fólk
þarf að mæta á staðinn og fylla út
sérstakt eyðublað, og sagði starfs-
maðurinn að margir hefðu uppá
síðkastið lagt leið sína í Hagstof-
unna í þeim erindagjörðum.