Alþýðublaðið - 12.04.1996, Blaðsíða 1
■ Þórður Skúlason framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga um tekju-
tap sveitarfélaga vegna fjármagnstekjuskatts ríkisstjórnarinnar
Stórfréttir sem ég lít
alvarlegum augum
- segir Þórður. Frumvarpið var ekki sent sveitarstjórn-
armönnum til umsagnar. Tap sveitarfélaganna nemur
rúmlega 400 milljónum króna.
„Þetta eru stórfréttir. Þær
koma mér algjörlega á óvart og
ég hlýt að líta þær alvarlegum
augum,“ sagði Þórður Skúlason
framkvæmdastjóri Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga þegar Al-
þýðublaðið ieitaði eftir viðbrögð-
um hans við þeim upplýsingum
Jóns Baldvins Hannibalssonar
að með stjórnarfrumvarpi um
fjármagnstekjuskatt væri verið
að hlunnfara sveitarfélög um
hundruð milljóna króna.
Þórður sagðist ekki kannast
við að umrætt frumvarp hefði
verið sent sambandinu til um-
sagnar eða sérstakrar skoðunar.
Hann sagði að í ljósa þessara tíð-
inda myndi sambandið íhuga að-
gerðir og koma athugasemdum
sínum til þeirrar þingnefndar
sem fjallar um málið.
Jón Baldvin sagði í Alþýðu-
blaðinu í gær að skatturinn
myndi leiða til þess að sveitarfé-
lög myndu tapa tekjum af arði
og söluhagnaði, auk þess sem
þau myndu verða skattskyld af
vaxtatekjum. Nettó tap sveitarfé-
laganna í upphafi gæti numið
um 300 milljónum en farið í 425
milljónir þegar skatturinn væri
að fullu kominn til fram-
kvæmda.
■ Sinfóníutónleikar
í Hallgrímskirkju
Sálu-
Skáktölvan
s e m I a g ð i
N a póIeo n
messa
Brahms
- verður flutt undir stjórn
Takuo Yuasa.
Laugardaginn 13. apríl halda Sin-
fóníuhljómsveit Islands og kór Lang-
holtskirkju tónleika ásamt einsöngvur-
unum Sólrúnu Bragadóttur og Lofti
Erlingssyni undir stjórn japanska
hljómsveitarstjórans Takuo Yuasa.
Takuo Yuasa hlaut fyrstu tónlistar-
menntun sína í fæðingarborg sinni Os-
aka í Japan. Síðar nam hann í Banda-
rikjunum og lauk þar prófi í tónsmíð-
um og hljómsveitarstjórn. Að því
loknu flutti hann til Evrópu og stund-
aði meðal annars nám hjá Franco
Ferrara og Igor Markevich. Hann
vann til fyrstu verðlauna í alþjóðlegu
hljómsveitakeppninni í Póllandi 1979
og hófst þar með ferill hans sem
stjómanda. Yuasa er nú mjög eftirsótt-
ur stjómandi í Evrópu og var til dæm-
is ráðinn fyrsti gestastjórnandi BBC
sinfóníuhljómsveitarinnar í Skotlandi.
Á efnisskránni verður sálumessa
Brahms, sem hann samdi eftir dauða
móður sinnar og vinar síns Roberts
Schumanns. Sálumessan var frumflutt
í heild sinni á föstudaginn langa árið
1868 í dómkirkjunni í Bremen undir
stjóm höfúndar og hlaut hún ffábærar
viðtökur.
Össur Skarphéðinsson krefst skýringa á því afhverju rússneska landhelgisbrjótnum var sleppt
í blaðinu í dag segjum við ffá fyrstu
„skáktölvunni" sem ffam kom í heim-
inum. Austurríkismaður nokkur smíð-
aði hana fyrir ríflega 200 ámm, og
hlaut gripurinn viðumefnið Tyrkinn.
Tyrkinn var nánast ósigrandi í áratugi
og flestum var óskiljanlegt hvemig
„vél“ bar léttilega sigurorð af jafnvel
hinum fæmstu skákmönnum. Meðal
fómarlamba Tyrkjans var sjálfur Nap-
óeon mikli og það var svo ekki minni
maður en Edgar Allan Poe sem upp-
lýsti leyndarmál „skákvélarinnar". Sjá
allt um þetta á miðopnu.
„Mig langaði að gera eitthvað sem mér finnst fallegt," segir Tómas Ponzi.
■ Fiðrildi á Mokka
Vann þetta með krökkunum
-segirTómas Ponzi umfiðrildamyndirsínar.
„Hugmyndin er að skapa vorstemmningu á dimmu kaíflhúsi, svona til að bjarga sér í skammdeginu,“ segir Tómas
Ponzi en hann mun halda myndlistarsýningu á Mokka dagana 17. til 9. maí. Sýningin ber yfirskriftina „Fiðrildi“
og samanstendur af 50 smámyndum sem unnar eru með hjálp tölvu. „Þetta eru mjög litskrúðugar myndir. Mig
langaði að gera eitthvað sem mér finnst fallegt og vann þessar myndir með krökkunum mínum,“ segir Tómas en
þetta er fyrsta einkasýning hans.
Þýskir jafn-
aðarmenn í
klemmu
Jafnaðarmenn í Þýskalandi riðu
ekki feitum hesti ffá kosningum í
þremur fylkjum á dögunum, og svo
virðist sem hinn óbifanlegi Kohl
kanslari standi með pálmann í hönd-
um þrátt fyrir ört hnignandi efnahag
ríkisins og vaxandi atvinnuleysi.
Við segjum frá lánleysi þýskra jafn-
aðarmanna á blaðsíðu 7.
Brahms var mikill efasemdamaður
hvað trúmál varðar en sálumessa
hans verður flutt í Hallgrímskirkju
á laugardaginn.
Landhelgina verður að verja
- segir Össur. Utanríkisnefnd fundar um málið í dag
að kröfu þingmannsins. „Reykjaneshryggurinn verður
undirlagður af erlendum skipum, og það er vægast
sagt ekki góð byrjun að sleppa landhelgisbrjóti."
„Eg skil ekki hvað lá að baki þeirri
ákvörðun dómsmálaráðherra að láta
landhelgisbrot rússneska togarans
átölulaust. Kannski hefur ráðherrann
einhverjar skýringar á því, og þangað
til þær liggja fyrir vil ég ekki fella
neinn dóm um ákvörðunina. Ég hef
óskað eftir því að málið veði skýrt í
utanríkisnefnd og formaðurinn Geir
H. Haarde varð að sjálfsögðu við
þeirri ósk,“ sagði Össur Skarphéðins-
son, þingmaður Alþýðuflokksins í
gær og fulltrúi í utanríkisnefnd Al-
þingis.
Að ósk hans mun utanríkisnefnd
þingsins fjalla um málið fyrir hádegi
í dag og yfirmaður Landhelgisgæsl-
unnar, auk fulltrúa sjávarútvegs- og
utanríkisráðuneytis, munu skýra af-
stöðu þeirra.
„Reykjaneshryggurinn verður und-
irlagður af erlendum skipum, og það
er vægast sagt ekki góð byrjun að
sleppa landhelgisbijóti,“ sagði Össur.
„Fyrir því verða að vera afar gildar
ástæður. Þjóðin þarf að vera fullviss
um að þessi ríkisstjóm verji landhelgi
fslands, en ef ekki koma viðunandi
„Þorsteinn Pálsson segist aetla að
efla Landhelgisgæsluna en yfir-
maður hennar hefur greinilega
enga hugmynd um hvað ráðherr-
ann er að fara," segir Össur Skarp-
héðinsson.
skýringar á háttalagi ráðherrans hafa
menn fyllstu ástæðu til að efast um
það. Ég vek athygli á því að yfirmað-
ur Landhelgisgæslunnar hefur sagt að
Gæslan hefði getað tekið skipið en til
þess hefði ekki verið pólitískur vilji.“
Össur sagði líka merkilegt að í
kjölfar þessa hafi Þorsteinn Pálsson
lýst yfir ítrekað að Landhelgisgæslan
verði efld en viðbrögð yfirmanns
Gæslunnar verið slík að ljóst væri að
hann hefði enga hugmynd um það
hvernig ráðherrann ætlaði að efla
hana eða hvað Þorsteinn er yfirleitt
að fara. „En það er ekki vandi Þor-
steins að tala út í bláinn svo það
verður væntanlega fróðlegt að heyra
sjónarmið hans á fundinum," sagði
Össur.