Alþýðublaðið - 12.04.1996, Page 3
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1996
ALÞÝÐUBLAÐK)
3
s k o ð a n i r
Kfnversk kanfna
IHafa íslenskir ráðamenn virkilega vilja
til þess að sjá hér rísa kínverskt álver, fengið
frá morðhundunum Deng og Li Peng?
Það er alkunna að í fjölmennasta
ríki heims á einstaklingurinn ekki
annan tilverurétt en þann sem stjóm-
völd skammta honum - og skammta
svo naumt að einstaklingnum gefst
tæpast svigrúm til orðs og athafna.
Þetta virðist ekki valda stjómvöldum
annarra ríkja sérstökum áhyggjum,
enda er sá rúmi milljarður einstak-
linga sem hér er til umræðu, utan
þeirra landamæra. Þeir eru á land-
Pallborðið |
svæði Kínastjómar sem með þegjandi
samþykki annarra ríkja fær óáreitt að
stjórna þegnum sínum eins og
strengjabrúðum og refsa harðlega
þeim sem vilja slíta af sér strengina.
Umheimurinn veit hvað er að gerast
í Kína en vill ekki aðhafast. Hver á
fætur öðmm hafa stjómmálamenn og
viðskiptajöfrar streymt til Kína þeirra
erinda að eiga viðskipti við kínversk
stjómvöld og hjala við þau um nauð-
syn góðra samskipta. Þetta em pattar-
legir burgeisar og í snauðum hug-
myndaheimi þeirra rúmast veraldar-
hyggjan ein. Umhyggja þeirra gagn-
vart kínverskri alþýðu er í lágmarki,
enda er hún fyrir þeim einungis and-
litslaus fjöldi. Samúðin er meiri með
kínverskum ráðamönnum. Burgeis-
amir vita af eigin raun að það kostar
átak að halda uppi lögum og reglu og
þeir geta rétt ímyndað sér hversu mik-
ið átak þarf til að stjóma massa upp á
annan milljarð. Þá verður eitthvað
undan að láta. Jafnvel grundvallar-
mannréttindi. Þau em munaður sem
óhagkvæmt er að veita ijöldanum og
verða því að einskorðast við fáa út-
—,i... ................——
valda.
Af þessari samúð valdamanna með
öðmm valdamönnum skapast viðhorf
sem sett em í orð eins og þau að allt sé
þetta flókið mál, víða sé pottur brotinn
þegar mannréttindi eigi í hlut og ekki
sé hægt að setja sig í dómarasæti því
þama sé á ferð annar hugmyndaheim-
ur en við Vesturlandabúar þekkjum. Á
þennan hátt er malað og þvaðrað með-
an það væri miklu heiðarlegra af þess-
um mönnum að segja að þeim standi
hreinlega á sama. Þetta sé ekki þeirra
mál. Ekki þeirra fólk. Ekki þeirra
vinnukraftur. Ekki þeirra atkvæði.
Samskipti ráðamanna á Vesturlönd-
um og í Kína snúast um gagnkvæm
viðskipti. Mannréttindabrot í stærsta
ríki heims em látin Uggja á milli hluta.
Þau em bf óþægileg til að hægt sé að
skipta sér af þeim. Afskipti gætu kom-
ið í veg íyrir viðskipti.
Og nú ætla Kínveijar og ríkisstjóm
Islands að leggja í púkk. Kínversk
sendinefnd sem stödd er hér á landi
hefur dregið kanínu upp úr töfrahatti
sínum og fært Finni Ingólfssyni. Nú á
að reisa hér álver fyrir kínverskt fé.
Við þær fféttir hljóta fleiri en Hjörleif-
ur Guttormsson að fá málið.
Það er reyndar rétt að hafa fyrirvara
á þessari álversfrétt enda þarf ekki sér-
ffæðing í utanríkismálum til að sjá að
Kínveijar hafa verið ofur latir í fjár-
festingum erlendis, en því duglegri við
að ginna útlendinga til lands síns og
hirða af þeim fé. Vísast er kanínan í
þessu tilfelli einungis tálsýn. En hvort
sem svo reynist eður ei þá er skömm
íslenskra stjómvalda hin sama. Þau
em reiðubúin í umfangsmikla samn-
inga við það ríki heims sem af hvað
mestum krafti treður á mannréttindum
þegna sinna.
Ríkisstjórn íslands og fulltrúum
hennar er nokk sama þótt kínversk
ríkisstjóm valti yfir þegna sína. En til
að flekka ekki ímyndina er samvisku
dröslað upp á svið. Á fundi munu full-
trúar í utanríkismálanefnd hafa útskýrt
fyrir kmversku sendinefhdinni í hveiju
mannréttindi væm fólgin. Þeim skila-
boðum hefur vafalaust verið tekið
með kurteislegri, kínverskri höfuð-
hneigingu. Og síðan hafa menn dregið
andann léttar og brosað hver til annars
því heldur leiðinlegu formsatriði var
lokið. Þá var hægt að snúa sér að máli
málanna, viðskiptum og gagnkvæm-
um gróða.
Nú spyr ég, hvar er siðferðisvitund
íslenskra stjómvalda? Ganga þau til
samninga við hvern sem er og um
hvað sem er? Hafa íslenskir ráðameim
virkilega vilja til þess að sjá hér rísa
kínverskt álver, fengið frá morðhund-
unum Deng og Li Peng? Ég endurtek
að ég hef enga trú á því að það ver
rísi, en það er ömurlegt að verða vitni
að vilja ríkisstjórnarinnar til þeirra
samninga. Viljinn er ávísun upp á
sinnuleysi. Sinnuleysi gagnvart örlög-
um þeirra sem strita í vinnubúðum eða
bíða dauðadóms í Kína eingöngu
vegna þess að hugmyndir þeirra um
tjáningarfrelsi fóru ekki saman við
hugmyndir einræðisherranna. Ofur-
kjass íslenskra stjómvalda við fulltrúa
Kínastjómar er vanvirða við tjáningar-
frelsið og lítilsvirðing við þá einstak-
linga sem lagt hafa allt í sölumar til að
slíkt frelsi megi fram ganga. Og eng-
inn skal segja mér að fleðuleg sam-
skipti við einræðisherra jafhgildi ekki
pólitískri afstöðu. Sl£k samskipti em
ekkert annað en lítilsvirðing við
grundvallarhugsjónir er varða rétt,
sem okkur ber að virða umfram allt,
þann rétt einstaklingsins að fá að lifa
eins og manneskja. ■
Samkeppnin sjónvarps-
stöðvanna er hörð og
menn miskátir með niðurstöð-
ur ítarlegrar könnunar Félags-
vísindastofnunar á vinsældum
einstakra þátta. Stöð 3 hefur á
brattann að sækja, og á þeim
bæ mun hafa valdið miklum
vonbrigðum að helsta skraut-
fjöðrin í innlendri dagskrár-
gerð þeirra, þáttur Magnúsar
Schevings þolfimikappa,
hafði aðeins komið fyrir sjónir
3 prósenta áhorfenda. Þetta er
ekki mikið, sérstaklega þarsem
því er fleygt að kostnaður við
hvern þátt sé á þriðju millj-
ón...
Ekki hafði Davíð Oddsson
fyrr kveðið uppúr með að
hann gæfi ekki kost á sér sem
næsti forseti lýðveldisins, en
miklarsögurflugu um bæinn
um væntanlegt framboð Frið-
riks Sophussonar. Nú er
Friðrik að sönnu vanur að sitja
og standa einsog Davíð skipar
honum, en hann mun ekki
spennturfyrirslagsmálum um
Bessastaði þótt mikið hafi
verið um það skrafað í
hliðarsölum Alþingis í gær.
Hinsvegar er Friðrik æ oftar
bendlaður við forstjórastól
Landsvirkjunar. Alltjent væri
það Davíð ekki á móti skapi að
Friðrik haslaði sér nýjan völl
enda gæti formaður Sjálfstæð-
isflokksins þá enn hert tök á
flokknum og látið kjósa Björn
Bjarnason vin sinn sem vara-
formann og tekið Geir Haar-
de inn í ríkisstjórn...
r
Anæstu dögum skýrist
hvort fleiri demba sér í
forsetaframboð. Spámenn Al-
þýðublaðsins
eru þeirrar skoð-
unar að nýir
frambjóðendur
muni tæpast
koma fram. Páll
Skúlason er
þegar úr leik en
tilhugsunin kitlar
að sönnu menn
einsog Ellert B.
Schram, Njörð
P. Njarðvík, Ól-
af Egilsson og Ólaf Ragn-
arsson en enginn þeirra ertal-
inn geta keppt við Guðrúnu
Pétursdóttur og Ólaf Ragn-
ar Grímsson sem eru að
stinga af í skoðanakönnun-
um...
Harðar umræður urðu á Al-
þingi í gær þegar þeir Jón
Baldvin Hannibalsson og
Össur Skarphéðinsson tóku
framsóknarmenn í dálitla end-
urmenntun og rifjuðu upp
stórfelld loforð þeirra í hús-
næðismálum fyrir kosningar.
Þá brá svo við að þingmenn
Framsóknar tíndust úr salnum
einn af öðrum, uns þeir voru
allir á braut. Þingforseti
auglýsti þá að gefnu
tilefni eftirframsóknar-
mönnum og þau Jón
Kristjánsson og Val-
gerður Sverrisdóttir
frá Lómatjörn gáfu sig
fram. Valgerður undi
sér greinilega stórilla
undir ræðum Össurar,
alltjent bísnaðist
Lómatjarnarbóndinn
mikið - en þorði þó
ekki að stíga í pontu og skýra
hvar Framsókn hefði orðið við-
skila við loforðin frómu...
„Dokiði aðeins við, strákar. Ykkur er alveg óhætt að leggja
niður gósið ykkar; gullin og gersemarnar. Hann Skúli - já,
hann Skúli gamli sem bar ábyrgðina á því að kynna sér flóð
og fjöru hér um slóðir samkvæmt Almanaki Hins íslenska
þjóðvinafélags - þarf nefnilega að segja okkur öllum frá
dálitlu sem hann klikkaði illilega á...!"
firnrn á fðrnum vegi
Trúir þú að guð hafi skapað manninn í sinni mynd?
íris Guðmundsdóttir Jeanette Egeberg nemi:
nemi: Nei, ég trúi á þróunar- Nei, ég trúi ekki á guð.
kenningu Darwins.
Kristófer Sigurgeirsson
kantmaður: Nei, því trúi ég
ekki. Við erum komnir af fíl-
Bergur Ingólfsson leikari:
Ég vil halda því opnu.
Sæunn Harðardóttir nemi:
Nei, alls ekki. Þróunarkenning-
in segir okkar sögu.
v i t i m e n n
Konan hringdi bálreið í Stíga-
mót. Málið var rannsakað og
niðurstaða fengin; Karlmaður
hafði gengið framhjá inn-
kaupatöskunni, svo mjólkin
draflaði og kjötið úldnaði.
Guðbergur Bergsson rithöfundur.
DV í gær.
Átök milli útgerðarmanna
og sjómanna stærri báta og
togara og trillukarla leysa
engan vanda.
Leiðari
Tímans í gær.
Heimsendaspámenn eru
nánast óteljandi og raunar
býsna margir heimsendar
komnir í vanskil.
Garri í
Tímanum í gær.
Það er ekki á hverjum degi og
ekki víða í heiminum sem það
gæti gerst að starfandi flokks-
formaður fengi dynjandi lófa-
klapp, fögnuð og þakklæti
samflokksmanna fyrir að færa
þá fórn að fara ekki í forseta-
framboð, sem hann var ekki
búinn að gefa til kynna að
hann ætlaði að fara í.
Birgir Guðmundsson á víðavangi.
Tíminn í gær.
Ég get ekki betur séð
og heyrt en að ríkisstjórnin
okkar sé að lúffa í hverju
málinu á fætur öðru.
Lesendabréf í
DV í gær.
Reyndir menn hafa það að
leiðarljósi í væntanlegum for-
setakosningum, að þjóðin mun
sjálf finna sér forseta hjálpar-
laust og að það geti aðeins haft
öfug áhrif að reyna að segja
henni fyrir verkum.
Jónas Kristjánsson í leiðara
DV í gær.
fréttaskot úr fortíð
Glæsilegur
ferill
Áður óþekktur maður í faginu, hr.
Simon Borenstein í New York, hefir
verið tekinn fastur. Hann hafði aðeins
smndað innbrotsþjófnað í þrjár vikur,
en með prýðilegum árangri. Hann var
tekinn eina nótt um fjögurleytið og
var mjög fínn til fara. Fyrstu nóttina
brauzt hann inn í tíu hús og hveija
nótt síðan hafði hann brotist inn í
mörg hús. Hann er aðeins 21 árs
gamall. Nú situr hann inni í Brook-
lynfangelsinu í heimspekilegum hug-
leiðingum yfir sínum stutta en glæsi-
lega afbrotaferli.
Alþýðublaðið
sunnudaginn 9. febrúar 1936