Alþýðublaðið - 12.04.1996, Qupperneq 8
*
'miVFILl/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
Föstudagur 12. apríl 1996
niimiiin
55. tölublað - 77. árgangur
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
■ Heimsókn kínverskrar sendinefndar vekur viðbrögð
Amnesty International á íslandi
Hvetur þingmenn til
að mótmæla mannrétt-
indabrotum í Kína
Amnesty Intemational á íslandi hefur sent bréf til Ólafs G. Einars-
sonar forseta Alþingis og formanna allra þingflokka, þar sem
hvatt er til þess að þeir taki upp viðræður um mannréttindabrot í
Kína við kínversku sendinefndina, sem stödd er hér á landi í boði
forseta Alþingis. Alþýðublaðið hafði samband við forseta Alþing-
is og fulltrúa stjómmálaflokkanna og grennslaðist fyrir um hvort
þeir hygðust sinna erindi Amnesty.
á þann hátt að menn gátu vel skilið að
þar væri verið að koma fram ákveð-
inni gagnrýni. Við ræddum stöðu
mannréttindamála í Kína við Kínverj-
ana og einnig komu þama fram fyrir-
spumir um stöðu kvenna. Þeir komu
með alls kyns skýringar, en við sögð-
um þeim að við vildum koma okkar
sjónarmiðum á framfæri. Ymis snörp
skilaboð komu þama ffam.“
Ólafur G. Einarsson
forseti Alþingis
Ekki gestgjafans
að taka gestina tii
bæna
„Ég mun skýra varaforsetanum frá
því að mér hafi borist þetta bréf. Ég
hef þegar átt fund með kínversku
sendinefndinni. Sá fundur snerist af
eðlilegum ástæðum ekki um þessi
mál. Eg sagði frá þinginu og okkar
stjómskipan. Við ræddum ýmis mál
sem varða samskipti þjóðanna. Báðir
lýstu ánægju með vaxandi samskipti.
Eg veit að menn skilja að þar sem ég
er í hlutverki gestgjafa þá er ekki mitt
að taka gestina sérstaklega til bæna
fyrir það sem miður fer í þeirra ríki,
sem er áreiðanlega margt. En það
breytir ekki því að ég mun koma er-
indinu til skila.“
Kristín Ástgeirsdóttir þingmaður
Kvennalista
Kínverjum ber að
virða grundvaiiar-
mannréttindi
„Kvennalistinn hefur ákveðið að
senda bréf til sendinefndarinnar og
skora á Kínveija að bæta mannréttindi
í landi sínu. Við höfum áhyggjur af
mannréttindabrotum í Kína og viljum
minna á það hverju þeir lofuðu á
kvennaráðstefnunni í Kína. Því miður
hafa menn verið mjög feimnir við að
gagnrýna kínversk stjómvöld en það á
að láta þau vita af því að menn fylgist
með því sem er að gerast í Kína og
séu ekki sáttir við það. Það er einnig
brýnt að viðskiptasjónarmið ráða ekki
algjörlega ferðinni í samskiptum Vest-
urlandabúa við Kínverja. Kínverjum
ber að virða grundvallarmannréttindi
eins og öðrum þjóðum heims.“
Valgerður Sverrisdóttir þing-
flokksformaður Framsóknar
Nægilega mikið
aðhafst
„Þingflokkurinn hefur ekki haft
fund með kínversku gestunum en
Guðmundur Bjamason, starfandi utan-
ríkisráðherra, tók þetta mál upp á
fundi sfnum með þeim. Hið sama
gerði utanríkismálanefnd. Við teljum
að það sé nægilegt."
Svanfríður Jónasdóttir þing-
flokksformaður Þjóðvaka
Getum við ein-
hvern tímann
stoppað þá?
„Við ræddum þetta á þingflokks-
fundi. Við vorum sammála um það að
rétt væri að nota þau tilefni sem gæf-
ust til þess að spyrja þeirra gagnrýnis-
spuminga sem eðlilegt er að við spyrj-
um, og að sendinefndin fyndi það að
fólk á íslandi fylgist með því sem er
að gerast í Kína.
Mér finnst samskipti Vesturlanda
gagnvart Kínveijum bera vott um það
að Vesturlönd vilja fá að taka þátt í
hagvaxtarundrinu. Vegna hagvaxt-
arglýjunnar emm við Vesturlandabúar
búnir að hleypa Kínveijum það langt
að ég spyr sjálfa mig, og í leiðinni
aðra, hvort við reiknum þá með að
geta einhvem tímann stoppað þá.“
Lára Margrét Ragnarsdóttir
þingmaður Sjálfstæöisflokksins
Ýmis snörp skila-
boð komu fram
„Á fundi utanríkisnefndar og kín-
versku sendinefndarinnar varpaði Geir
H. Haarde fram nokkrum spumingum,
Rannveig Guðmundsdóttir þing-
flokksformaður Alþýðuflokksins
Munum
bregðast við
„Við veittum erindi Amnesty for-
gang á önnur mál sem vom á dagskrá
síðasta þingflokksfundar. Við eigum
eftir að ræða það hvort viðbrögð okk-
ar verða í formi bréfs eða sett fram á
annan hátt, en þeir fulltrúar Alþýðu-
flokksins sem taka þátt í fundum sem
fyrirhugaðir em með sendinefndinni
munu sinna þessu erindi. Okkur finnst
erindi Amnesty afar mikilvægt og við
munum sannarlega bregðast við því.“
Svavar Gestsson þingflokksfor-
maður Alþýðubandalagsins
Styðjum þessar
ábendingar
„Við höfum ákveðið að skrifa vara-
forseta kínverska þingsins sérstakt
bréf þar sem við tökum undir ábend-
ingar Amnesty Intemational og óskum
eftir því að kínversk stjómvöld og kín-
verska þingið taki mark á þeim ábend-
ingum. Við lýsum því yfir sem alþing-
ismenn fyrir hönd okkar þingflokks að
við styðjum þessar ábendingar og vilj-
um að mark sé tekið á þeim.“
I tilefni heimsóknar varaforseta kínverska þingsins og
föruneytis hans blakti kínverski fáninn ásamt þeim ís-
lenska við Alþingishúsið. Amnesty International hefur
beint þeim tilmælum til forseta Alþingis og þingflokks-
formanna að þeir komi á framfæri mótmælum við kín-
versku gestina vegna mannréttindabrota í Kína. Ekki var
annað að heyra á þeim sem Alþýðublaðið ræddi við en
að þeim tilmælum yrði sinnt.
■ Forsetapælingar
Páll úr leik
Vegna undangenginnar umræðu
um hugsanlegt forsetaframboð Páls
Skúlasonar heimspekiprófessors
sendi hann frá sér svohljóðandi
fréttatilkynningu í gær: Að vandlega
athuguðu máli tel ég ékki rétt að
sækjast eftir embætti forseta íslands.
Ég er afar sáttur við núverandi starfs-
vettvang minn og á þar ólokið ýms-
um verkum sem em mér hugleikin.
Þá skal því ekki neitað að einnig veg-
ur þungt sá fjárhagslegi kostnaður
sem kosningabarátta virðist hafa í för
með sér. Ég sendi öllum sem hafa
hvatt mig í þessu máli einlægar þakk-
ir fyrir traust og stuðning.
Páll Skúlason: Neita ekki að fjár-
hagslegur kostnaður, sem kosn-
ingabarátta virðist hafa í för með
sér, vegur þungt.
■ Hollvinasamtök Háskóla íslands
Viljum styrkja
ímynd Háskólans
- segir Sigríður Stefánsdóttir framkvæmdastjóri.
„Þetta snýst um að efla tengsl milli
Háskólans og gamalla stúdenta og al-
mennings," segir Sigríður Stefánsdótt-
ir réttarfélagsfræðingur og fram-
kvæmdarstjóri Hollvinasamtaka Há-
skólans en samtökin verða formlega
stofnuð 17. júní.
í stofnskrá Hollvinasamtakanna er
gert ráð fyrir að stofnuð verði holl-
vinafélög einstakra deilda, náms-
brauta, skora eða stofnana og munu
samtökin sjá um þjónustu við þessi fé-
lög. „Með þessu viljum við styrkja
ímynd Háskólans útá við og gefa fóUci
tækifæri til að fylgjast með því sem er
að gerast í Háskólanum. Við komum
til með að gefa út fréttabréf á næst-
unni og svo verður félögum Hollvina-
samtakanna gefinn kostur á að gerast
áskrifendur að ýmsum fréttabréfum,
blöðum og rannsóknarskrám, sem gef-
in eru út í skólanum. Auk þessa verða
haldnir tónleikar og fyrirlestrar þar
sem félögum í Hollvinasamtökunum
verður sérstaklega boðið,“ segir Sig-
ríður en sunnudaginn 5. maí verður
móttaka í Odda fyrir hollvini og kenn-
ara skólans og er hveijum þá velkom-
ið að gerast félagi.