Alþýðublaðið - 25.04.1996, Síða 1
Fimmtudagur 25. apríl 1996 Stofnaö 1919 62. tölublað - 77. árgangur
■ Össur Skarphéðinsson krefst þess að utanríkisráðherra lýsi opinberlega yfir
stuðningi við aðildarumsóknir Eystrasaltsríkjanna að NATÓ
Vinir okkar leita að haldgóðu skjóli
Albaníu-
Lára frum-
sýnd á ís-
landi
„Til hvers er að lifa ef
maður reynir ekki að ná fram
því sem maður vill. Ég er að gera
það sem ég vil gera og ekkert ann-
að, segir Margrét Rún Guðmunds-
dóttir, leikstjóri myndarinnar Al-
baníu-Lára sem frumsýnd verður í
kvöld í Háskólabíói. Þetta er marg-
verðlaunuð mynd sem sýnd hefur
verið á þriðja tug alþjóðiegra kvik-
myndahátíða víða um heim. Viðtal
við Margréti Rún er á biaðsíðu 7.
Össur: Rússar ræða nú
möguleika á hernaðaríhlut-
un í Eistlandi, Lettlandi og
Litháen. Málið snýst um
hvort ísland ætlar að hafa
frumkvæði eða vera bara
passívur hluti af farteskinu.
„Ég er þeirrar skoðunar að ísland
eigi að styðja óskir Eystrasaltsþjóð-
anna um að þær fái aðild að NATÓ,“
sagði Össur Skarphéðinsson, sem í
fyrradag innti utanríkisráðherra eftir
því á Alþingi hvort hann hygðist
beita sér fyrir því innan Atlantshafs-
bandalagsins. „Þessar þjóðir bera
mikinn kvíðboga fyrir framtíð sinni
og telja hag sinn ekki tryggan nema
innan NATÓ, og hafa meðal annars
leitað eftir fulltingi íslendinga. Þær
eiga sjálfar að fá að ráða sinni fram-
tíð, og ég er þeirrar skoðunar að Is-
lendingar eigi að styðja þessar ósk-
ir.“ Þingmaðurinn var ekki ánægður
með loðin svör ráðherrans.
„Það eru ekki nema tæp tvö ár síð-
an Kozyrev, þáverandi utanríkisráð-
herra Rússlands, lét á sér skilja í við-
tölum við fjölmiðla að til þess kynni
að koma að Rússar þyrftu að vemda
hag rússneskra minnihluta í þessum
þjóðum með rússneskum hermönn-
um. Eðlilega hnykkti í mönnum í
Eystrasaltsríkjunum við slík um-
mæli. Það er líka auðvelt að sjá fyrir
þróun í kjölfar næstu forsetakosn-
inga í Rússlandi, sem gæti leitt til
þess að sjálfstæði þessara ríkja væri
ógnað. Fyrir örfáum dögum birtist í
rússnesku tímariti um hermál grein
um þessi efni, sem hefur í senn vakið
ugg og ótta í Eystrasaltslöndunum en
þar rökræða Rússar beinlínis mögu-
leikann á íhlutun rússnesks herliðs.
Við þessar aðstæður er ekki nema
von að vinir okkar í þessum löndum
séu uggandi um framtíð sína, og leiti
að haldbæru skjóli. Þeir telja að þetta
skjól sé NATÓ og við eigum að
virða þá afstöðu, og leggja okkar af
mörkum til að hjálpa þeim að ná
marki sínu,“ sagði Össur.
Greinin sem Össur vitnar í birtist
11. apríl í tímaritinu Nezavisimaja
Gazeta, og höfundar hennar eru Val-
eri Dementev og Anton Surikov. í
henni segir meðal annars: „Eystra-
saltssvæðið er eldfimasta svæðið,
þegar menn íhuga möguleikann á
þróun sem gæti leitt til nýrra átaka
með þátttöku hersveita Rússneska
sambandsríkisins." í framhaldi af
þessu fara höfundar út í herfræðileg-
ar vangaveltur um það hvemig Rúss-
ar ættu að haga slíkum hemaði, sem
endaði með brottflutninga „sérstakra
hópa borgara frá mismunandi svæð-
um“ í löndum Eystrasaltsins.
„Ég skil vel áhyggjur vina okkar í
þessum löndum. Gleymum því ekki
að þegar þau vom hertekin af Stalín
árið 1940 lyfti enginn hönd til að
hjálpa þeim, og af þeim sökum
stendur umheimurinn í sögulegri
skuld við þá. Þessvegna á íslenska
ríkisstjórnin að beita sér fyrir máli
þeirra innan NATÓ. Jón Baldvin
sýndi sannarlega frumkvæði í mál-
efnum þeirra þegar hann var utanrík-
isráðherra. Öðrum þræði snýst þetta
um það hvort ísland ætlar sér áfram
að hafa frumkvæði í málinu eða láta
sér nægja að verða bara passívur
hluti af farteskinu," sagði Össur.
Indriði: Fólk hefur ákveðið sjálft að
það ráði, en það er svolítill mis-
skiiningur.
■ Indriði G. Þorsteinsson
spáir í spilin fyrir forseta-
kosningarnar
Vinstrimenn
vinna þessar
kosningar
-segir Indriði. „Gaman
að Ólafur vinur minn skuli
vera í framboði."
„Ég hef ekki gert upp hug minn
hvem ég kýs en Ölafur er gamall vin-
ur minn og gaman að hann skuli vera í
framboði," segir Indriði G. Þorsteins-
son rithöfundur og segist í tvígang
hafa kosið vinstri menn til forseta. „-
Hvorki ég né forsetaembættið höfum
batnað við það, en ekki tapað á því
heldur. Ég get ekki séð að það sé endi-
lega nauðsynlegt að kjósa vinstrimenn
til að manni h'ði betur," segir Indriði.
„Það sem hefur gerst hér í pólitík-
inni, er að það em eiginlega tvö vinstri
framboð, eitt hægraframboð og eitt
kvennaframboð. Þetta er því allt í átt-
ina. Ég hef alltaf haldið því fram að
vinstrimenn ynnu þessar kosningar og
byggi það á fyrri reynslu. Ásgeir Ás-
geirsson, Kristján Eldjám og Vigdís
Finnbogadóttir verða öll að teljast til
vinstra armsins í landinu og hann hef-
ur verið ansi fjölmennur í öllum flokk-
um þegar á að fara að kjósa forseta.
Fólk hefur ákveðið sjálft að það ráði,
en það er svolítill misskilningur í því
og fólk verður að fá að lifa í sinni trú.
Fólkið skapar ekki þenrian grundvöll
sem forsetaembættið byggir á. Það
voru menn sem réðu sem sköpuðu
grundvöllinn þótt fólkið styddi hann
með atkvæðum sínum þegar málin
lágu ljóst fyrir. Þannig að þetta er allt
saman skondið og skrítið," sagði Indr-
iði G. Þorsteinsson.
■ Formaður ungra alþýðubandalagsmanna hlynntur aðild íslands að NATÓ
og ætlar að taka málið upp innan flokksins
Eigum að endurskoða,
stefnu flokksins til NATÓ
- segir Bryndís Hlöðversdóttir þingmaður Alþýðu-
bandalagsins. Aðrir þingmenn, að Ögmundi Jónas-
syni meðtöldum, vilja að ísland segi sig úr Atlants-
hafsbandalaginu. Margrét Frímannsdóttir: „Styð úr-
sögn úr NATÓ."
„Ég tel alveg koma til greina að
endurskoða afstöðuna til NATÓ í ljósi
þess að heimurinn hefur breyst og
NATÓ hefur breyst. Þótt þessi stefna
hafi verið mótuð á sínum tíma, þarf
hún ekki að gilda urn aldur og ævi.
Mér finnst þetta vera mál sem Al-
þýðubandalagið þarf að skoða alvar-
lega og endurskoða," sagði Bryndís
Hlöðversdóttir þingmaður Alþýðu-
bandalagsins í samtali við Alþýðu-
blaðið í gær. Blaðið ræddi í gær við
flesta þingmenn flokksins vegna þeirr-
ar yfirlýsingar Róberts Marshalls, for-
manns Verðandi, félags ungs alþýðu-
bandalagsfólks, að Island eigi ekki að
segja sig úr NATÓ.
„Það hefur enn ekki verið búin til
nein samþykkt um þetta hjá Verðandi,
en það er á dagskrá. Ég tel nauðsyn-
legt að þessi mál verði rædd og það
verður gert,“ sagði Róbert Marshall
formaður Verðandi, félags ungs al-
þýðubandalagsfólks og óháðra, í sam-
tali við Alþýðublaðið í gær. Róbert
hefur sagt opinberlega að hann sé
hlynntur aðild íslands að NATÓ, en
um áratugaskeið hefur það verið
stefnuskráratriði Alþýðubandalagsins
að ísland eigi að segja sig úr banda-
laginu. í samtölum blaðsins við þing-
menn Alþýðubandalagsins kom hins-
vegar í ljós að stefnubreytingar er tæp-
ast að vænta.
„Það liggur fyrir hver samþykkt Al-
þýðubandalagsins er í þessum efnum,
við styðjum úrsögn úr NATÓ,“ sagði
Margrét Frímannsdóttir formaður
flokksins. „Við munum styðja úrsögn
úr NATÓ ef málið kemur upp nú.“
Merkið
stendur þótt
foringinn falli
„Merkið stendur þótt foringinn
falli. Þjóðin er búin að þola það
mikið í þessu stríði að hún heldur
áfram að berjast þótt foringinn sé
allur. Stríðið er ekki háð fyrir for-
ingjann heldur sjálfstæðishugsjón-
ina í brjósti fólksins,“ segir Arnór
Hannibalsson í viðtali við Alþýðu-
blaðið um stöðu mála í Tsjetsjeníu
eftir dauða Dzhokhar Dúdajev leið-
toga aðskilnaðarsinna. Sjá baksíðu.
Klæð-
skiptingar
handa Arna
Johnsen
Á laugardag opnar
Ijósmyndarinn
Sóla sýningu á
veitingastaðnum
22 þarsem hún
sýnir myndir sem
hún tók af banda-
rískum klæðskipt-
ingum þegar hún
var við nám fyrir
vestan haf. Sýning-
in er tileinkuð Árna
Johnsen alþingis-
manni og hefur
honum verið sent
sérstakt boðsbréf,
enda vonast til
þess að hann verði
heiðursgestur við
opnunina. Sjá
myndir og frásögn
á blaðsíðu fjögur.