Alþýðublaðið - 25.04.1996, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o d a n
Lýst eftir milljarði
„Ef ríkisstjórnin tekur þá stóru menntapólit-
ísku ákvörðun að setja innheimtu skólagjalda
í lög, þá á hún að hafa kjark til þess að gera
það opinberlega en ekki með einhverjum
orðaleikjum sem skella ábyrgðinni á
Háskólayf irvöld."
Umræður um Háskóla íslands á Al-
þingi eru greinilega ekki mikill frétta-
matur, nema fyrir það að menntamála-
nefnd Alþingis er þríklofm í afstöðu
sinni til frumvarps Bjöms Bjamason-
ar, menntamálaráðherra. Mér býður í
grun að almenningur viti lítið um
hvað málið snýst. Finnist það kannski
ekki mikið að borga 24.000 krónur
fyrir ár í háskóla. Staðreyndir málsins
eru hins vegar þessar: Við fjárlaga-
gerð árið 1992 ákvað Alþingi að Há-
skólinn skyldi nýta lagaheimildir til
Pallborðið |
þess að afla sértekna á móti niður-
skurði á ljárveitingum til skólans. Há-
skólayfirvöld töldu sig ekki eiga ann-
ars úrkosti en að heíja innheimtu svo-
kallaðra skrásetningargjalda, 18.000
krónur á haus. (Heildampphæð þeirra
var 98.5 milljónir árið 1995). Það
gjald sem hver stúdent greiddi við
skráningu í skólann hækkaði við þetta
úr rúmum sjöþúsund krónum í tæpar
23.000 kr. (Félagsstofnun stúdenta og
Stúdentaráð HI fá tæplega fimmþús-
und krónur). Ekki vildu allir stúdentar
una þessu og einn þeirra tók sig til og
kærði innheimtu þessa gjalds á þeirri
forsendu að ekki væri lagastoð fyrir
því. Umboðsmaður Alþingis komst að
þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið
staðið að innheimtu gjaldsins með
lögmætum hætti þar sem fyrirfram
hefði ekki verið reiknað út af hálfu
stjómenda Háskólans hver kostnaður
væri í tengslum við skráningu nem-
enda. Hann taldi umræddan stúdent
því eiga rétt á endurgreiðslu að því
marki sem það kynni að hafa verið of-
tekið. Skrásetningarkostnaður „sam-
kvæmt hefðbundnum skilningi innan
Háskóla íslands" (úr bókun Háskóla-
ráðs frá 19.10 ’95) var því sundurlið-
aður og dúkkuðu þar upp hinir aðskilj-
anlegustu kostnaðarliðir sem eru í
huga flestra engan veginn tengdir
skrásetningu stúdenta. Þetta neyðarúr-
ræði Háskólayfirvalda lýsir auðvitað
stöðu skólans vel, yfirvöld em neydd
til þess að kreista peninga út úr stúd-
entum á mörkum hins löglega og sam-
þykkja um leið bókun eins og þessa:
„Háskólaráð ítrekar þá afstöðu sína
að innheimta gjalda af stúdentum til
rekstrar skólans er ekki að vilja ráðs-
ins. Hins vegar em íjárframlög til Há-
skólans með þeim hætti, að ráðinu er
nauðugur einn kostur að innheimta
slík gjöld til að reyna að brúa að ein-
hverju leyti hið mikla bil sem er á
milli fjárveitinga og raunverulegrar
fjárþarfar."
Menntamálaráðherra segir að deilan
um frumvarpið sem á að renna laga-
stoðum undir þessa gjaldtöku, snúist
einungis um upphæðir, það séu allir
sammála því að við Háskólann skuli
vera skrásetningargjöld. Það er regin
misskilningur. Hér er tekist á um
grundvallarspurninguna um skóla-
gjöld við Háskóla Islands. Auðvitað er
þetta gjald ekkert annað. Bannorðið
„skólagjöld" kemur meira að segja
fyrir í plöggum Háskólaráðs, þar sem
memi hafa gleymt sér og kallað hlut-
ina sínum réttu nöfnum. Ráðherra hef-
ur í þessu sambandi minnst á hlut
stúdentaráðs og Félagsstofnunar stúd-
enta og spyr hvort menn vilji virkilega
kippa fjárhagslegum stoðum undan
þeirri starfsemi? En eins og Svavar
Gestsson, þingmaður Alþýðubanda-
lagsins og fyrrverandi menntamála-
ráðherra benti á í ræðustól Alþingis í
fyrrakvöld, þá er það allt annað mál
og þarf engan veginn að fylgjast að
með frumvarpi um skrásetningargjöld.
Ef ríkisstjómin tekur þá stóm mennta-
pólitísku ákvörðun að setja innheimtu
skólagjalda í lög, þá á hún að hafa
kjark til þess að gera það opinberlega
en ekki með einhverjum orðaleikjum
sem skella ábyrgðinni á Háskólayfir-
völd. Umræðan um sjálfseignarstofn-
un er ekkert út í bláinn og það er hár-
rétt hjá hæstvirtum menntamálaráð-
herra að Háskólinn hafi átt frumkvæði
að því að skipa nefnd sem gerði frum-
úttekt á áhrifum og afleiðingum þess
að gera skólann að sjálfseignarstofn-
un. Þær niðurstöður vora ákaflega já-
kvæðar og Háskólaráð ákvað að halda
áfram frekari vinnu í málinu. Ef til
þess kemur, er það nefnilega leið til
þess að ýta á þá sem með völdin fara í
menntamálum landsins að taka þær
ákvarðanir sem þeim ber. Fjöldatak-
markanir? Skólagjöld? Deildir lagðar
niður, fluttar, seldar? A kannski bara
að senda fólk í háskólanám til útlanda,
höfum við ef til vill hreinlega ekki
efni á að reka hér góða háskóla? Ef
þessi er niðurstaða ríkisstjómarinnar
sem er að hálfu leyti skipuð flokki
sem hrópaði fyrir rúmu ári síðan háum
rómi, vítt og breitt í skólum landsins:
„Milljarð í menntamáll", þá hlýtur
eitthvað að vera að ef kjósendur átta
sig ekki næst þegar þeir mæta til kjör-
fundar.
Höfundur er fulltrúi Röskvu
í Háskólaráði
Enn getum við sagt af
ferðum Péturs Kr.
Hafsteins forsetafram-
bjóðanda til ýmissa
stjórnmála-
foringja.
Einsog fram
hefur komið
átti Pétur
fund með
Guðmundi
Árna Stef-
ánssyni
varafor-
manni Al-
þýðuflokks-
ins í vik-
unni, en
mun hafa
veigrað sér
við að biðja um fund með
formanninum, Jóni Bald-
vin Hannibalssyni,
vegna tengsla hans við
annan frambjóðanda,
Guðrúnu Pétursdóttur.
í framhaldinu gekk Pétur
svo á fund Jóhönnu Sig-
urðardóttur formanns
Þjóðvaka, og á föstudag
ætlar frambjóðandinn að
hitta Halldór Ásgríms-
son, samkvæmt okkar
heimildum. Þá er bara eft-
ir að skipuleggja fund
með liðsoddum Kvennó
en þegar síð-
ast fréttist var
ekki búið að
ákveða neitt.
Pétur mun á
fundum sín-
um með for-
ingjum flokk-
anna ekki fal-
ast eftir
stuðningi,
helstur fyrst
og fremst
skýra hug-
myndir sínar
um forseta-
embættið og skyldur
þess...
Einn er sá forsetafram-
bjóðandi sem einna
minnst fer fyrir, Guð-
rnundur Rafn Geirdal,
en hann lætur engan bil-
bug á sér finna. Hann er
iðinn við að senda fjöl-
miðlum upplýsingar um
gang mála, og sá þannig
ástæðu til að senda út
sérstaka tilkynningu þegar
tveir meðmælendur voru
komnir á lista hans. Guð-
mundur Rafn er annars
borubrattur og mun í
samtölum við hugsanlega
kjósendur hafa bent á, að
hann hefur þegar tryggt
sér jafnmikið fylgi og heill
stjórnmálaflokkur. Það
kemur einmitt heim og
saman: Þjóðvaki og Guð-
mundur Rafn njóta álíka
mikilla vinsælda meðal
þjóðarinnar...
Aðeins meira úr her-
búðum Þjóðvaka.
Niðri á Alþingi þykjast
menn hafa skynjað að
Svanfríður Jónasdóttir
varaformaður flokksins er
ekki par hrifin af allri
þeirri fjölmiðlaathygli sem
Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir nýtur. Ásta
hefur verið iðinn við að
taka upp mál á þingi, en
lítið hefur spurst til Svan-
fríðar lengstaf í vetur...
"FarSide" eftir Gary Larson
„Sko, ég sagði þér það Hreinn... Þetta er bara
pappírstungl!"
f i mm á förnum vegi
Hvað heitir höfuðborg Hvíta - Rússlands? Rétt svar: Minsk
Ingimar Villhjálmsson raf-
eindavirki: Hún heitir Minsk.
Bergþór Sigurðsson um-
sjónarmaður: Ég veit það
ekki.
Birgir Ástráðsson banka- Aðalbjörg Skúladóttir Steingrímur
maður: Ég hef ekki hugmynd nemi: Það veit guð almáttug- nemi: Minsk.
um það. Ætli það sé ekki Kiev. ur.
Ólafsson
JÓN ÓSKAR
v i t i m e n n
Ég held að þetta sé tiltölu-
lega úrkynjaður kynstofn.
Langskáska fólkið á Islandi er
það sem hefur blandast nógu
rækilega erlendum sjómönn-
um og dönskum gyðingakaup-
mönnum. Hinir svokölluðu
innfæddu Islendingar eru
ljót tegund.
Hrafn Gunnlaugsson - hver annar? - að lýsa
áliti sínu á ástandi íslenska kynstofnsins.
HP í gær.
Ef ég væri hóra yrði ég
moldrík á íslandi.
Nektardansmærin Fanny í viðamikilli um-
fjöllun HP um stelpur sem striplast og
stráka sem slást.
Ekki þarf að vera lengi í
ísrael til að taka eftir, hvernig
þjóðin hefur krumpazt af
hrokafullri kenningu um sig
sem guðs útvalda þjóð.
Jónas Kristjánsson tók ísraela á beinið
í forystugrein DV í gær.
Það á við um Sverri einsog
breska heimsveldið að hann
hefur týnt nýlendunum - kjör-
dæminu - en ekki áttað sig á
að hann er nú að Ieika annað
hlutverk sem bankastjóri
helstu fjármálastofnunar
þjóðarinnar.
Jón Baldvin Hannibalsson í Tímanum um
hvort yfirlýsingagleði Sverris Hermannsson-
ar veiki tiltrú fólks á Landsbankanum.
Nóbelsskáldið Gabriel Garcia
Márquez hafnaði kröfu mann-
ræningja, sem eru með bróður
Cesars Gavria, fyrrverandi
forseta Kólumbíu, í haldi, um
að skáldið settist í forsetastól.
Skæruliöar í Kolumbíu beita óvenjulegum
aðferöum í kosningaherferö sinni. Márquez
segir hinsvegar að sjálfur yröi hann áreið-
anlega versti forsetinn í sögu landsins.
Mogginn í gær.
Ekkert er eins hlægilegt
og ástfangið fólk.
Fyrirsögn á umfjöllun Moggans um upp-
færslu Þjóöleikhússins á Sem yður þóknast
eftir Shakespeare.
fréttaskot úr fortíð
Islendingar
mála með sfld
Danskt blað skýrir frá því að Islend-
ingar séu famir að mála með sfld. -
Astæðan fyrir þessari sérkennilegu
frétt mun vera sú, að hér í málningar-
verksmiðjum hefir verið tekið upp á
því, að nota unna sfldarolíu til að
femisera með. Málarar segja þó að
þetta sé dýrara fyrir okkur en að
flytja inn femisoh'una. Við ættum nú
að senda Holger danska nokkra sfld-
arsporða næsta sumar.
Alþýðublaðiö
jólablað 1939