Alþýðublaðið - 25.04.1996, Síða 5
FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
3 Ó I Í t
■ Formaður samtaka ungra alþýðubandalagsmanna er hlynntur aðild íslands að NATÓ og Bryndís Hlöð-
versdóttir alþingismaður telur tímabært að endurskoða stefnu flokksins í málinu. Aðrir þingmenn Al-
þýðubandalagsins halda fast við að ísland eigi að segja sig úr NATÓ, og engrar breytingar virðist að
vænta á því stefnumáli sem helst aðskilur Alþýðubandalagið frá öðrum stjórnmálaflokkum
Gömlu slagorðin notuð áfram
:
Herstöðvamálið var áratugum saman eitt mesta hitamál íslenskra stjórnmála, og þessi Ijósmynd sýnir upphaf Keflavíkurgöngu árið 1960. Forysta Al-
þýðubandalagsins hefur engin áform um endurskoðun á þessu forna stefnuskrármáli, einsog fram kemur í orðum Margrétar Frímannsdóttur: „Það
liggur fyrir hver samþykkt Alþýðubandalagsins er í þessum efnum, við styðjum úrsögn úr NATÓ. Ég fylgi þeirri samþykkt landsfundar að sjálfsögðu."
„Það hefur enn ekki verið
búin til nein samþykkt um
þetta hjá Verðandi, en það er
á dagskrá. Ég tel nauðsyn-
legt að þessi mál verði rædd
og það verður gert,“ sagði
Róbert Marshall formaður
Verðandi, félags ungs al-
þýðubandalagsfólks og
óháðra, í samtali við Al-
þýðublaðið í gær. Róbert
hefur sagt opinberlega að
hann sé hlynntur aðild ís-
lands að NATÓ, en um ára-
tugaskeið hefur það verið
stefnuskráratriði Alþýðu-
bandalagsins að ísland eigi
að segja sig úr bandalaginu.
í samtölum blaðsins við
þingmenn Alþýðubanda-
lagsins kom hinsvegar
glöggt í Ijós að engrar
stefnubreytingar er að
vænta. Bryndís Hlöðvers-
dóttir sagði hinsvegar að full
ástæða væri til að taka málið
upp, enda ekki ástæða til að
hin gamla stefna gildi um
aldur og ævi.
Margrét Frímannsdóttir
Breytum ekki af-
stöðu flokksins
Margrét Frímannsdóttir, þing-
maður á Suðurlandi og formaður
Alþýðubandalagsins:
„Það liggur fyrir hver samþykkt Al-
þýðubandalagsins er í þessum efnum,
við styðjum úrsögn úr NATÓ. Ég
fylgi þeirri samþykkt landsfundar að
sjálfsögðu. En það er ljóst að við
fylgjumst með þeirri þróun sem á sér
stað í NATÓ og utanríkismálin era í
stöðugri endurskoðun hjá okkur, þar
sem breytingamar era svo örar. Það er
engin forsenda nú til að breyta afstöðu
flokksins í þessum efnum. Ef fram
kæmi tillaga um úrsögn, yrði haldinn
fundur í flokknum og ég tel að for-
maður flokksins geti þá ekki fylgt sín-
um prívatskoðunum heldur verði að
fara eftir samþykkt flokksins. Við
munum styðja úrsögn úr NATÓ ef
málið kemur upp nú.“
Hjörleifur Guttormsson
Ekki ástæða til
að ræða málið
Hjörleifur Guttormsson, þing-
maður Alþýðubandalagsins á Aust-
fjörðum:
,,Ég þyrfti ekki að hugsa mig lengi
um ef fram kæmi tillaga á Alþingi um
úrsögn úr NATÓ. Stefna flokksins er
að ísland eigi að segja sig úr Atlants-
hafsbandalaginu. Við höfum aldrei átt
heima þar og í þeim efnum hefur ekk-
ert breyst að mínu mati. NATÓ heldur
sig við þá gömlu stefnu, að vera reiðu-
búið að beita kjarnorkuvopnum að
fyrra bragði, og byggir vígbúnað sinn
á kjamorkuvopnum og hinni svoköll-
uðu fælingarstefnu. Stefna NATÓ
gagnvart umheiminum er varhuga-
verð. Bandalagið leitast við að skipta
Evrópu upp á nýjan leik og hefur ver-
ið að leita að nýjum óvini síðustu árin.
Að öllu samanlögðu er því engin
breyting af minni hálfu gagnvart NA-
TÓ. Hvort ástæða sé til að efna til sér-
stakra umræðna um málið innan Al-
þýðubandalagsins? Flokkurinn ræðir
auðvitað öll mál sem upp koma en ég
sé ekki ástæðu til að fara nú að ræða
afstöðuna til NATÓ sérstaklega. Mörg
önnur mál era brýnni. Ég hef ekki séð
eða fundið vísbendingar innan Al-
þýðubandalagsins um að flokksmenn
almennt séu að skipta um skoðun í
þessu máli.“
Sigríður Jóhannesdóttir
Höfum ekkert að
gera í NATÓ
Sigríður Jóhannesdóttir, þing-
maður Alþýðubandalagsins á
Reykjanesi:
„Ég tel að við höfum ekkert í NA-
TÓ að gera. Þessi her og aðild okkar
að hemaðarbandalaginu byggist ekki á
því að þeir verji okkur, heldur sjálfa
sig. Það getur verið að sjónarmið Ró-
berts eigi einhvem hljómgrunn meðal
flokksmanna enda er Alþýðubanda-
lagið ekki sértrúarflokkur."
Kristinn H. Gunnarsson
Greiði atkvæði
með báðum
höndum
Kristinn H. Gunnarsson, þing-
maður Alþýðubandalagsins á Vest-
fjörðum:
„Ég er þeirrar skoðunar að ekkert
hafi gerst í alþjóðapólitík sem kalli á
að Alþýðubandalagið breyti afstöð-
unni til NATÓ. Mönnum er að verða
ljóst að nú sem fyrr skiptir NATÓ
heiminum upp á milli stórveldanna.
Þótt Sovétríkin séu liðin undir lok
heldur Rússland hinu gamla áhrifa-
svæði þeirra. Bandaríkin og NATÓ
munu aldrei taka inn ný aðildamki af
áhrifasvæði Rússlands. Ég tel enga
þörf á umræðum eða endurskoðun á
stefnu Alþýðubandalagsins gagnvart
NATÓ. Ef fram kæmi tillaga um úr-
sögn íslands? Ég myndi rétta upp báð-
ar hendur!"
Ögmundur Jónasson
Nýtt öryggiskerfi
Ögmundur Jónasson, þingmaður
Alþýðubandalagsins og óháðra í
Reykjavík:
,,Ef tillaga kæmi fram á Alþingi um
úrsögn íslands úr NATÓ myndi ég
greiða henni atkvæði mitt. Mér finnst
að á þessum tímum uppstokkunar á
skipulagi bandalaga, þar með talinna
hemaðarbandalaga, þá ættu menn að
taka Atlantshafsbandalagið einsog
annað til endurskoðunar. Ég vil að
nýtt öryggiskerfi í heiminum verði
grundvallað á Sameinuðu þjóðunum
fyrst og fremst, en ekki þessum gömlu
hemaðarbandalögum sem enn era við
lýði.“
Bryndís Hlööversdóttir
Eigum að end-
urskoða stefn-
una
Bryndís Hlöðversdóttir, þing-
niaður Alþýðubandalagsins í
Reykjavík:
„Ég tel alveg koma til greina að
endurskoða afstöðuna til NATÓ í ljósi
þess að heimurinn hefur breyst og
NATÓ hefur breyst. Þótt þessi stefna
hafi verið mótuð á sínum tíma, þarf
hún ekki að gilda um aldur og ævi.
Mér finnst þetta vera mál sem Al-
þýðubandalagið þarf að skoða alvar-
lega og endurskoða.“
Ragnar Arnalds
NATÓ er úrelt
Ragnar Arnalds, þingmaður Al-
þýðubandalagsins á Norðurlandi
vestra:
„Ég svara því alfarið neitandi að
þörf sé stefnubreytingar hjá Alþýðu-
bandalaginu í þessu máli. NATÓ er
úrelt. Það þarf að endurskipuleggja ör-
yggismál Evrópu í samræmi við
breytta tíma, og því mætti NATÓ
heyra sögunni til. Við þurfum örygg-
iskerfi í Evrópu sem betur tryggir frið
en þær leifar sem NATÓ er.“
Ingibjörg Sigmundsdóttir
Leggjum ekki
niður slagorðin
Ingibjörg Sigmundsdóttir, hefur
undanfarið setið á þingi fyrir
Margréti Frímannsdóttur:
„Það er margt að gerast í heiminum,
en ég held ekki að þær breytingar séu
nægilegar til þess að við leggjum nið-
ur slagorðin. En NATÓ er annað í dag
en það var þótt ég líti alls ekki á það
sem friðarbandalag, einsog sumir
halda fram. Ég svara því ekki hvemig
ég myndi greiða atkvæði á Alþingi um
tillögu um úrsögn íslands úr NATÓ.“
Margrét: Hjörleifur:
ísland úr NATÓ. ísland úr NATÓ.
Sigríður:
ísland úr NATÓ.
Ögmundur:
ísland úr NATÓ.
Bryndís: Ragnar:
Andstaðan við NATÓ ísland úr NATÓ.
þarf ekki að gilda um
aldur og ævi.
Kristinn:
ísland úr NATÓ.
Ingibjörg:
NATÓ ekki friðar-
bandaiag einsog sum
ir halda fram.