Alþýðublaðið - 25.04.1996, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
■ Margverðlaunuð kvikmynd
Margrétar Rúnar Guðmundsdóttur
frumsýnd á íslandi
Albaníu-Lára
og höfundur
hennar
í kvöld verður frumsýnd í Há-
skólabíó kvikmyndin Albaníu-
Lára (La Haine). Þetta er marg-
verðlaunuð mynd sem sýnd hefur
verið á þriðja tug alþjóðlegra kvik-
myndahátíða víða um heim. Leik-
stjóri myndarinnar er Margrét Rún
Guðmundsdóttir.
Margrét Rún nam kvikmynda-
gerð í Þýskalandi. Hún segist með-
al annars hafa valið Þýskaland
vegna hrifningar sinnar á þýsku,
þöglu myndunum sem hún segir
einkennast af hrífandi myndmáli
og mystík.
Þegar Margrét Rún er spurð
hvað sé að hennar mati vel heppn-
uð mynd segir hún: „Mér þætti það
vera ákaflega vel heppnuð mynd
sem léki á sem fjölbreytilegast lit-
róf tilfinninganna."
En finnst henni lífið vera þann-
ig, öfgafullt, tilfinningaríkt og
stefna í allar áttir?
„Það væri mjög gaman ef það
væri þannig. En ef maður skynjaði
lífið þannig á hverjum degi þá yrði
maður líklega nokkuð brjálaður,"
segir hún.
Hún segist heillast af sterkum
andstæðum og mynd hennar Al-
baníu- Lára er einmitt saga um
árekstra drauma og veruleika. Lára
er níu ára og býr á hæli fyrir pólit-
íska flóttamenn. Til að losna við
áhrif frá óþægilegu umhverfi
teiknar Lára myndir sem hún
hverfur síðan inn í og draumar
hennar verða æ fegurri. Skyndilega
er hún hrifin úr heimi draumanna
og inn í kaldan veruleika.
Þessi sautján mínútna verð-
launamynd var lokamynd Margrét-
ar Rúnar frá þýskum kvikmynda-
skóla í Munchen. Um verðlaunin
sem myndin hefur sankað að sér
segir Margrét það eitt að vissulega
sé gaman að vinna verðlaun, en
menn lifi ekki á því.
Hún er nú að vinna að kvik-
myndahandriti að leikinni kvik-
mynd um Sölva Helgason, byggðri
á skáldsögunni Sólon íslandus eftir
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
„Ég hef alltaf hrifist af fólki
sem er dálítið öðruvísi. Mér þykir
vænt um þannig fólk,“ segir hún.
„Sölvi var auðvitað rnikið öðru-
vísi. Ég hef alltaf verið hrifin af
honum frá því ég heyrði af honum
fyrst og las skáldsögu Davíðs.
Bókin er svo íslensk, óborganlega
fyndin og Sölva er þar lýst af ást-
úðlegri stríðni."
Hún segist vita að hart sé slegist
um störf í kvikmyndageiranum, en
segir ekki hafa komið til greina að
velja annað starf. „Þegar ég hélt til
náms í Þýskalandi fannst mér að
það hlyti að vera mjög heillandi að
vera í erfiðri samkeppni því þá
yrði ég að reyna á mig og myndi
leggja harðar að mér en ef ég væri
í þægilegra umhverfi. Ég held að
það sé óhollt að lenda í umhverfi
þar sem maður er samstundis við-
urkenndur, hollara sé að starfa þar
sem maður þarf að berjast. En það
getur vel verið að það sé ekki rétt
hjá mér,“ segir hún.
Þegar Margrét Rún er spurð að
því hvort hún sé metnaðargjörn
svarar hún: „Kannski er ég of
metnaðargjörn." Síðan bætir hún
við ögn hugsandi: „Eða er það
hægt? Til hvers er að lifa ef maður
reynir ekki að ná fram því sem
maður vill. Ég er að gera það sem
ég vil gera og ekkert annað. Og af
því að ég starfa af ástríðu þá finnst
mér ég vera að gera það sem ég
ætti að gera.“ ■
■ Valgerður Sverrisdóttir formaður
þingflokks Framsóknarflokksins
Offjölgun framsóknar-
manna útskýrð
24. apríl 1996
Til ritstjóra Alþýðublaðsins
Ég hlýt að undrast þá vanþekkingu
á þingsköpum Alþingis sem kom fram
í „frétt“ blaðsins í dag um að fleiri
þingmenn Framsóknarflokksins í
Austurlandskjördæmi haft setið fundi
Alþingis en kosnir voru í síðustu al-
þingiskosningum.
Samkvæmt lögum hafa alþingis-
menn heimild til að kalla inn vara-
menn séu þeir við skyldustörf erlendis
ftmm daga eða lengur. Það er hinsveg-
ar óheimilt að kalla inn varamann í
minna en tvær vikur í senn. Ráðherrar
hafa alltaf skyldum að gegna við Al-
þingi vegna embættis síns, hvort sem
þeir gegna þingstörfum viðkomandi
dag eða ekki. Þannig var um utanríkis-
ráðheiTa í gær.
Valgerður Sverrisdóttir
formaður þingflokks
Framsóknarflokksins.
Athugasemd ritstjóra.
Valgerður Sverrisdóttir, vinkona
mín frá Lómatjöm, virðist hafa skrifað
athugasemd sína í gær áðuren hún las
hina sárasaklausu frétt Alþýðublaðs-
ins um þremenningana að austan.
Hvorki var sagt né gefið í skyn að um
brot á þingsköpum væri að ræða: Að-
eins var verið að vekja athygli á þeirri
bráðskemmtilegu staðreynd að þrír
þingmenn Framsóknar á Austurlandi
sátu í þingsal, þótt flokkurinn hafi
ekki fengið nema tvo kjöma í síðustu
kosningum. Það er svo ijarri Alþýðu-
blaðinu að amast við þingvist vara-
mannsins Jónasar Hallgrímssonar,
enda er hann ekki bara hinn mætasti
maður, heldur hefur Svavar Gestsson
líka upplýst í ræðustól Alþingis að
Jónas sé afkomandi sjálfs Jóns á Bæg-
isá. Slíkir menn em vitanlega aufúsu-
gestir í sölum Alþingis. Frétt okkar
um „offjölgun" framsóknarmanna á
þingi átti því ekki að móðga nokkum
mann. Hitt er annað mál, og efni í
annað vers, að framsóknarmenn á
Austurlandi mega vel við una: enda er
því fleygt að ekki færri en fimm fram-
sóknarmenn - að vísu úr þremur
flokkum - hafí hlotið kosningu í kjör-
dæminu við síðustu kosningar.
Bestu kveðjur,
Hrafn Jökulsson
Til hvers er að lifa ef maður reynir ekki að ná fram því sem maður vill. Ég er
að gera það sem ég vil gera og ekkert annað, segir Margrét Rún leikstjóri
verðlaunamyndarinnar Albaníu-Lára sem frumsýnd verður í kvöld.
Umsóknir um sumardvöl í
orlofshúsum og tjaldvögnum V.R.
Auglýst er eftir umsóknum um dvöl í orlofshúsum og tjaldvögnum V.R. sumarið
1996.Umsókniráþartilgerðumeyðublöðumsemfástáskrifstofufélagsinsþurfa
að berast skrifstofunni, Húsi verslunarinnar, 8. hæð, í síðasta lagi þriðjudaginn
30. apríl 1996.
Orlofshúsin eru á eftirtöldum stöðum:
Einarsstöðum á Völlum S-Múl. Illugastöðum í Fnjóskadal
Flúðum Hrunamannahreppi Miðhúsaskógi í Biskupstungum
Akureyri Stykkishólmi
Húsafelli í Borgarfirði Kirkjubæjarklaustri
Ölfusborgum við Hveragerði
Auk húsanna eru tjaldvagnar leigðir til félagsmanna.
Húsin og vagnarnir eru laus til umsóknar tímabilið 31. maí til 13. september.
Úthlutunarreglur:
Við þessa úthlutun byggist réttur til úthlutunar áfélagsaldri í V.R. að frádregnum
fyrri úthlutunum orlofshúsa. Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur fást á
skrifstofu V.R. og er reglunum dreift með umsóknareyðublaðinu.
Leigugjald: kr. 9.000,00 - 10.500,00 á viku í orlofshúsi
kr. 7.000,00 - í tjaldvagni í 6 daga
kr. 14.000,00 - í tjaldvagni í 13 daga
Sérstök athygli er vakin á því að umsóknir þurfa að berast skrifstofu V.R. í
síðasta lagi 30. apríl n.k.
Upplýsingar um hverjir hafa fengið úthlutað orlofshúsi/tjaldvagni munu liggja
fyrir 8. maí n.k.
Umsóknareyðublöð ásamt reglum um úthlutun eru afhent á skrifstofu V.R., Húsi
verslunarinnar 8. hæð. Ekki verður tekið á móti umsóknum símleiðis, en senda
má útfyllt umsóknareyðublöð í myndrita nr: 588 8356.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
V_______________________________________________________________________)