Alþýðublaðið - 14.05.1996, Side 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ1996
ð t a I
■ Pétur Kr. Hafstein í viðtali við Kolbrúnu Bergþórsdóttur
Þeim sem hefur
góða samvisku eru
allirvegirfærir
vera grundvallaratriði í lífsskoðun sinni. Meðan á viðtalinu
stóð var hann vingjamlegur en örlítið afsakandi, eins og
hann gerði sér fulla grein fyrir því að hann væri ekki í hópi
auðveldustu viðmælenda. Þrátt fyrir ljúfmannlega fram-
komu flokkast Pétur Hafstein til erfiðari viðmælenda því
honum er ekki sérlega lagið að tala um sjálfan sig eða til-
fmningar sínar. Hann gefur þá mynd að vera formfastur og
hlédrægur einstaklingur sem er feiminn við þá athygli sem
beinst hefur að honum síðustu vikur.
Vinir hans og samstarfsmenn hafa lýst honum sem vamm-
lausum embættismanni og heiðarlegum og vel gerðum ein-
staklingi sem hafi meiri áhuga á að vinna af nákvæmni og
trúmennsku en að eltast við sviðsljósið. Það kemur því eng-
an veginn á óvart þegar hann segir drengskap og heiðarleika
Faðir þinn var Jóhann Hafstein
forsœtisráðherra og formaður Sjálf-
stœðisflokksins. Hvernig faðir var
hann?
„Hann var hlýr, umhyggjusamur og
góður faðir. Hann var ekki stjómmála-
maður sem kom heim, settist inn í
stofu með blaðið sitt og lét eins heim-
ilislffið kæmi sér ekki við. Pabbi minn
var mikill heimilismaður og góður fé-
lagi okkar strákanna. Hann tók til
hendinni á heimilinu og sýslaði gjam-
an í eldhúsinu sem á þeim tíma heyrði
til undantekninga að karimenn gerðu.“
Hvemig metur þú hann sem stjóm-
málamann?
„Mér fannst hann ákaflega traustur
stjórnmálamaður. Það sem ég hef
einna mest orðið var við, í umsögnum
þeirra sem störfuðu með honum, er
hversu mikill drengskaparmaður hann
þótti, ósérhh'fmn og vinnusamur. Þeir
Ólafur Thors, Bjami Benediktsson og
hann unnu einstaklega vel saman og
faðir minn leit á það sem eitt helsta
hlutverk sitt að styrkja þá Ólaf og
Bjama og styðja. Það vakti aldrei fyrir
honum að taka við formennsku Sjálf-
stæðisflokksins af Bjama Benedikts-
syni. Stjórnmálastarf hans hefur
kannski ekki verið jafn áberandi út á
við og það var mikið innan flokksins.“
Þeir Bjami ogfaðir þinn voru nán-
ir samstarfsmenn, hvemig kom Bjami
þér fyrir sjónir?
„Eg kynntist Bjama vel, hann var
afskaplega hlýr maður og traustur.
Hann var mikillar gerðar, bjó yfir ein-
stökum forystuhæfileikum og ég tel
hann í hópi allra fremstu stjómmála-
manna landsins á þessari öld. Við
Valgerður, dóttir hans, emm æskuvin-
ir og vomm öllum stundum saman.
Hún er einu ári yngri en ég og var lát-
in hefja skólagöngu einu ári fyrr en
ella svo að hún gæti fylgt mér í
skóla.“
Og þið hafið haldið ykkar vinskap?
„Vala hefur alla tíð verið einn af
mínum nánustu og tryggustu vinum.
Hún leggur mér lið í þessari kosninga-
baráttu og ég met stuðning hennar
ákaflega mikils og tel hann geta skipt
miklu. Vala á fáa sína líka þegar hún
leggur sig ífam.“
Fann ekki pólitíska neistann
Stjómmál hljóta að hafa verið mik-
ið til umrœðu á heimilinu. Ætlaðir þú
þér aldrei ípólitík?
„Stjómmál vom mikið rædd á mínu
heimili alla tíð. Ég fylgdist með þeim
umræðum af áhuga, en ég íhugaði
aldrei í fullri alvöm þátttöku í stjóm-
111310151“
Afhverju ekki?
„Innra með mér fann ég ekki þann
neista sem þeir þurfa að finna sem
ætla sér stóra hluti í stjómmálum."
Þú lagðir fyrir þig lögfrœði. Stefnd-
irðu markvisst á það nám?
„Meðan ég var í lagadeild hafði ég
framan af ekki mikinn áhuga á lög-
fræði og var satt að segja kominn á
fremsta hlunn að hætta í henni og fara
í íslensku eða sagnfræði. Einhverra
hluta vegna setti ég þó undir mig
hausinn og ákvað að halda náminu
áfram. A síðari hluta laganámsins
fékk ég aukinn áhuga á því. Síðan
ákvað ég að leggja iyrir mig lögfræði-
störf.“
Þú varst í rúm átta ár sýslumaður
Pétur og Inga Asta ásamt yngsta syninum, Pétri Hrafni.
og bœjarfógeti á ísafirði. Hvernig
minnistþúþeirra ára?
„Við áttum góð ár á Isafirði. Það er
ómetanleg lífsreynsla að hafa fengið
tækifæri til þess að búa úti á lands-
byggðinni og kynnast viðhorfum
manna þar. Það er ekki vafi á því að
með dvöl minni á Isafirði öðlast ég
dýpri skilning en ella á hinum ýmsu
tilbrigðum mannlífsins. Þessi reynsla
er mér dýrmætasta vegamestið í þeirri
kosningabaráttu sem ég er nú að
heyja.
Á þessum árum þurfti mörgu að
breyta í löggæslunni á Isafirði og laga
starfshætti og ímynd embættisins að
breyttum tímum. Þetta kostaði tölu-
verð átök og fómir. En þessar breyt-
ingar varð að gera. Þegar frá leið var
komin meiri festa í embættisrekstrin-
um en var í upphafi. Það var meðal
annars að þakka þeim mikla skilningi
sem fólk sýndi á nauðsyn þessara
breytinga."
Eftir átta ár á ísafirði gerðist þú
hœstaréttardómari. Einhverjum fynd-
ist það líkast því að ganga í björg að
gerast hœstaréttardómari.
„Það er að vissu leyti rétt. Þetta er
lokað starf, ef svo má að orði komast.
Sá sem tekur sæti í Hæstarétti afsalar
sér með ákveðnum hætti afskiptum af
þjóðfélagsmálum. Það er mikilvægt
að ekki skapist ófriður um hæstaréttar-
dómara eða störf réttarins.
Þegar ég tók sæti í Hæstarétti var ég
fjörtíu og tveggja ára gamall. Þá urðu
margir til að spyija mig að því hvers
vegna ég ætlaði mér að setjast í helgan
stein svo ungur maður. En það er öðm
nær að ég hefði gert það. Það eru
miklar annir í Hæstarétti. Málafjöldi
og dómsúrlausnir hafa stóraukist á
síðustu árum. Ég vissi að starfið væri
vandasamt og erfitt, en því fylgir ef til
vill meira álag en ég hafði gert mér
grein íyrir.“
Vinir Péturs eru á einu máli um að hann sé vammlaus og hlédrægur sómamaður. Ekki hefur borið mikið á
honum síðustu árin, en nú fer í hönd kosningabarátta þar sem hann kemst ekki hjá því að vera á hvers manns
skjá. Myndin er frá kosningafundi Péturs.
Drengskapur og heiðarleiki
/ Hœstarétti sast þú í dómarasœti
yfir einstaklingum sem hafði orðið á,
það hlýtur að vera erfitt aðfella dóma
yfir náunganum.
„Það er að sjálfsögðu margt erfitt
við dómarastarfið, bæði að sakfella
menn og leysa úr ágreiningsmálum.
Auðvitað gerum við dómarar okkur
grein fyrir því að við getum aldrei gert
svo að öllum líki. Atvikin eru svo
margbreytileg og mannlífið svo fjöl-
breytt að það ér nánast aldrei með ör-
uggri vissu hægt að segja fyrir um
niðurstöðuna."
Nú hefurðu í starfi þínu séð fólk
sem hefur eyðilagt líf sitt vegna