Alþýðublaðið - 21.05.1996, Síða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ1996
38. þing ASÍ var sett í gær og Jakob Bjarnar Grétarsson fór á stúfana og heyrði ofan í nokkra þingfulltrúa.
Þingið fór varlega af stað en undiraldan var greinileg. Forsetaslagur lá í loftinu
w
Oþarfi að klóra augun hvert
úr öðru
„Góðir félagar, eins og ég kom að í upphafsorðum mínum
hér á þinginu þá erum við kannski stödd nú á nokkurri ögur-
stund,“ sagði Benedikt Davíðsson forseti ASÍ á 38. þingi
sambandsins sem haldið er í íþróttahúsi Digranesskóla í
Kópavogi. Það er engum vafa undirorpið að sjálfur stendur
Benedikt á ögurstund því allt stefnir í forsetaslag. Svo var í
það minnsta að heyra á þingfulltrúum.
Brim eða boðaföll?
Hafliði Jósteinsson, Verslunar-
mannafélagi Húsavíkur, sagði und-
iröldu greinilega. „Hvort hún boð-
ar brim eða boðaföll - það veit
maður ekki. Næsti dagur verður
kannski sá sem verður frekari vitn-
isburður um það.“ Hafliði á ekki
von á hasar. „En mín skoðun er sú
að það komi fram annar frambjóð-
andi heldur en sá sem þegar hefur
lýst yfir framboði sínu til kjörs til
forystu fyrir ASÍ.“ Hafliði telur að
Benedikt fari fram og hefur svo
sem ekki skynjað sérstaka óánægju
með störf hans. „Það sem menn
helst finna manninum til foráttu er
að hann er aldraður. En hann er
náttúrlega þrautreyndur og glögg-
skyggn á ýmislegt sem varðar
verkalýðspólitíkina. Hann hefur að
mínu mati staðið sig alveg ágæt-
lega í forystu fyrir launþegahreyf-
inguna síðan hann óvænt var kjör-
inn á síðasta ASÍ þingi á Akur-
eyri.“ Hafliði telur það skipta höf-
uðmáli að þegar þingfulltrúar yfir-
gefa þingstað fari öflug og einhuga
hreyfing sem er þess megnug að
bæta kjör launþega í landinu og
efla stéttarvitund. „Það þarf að
gera fólki grein fyrir því að það á
að vera hluti daglegs lífs að taka
þátt í starfi þess stéttarfélags sem
það er meðlimur í. Ég vona að
þetta verði farsælt þing og að tekið
verði eftir því úti í þjóðfélaginu
hvað hér fer fram.
Hvenær hefur ekki verið sagt að
forystan hafi ekki staðið sig slak-
lega á því kjörtímabili sem þá er
að ljúka? Öll þau ár sem ég hef
verið að bauka við að starfa í
verkalýðsmálum hefur þetta verið
sagt. Auðvitað hefur henni ekki
tekist að ná fram öllum þeim mál-
um sem umbjóðendurnir vildu
gjaman sjá. En ég tel það mikil-
vægt að hávaðaseggir sem hafa lít-
ið innihald í sínum boðskap verði
ekki í forystunni heldur menn sem
standa föstum fótum á jörðinni,
hafa reynslu og sæmilega gott
traust þeirra sem hinu megin
borðsins sitja.“
Almenn óánægja
Ragnar Árnason, Verkamannafé-
laginu Hlíf, var þokkalega bjart-
sýnn í upphafi þings en sagði ým-
islegt í gangi og átti von á hörðum
slag. „Forsetakosningamar og
lagafrumvarp sem nú er fyrir þing-
inu verða hitamál." Ragnar á von á
öðru framboði til forseta ASÍ held-
ur en það sem þegar er komið fram
enda fer hann ekki dult með þá
skoðun sína að það sé ríkjandi
óánægja með forystuna. „Ég tel al-
menna óánægju vera meðal félags-
rnanna."
Ragnar segir að Hlíf leggi
áherslu á almenn mál og það að
hindra að hið svonefnda skerðing-
arfrumvarp ríkisstjórnarinnar nái
fram að ganga. „Tillagan um
vinnulöggjöfina þar sem verið er
að setja inn óverjandi reglur um
verkfallsrétt. Við berjumst gegn
því.“
Ekki Parkinsonlögmálið
Helgi R. Gunnarsson, Félagi raf-
eindavirkja, sagði þingið fara ró-
lega af stað. „Er ekki miðvikudag-
urinn sem allt snýst um? Kosning-
arnar?" Hann vonaðist til þess að
þingið yrði friðsælt. „Þetta á ekki
að snúast fyrst og fremst um for-
setann. Aðalatriðið er að það náist
samstaða um þrenninguna. Alla
forsetana þrjá.“ Helgi þorði ekki
að dæma um hvort Benedikt færi
fram en taldi það þó líklegra en
hitt. Hann sagðist vera þokkalega
sáttur við forystuna en það væru
ýmsar breytingar sem verið væri
að leggja fram sem hann sé ósáttur
við eins og til dæmis skattgreiðslur
til þingsins. „Það sem helst brenn-
ur á rafiðnaðarmönnum almennt er
að þeir vilja ekki að Alþýðusam-
bandið vaxi upp í það að verða
stofnun. Þeir vilja fyrst og fremst
að Alþýðusambandið sé samein-
ingartákn. Að það stækki ekki né
að þar ríki Parkinsonlögmál. Að
það víkki ekki út fyrir allt vel-
sæmi. Það á ekki að vera í vinnu
fyrir hinn almenna félagsmann.
Það eiga samböndin sjálf að sjá
um.
Helgi vill sjá meira sjálfstæði
hjá samböndunum. „Og til þess að
ASÍ splundrist ekki mega skatt-
greiðslur ekki vera svo háar að fé-
lögin hafi ekki efni á því að vera
þar.“
Má berja á ríkisstjórninni
Guðmundur Ó. Guðmundsson,
Félagi byggingarmanna Eyjafirði,
átti frekar von á átökum en hitt.
„Það er ekki óeðlilegt þó að menn
takist svolítið á bæði um einstak-
linga og stefnur. Það er verið að
leggja fram heilmiklar pólitískar
línur í félagsstarfinu." Guðmundur
segir að sitt félag leggi áherslu á
fræðslumálin og þá á grundvelli
Spá um harðan slag Björn Grétar Sveinsson, Ögmundur Jónasson
og Hervar Gunnarsson ráða ráðum sínum fyrir utan íþróttahús Digranesskóla
þar sem 38. þing ASI var sett í gær.
samleiðar. „Við eigum samleið
með okkar kollegum hér eins og
annars staðar í því sem snýr að
kjaramálum. Náttúrlega þarf að
berja á ríkisstjórninni að þessu
sinni sem virðist vera nauðsyn-
legt.“
Guðmundur segir að auðvitað
séu menn ekki á einu máli um
ágæti forystunnar." Mitt mat er að
Benedikt hafi staðið sig mjög vel
sem forseti. En það eru eðlilegt að
það séu skiptar skoðanir um það í
jafn breiðum samtökum og þessum
þar sem saman koma ólíkir hópar
og ólíkir hagsmunir.“ Og Guð-
mundur klykkti út með setning-
unni: „Taka á!“
Að hinir eldri hvíli sig
Hólmfríður Bjarnadóttir, Hvöt
Hvammstanga, sagði þetta mikið
apparat og það þurfi að snúa því í
gang með stórri sveif. Það sé því
ekkert skrýtið þó að þingið fari ró-
lega af stað. Hún segist gjarnan
vilja sjá að forystuna yngda upp á
þinginu. „Að Benedikt ólöstuðum
þá á að gilda í okkar röðum eins
og á hinum almenna vinnumarkaði
að hinir eldri fái að hvfla sig þegar
þeir eru komnir á aldur.“
Hólmfríður er á því að þingið
Engin heljarstökk takk
Páll Valdimarsson, Rafiðnaðar-
sambandi íslands, sagði þingið
fara rólega af stað. Hann vonaðist
eftir stefnumörkun til næstu fjög-
urra ára og að málefnahópar kæmu
sterkir út. „Þetta mun ekki snúast
um forseta eða varaforseta heldur
málefni fyrst og fremst." Páll vildi
ekki gera mikið úr forystukreppu
ASÍ. „Er það ekki bara í fjölmiðl-
unum? Ég kannast ekki við að það
sé forystukreppa í Alþýðusam-
bandinu sjálfu. Það getur vel verið
að það sé innan einstakra sam-
banda eins og Verkamannasam-
bandinu." Páll á ekki von á hörð-
um slag en sagði að Rafiðnaðar-
sambandið leggði áherslu á að
skerpa línurnar og viljum ná kjör-
um við það sem sambærilegt er á
Norðurlöndunum. Ekki með ein-
hverjum heljarstökkum heldur með
þrepum þannig að eftir fjögur ár
verðum við á svipuðu róli hvað
kjör snertir."
komi til með að sýna klærnar eink-
um með tilliti til þess hvernig Al-
þingi hefur haldið á málum gagn-
vart verkalýðshreyfingunni. „En ég
vildi sjá það þá sameinað útí frá
fremur en innbyrðis. Ég held að
við þurfum ekki á því að halda að
vera að klóra augun hver úr öðru.“
Stjórnvöld erfið
Jónína Valgarðsdóttir, Fram-
sókn, vonar að það verði ekki mik-
il átök á þinginu. „Það sem ber
hæst er hvernig stjórnvöld eru að
fara með okkur. Svo er hvort það
verður forsetaslagur?" Jónfna situr
nú sitt fyrsta þing og hún segist
ekki greina neina óánægju með
forystuna.
Kraftmeiri forystu
Sigrún Guðlaugsdóttir, Fram-
sókn, situr sitt annað þing og hún á
von á hörðum slag einkum um for-
setann. „Er það ekki bara í fjöl-
miðlum?" segir hún aðspurð um
forystukreppu hjá ASÍ. „Maður
hefur lesið um það að forystan hafi
staðið sig slælega við að berja upp
kjör. Það mætti kannski vera meiri
kraftur í henni. Það myndi ekkert
saka.“