Alþýðublaðið - 02.07.1996, Side 1
■ Lögreglan og stuðn-
ingsmenn Ólafs Ragn-
ars í viðbragðsstöðu á
kosningadegi
Hótaðað
vinna Ól-
afi Ragn-
ari mein
Á laugardaginn var haft sam-
band við kosningaskrifstofu Ólafs
Ragnars Grímssonar og stuðn-
ingsmönnum hans tjáð að
ákveðnir aðilar væru svo óðir að
þeir væru til alis líklegir. Jafnvel
hugsanlegt að þeir kynnu að vilja
vinna Ólafl Ragni mein með ein-
hverjum hætti. „Við lögðum í
rauninni ekki trúnað á þetta en
reyndum að passa upp á Ólaf
Ragnar og Guðrúnu Katrínu
þannig að nokkrir þéttvaxnir
menn reyndu mestan part dags og
kvölds að vera í nálægð,“ sagði
heimildamaður Alþýðublaðsins í
herbúðum Ólafs. Kosningaskrif-
stofan og Lögregla Reykjavíkur
voru í nánu sambandi allan dag-
inn og lögreglan mætti síðan upp í
Sjónvarp þar sem Ólafur Ragnar
ásamt öðrum frambjóðendum
voru í viðtali. Síðan fékk Ólafur
Ragnar lögreglufylgd á kosninga-
vöku á Hótel Sögu og stóðu
nokkrir lögregluþjónar vaktina
það sem eftir lifði nætur.
■ Olafur Ragnar Grímsson fimmti forseti lýðveldisins
Sigurstund!
og Ólafía Rafnsdóttir, skrifstofustjóri
kosningamiðstöðvar Ólafs Ragnars, fögnuðu
ákaft þegar fyrstu tölur bárust laust eftir klukkan
tíu á laugardagskvöldið. Úrslit voru ráðin í byrjun
og var sigur Ólafs Ragnars mjög öruggur. Sjá
lokatölur á baksíðu. A-mynd: E.ÓI.
Forsetar hittast Ólafur Ragnar Grímsson og Vig-
dís Finnbogadóttir áttu fund á Bessastöðum klukkan þrjú í gær. Ólafur og
Guðrún Katrín skoðuðu hin glæsilegu húsakynni og heilsuðu starfsfólki,
jafnframt því að ræða við Vigdísi. Hinn nýkjömi forseti tekur við embætti
1. ágúst. A-mynd: E.ÓI.
Davíð í lið fýlupokanna
- segir Mörður Árnason, einn helsti stuðningsmaður
Ólafs Ragnars Grímssonar, um viðbrögð forsætisráð-
herra við kosningaúrslitunum.
„Það er ljóst að einhverjir fýlu-
pokar- hálda að sér takist að gera
Ólafi - og þjóðinni - lífið leitt
með ýmsum stælum. Það vekur at-
hygli að Davíð Oddsson skipaði
sér í þann hóp á kosninganóttina,
þótt forsætisráðherra sé einmitt sá
sem kemur það minnst við hvern
þjóðin leiðir til öndvegis framhjá
hans sæti,“ sagði Mörður Árnason,
einn helsti stuðningsmaður Ólafs
Ragnars Grímssonar, í samtali við
Alþýðublaðið í gær. Viðbrögð
Davíðs Oddssonar við kjöri Ólafs
Ragnars vöktu mikla athygli, enda
leyndi sér ekki að forsætisráðherra
var afar ósáttur.
Mörður sagði ennfremur: „Fólk-
ið valdi sinn forseta. Það valdi
núna stjórnmálamann úr fylkingu
jafnaðarmanna, og það er umhugs-
unarefni fyrir okkur vinstramegin
við miðju að almenningur í land-
inu skuli á tveimur árum hafa valið
sér bæði borgarstjóra og forseta af
þessum væng þegar í boði voru
hæfir og sterkir einstaklingar með
skýran málstað og samhent lið að
baki sér.“
Mörður Arnason: Umhugsunarefni
að almenningur hefur á tveimur ár-
um valið borgarstjóra og forseta af
vinstri væng, þegar í boði voru
hæfir einstaklingar með skýran
málstað.
■ Ómar Kristjánsson
Óska Ólafi til
hamingju
„Engin persónuleg óvild
að baki auglýsinganna um
Ólaf Ragnar."
,JÉg óska nýjum forseta til ham-
ingju og vona að honum og fjöl-
skyldu hans famist vel í þessu starfí.
Það var engin persónuleg óvild til
Ólafs Ragnars sem varð til þess að
ég, ásamt öðrum, birti auglýsingar í
þessari kosningabaráttu," sagði
Ómar Kristjánsson framkvæmda-
stjóri, aðspurður um úrslit forseta-
kosninganna. Auglýsingar sem
hann, Björgólfur Guðmundsson og
Sigurður Helgason birtu í síðustu
viku vöktu mikiim úlfaþyt. Um til-
drög auglýsingaherferðarinnar sagði
Ómar: „Eftir að frambjóðandinn
lýsti því yfir að kosningabaráttan
hefði verið eins og huggulegt teboð
þá gerðum við okkur grein fyrir að
fjölmiðlar ætluðu ekki að fjalla um
ákveðin atriði í ferli Ólafs Ragnars.
Við ákváðum að bæta úr því, töld-
um það nauðsynlegt fyrir þjóðina að
vera upplýst um þessi atriði svo hún
gæti dæmt um þau.
Ég ber enga óvild eða hatur til Ól-
afs Ragnars. Ég hef stutt hans pólit-
ísku kosningabaráttu, bæði fyrir og
eftir þau átök sem ég átti í við hann
sem fjármálaráðherra. Nú vona ég
bara að honum takist að sameina
þjóðina að baki sér.“
„Pínlegri frammistöðu
hefur maður varla séð í
sjónvarpssai. Blessaður
maðurinn ætlaði alls ekki að
vera fyndinn - hefur hann
misst húmorinn? - en þó
hló öll þjóðin að honum,"
segir Birgir Hermannsson
um Davíð Oddsson
- blaðsíða þrjú
„Þegar Ólafur Ragnar
Grímsson flytur á Bessa-
staði mun ásýnd forseta-
emþættisins áreiðanlega
breytast mikið. Andstæðing-
ar hans munu bíða þess
að hann misstigi sig og þá
ekki gefa nein grið,“ segir í
leiðara á blaðsíðu tvö
■ Úrslit kosninganna og áhrif þeirra á Alþýðubandalagið
Ekki-sigur Sjálfstæðisflokksins
- segir Svavar Gestsson þingmaður Alþýðubandalagsins og gerir ekki ráð fyrir málefnalegum breytingum í flokknum.
„Úrslit kosninganna hafa margvís-
leg áhrif á Alþýðubandalagið," sagði
Svavar Gestsson formaður þing-
fiokksins í samtali við Alþýðublaðið í
gasr. „ Auðvitað hefur Óladúr Ragnar
haft mikil áhrif en í rauninni hefur
ekki verið um að ræða pólitískan
grundvallarágreining um stórmál í
hans tíð, nema um afstöðuna til Atl-
antshafsbandalagsins. Að öðru leyti
hefúr verið full samstaða urn öll mál
sem úrslitum ráða er því er varðar Al-
þýðubandalagið og þann tíma sem
hann hefúr verið þar. Ég sé því ekki í
fljótu bragði að málefnaleg breyting
þurfi að vera nein. Hins vegar verður
sú breyting að Ólafur er gríðarlega
duglegur, mikill skipuleggjandi og
verkmaður þegar honum tekst best
upp. Auðvitað þarf að tryggja að
staifskraftar annarra virkist þá þeim
mun betur og þeirra sem í staðinn
koma þegar hann hverfur af vettvangi
hjá okkur."
Aðspurður hvort hann saknaði Ól-
afs úr flokknum sagði Svavar:
„Það vita allir hvemig þeir hlutir
eru. Annars vegar höfum við átt gríð-
arlega gott samstarf í tuttugu ár og
höfum sennilega unnið lengur saman
en nokkrir aðrir sem enn eru viricir í
íslenskri pólitík. Hins vegar hefur það
stundum verið aðeins flóknara. En ég
held að ég geti sagt að okkur hafi allt-
af tekist að umgangast hvor annan
með eðlilegum, faglegum hætti.“
Lítur Alþýðubandalagið d þetta sem
sigur flokksins?
„Það er náttúrlega engin launung á
því að Alþýðubandalagsmenn líta á
þessar kosningar sem ekki-sigur Sjálf-
stæðisflokksins. Við teljum líka að
vinstri armurinn í íslenskum stjóm-
tnálum hafi átt sterka málsvara í þess-
ari kosningabaráttu sem em með um
sjötíu prósent atkvæða. Þá er ég að
tala um Ástþór líka sem er með ýmsar
V ,
áherslur í fnðarmálum sem em líkari
því sem við höfum verið með.“
Munu þessi úrslit greiða götu í
sameiningarmólum ?
,Ég get ekki svarað því. Við mun-
um auðvitað halda þeirri stefnu sem
nú er uppi í þeim efnum. Það Iiggur
fyrir bréf frá okkar formanni til for-
ystumanna hinna flokkanna sem þeir
hafa ekki svarað ennþá. Mér fannst
satt best að segja mjög skrýtið að for-
maður Alþýðuflokksins skyldi ganga í
þann kór með íhaldinu að reyna að
gera h'tið úr þessum kosningaúrslitum
sem jjólitískum tíðindum. Mér fannst
það mjög skrýtið."