Alþýðublaðið - 02.07.1996, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ1996
s k o ð a n i r
MíWBLMIID
21134. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
*
Herra Olafur Ragnar!
Úrslit forsetakosninganna fela í sér einn stærsta persónulega
sigur sem unninn hefur verið í kosningum á íslandi. Fyrir rúmu
misseri þótti alger og brosleg fjarstæða að Ólafur Ragnar Gríms-
son gæti náð kosningu sem forseti lýðveldisins: sigur hans á
laugardag var hinsvegar öruggur og sannfærandi. A landsbyggð-
inni hafði Ólafur yfirburði, hlaut rúmlega 50 prósenta fylgi í
tveimur kjördæmum, og á höfuðborgarsvæðinu var ekki eins
mjótt á munum og margir spáðu. Ólafúr hlaut alls 41,4 prósent,
Pétur Kr. Hafstein 29,6, Guðrún Agnarsdóttir 26,4 og Ástþór
Magnússon 2,7.
Það er afar athyglisvert að tveir vinstrisinnaðir stjómmálamenn
fengu uppundir 70 prósent allra atkvæða. Fyrst og fremst er það
líklega til marks um að forsetakosningar eru næsta ópólitískar,
þótt greining á fylgi frambjóðenda hafi leitt í ljós áherslumun eft-
ir því hvar kjósendur skipa sér í stjómmálaflokk. Það var persón-
an en ekki stjómmálamaðurinn Ólafur Ragnar sem sópaði til sín
atkvæðum kjósenda. Því ættu menn að fara varlega í að draga
ályktanir um pólitísk skilaboð úrslitanna: hvorki var kosið um
utamíkisstefhu íslands né sameiningu vinstri manna, einsog sum-
ir láta í veðri vaka.
í viðtali við Davíð Oddsson kom glöggt í ljós að försætisráð-
herra er mjög með böggum hildar vegna sigurs Ólafs. Næsta
raunalegt var að heyra ráðherrann útskýra hvemig hann þyrfti alls
ekki að hrópa húrra fyrir heira Ólafí Ragnari Grímssyni forseta.
Vitanlega em niðurstöðumar áfall fyrir Davíð og klíku hans í
Sjálfstæðisflokknum sem gerði sitt ítrasta til að hindra kjör Ólafs.
En Ólafur ætti reyndar að þakka Davíð fyrir hans framlag: Það
tók Davíð sem kunnugt er marga mánuði að komast að þeini nið-
urstöðu að hann langaði ekki að verða forseti, og með því hindr-
aði hann á meðan framboð annarra af hægrivæng. Þegar Davíð
gaf loksins forsetadrauma uppá bátinn var forskot Ólafs orðið
gríðarlegt. Þrátt fyrir snarpa og mjög vel rekna kosningabaráttu
tókst Pétri Kr. Hafstein ekki að brúa bilið á nokkmm vikum.
Kosningabaráttan nú var að mörgu leyti harðari en þegar Vig-
dís Finnbogadóttir var kjörin fyrir sextán ámm. Helsta skýringin
því er sú að Ólafur Ragnar er ákaflega umdeildur og á andstæð-
inga sem svifust einskis til að ata persónu hans auri. Morgunblað-
ið í var margar vikur vettvangur fyrir skítkast sem ritstjórar blaðs-
ins viðurkenna sjálfír að hafi farið að ystu mörkum meiðyrðalög-
gjafar. Auglýsingaherferð nokkurra forstjóra gegn Ólafi í síðustu
viku á sér ekki hliðstæðu í kosningabaráttu hérlendis, og er von-
andi ekki það sem koma skal. Þar var hinsvegar um að ræða
heimskulegt vindhögg, sem ffemur varð til þess að auka fylgi Ól-
afs Ragnars.
Frambjóðendumir sjálfir tóku ekki þátt í leðjuslagnum, en vom
í hvívetna málefhalegir og yfirvegaðir. Stuðningsmenn Péturs Kr.
Hafstein náðu því takmarki að þjóðin kynntist honum og sú við-
kynning var Pétri til sóma, þótt hann hefði ekki erindi sem erfiði.
Þá ættu stuðningsmenn Guðrúnar Agnarsdóttur að geta unað við
sinn hlut, sérstaklega með hliðsjón af því að fylgi hennar var að
þurrkast út fyrir örfáum vikum. Og Ástþór Magnússon var oft
senuþjófur á skemmtilega ósvífinn hátt, og átti stóran þátt í að
glæða baráttuna lífi.
Þegar Ólafur Ragnar Grímsson flytur á Bessastaði mun ásýnd
forsetaembættisins áreiðanlega breytast mikið. Andstæðingar
hans munu bíða þess að hann misstigi sig og þá ekki gefa nein
grið. Ólafur verður því væntanlega afar varfærinn í fyrstu, enda
þarf hann að sannfæra þau sextíu prósent sem ekki kusu hann,
um að hann sé verðugur forseti allra íslendinga. Alþýðublaðið
óskar Ólafi Ragnari heilla í starfi.
Tangóinn í íslensku kvenfólki
Ég er búinn að vera á alveg urrandi
menningarfylleríi að undanförnu.
Enda hvemig má annað vera? Það er
ekki Listahátíð nema á tveggja ára
fresti. Þó að ég teljist kannski ekki
menningarviti enn, má hiklaust segja
að grunnurinn sé lagður. Þúsund
mílna ferð byrjaði með einu skrefi
segir Laó Tse í bókinni Kristallar,
tilvitnanir og fleyg orð. Með leyfi: Nú
hef ég skokkað út á strætóstoppustöð,
er kominn upp í menningarrútuna þar
sem ég halla mér makindalega aftur í
sætinu og nýt dásemdanna: Evgeny
Kissin. Vááá. Kristaltær snilld. Hann
Orðin tóm
átti salinn. Og þama var ég, nýliðinn,
meðal áhorfenda ásamt ekki ómerkari
mönnum en Bimi Bjamasyni og fleiri
andans jöfrum. Lester Bowie með
lúðrasveinum sínum sem blésu
skakkir og skældir af hjartans list.
Við, Vemharður Linnet, Dóri Braga
og fleiri jassgeggjarar gátum ekki
annað en dillað okkur í takt við sveifl-
una. Heimskórinn þar sem ég var
ásamt, já... nei. Og tangóinn maður
lifandi. Tangóinn.
Það er engin tilviljun að Píus páfi X
bannaði tangóinn á 2. áratug þessarar
aldar. Tangóinn er erótískur og
dögunum var franskur tangótöffari,
Olivier Manoury, útí Loftkastala
ásamt kammerhljómsveit. Greinilega
lífsnautnamaður, með gráspengt hárið
og þegar hann þandi tangónikkuna
sína þá fóm svona unaðseinhverjir-
þjáningarsæludrættir um andlitið á
honum. Ekki það að hann hafi virkað
á mig en það var ekki frítt við að
fiðlustelpumar litu til hans hým auga.
Fyrir utan þessa sem var kasólétt. Hún
var líka flínkust á fiðluna. Kannski er
það þessvegna sem hún er ólétt.
Píanóstelpan Edda Erlendsdóttir er að
mér skilst kona tangótöffarans og eins
gott íyrir hana að vera með í ferðum
þegar kvennagull á borð við Olivier er
með tangó. Richard Kron barði bass-
ann og strauk eins og sá sem valdið
hefur - þrælsköllóttur og karlmannleg-
ur. Það er sagt að skalli sé til marks
um mikla kynorku. Kron var réttur
maður á réttum stað. Hins vegar
fannst mér dansarinn ekki nógu mikið
“brút” enda heitir hann Hany Hadaya.
Þama var sem sagt danspar sem tók
tangóspor við nokkur laganna en það
var eins og það vantaði mddatakta í
Hany. En hann var léttur á fæti. Það
vantaði ekki.
Þarna sat ég sem sagt og naut
menningarinnar í ríkum mæli þegar
allt í einu fóm einhver ónot að læðast
að mér. I fyrstu gat ég ómögulega sett
fingur á hvað var. Ég meina, aðstæður
voru eins og best varð á kosið. Ég,
hámenningin og góður félagsskapur.
Ekki á ég við öndunarörðugleika að
strfða eins og Ríkarður Öm Pálsson
kollegi minn á Mogganum. Þá rann
allt í einu upp fyrir mér ljós. Þarna
vom sex íslenskar stelpur á sviðinu,
hver annarri álitlegri, í sensjúal tangó
og þrír útlendingar.
Gamla sagan.
Nú ætla ég að gera eins og Þráinn
Bertelsson í útvarpinu: Vitna í vini
mína og kunningja. Einn vinur minn,’
heldur því fram fullum fetum að hann
þurfi ekki annað en að fara í matrósa-
búning og labba þannig klæddur niður
Laugaveginn. Þá svoleiðis vaði hann í
sénsunum. Þetta er kannski ekki út í
bláinn. Enda hef ég heyrt að erlendir
popparar sem eru þaulsetnir á
Kaffibarnum fari nú eins og plógur
um íslenskan akur þegar kvenfólkið er
annars vegar. Annar vinur minn setti
um daginn fram kenningu í mín eyru
sem ég kýs að trúa. Miðasala á tón-
leika Bjarkar var svona dræm frarnan
af út af þessum Goldie. Einskonar
óbein mótmæli. Að vísu rættist úrþes-
sum tónleikum og ég held að það sé
vegna þess að það kom eitthvert óp úr
herbúðum kvenna á íslandi. Rétt eins
og með framboð Guðfúnar
Agnarsdóttur. Allt í einu fengu þær
hland fyrir hjartað: Við emm að missa
þetta allt úr höndunum á okkur.
Karlmaður er á leiðinni á Bessastaði.
Guðný Guðbjörnsdóttir og kó fóru
hamförum í greinum sínum í
Mogganum. Vitnuðu í „raddir” sem
sögðu að kominn væri tími á karl-
mann á Bessastaði. Vigdís
Finnbogadóttir sagði þessar raddirfara
ákaflega mikið fyrir brjóstið á sér í
kvennablaðinu Vem.
Þaðvarog.
Ég hugsa að ég gæti skrifað heilu
bækumar ef ég vitnaði í einhverjar
raddir sem segðu þetta og hitt og sett
síðan saman vamarræðurút.frá því.
Það er kannski ekki svo vitlaust. .
Jæja. Maður er að verða hálf
mglaður í þessu forsetafári öllu. Það
er sem betur fer búið.
En að þessu samanlögðu er útkom-
an sú að það hallar orðið ískyggilega á
karlmenn. Þeir em hafðir útundan. En
þetta er auðvitað þekkt staðreyiiij.frá
fornu fari. Við; ísiensMr karlménn
höfum þurft að bíta .í þaðjsúra'epli, og •
horft á eftir mörgum feitunl bilanum í
útlenskan hundskjaft í áranria rás. Þá
er nú gott að hafa hana menningu til
að halla sér að. ■
t*ive Pús./ab!Gr! • ‘
V*-- 'io í;h,-
JííIsv rrií»2 Öc4
'•lovrí
U.'
Þá rann allt í einu upp fyrir mér Ijós. Þarna voru sex íslenskar stelpur á
sviðinu, hver annarri álitlegri, í sensjúal tangó og þrír útlendingar.
. i :T; k . .. .
Atburðir dagsins
1849 Endurreist Alþingi var
háð í heyranda hljóði í fyrsta
sinn, að kröfu Jóns Sigurðsson-
ar og fleiri þingmanna. 1881
James Garfield Bandaríkjafor-
seta sýnt banatilræði. 1937
Einkasnekkja Adolfs Hitlers,
Aviso Grille, kom til Reykja-
víkur. Adolf var ekki með í för.
1948 íslendingar unnu Finna f
knattspyrnu, 2-0. Þetta var
þriðji landsleikurinn og sá
fyrsti sem íslendingar unnu.
1973 Kvikmyndastjaman Betty
Grable deyr. 1976 Víetnam
sameinað í eitt ríki. 1989 Andr-
ei Gromyko deyr. Hann var
utanríkisráðherra Sovétríkjanna
í 30 ár.
Afmælisbörn dagsins
Christoph Gluck 1714, þýsk-
ur tónsmiður. Hermann Hesse
1877, þýskur rithöfundur.
Annálsbrot dagsins
Kona ein á Vestljörðum hafði
lýst tvo menn feður að bami
sínu; það mál kom til alþingis,
og var ályktað, að þeir skyldu
annast barnið að jafnaði, að
réttri tiltölu, móts við móður-
ina, til þess það væri 7 vetra,
og sá skyldi réttur faðir í hvers
ætt það líktist þá.
Vallaannáll 1693.
Skylda dagsins
Þegar heimskingi aðhefst eitt-
hvað, sem hann skammast sín
fyrir, segir hann jafnan, að
hann sé að gera skyldu sína.
George Bernard Shaw.
Skipuiag dagsins
Maður er ekki nógu mikið hel-
vítis illmenni fyrir þetta þjóð-
skipulag.
Halldór Laxness, Sjálfstætt fólk.
Málsháttur dagsins
Lengi stendur mannsefni til
bóta.
Orð dagsins
Illa fenginn auðinn þinn
áður en lýkur nösum
aftur tínir Andskotinn
upp úr þínum vösum.
Páll Ólafsson.
Skák dagsins
Svarti kóngurinn er í úlfa-
krcppu' í "skálr dagsins'rserm
tefld var í Sovétríkjuiiufn Jrið
1951. Hanov hafði -hyíti pg átti
leik gegn Ballrjjgvairti-pú
snöggan sigúr.:
Hvítur mátar í tveimur leikj-
um.
1. Dxh7+! Bxh7 2. RÍ7 Skák
og snoturt kæfmgamát!