Alþýðublaðið - 02.07.1996, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n
Heill sé forseta vorum - punktur
Pínlegri frammistöðu hefur maður varia séð í
sjónvarpssal. Blessaður maðurinn ætlaði alls
ekki að vera fyndinn - hefur hann misst húm-
orinn? - en þó hló öll þjóðin að honum.
Það er góður siður að leyfa rykinu
að setjast á vígvellinum áður en orr-
ustan er metin; Minerva - tákn visk-
unnar - hefur sig til flugs þegar rökk-
va tekiin'Þettá á að sjálfsögðu við um
forsetakosningar eins og aðrar orrust-
ur. Strax á kosninganóttu voru hinir
ýmsu spekingar áð meta niðurstöðuna
á margvíslegan hátt - og sáu þó vart
til sólar fyrir rykmettinum. Auðvitað
var þeim vorkunn; spumingar brunnu
á vörum fólks og einhveijar ályktanir
varð að draga af tíðindunum - hversu
Háborðið |
^—'---------------*
Rk Birgir
Hermannsson
skrifar
bjánalegar sem þær annars gátu litið
úr daginn eftir. Annars var kosninga-
vaka sjónvarpsstöðvanna heldur leið-
inleg o'g feinkenndist af spennuleysi,
aulahúmor og karlrembu. Vonandi sjá
sjónaipsstöðvamar sóma sinn í því að
keppa-sín iá milli á næstu kosninga-
nóttu eins og aðra daga ársins.
Þó að sól hafi skinið í heiði á
Barðaströnd 5 á Seltjamamesi síðasta
sunnudag er ekki þar með sagt að
sama heiðríkjan hafi ríkt í skilningi
manna á því hvað gerst hafði og svo
af hveiju. Verðandi forsetahjón eru
augljóslega enn að ná andanum; nú
em þau svó að segja þjóðareign. Meiri
breytingu ádffi fólks er vart hægt að
hugsa sér: Fyrir þau okkar sem muna
vart eða alls ekki eftir öðmm forsetum
en ffú Vigdísi Finnbogadóttur er þetta
undarleg staða. Vigdís er forsetinn.
Ólafur Ragnar verður nú væntanlega
herra Ólafur Ragnar, eins og hver
önnur boðflenna í hlutverki sem öðr-
um er ætlað. Boðflenna í boði þjóðar-
innar. ;
Það sem vefst auðvitað fyrir fólki
að útskýra er hvers vegna þjóðin, með
svo afgerandi hætti sem raun ber vitni,
kaus að lyfta Ólafi Ragnari Grímssyni
á þennan háa stall. Fyrir ekki ýkja
löngu hefi enginn tekið slíka tilhugsun
alvarlega. Við virðumst standa frammi
fyrir þeirri þverstæðu að trúa því vart
að þetta hafi gerst vegna þess hver Ól-
afur Ragnar er - umdeildur stjórn-
málamaður - og jafnframt að þetta
hafi einmitt gerst vegna þess hver Ól-
afur Ragnar er. Þegar kosningabarátt-
an var um það bil að hefjast skrifaði
ég grein hér í Alþýðublaðið og hélt
því fram að helsti styrkur Ólafs Ragn-
ars væri hversu umdeildur og vel
þekktur hann væri; kjósendur keyptu
ekki köttinn í sekknum þegar Ólafur
Ragnar væri annars vegar. Þessi kenn-
ing gekk þvert á ríkjandi hugmyndir
um æskilegan forsetaframbjóðanda:
vammlausan, óumdeildan og umfram
annað ekki stjómmálamann. Ég er því
nokkuð ánægður með mig i dag.
Guðmundur Andri Thorsson viku-
piltur orðaði það svo á föstudaginn að
fólki fyndist eitthvað fyndið við til-
hugsunina um Ólaf Ragnar sem for-
seta. Það fannst Davíð Oddssyni
greinilega ekki á kosninganóttina; pín-
legri frammistöðu hefur maður varla
séð í sjónvarpssal. Blessaður maður-
inn ætlaði alls ekki að vera fyndinn -
hefur hann misst húmorinn? - en þó
hló öll þjóðin að honum. Stórmannleg
var frammistaða hans ekki og skyn-
samlegt hefði verið af honum að bíða
einn dag með yfirlýsingar.
Á það var bent á kosninganótt að
forsetakosningar hafa ætíð verið
mælikvarði á ákveðna undiröldu í
samfélaginu. Svo er eflaust einnig í
þetta sinn. Við ættum þó að fara var-
lega í ályktanir fyrst um sinn og leyfa
rykinu að setjast betur á vígvellinum.
Með því að kjósa fyrrverandi formann
Alþýðubandalagsins í embætti forseta
fslands er þjóðin þó endanlega að
staðfesta endalok kalda stríðsins og
alls ekki fjarstæðukennt að álykta sem
svo að kjör Ólafs Ragnars sé táknrænt
upphaf nýrra tíma í íslenskum stjóm-
málum. Ekki útffá hugtökunum hægri
og vinstri, eins og Svavar Gestsson
hefur reynt að halda fram, heldur að
gamall klofningur þjóðarinnar heyri
nú sögunni til.
Umfram annað var þjóðin þó að
kjósa sér glæsileg hjón að Bessastöð-
um, vel menntaðan heimsmann með
meirapróf á stjómskipun íslands og
mikla reynslu af stjórnmálum jafnt
innanlands sem utan. Ólafúr Ragnar
hefur unnið fyrir sigri sínum og er vel
að honum kominn.
Heill sé forseta vorum - punktur.
JÓN ÓSKAR
v i t i m e n n
Ástæðan fyrir þessu var
þessi hommavitleysa.
Frá guðsorðinu séð er
þetta hin mesta ósvinna.
Snorri Óskarsson í Betel flaggaði í hálfa
stöng þegar lögin um hjúpskap samkyn-
hneigðra gengu í gildi. DV á laugardag.
Hittir Jane Fonda
daglega í lyftunni.
Fyrirsögn á DV-viötali við ungan íslending
sem vinnur hjá CNN í Bandaríkjunum.
Mér fínnst þetta satt
að segja heldur ómerkileg
ályktun og vitiaus.
Kristinn H. Gunnarsson þingmaður um
ályktun stjórnar Verðandi, þarsem hann er
fordæmdur fyrir aö víkja af flokkslínu.
Tíminn á laugardag.
Ég skil vel að nú vilji
menn fagna en mig langar
að setja fram þá ósk að hvert
og eitt ykkar taki af heilum
huga í hönd þeirra sem
stutt aðra hafa stutt í
þessum kosningum.
Ólafur Ragnar að ávarpa
stuðningsmenn eftir að sigur var í höfn.
DV í gær.
Það kom greinilega í ljós
meðal stuðningsmanna
Guðrúnar að þeir voru ekki
sáttir við Ólaf Ragnar sem
forseta, margir sögðust frekar
hefðu sætt sig við Pétur
og töldu að hér væri um tíma-
mótakosningar að ræða...
Upp úr miðnætti var mönnum
farið að fækka töluvert
og ljóst var að uppgjöfín
var algjör.
Frásögn DV af kosningavöku
Guörúnar Agnarsdóttur.
Keppinautar ólafs
Ragnars Grímssonar um
forsetaembættið hverfa nú
tii fyrri starfa. Barátta þeirra
var drengileg og málflutningur
til sóma. Menn ganga því
heiiir hildi frá.
Jónas Haraldsson í forystugrein DV í gær.
Við birtingu þessara greina og
bréfa hefur ritstjórn Morgun-
blaðsins teygt sig býsna langt
og stundum að ystu mörkum
meiðyrðalöggjafar í þágu tján-
ingarfrelsis.
Leiðarahöfundur Morgunblaösins í
naflaskoðun á sunnudag.
fréttaskot úr fortíd
Rólyndi
Hér um nóttina, þegur
brunaliðuSmaður í Oakland vakti
ungfrú Netti Nelson og sagði
henni að eldur væri í húsi hennar,
svaraði hún: „Slökkvið þér þá.“
Síðan hallaði hún sér á hina hliðina
og sofnaði á ný.
Sunnudagsblað Alþýðublaðsins,
3. mars 1935.
i n u m e g i n
FarSide' .ftir Gary L
Nú er unnið hörðum hönd-
um að því að koma töfra-
töktum Skara skrfpó og fé-
laga í heildstæða sýningu.
Frumflutningur verður á
næstunni í Loftkastalanum
og leikstjóri er Baltasar Kor-
mákur. Meðal annarra sem
fram koma með Skara, (alías
Óskar Jónasson) er félagi
hans til margra ára - Sigur-
jón Kjartansson. Skari
skrípó tók létta upphitun í
gleðskaþ sem haldinn var eft-
ir tonleika Davids Bowie í
Garðahfelti og sýndi þar hin-
um útvöldu gestuhn nokkur
atriði. Samkvæmt áreiðanleg-
um heifnildum Alþýðublaðs-
ins líkajði stórpopparanum
ákaflega vel eða eins og tíð-
indamaður blaðsins orðaði
það: Hann emjaði af hlátri...
Það vakti athygli sjónvarps-
áhorfenda, þegar útsend-
mg^Stöðvar 2var rofin til að
sýná frá hytlihgúnni áð heim-
ili næsta forseta lý.ðveldisins
að í glugga á milli þeirra Ól-
afs Ragnars og Guðrúnar
Katrínar var smávaxinn Ijós-
myndari í bol sem á stóð
skýrum stöfum: CCCP
(skammstöfun fyrir Sovétrík-
in með rússneskri stafagerð).
Til marks um viðkvæmnina
sem ríkir meðal þjóðarinnar
nú um stundir var nokkuð
um að áhorfendur hringdu í
Stöð 2 og voru með athuga-
semdir við þessa smekk-
leysu...
F
Iauglýsingakálfi Moggans
um helgina var áréttað að
starf dagskrárstjóra Rásar2
væri laust til umsóknar og
rennur umsóknarfrestur út í
lok mánaðarins. Gert er ráð
fyrir því að nýráðinn dag-
skrárstjóri taki við starfinu
strax 1. september. Tíðinda-
maður Alþýöublaðsins innan
stofnunarinnar segir mjög
ólíklegt að Sigurður G.
Tómasson sæki um endur-
ráðningu. Enn sem komið er
hafa fá nöfn verið nefnd en
starfsmenn Rásar 2 skora
hver á annan að sækja um ef
það geti orðið til þess að
Sjálfstæðisflokkurinn komi
ekki manni í starfið til að reka
erindi flokksins, það er að
leggja drög að því að Rás 2
verði seld. Reiknað er með
því að Leifur Hauksson morg-
unhani sæki um starfið...
Sem von er hefur mikil kát-
ína ríkt meðal stuðnings-
manna Ólafs Ragnars
Grímssonar. Meðal þeirra
allra kátustu eru Mörður
Árnason og Karl Th. Birg-
isson sem ráku inn nefið á
Kaffibarinn á sunnudags-
kvöldið eftir hyllingu næsta
forseta. Þar sátu stórpoppar-
arnir úr tveimur af þrem vin-
sælustu hljómsveitum Breta
um þessar mundir - Blur og
Pulp sem verða með tónleika
(kvöld. Þeir ráku upp stór
augu þegar kampakátir Ólafs-
menn stilltu sér upp á mitt
gólfið og sungu ættjarðar-
söngva bæði hátt og mislag-
vissir: „Sjá dagar koma, ár og
aldir líða. Og enginn stöðvar
tímans...
„Þetta er kall óbyggðanna.'
fimm á förnum vegi
Ertu ánægð(ur) með kosningaúrslitin?
Baldur Vilhjálmsson
stöðuvörður: Ég er þokka-
légá áitægðúr en ég skilaði
samí auðu.. ,
Anna Kristín Hjartardóttir
arkitekt: Ég kaus ekki af því
að við fengum engar upplýs-
ingar til Berlínar þar sem ég er
búsett.
Einar Agústsson lífeyris-
þegi: .lá, ég er mjög ánægður.
Þeir fengu rassskell sem þurftu
að tá hann.
Anna Dr . Gestsdóttir
nemi: Já, þetia erbara ágætt.
Jón Magnússon vtðskipta
fræðingur: Nei, það get ég
ekki sagt.