Alþýðublaðið - 11.07.1996, Blaðsíða 1
■ Mikil ólga meðal garðyrkjumanna
Fullyrt að fjárdráttur hafi
numið 15-20 milljónum
Mál fyrrverandi formanns Félags garðyrkjumanna ekki kært.
Samningur gerður um að þagga málið niður og manninum ekki
gert að skila öllu fénu sem hann hafði dregið sér.
„Ég er hættur að greiða félags-
gjöld og ég veit um fleiri sem ætla
að gera slíkt hið sama vegna
óánægju með hvernig fjárdrattur for-
mannsins var afgreiddur,“ sagði
meðlimur í Félagi garðyrkjumanna í
samtali við Alþýðublaðið í gær. Ein-
sog blaðið skýrði frá varð fyrrum
formaður uppvís að stórfelldum fjár-
drætti. Heimildamaður blaðsins seg-
ir að fjárdráttur úr félagssjóði nemi
2,1 milljón króna og 15 til 20 millj-
ónum úr lífeyrissjóði. Núverandi
stjórnarmenn í Félagi garðyrkju-
manna hafa ekki fengist til að gefa
upplýsingar um hversu mikill fjár-
drátturinn var.
Formaðurinn vék úr embætti í vor
og ný stjórn gerði samning við hann
um að fjárdrátturinn yrði ekki kærð-
ur. Hann mun nú hafa gengið frá
samningum um endurgreiðslur líf-
eyrisgreiðslna, og á aðalfundi í síð-
ustu viku, þarsem einungis 17 fé-
lagsmenn mættu, var samþykkt að
hann skyldi greiða 1,7 milljón af
þeim 2,1 sem hann hafði dregið sér
úr félagssjóði. Þessum samningi líkti
nýr formaður, Heimir Janusson, við
bílabrask í Alþýðublaðinu í gær og
sagði að menn yrðu að „gefa á
rnilli".
Heimildamaður Alþýðublaðsins
sagði að fjárdráttur formannsins
fyrrverandi úr lífeyrissjóðnum væri
til athugunar hjá Seðlabanka og
Sameinaða lífeyrissjóðnum, en líf-
eyrissjóður garðyrkjumanna varð
hluti hans á síðasta ári.
Mikil ólga er meðal félagsmanna
yfir þvf að málið skyldi afgreitt í
kyrrþey en ekki kært. Þá fannst
heimildamönnum blaðsins óforsvar-
anlegt að formanninum fyrrverandi
væri ekki gert að skila öllu fénu sem
hann hafði sannanlega dregið sér.
Leni RiefenstahhKonan og
áródursmeistarinn sem Adolf
Hitler dádi. Hún var, og er, fríð,
fjörmikil, glæsileg, kjörkud og
óbilgjörn kona sem kunni best
við sig í félagsskap karlmanna. I
lífi hennar gegndu konur hlut-
verki keppinauta. Sjá blaðsíðu 7
Engum dylst hvaða „kappsami
póltíkus" dylst á milli línanna í
grein Ingvars Gíslasonar.
Ástæða er til að fylgjast grannt
með samskiptum forsætisráð-
herra og nýs forseta, að minnsta
kosti þangað til sá fyrrnefndi er
búinn að jafna sig á kosningaúr-
slitunum, segir í forystugrein á
blaðsíðu 2
Hvað syngja Mörður Árnason
og Bryndís Hlöðversdóttir á
laugardaginn? Allt um það á
blaðsíðu 4
■ Ari Trausti Guðmundsson segir sögur um mannát í
menningarbyltingunni í Kína „snyrtilegt sölutrix"
Kyngi þessu ekki
-segir Ari Trausti í ítarlegu viðtali um menningarbyltinguna og
viðhorf sín til Kína og kommúnismans.
„Ég get í sjálfu sér hvorki borið á
móti né samþykkt að mannát hafi
tíðkast í menningarbylt-
ingunni í Kína. Það eina
sem ég get sagt, er að
mér finnst þetta ótrúlega
ótrúlegt," segir Ari
Trausti Guðmundsson.
I Morgunblaðinu síð-
astliðinn sunnudag var
afar athyglisverð og ógn-
vekjandi grein, sem
byggir á nýrri bók, Scar-
let Memorial, eftir Kín-
verjann Zheng Yi. Frá-
sagir í bókinni eru hrottalegar svo
vægt sé til orða tekið. „Ég hef alltaf
litið á Kína sem þokkalega siðmennt-
að samfélag. Hvort sem menn eru
búddatrúar, Konfúsíusarmenn eða
klárir maóistar þá hafa menn ákveðið
siðferði og það gengur út á það að éta
ekki meðbræður sína. Ég kaupi ekki-
þessar sögur af mannáti," segir Ari
Trausti. „Kínverjar eru hámenntuð
þjóð og þekktir fyrir annað en mann-
át. Það eru ekki einu sinni til sögur úr
stríðinu þess efnis að Japanir hafi étið
Bandaríkjamenn. Ég veit að þeir
drápu menn og pyntuðu, og það hafa
þeir vafalítið einnig gert í ríkum mæli
í menningarbyltingunni, en mannaát?
Mfn fyrstu viðbrögð eru þau að þetta
sé snyrtilegt sölutrix.“
Ari Trausti er nýkom-
inn lfá Tíbet og sá hvað
hernám Kínverja þar
hefur haft í för með sér
og hvemig Tíbetar líta á
það. „Það er hægt að
sýna fram á eitt og annað
jákvætt. Allt í einu er
komin mjög fín heilsu-
gæsla í öllu Tíbet. Það
eru flott sjúkrahús í smá-
bæjum, heilsugæslu-
stöðvar í minnstu þorpum og ekki
hægt að segja annað en gott eitt um
það. En svo má sjá rústir af einhvetj-
um tíu klaustrum og manni finnst það
náttúrlega út í bláinn að þau hafi ver-
ið eyðilögð, fólk hrakið á brott eða
drepið eða hvað nú gerðist í tengslum
við þann gjöming. Niðurstaðan hlýt-
ur að vera sú að Tíbetar verði að öðl-
ast sitt menningarlega og pólitíska
sjálfstæði með einuni eða öðrum
hætti. En það em hlutir sem ég hefði
átt erfitt með að sjá fyrir 15 til 20 ár-
um, sitjandi hér og lesandi mismun-
andi útgáfur af veruleikanum."
Sjá blaðsíðu 5
■ Sighvatur Björgvinsson telur að verið sé að setja
heilbrigðisþjónustuna á almennan markað
Kerfi sem ég vil ekki sjá
- segir Sighvatur og varar við hugmyndum um valfrjálst stýrikerfi.
Sighvatur Björgvinsson:
Mér sýnist að þarna sé
verid að taka fyrsta skref
ið í þá átt að setja heil-
brigðisþjónustuna á
almennan markað.
„Mér lýst þunglega á þessar hugmyndir
og vara við þeim. Mér sýnist að þama sé
verið að taka fyrsta skrefið í þá átt að setja
heilbrigðisþjónustuna á almennan markað.
Þá er gert ráð fyrir lágmarksþjónustu sem
hið opinbera tryggir og síðan er ætlast til
að fólk kaupi sér viðbótartryggingar, ef
það vill fá betri þjónustu eða aúkið öryggi.
Það er kerfi sem ég vil ekki sjá,“ segir Sig-
hvatur Björgvinsson fyrrverandi heil-
brigðisráðherra um hug-
myndir Ingibjargar
Pálmadóttir þess efnis
að hér á landi verði tek-
ið upp svonefnt val-
fijálst stýrikerfi.
Hugmyndin að
valfrjálsa stýrike-
rifnu er fengin frá
Danmörku og í
því felst að ein-
staklingum
gefst kostur
á því, við
gerð skatt-
skýrslu
sinnar, að
kaupa sér
viðbótartrygg-
ingu í heilbrigðiskeifinu.
Með tryggingunni fær
sá sem hana kaupir ódýrari og hagkvæmari
þjónustu í heilbrigðiskerfinu en sá sem
tekur ákvörðun um að kaupa hana ekki.
„Þama getur verið um að ræða fjármuni -
sem láglaunafólk munar talsvert um. Hjá
heilsuhraustu fólki, sem þarf að horfa í
hveija krónu, er ansi ffeistandi að láta vera
að kaupa trygginguna. Ef óvænt veikindi
steðja síðan að á næstu tólf mánuðum hef-
ur þessi hópur ekki þessa tryggingu fyrir
ókeypis heilsugæslu,” segir Sighvatur.
Sighvatur segir að þó hann sjái ýmsar
hættur í hinu valftjálsa stýrikerfi telji hann
aðrar hugmyndir heilbrigðisráðherra um
breytingar á heilsugæslu vera af hinu góða.
Hann nefnir þar sérstaklega hugmyndir um
að taka upp tilvísanakerfi. Á sínum tftna
innleiddi Sighvatur kerfið sem átti að taka
gildi örfáum dögum eftir að Ingibjörg
Pálmadóttir tók við heilbrigðisráðuneyt-
inu. Ingibjörg afnam tilvísanakerfið stuttu
eftir að hún tók við embætti en hefur nú
ákveðið að taka það upp.
Um sinnaskipti Ingibjargar segir Sig-
hvatur: „Þegar hún fór að skoða málið hef-
ur hún einfaldlega komist að þeirri niður-
stöðu að tilvísanakerfið tryggir bestu þjón-
ustuna fyrir þá fjánnuni sem til ráðstöfunar
em. Hún hefur séð að rök mín vom rétt og
hefur því skipt um skoðun á því rúma ári
sem hún hefur verið ráðherra."
SJÁÐU HVERNK
Frá kr. 15,800,
Vikuferð til Færeyja. Verð pr. mann miðað við
fjóra í bíl í allt sumar.
FRABÆR
VERÐ
BÓKAÐU STRAX, ’
Ennþá laust í nokkrar ferðir
Frá kr.28.900,-
Verð pr. mann miðað við fjögurra manna fjölskyldu með eigin
Jbíl til Danmerkur eftir 4. júií og heim frá Noregi í ágúst.
2 fullorðnir og tvö böm yngri en 15 ára.
Verð á mann. Bifreið innifalin
VfSA
(D
ÞÍNAR EIGIN LEIÐIR
NORRÆNA
FERÐASKRIFSTOFAN
Laugavegur 3, Sími: 562 6362
AUSTFAR H F
Seyðisfirði, sími: 472 1111
Umboðsmenn um allt land