Alþýðublaðið - 11.07.1996, Qupperneq 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ1996
m a n n I í f
■ Jafnaðarmenn sameinast- um sumarferð
„Margt skeður stundum í Merkurferðum"
Jafnaðarmenn ætla saman í sumarferð um helgina.
Margt hefur verið skraflað um sameiningu jafnaðar-
manna, en nú á að láta verkin tala og fara í sameigin-
lega sumarferð.
Klukkan tíu á laugardagsmorgun
verður lagt af stað frá Ráðhúsi
Reykjavíkur og ekið sem leið liggur
uppað Hreðavatni. Þar verður grillað
og farið með gamanmál, auk þess sem
flutt verða ávörp. Bryndís Hlöðvers-
dóttir, þingmaður Alþýðubandalagsins
og Mörður Ámason, varaþingmaður
Þjóðvaka eru meðal þeirra sem flytja
ávörp. Bryndís var spurð hvort ferðin
væri fyrirboði um annað og meira.
„Ég veit ekki hvort þetta er endilega
fyrirboði - en ég er hrifin af hug-
myndinni og ánægð með framtakið.
Það er æskilegt að fólk úr þessum
flokkum kynnist - og ekki er verra að
það verði þegar fólk er að gera sér
glaðan dag. Ferðin er ágætt tækifæri
til að hrista fólki saman,“ sagði Bryn-
dís.
Þú flytur ávarp - œtlarðu að lesa
yfir hausamótunum á ferðafélögun-
um?
„Ég veit það nú ekki. Ætli það fari
ekki eftir veðri og vindum. Það verður
líklega hvorki staður né stund fyrir
langar pólitískar vangaveltur, þarna
uppi við Glanna og Grábrók - en ég
sleppi pólitíkinni varla alveg. Ég á
von á að ég setji fram örlitla brýningu.
Líklega veitir ekki af.“
Hvað þarfhelst að brýnafyrir jajh-
aðarmönnum?
„Það sem brennur helst á okkur sem
höfum áhuga á að sameina jafnaðar-
menn er: Hvursu lengi ætlum við að
tala um hlutina? Er ekki kominn tími
til að aðhafast eitthvað? Auðvitað
veltir maður því fyrir sér öðru hvoru
hvort sameining sé yfirhöfuð mögu-
leg. Hvort við verðum virkilega alltaf
fangar fortíðarinnar og snúum enda-
laust aftur í gömlu fylkingamar."
Mikið talað en ekkert aðhafst - er
ferðin kannski fyrsta skrefið í rétta
átt?
Bryndís Hlöðversdóttir: Það verður
líklega hvorki staður né stund fyrir
langar pólitískar vangaveltur,
þarna uppi við Glanna og Grábrók.
„Við þurfum að rífa okkur uppúr
gamla hjólfarinu, og svona sumarferð
spillir ekki fyrir. Ég vona að þáttaka
verði góð og að sem flestir úr mínum
flokki komi. Þetta gæti nefnilega orðið
skemmtilegt."
Alþýðuflokkurinn og vinir
Mörður Amason var spurður hvort
sameiginleg sumarferð jafhaðarmanna
væri það sem koma skyldi.
„Það tel ég augljóst. Þama verða
Alþýðuflokksmenn og vinir Alþýðu-
flokksins; ég úr Þjóðvaka og mjög
gervilegur þingmaður sem flæktist af
tilviljun inní Alþýðubandalagið - en
er að færa sig greinilega í rétta átt.“
Þú ert vonandi ekki eini vinur Al-
þýðuflokksins í Þjóðvaka?
„Nei, alls ekki. Við erum mjög
mörg í Þjóðvaka sem emm vinir Al-
þýðuflokksins. Eiginlega öll..Eða nán-
ast. En ég vek athygli á því að þetta er
á jafnaðargrundvelli alltsaman og eng-
inn er að frekjast framúr öðmm. Ein-
mitt einsog þetta á að vera.“
Er búið að tala nóg og á loksins að
fara að gera eitthvað?
„Mér skilst að það eigi nú að tala
aðeins meira í þessari ferð - að við sé-
um fengin til þess. Við sem mikið
höfum talað munum tala aðeins meira.
Ávarpið er ósamið ennþá og fer að
sjálfsögðu eftir kringumstæðum. En
ég geri ráð fyrir að flytja hugvekju til
íslendinga, einsog aðrir hafa gert á
undan mér.
En svo kynni ýmislegt að gerast í
ferðinni. Hvemig er það í Þórsmerkur-
ljóðinu fræga:
Margt skeður stundum í Merkur-
ferðum...“
Mörður tók fram að einungis fyrsta
ljóðlínan væri viðeigandi, en fram-
haldið er svona:
rnest þó efBakkus er með íferðum,
brátt sátuflestir kinn við kinn,
og kominn var galsi í mannskapinn...
Möröur Árnason: Ég geri ráð fyrir
að flytja hugvekju til Islendinga,
einsog aðrir hafa gert á undan mér.
ÚT- RÝMINGARSMA
A NOTUÐUM BlLUM
ENGIN ÚTBORGUN!
Lán í allt að 4 ár.
Mjög mikið úrval góðra notaðra bíla á
STÓRLÆKKUÐU verði og hreint frábærum kjörum.
Láttu ekki þetta tækifæri þér úr greipum ganga
því þetta verður ekki endurtekið á næstunni.
Euro og VISA greiðslukjör
E
VISA
LA
Sævarhöfða 2 S: 525 8020 í húsi Ingvars Helgasonar
Bifreiðaverkst. Sigurðar Vald. Akureyri • Lykill Reyðarfirði