Alþýðublaðið - 11.07.1996, Síða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ1996
d r a u m a
■ Hefur þig dreymt einhvern sem heitir Álfgeir? Þá boðar það léttúð.
Arnór er hinsvegar fyrir veikindum en Ámundi boðar ánægjulega daga.
Allt þetta og meira til kemurfram í nýrri bók, Hvern dreymdiþig?
sem út kom hjá Vöku-Helgafelli á dögunum
„Sé Jón fullur í
d ra u m n u rrhkemu r
vitlaust veðú$%$€ |
Símon Jón Jóhannsson
annaðist útgáfuna en í rit-
inu, sem kostar aðeins
495 krónur, eru skýringar
á yfir 300 mannanöfnum.
í fróðlegum formála segir
höfundur að taka beri
skýringunum með
ákveðnum fyrirvara, enda
séu þær ekki byggðar á
öðru en alþýðutrú
manna, hér á landi sem
erlendis, sem þróast hef-
ur í tímans rás. En íslend-
ingar hafa líklega löngum
haft meiri áhuga á
draumum en aðrar þjóðir,
enda til skamms tíma haft
ríkari ástæðu til að láta
sig dreyma. Vaka-Helga-
fell veitti Alþýðublaðinu
leyfi til að glugga í bókina,
og lesendur geta borið
hana saman við drauma
nýliðinnar nætur.
Alexander
Fyrirboði mikillar gæfu.
Andrés
Fyrirboði óveðurs.
Arnaldur
Olánsmerki.
Arnór
Fyrirboði veikinda.
Álfgeir
Tákn léttúðar.
Ámundi
Fyrirboði ánægjulegra daga.
Ásta
Fyrirboði óhappa.
Bergsveinn
Fyrirboði jarðskjálfta
Bessi
Gott nafn fyrir sjúka. Þeim mun
batna. Þeir sem eru í fjárhagsvand-
ræðum eiga líka bjartari framtíð
fyrir höndum.
Bolli
Karlmannsnafnið Bolli er óláns-
nafn. Getur boðað sjóslys.
Dagur
Táknar farsæld í starfi og daglegu
lífi. Því er líka haldið fram að það
fari eftir því hvemig hann er í
draumnum. Sé hann glaður boði
það góða daga en sé hann á ein-
hvem hátt dapur viti það á erfiða
daga.
Davíð
Tákn sælu og gleði.
Egill
Fyrirboði leiðinlegra atburða.
Fjölnir
Boðar dreymandanum óvináttu
vegna öfundar.
Geirfinnur
Fyrirboði ósættis.
Gunnlaugur
Eitthvað óskemmtilegt hendir
dreymandann.
Halldór Laxness
Bóndi einn hélt því fram að Hall-
dór Laxness væri honum ævinlega
fyrir illu í draumi þótt hann dáði
skáldið mikið að öðm leyti. í slátt-
arbyijun árið 1950 dreymdi hann
Halldór og kvaðst Halldór ætla að
reika um hlíðamar það sumar.
Sumarið varð mesta óþurrkasumar
sem bóndinn hafði lifað.
Illugi
Fyrirboði prestsdauða.
ísak
Þetta nafn er oftast viðvömn til
dreymandans um að hlusta á rök
annarra og vera ekki um of ein-
strengingslegur.
Jens
Dreymandinn á góða daga í vænd-
um.
Þetta nafn veit yfirleitt á gott en
einnig er til sú trú að það viti á
hvassviðri, og þá einna helst
sunnanátt, og enn aðrir segja það
boða dánarfregn. Sé Jón fullur í
draumnum kemur vitlaust veður.
Júlíus
Aætlanir munu standast.
Kristján
Allt mun horfa til betri vegar.
Lára
Fyrirboði sjógangs.
Linda
Fyrirboði skemmtilegra daga.
María mey
Heyri menn Maríu mey tala í
draumi er það fyrirboði huggunar,
bata og gæfu. Séu þeir að tala við
hana boðar það gleði.
Napóleon
Dreymi menn Napóleon verða
þeir óþolinmóðir og óánægðir um
tíma.
Njáll
Fyrirboði svika.
Ólafur
Naíhið Ólafur er af sumum talið
boða einhvem skyndilegan gróða,
gæti verið arfur, en aðrir halda því
ffarn að það sé fyrir illu. Sé Ólafur
þessi læknir er það sérstaklega
slæmt.
Rannveig
Þetta nafn er dreymandanum og
tjölskyldu hans fyrir góðu. Fari
Rannveig frá dreymandanum eða
sé honum andsnúin getur fjöl-
skyldulífið orðið erfitt.
Sara
Boðar dreymandanum happ.
Sigurlína
Fyrirboði unaðsstundar
með ástvini.
Súsanna
Dreymandinn getur búið
við einhveiju skemmtilegu
dreymi hann Súsönnu.
Tómas
Fyrirboði tjóns eða taps.
Úlfar
Talið slæmt nafh í draumi
og boða illt.
Valgerður
Dreymandanum verður sýnd
góðvild og vinátta. Nafnið getur
einnig verið feigðarboði.
Vilmundur
Það þykir gott að dreyma
Vilmund og nafnið er tákn um
ástríki og hlýhug.
Porgeir
Um þetta nafn em afar skiptar
skoðanir. Sumir telja það merkja
sigur í einhveijú máh en aðrir
halda því fram að það sé fyrir afar
illu. Það gæti þó farið eftir öðmm
táknum draumsins.
Önundur
Fyrirboði ósættis
og heimiliseija.
Össur
Fyrirboði erfiðleika.