Alþýðublaðið - 31.07.1996, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n
Alþýðuflokkurirm og Hafnarfjörður
Hvort breyting verður á samsetningu meiri-
hlutans, það er hvort nýir samstarfsaðilar
komi til liðs við Alþýðuflokkinn mun koma á
daginn. Það munu jafnaðarmenn í Hafnarfirði
ræða yfirvegað og öfgalaust á næstu dögum
og ná farsælli niðurstöðu.
Ahugi fjplmiðla á íslenskum
stjórnmálum er yfirleitt bundinn
við landsmálin. Steíhumið og ákvarð-
anir ríkisstjómarinnar og umræður á
Alþingi fá öllujöfnu drjúga umijöllun
í fjölmiðlum. A hinn bóginn er stund-
um vægi fjölmiðlaumræðunnar í engu
samræmi við mikilvægi þeirra mála
sem á dagskrá eru, heldur virðast
sjónarmiðin um deilur, hávaða og
stóryrði ráða ferðinni.
Háborðið |
En því miður er hin almenna nauð-
synlega upplýsandi umfjöllun fjöl-
miðla um sveitarstjómarmál æði oft í
skötulíki. Sveitarstjómarstigið í land-
inu hefur hægt og bítandi verið að
öðlast. þann sess í stjómsýslunni sem
eðlilegt er. Smám saman er stjórn
mála að færast frá miðstýrðu ríkis-
valdi út í hérað. Mikilvægt skref í
þeim efhum er að bresta á þessa dag-
ana; tilfærsla grannskólans frá ríki til
bæja. Meira er í farvatni. Svokölluð
reynslusveitarfélög era að fá ný verk-
efni frá ríkinu og mín skoðun er sú að
þeir málaflokkar sem þar eru nefndir
til sögu, svo sem eins og heilsugæslan,
málefni fatlaðra, aldraðra, atvinnu-
miðlun og atvinnuleysisskrifstofumar
munu fara með formlegum hætti yfir
til sveitarfélaganna áður en langt um
líður. Þetta er hárrétt þróun sem mun
ekki verða stöðvuð. Af þessum sökum
er ekki síst er mikilvægt að fjölmiðlai'
í landinu átti sig á því að málum fólks-
ins er að stórum hluta til stjórnað
heima í héraði þannig að ákvarðanir
sveitarstjómar hafa oft meiri áhrif á
daglegt líf fólksins í landinu en það
sem gerist við ríkisstjómarborðið.
að þótti skondið á dög-
unum þegar Eyjólfur
Sveinsson og aðrir forsp-
rakkar Frjálsrar fjölmiðlunar
héldu fund með starfsmönn-
um Dags á Akureyri. Þeir
voru að greina frá samein-
ingunni við Tímann og
sögðu að lögð hefði verið rík
áhersla á að segja engum
frá fyrirætlunum fyrr en
starfsmönnum sjálfum væri
greintfrá þeim. Þá hringdi
síminn: „Þetta er Sigrún
Stefánsdóttir hjá Sjónvarp-
inu. Hvérnig gengur samein-
ingih?";Þar þótti sannast á
fréttanefiSigrúnar, að margt
ef kháttþótt það sé smátt...
/
Oútkomið Séð og heyrt
verður óvenju ástvænt
og er þá mikið sagt. Tveimur
giftingum verða gerð skil en
þeir Richard Scobie popp-
ari og Hinrik Ólafsson leik-
ari gengu í hnapphelduna á
dögunum - hvor með sinni
konu, vel að merkja. Þá verð-
ur sagt frá hugljúfri ástar-
sögu Ingibjargar Gissurar-
Hressilegir vindar
Hins vegar láta fjölmiðlar ekki á sér
standa þegar upp koma álitamál í ein-
stökum bæjarfélögum. Fyrir ókunna
væri til dæmis unnt að álykta sem svo,
væri eingöngu Utið til fjölmiðlafregna
síðustu misseri, að í mínum heimabæ,
Hafnarfirði, hefðu mál verið í hers
höndum allt þetta kjörtímabil, umliðin
tvö ár. Fólk sem eingöngu fengi sínar
fréttir úr dagblöðum og ljósvakamiðl-
um heldur vafalaust að allt logi þar í
illdeilum og slagsmálum og þjónusta
við bæjarbúa væri í rúst. Stjómleysið
væri með öðram orðum aigert í Hafn-
arfirðinum. Þetta er auðvitað fjarri öll-
um veraleika. Það hafa ævinlega blás-
ið hressilegir vindar í hafnfirskri bæj-
arpólitík og munu vafalaust gera það
áfram. Meginatriðið er hins vegar það
að Hafnarfjörður er eitt öflugasta
sveitarfélag í landinu. Þjónusta þar er
með því besta sem þekldst við bæjar-
búa á velflestum sviðum, gífurleg
uppbygging og fólksfjölgun hefur orð-
ið í bænum á síðustu áram, einkanlega
eftir að Alþýðuflokkurinn tók þar við
stjórnartaumunum árið 1986 og
stjómaði einn eða í ágætu samstarfi
við Alþýðubandalagið um átta ára
skeið. Bæjarbúar hafa notið þeirrar
uppbyggingar og gera það áfram. Það”
er gott að búa í Hafnarfirði.
I umræðum um hafnfirska bæjar-
pólitík er mikilvægt að sjá skóginn
fyrir trjánum, missa ekki sjónar af að-
alatriðum. Þar hafa sannarlega verið
uppákomur frá síðustu kosningum,
1994. Þær hafa einkanlega verið í röð-
um Sjálfstæðisflokksins, flokkurinn í
raun þverklofinn. Samstarf íhalds og
komma, sem til var stofnað árið 1994,
gekk ævinlega brösótt og endaði eftir
ár. Þá var ljóst að starfhæfur meirihluti
yrði ekki myndaður án atbeina Al-
þýðuflokksins. Það gekk eftir og hefur
flokkurinn starfað með tveimur sjálf-
stæðismönnum við stjórn bæjarins.
Nú hefur annar bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins verið dæmdur fyrir
skilasvik og fjárdrátt vegna fyrirtækis
sem hann veitti forstöðu. Það hefur
eðlilega kallað á umræður í Alþýðu-
flokknum og bænum öllum um stöðu
þessa einstaklings. Þeirri umræðu er
ekki lokið.
Alþýðuflokkurinn áfram
Eitt verður að undirstrika rækilega í
þessu samhengi. Alþýðuflokkurinn
hefur ekki verið fyrir dómi og enginn
trúnaðarmaður hans. Það er bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins sem á hér
hlut að máli og verður eftirtektarvert
hvort Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnar-
firði mun grípa til einhverra ráðstaf-
ana vegna þessa. Alþýðuflokkurinn í
Hafnarfirði, sem stærsti flokkurinn í
Hafnarfirði, mun áffarn tryggja það að
bænum verði stjórnað með festu og
öryggi að leiðarljósi. Það er aðalatrið-
ið.
Hvort breyting verður á samsetn-
ingu meirihlutans, það er hvort nýir
samstarfsaðilar komi til liðs við Al-
þýðuflokkinn mun koma á daginn.
Það munu jafnaðarmenn í Hafharfirði
ræða yfirvegað og öfgalaust á næstu
dögum og ná farsælli niðurstöðu. Það
sem máh skiptir er að Alþýðuflokkur-
inn mun áfram halda um stjórnar-
taumana í kratabænum Hafnarfirði. ■
Höfundur er þingnnaður og
varaformaður Alþýðuflokksins.
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson
dótturen hún náði aftur
saman við Svíann sinn hann
Per Eric Petterson eftir 20
ára aðskilnað og hjónaband
hennar í millitíðinni. Þau
giftu sig á kosningadaginn
en ástarsaga þeirra erfræg í
Svíþjóð þar sem frá henni
var greint og þau hrepptu að
launum skemmtiferðarsigl-
ingu...
Frásögn Alþýðublaðsins af
grein í norska Dagbladet
um Ólaf Ragnar Grímsson
hefur vakið mikla athygli.
Þar er sagt að virðu
legur verðandi for-
seti vor sé valda-
gráðugur besser-
visser, sjálfum-
glaður hrokagikk-
ursem hafi dreift
glansmyndum af
sjálfum sér og fjöl
skyldunni í kosninga-
baráttunni: Þá hlógu
margir íslendingar og
hengdu myndina upp á rön-
gunni. Höfundur greinarinn-
ar erTone Myklebost. Hún
er ekki ókunn Islandi og
hafði hér búsetu árum sam-
an, enda dóttirfyrrverandi
sendiherra Norðmanna hér-
lendis. Tone var gift Ingólfi
Margeirssyni og er vel
kynnt meðal bítlakynslóðar-
innar íslensku...
r
Utsendingar Sjónvarpsins
frá Ólympíuleikunum
hafa til þessa þótt allvel
heppnaðar. Koma þareink-
um við sögu tveir menn:
Jónas Tryggvason fim-
leikasérfræðingur og Guð-
mundur Harðarson
sundþjálfari sem
hafa lýst hvor sinni
íþrótt af mikiili
þekkingu. Nú tek-
ur hins vegar
verra við. Sjón-
varpsáhorfendur
rífa hár sitt fyrir
framan skjáinn.
Ástæðan er sú að nú hafa
afturfengið yfirhöndina hinir
gamalþreyttu íþróttafréttarit-
arar Sjónvarpsins...
_
Risastökk í þróunarsögunni.
f i mm á förnum vegi
Hverjir vilt þú að myndi meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar?
Egill Örlygsson handlang-
ari: Ég vil að Jói Begg, hálf-
kratar og alvörukratar myndi
bæjarstjóm.
Smári Johnson samloku-
tæknir: Ég vil að Alþýðu-
bandalag og Sjálfstæðisflokk-
ur, án Jóhanns Bergþórssonar
og Ellerts Borgars, myndi
meirihluta.
María Ólafsdóttir verslun-
armaður: Ég er óánægð með
þetta eins og það er núna en
átta mig ekki á því hver er
besti kosturinn í stöðunni.
Anna Halla Hallsdóttir
verslunarmaður: Alþýðu-
flokkur og Sjálfstæðisflokkur.
Elísabet Jónasdóttir
nemi: Ég vil Jóa Begg og fé-
laga hans út. Alþýðuflokkur-
inn á að mynda stjórn en ég
veit ekki með hverjum.
m e n n
Óneitanlega læðist að manni
grunur um að fjarvera biskups-
ins yfir íslandi á afhelgunar- og
vígsludegi í Reykholti hafi eitt-
hvað að gera með óværuna sem
hrjáir þjóðkristnina.
Oddur Ólafsson í Tímanum í gær.
Lyndon B. Johnson:
Hleraði rúmið í hvíta húsinu.
Fyrirsögn í DV í gær.
Kirkjan hefur alla tíð verið
fóstra tónlistarinnar, en það má
aldrei koma upp sú staða að
tónlistin í sjálfu sér fari að ryðja
öðrum þáttum til hliðar.
Síra GeirWaage, liösforingi
í Svartstakkasveitunum.
Þessi köst voru svo stutt að
það er eiginlega hlægilegt.
Vésteinn Hafsteinsson, eftir að hafa lokið
keppni í kringlukasti á Ólympíuleikunum.
Einhverra hluta vegna
stífnaði ég upp sem gerir það að
verkum að hreyfingarnar verða
hægari. Ætli viljinn hafi ekki
hreinlega verið of mikill í dag;
ég hafi reynt of mikið en það
bara virkað í mínus!
Gullkorn úr munni Vésteins kringlukastara.
Hér verður ekki kunderað
frekar um sýninguna, svo
notað sé orðalag listamannsins,
en áhugafólki um beitta
umræðu um listina bent á
að líta á hin nýju Grims-
ævintýri hjá Sævari Karli
á næstu dögum.
Eiríkur Þorláksson myndlistargagnrýnandi
Moggans er vitaskuld stórhrifinn af sýningu
Hallgríms Helgasonar í Gallerí Sævars
Karls. Skyldumæting.
Fólk vill kóng og fékk hann.
Lesendabréf Ingólfs Sigurðssonar í DV -
auðvitað um herra Ólaf Ragnar.
Eftirsóknin eftir fjárhags-
legum ávinningi er mikilvæg
en hún má aldrei verða svo
blind að hún eyðileggi cinstæðar
náttúruperlur Islands. Það á við
um Kermóafoss engu síður en
fossana miklu á hálendinu.
Elías Snæland Jónsson í leiðara DV í gær.
fréttaskot úr fortíð
Steinn
Emilsson
unglingspiltur, sem dvalið hefir eitt-
hvað í Noregi, hafði auglýst fyrirlest-
ur um bolsivikastefnuna, í Nýja Bíó í
gær, og komu margir til þess að
hlusta á. En um kenningar „bolse-
vika“ talaði Steinn Emilsson ekki eitt
orð, heldur las hann upp klukkutíma-
romsu um, að allir leiðandi.menn
„bolsevika" væra Gyðingar, og það
var nú sönnunin fyrir því að stefnan
væri óveijandi.
Alþýöublaðið,
mánudaginn 26. marz 1923.