Alþýðublaðið - 10.09.1996, Qupperneq 1
■ Halldór Blöndal sagði á fundi heilsugæslulækna fyrir helgi að vissulega kæmi
deilan heilbrigðismálaráðherra við
Halldór Blöndal ætti að hafa
áhyggjur af sínum málaflokki
- segir Siv Friðleifsdóttir þing-
maður Framsóknarflokks og
lýsir því yfir að kauphækkanir
til lækna heyri undir fjármála-
ráðherra.
„Það var auðvitað farið yfir þess-
ar ósmekklegu árásir Össurar
Skarphéðinssonar á Ingibjörgu
Pálmadóttur. Hann hefur ráðist
harkalega á hana vegna þess að hún
er í 10 daga fríi með fjölskyldu
sinni erlendis," segir Siv Friðleifs-
dóttir í samtali við Alþýðublaðið.
Þingflokkur Framsóknarflokksins
sat að löngum fundi í gær þar sem
ástandið í heilbrigðismálum var
rætt.
„Við teljum auðvitað mjög eðli-
legt að fólk fari í frí, bæði þing-
menn og ráðherrar, og okkur finn-
ast þetta mjög lúalegar árásir og
hálfkarlrembulegar. Skilaboðin eru
þau: Setjið þið fjölskyldumar neðst
á forgangslistann. Það eru ekki góð
skilaboð til ungs fólks sem vill vera
í stjórnmálum að það sé verið að
ráðast á fólk sem vill fara í 10 daga
frí með fjölskyldu sinni og börnum.
Síðan fórum við yfir stöðuna sem
er auðvitað mjög alvarleg og brýnt
að þessi mál fari að leysast. En við
■ Flokkstjórnarfundur Al-
þýðuflokksins um helg-
ina. Sameining þingflokk-
anna rædd
Frumrit
og Ijósrit
- segir Lúðvík Bergvinsson al-
þingismaður
„Umræðuefnin vom margvfsleg og
sameining þingflokksins við þingtlokk
Þjóðvaka bar á góma. Það var vissu-
lega einhugur þar að lútandi," segir
Lúðvík Bergvinsson þingmaður í sam-
tali við Alþýðublaðið um flokksstjóm-
arfund Alþýðuflokksins á laugardag-
inn. Lúðvík vill þó ekki gera of mikið
úr þeim tíðindum sem samstarfið er en
Jóhanna Sigurðardóttir sagði í samtali í
blaðinu á föstudaginn að hér væri um
merk tímamót að ræða. „I sjálfu sér er
spuming hvort menn eigi að vera að
agnúast útí þetta því að þama er náttúr-
lega bara um að ræða fmrnrit og ljósrit
og ekkert eðlilegra en að við störfum
saman,“ segir Lúðvík. „Það hefur
aldrei verið neinn raunverulegur
ágreiningur á milli þessara flokka og
ekki það stórmál sem sumir vilja vera
láta.“
Lúðvík segir viðbrögð alþýðubanda-
lagsmanna við sameiningu þingflokk-
anna hafi ekki hafa verið rædd á fund-
inum né að þetta framtak gæti orðið til
að hindra frekari sameiningarviðræður.
„Á hinn bóginn hafa sumir í Alþýðu-
bandalaginu tekið þessu óstinnt upp en
ég held að þeir sem hafa látið sem verst
séu þeir sem hafa raunvemlega lítinn
áhuga á frekari samvinnu. Þeir em lík-
lega að finna sér ástæðu. Ég get ekki
séð að sameining þingflokkanna eigi
að koma í veg fyrir ffekari sameiningu.
Kannski em menn ennfremur að gera
sér grein fyrir því að það er raunveru-
legur ágreiningur í stómm málum og
lengra í land en margir vilja vera láta,“
segir Lúðvík Bergvinsson.
erum hinsvegar alveg á því að það
þýði ekkert að semja um hvað sem
er við lækna. Það eru lausir kjara-
samningar um áramótin og þeir telj-
ast nú frekar til hálaunastétta,"
sagði Siv.
Alþýðublaðið hefur traustar
heimildir fyrir því að talsverð
óánægja sé innan þingflokksins
vegna þess að Ingibjörg hafi hlaup-
ið frá á viðkvæmum tímapunkti. I
skoðanakönnunum hefur Fram-
sóknarflokkurinn hefur verið að
tapa fylgi jafnt og þétt og er fylgis-
tapið ekki síst rakið til stöðunnar í
heilbrigðismálunum. Siv segist hafa
þurft að bregða sér frá þegar skoð-
anakannanir voru til umræðu á
fundinum, en tekur fram að það sé
ekki gagnrýnivert að heilbrigðisráð-
herra taki sér frí, en Ingibjörg er
stödd á Kýpur um þessar mundir.
Siv segir jafnframt að engar raddir
hafi komið fram á fundinum þess
efnis að frí Ingibjargar sé óeðlilegt
enda hafi þingflokkurinn lagt bless-
un sína yfir það fyrir nokkru. Al-
þýðublaðið hefur ennfremur heim-
ildir fyrir því að óánægja sé innan
Sjálfstæðisflokksins vegna þess að
vandamálum heilbrigðisráðuneytis-
ins sé varpað yfir á Friðrik Sophus-
son fjármálaráðherra.
„Það hefur engin óánægja heyrst
meðal Sjálfstæðismanna í þá veru
sem þú ert að gefa undir fótinn
með,“ segir Siv. „Hins vegar er það
alveg á hreinu, eins og allir vita
sem fylgjast með þessum málum,
að allir samningar um kauphækkan-
ir til heilsugæslulækna eru á for-
ræði fjármálaráðherra. Það er ekk-
ert flóknara en það.“
Á fundi sem heilsugæslulæknar
héldu á Hrafnagili í Eyjafirði
fimmtudaginn 29. ágúst í tengslum
við sveitastjórnarmál vísaði aðstoð-
arlandlæknir frá sér ábyrgð á deil-
unni en Halldór Blöndal ráðherra
Sjálfstæðismanna, sem einnig sat
fundinn, sagði að vissulega kæmi
þessi deila heilbrigðisráðherra við
og var á honum að skilja að Fram-
sókn vildi varpa ábyrgð alfarið á
Sjálfstæðisflokkinn.
„Ég held að Halldór Blöndal ætti
bara að hafa áhyggjur af sínum
málaflokki. Þetta er líka bara rangt.
Ingibjörg er búin að vera með heil-
mikla stefnumótun í ráðuneytinu og
gengur bara ágætlega," segir Siv og
vísar því á bug að um ýfingar sé að
ræða og telur þær eiga heima í Öss-
uri Skarphéðinssyni og engum öðr-
um.
„Þetta er alrang og algjört bull.
Þetta er bara einhver lenska og það
er afar furðulegt að einn þingmað-
ur, sem líka hefur verið ráðherra,
leggist í þann pytt að ráðast að ráð-
herra sem fer í sjálfsagt frí. Það er
verið að ýta undir einhverja fyrir-
litningu á þingmönnum og ráðherr-
um og ég harma það mjög að Össur
skuli skjóta svona harkalega á heil-
brigðisráðherra. Þetta ber vott um
karlrembu. Mann langar að spyrja
Össur hvort hann hafi ekkert farið í
frí með sinni fjölskyldu? Hann
sagði að þegar hann var ráðherra
hafi hann ekki farið í frí. Maður
spyr: Hvernig var þá með hans fjöl-
skyldumál?" spyr Siv Friðleifsdótt-
ir.
Flokkstjórnarfundur Alþýðuflokksins var haldinn á laugardaginn og kom
fram í máli þeirra sem tjáðu sig eindreginn vilji fyrir því að Jón Baldvin
Hannibalsson héldi áfram sem formaður flokksins.
■ Pólitískir riddar-
ar á Vestfjörðum
að sameinast?
Alveg nýtt
fyrir mer
- segir Kristinn H. Gunnars-
son þingmaður Alþýðubanda-
lagsins um bolialeggingar
málgagns Þjóðvaka.
I síðasta Þjóðvakablaði eru bolla-
leggingar um pólitíska framtíð Krist-
ins H. Gunnarssonar þingmanns Al-
þýðubandalags eða eins og það er
orðað: „Er ein kenningin sú að Krist-
inn daðri við það ásamt ýmsum stór-
huga pólitískum riddumm í héraði að
efna til sjálfstæðs Vestfjarðafram-
boðs að loknu þessu kjörtímabili.“
Kristinn kom af Ijöllum þegar Al-
þýðublaðið bar þetta undir hann:
„Nú, þáð er ekkert annað. Þetta er
skemmtileg saga og þeir hafa gaman
að því að tala um mig í Þjóðvaka-
blaðinu. Ég spurði þá, einhvemtíma í
viðtali sem þeir áttu við mig, hvar
■ Dularfulla Morgun-
blaðsmálið
Sverrir
kærir rit-
stjóra
Morgun-
blaðsins
- fyrir Siðanefnd Blaða-
mannafélagsins
„Ég ætla að kæra ritstjóra Morgun-
blaðsins fyrir Siðanefndinni," segir
Sverrir Ólafsson listamaður og
stjómarmaður í Alþýðuflokksfélagi
Hafnarfjarðar í samtali við Alþýðu-
blaðið. Um er að ræða það sem kall-
að hefur verið „Dularfulla Morgun-
blaðsmálið" en athugasemd frá Bimi
V. Ólasyni birtist í Morgunblaðinu
fyrir skömmu þess eínis að grein sem
hann er skrifaður fyrir væri hreint
ekki eftir hann heldur Sverri Ólafs-
son. í greininni var ráðist harkalega á
" meirihlutasamstarf Alþýðuflokksins
og þeirra Ellerts Borgars Þorvalds-
sonar og Jóhanns Gunnars Bergþórs-
sonar. I athugasemd ritstjóra Morg-
unblaðsins kemur fram að málið sé
dæmalaust og þeir fordæma vinnu-
brögð þeirra Bjöms og Sverris.
,J2ins og ég hef sagt áður er grein-
in mér alls óviðkomandi," segir
Sverrir. „Ég lít þetta mjög alvarleg-
um augum en ritstjórar Morgunblaðs-
ins tóku klára afstöðu á síðum blaðs-
ins. Ég fór þess á leit við þá að þeir
birtu afsökunarbeðni en ekkert bólar
á slíku. Þolinmæði mín er brostin og
ég mun kæra þá Styrmi Gunnarsson
og Matthías Johannessen fyrir Siða-
nefnd blaðamanna."
Enfremur sagði Sverrir að hann
ætlaði að kæra Sæmund Stefánsson
ritstjóra Fjarðarpóstsins vegna
ósæmilegra skrifa tengd máli þessu.
Þjóðvaki yrði í haust? Þá í merking-
unni að hann yrði hugsanlega ekki til
sem þingflokkur. Það skaðar ekki að
rifja upp að ég reyndist sannspárri en
þeir þegar þeir sögðu í grein að ég
væri að skipta um flokk. Én þeir hafa
gaman að því að búa til fléttur og
þessi hugmynd er stórskemmtileg: að
pólitískir riddarar í héraði sameinist!
En þetta er alveg nýtt fyrir mér,“
sagði Kristinn H. Gunnarsson.
Rúni Júll fékk rúma milljón á styrktartónleikum um helgina
Eg hef kannski mánaðarlaun Steingríms
- segir Rúnar Júlíusson.
„Það er sagt að það hafi verið tvö
þúsund manns í húsinu en ég er ekki
búinn að kíkja á þetta. Það var gríðar-
legt stuð enda mikið af stuðfólki
þama. Lögmál kvöldsins: Með stuð í
hjarta gekk eftir,“ segir Rúnar Júlíus-
son í samtali við Alþýðublaðið en tón-
listarmenn héldu styrktartónleika fyrir
Rúnar á Hótel Islandi á laugardags-
kvöldið. Að sögn Rúnars eiga þeir
Gunnar Þórðarson, Óttar Felix Hauks-
son og Ólafur Laufdal heiðurinn að
hugmyndinni en svo bættust fleiri í
hópinn: Magnús Kjartansson, Björg-
vin Halldórsson, Bubbi Morthens og
fleiri.
„Ég komst í þrjár hljómsveitir: Trú-
brot, Hljóma og Ðe Lónlí blú bojs,“
segir Rúnar. Aðspurður segir hann að
þetta reddi ljármálunum um einhvem
tíma. „En það er ekkert varanlegt í því
- maður reddar því ekkert í eitt skipti
fyrir öll við að lenda í einhverju voða
feitu. En þetta hjálpar mér gífurlega
mikið af því að ég er búinn að vera
launalaus í þrjá fjóra mánuði. Það
hjálpar mér í gegnum það. Maður hef-
ur rekið sig á lánum,“ segir Rúnar.
Hann bendir á það að því sé ólíku
saman að jafna að vera íslenskur
poppari og útlendur. „Það má ekki
mgla því saman. Það em aðeins aðrir
launafíokkar héma í smæðinni eins og
allir þekkja sem eru með hausinn í
bleyti. Ég er rosalega þakklátur."
Rúnar segir að hann fái um sjö-
hundmð krónur af hveijum aðgöngu-
miða en miðinn var seldur á þúsund
krónur. Miðað við 2 þúsund selda
miða fær Rúnar 1,4 milljón í sinn hlut.
„Þeir sem gefa vinnu sína em hljóð-
færaleikararnir. Svo em allir skattar
borgaðir og annar kostnaður. Ríkið
gefur ekkert eftir þó að fólk sé á ein-
hverju styrkjaplani. Ég hef kannski
mánaðarlaun Steingríms útúr þessu og
Sverris kannski. En þeir em með þetta
Rúnar: „Þetta fleytir mér áfram í
nokkra mánuði og ég kann öllum
miklar þakkir."
á hverjum mánuði en þetta em jól fyr-
ir mig. Já, þeir em báðir Hemianns-
synir: SS-sveitin eða Sérlaunasveitin.
Þeir ættu að stofna dúett. En þetta
fleytir mér áfram í nokkra mánuði og
ég kann öllum miklar þakkir," segir
Rúnar.
Yfirlýsing Rúnars þess efnis að
hann myndi flytja úr Keflavík ef nafn-
ið breyttist í Reykjanesbæ vakti mikla
athygli á sínum tíma. Hann setti húsið
sitt á sölu og blaðamaður Alþýðu-
blaðsins spurði Rúnar hvort hann setti
ekki alltof mikið á það? „Það getur vel
verið. Ég hafði aldrei hugsað mér að
flytja fyrr en þetta nafnaklúður kom
upp. Ég fylgi þvf ekkert svakalega fast
eftir að selja húsið. Ég setti það bara á
sölu í þessu andófi. Ég hef bara fengið
tilboð um makaskipti á Hrísey, Gríms-
ey eða Kópaskeri og íjarlægum stöð-
um. Ég vil helst ekki fara úr öskunni í
eldinn," segir Rúnar og vill láta taka
það sérstaklega fram að hann eigi
heima í Keflavík.