Alþýðublaðið - 10.09.1996, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996
s k o ð a n i r
umnLUD
21173. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Fréttastjóri Jakob Bjarnar Grétarsson
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín ehf.
Prentun ísafoldarprentsmiöjan hf.
Ritstjórn, augiýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Tölvupóstur alprent@itn.is
Áskriftarverö kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Kóka kóla pólitík
Alþýðubandalagsins
Það er raunalegt að fylgjast með viðbrögðum sumra alþýðu-
bandalagsmanna við sameiningu þingflokka Alþýðuflokks og
Þjóðvaka, enda virðast mennimir illa þjakaðir af geðvonsku og
bræði. Málgagn Alþýðubandalagsins, sem í sumar auglýsti sér-
staklega eftir sameiningu Þjóðvaka og Alþýðuflokksins, fer ham-
förum í forystugrein, sem reyndar er merkilegust fyrir þær sakir
að jafnaðarstefnunni er afneitað á mjög afdráttarlausan hátt. Mál-
gagn Alþýðubandalagsins segir: ,kinsog það sé ekki nóg að nýi
þingflokkurinn er skipulagslegur bastarður heldur velur hann sér
nafn sem er söguleg tímaskekkja... Aðeins pólitísk viðrini láta
sér til hugar koma að stofna núna jafnaðarmannaflokk að klass-
ískri fyrirmynd. Hversvegna ættu kjósendur að veita 19. aldar
jafnaðarmannaflokki brautargengi inn í 21. öldina?“
Þetta er merkileg yfirlýsing fyrir ýmissa hluta sakir, en fyrst og
fremst er þó leiðarahöfundur Alþýðubandalagsins að snoppunga
þá félaga sína sem síðustu ár hafa klifað á því að Alþýðubanda-
lagið sé jafnaðarmannaflokkur og þeir sjálfir jafnaðarmenn. Hvað
ætli félaga Svavari finnist, sem skrifaði heila bók til að sannfæra
fólk um að hann sé jafnaðarmaður, um að vera kallaður „pólitísk
viðrini“? Eða Margréti Frímannsdóttur sem seint og snemma hef-
ur skilgreint sjálfa sig sem jafnaðarmann? Er hún þá líka „pólitísk
viðrini"? Kannski veit leiðarahöfundur málgagns Alþýðubanda-
lagsins ekki af umræðum sem fram fóru innan flokksins fyrir ör-
fáum árum um nauðsyn þess að breyta nafni flokksins - í „Jafn-
aðarmannaflokkur íslands“! Yfirlýsing leiðarahöfundar er því
blaut tuska framan í þá fjölmörgu alþýðubandalagsmenn sem em
réttir og sléttir jafnaðarmenn. Þeir mega nú sitja undir því að vera
kallaðir viðrini af flokksmálgagninu.
En ekki er nóg með að Alþýðubandalagið hafi með formlegum
hætti gefið út dánarvottorð jafnaðarstefnunnar. Forystumenn
flokksins upplýsa líka hveijar em hinar nýju fyrirmyndir þeirra.
Steingrímur J. Sigfússon, einn helsti hugmyndafræðingur Al-
þýðubandalagsins, gekk svo langt að segja að ráðning Einars
Karls Haraldssonar í sérstök verkefni á vegum þingflokks jafnað-
armanna jafngilti því að forstjóri Kóka kóla færði sig yfír til Pep-
sí - og tæki töfraformúluna með sér! Það er að sönnu fróðlegt að
fá slíka innsýn í hugsunarhátt forystumanna Alþýðubandalagsins:
þeir em bara í pólitískum bisness og fínnst þessvegna ekkert at-
hugavert að líkja flokki sínum við hvem annan auðhring. Það er
gott og blessað - en Alþýðubandalagið lumar því miður ekki á
neinni pólitískri töífaformúlu. Þeir sem leita til Alþýðubandalags-
ins eftir nýjum hugmyndum í pólitík fara í geitarhús að leita ullar.
Eina markverða innlegg Alþýðubandalagsins í stjómmálaum-
ræðu síðustu ára er útflutningsleiðin; og henni var reyndar hafnað
af flestum núverandi forystumönnum allaballa.
Hagsjóður Hafnfirðinga
Vegna frétta Helgarpóstsins, um
gjaldþrot Altaks sem undirrit-
aður ásamt Andrési Asmundssyni
veitti forstöðu og líka vegna aumk-
unarverðra rangfærslna og tilrauna
blaðamanns Helgarpóstsins til að
bera saman gjaldþrot fyrirtækja Jó-
hanns G. Bergþórssonar og fátækra
alþýðusona má segja að sé álíka
gáfulegur samanburður og bera
saman, íbúafjölda Kína og Kol-
beinseyjar.
Það heyrir til undantekninga, að
finna þá fjölskyldu á Islandi, sem
ekki á við fjárhagserfiðleika að
stríða. Gjaldþrot einstaklinga og
lítilla fyrirtækja er því miður orðið
daglegt brauð og þykir ekki lengur
tíðindum sæta, nema fyrir þær sak-
ir einar, að vera skýr vitnisburður
um bágt ástand þjóðarinnar undir
Pallborð I
Magnús
Hafsteinsson
skrifar
járnkló íhaldsaflanna, kyrkislöngu
íslensks samfélags.
Þessi hagsmunaöfl hafa einmitt
reynt að nota umrætt gjaldþrot Al-
taks sem svipu á undirritaðan á
umliðnum vikum til að þegja og
hylma yfir lausagöngu þessara afla
í sjóði okkar Hafnfirðinga eins og
umræddur fréttaflutningur ber með
sér.
Einnig hefur undirritaður og fjöl-
skylda hans verið beitt hótunum
um birtingu svipaðrar fréttar af
öðrum fjölmiðli um allnokkurt
skeið sem er skýrt brot á 4. grein
siðanefndar Blaðamannafélags fs-
lands þar sem meðal annars kemur
fram að óheimilt.sé að, múta blaða-
manni, eða hóta mönnum birtingu
frétta.
Þá sáu nokkrir fjölmiðlar ástæðu
til að hafa samband við undirritað-
an til að láta hann vita að verið
væri að reyna að fá þá til að birta
umrædda frétt, sem þeir töldu vera
langt fyrir neðan öll velsæmis-
mörk.
Þá vil ég og lýsa yfir furðu minni
á vinnubrögðum Helgarpóstsins.
En áður en þeir birtu þessa grein,
sem er öll full af rangfærslum, við-
höfðu þeir ekki þá sjálfsögðu kurt-
eisi að bera málið undir mig per-
sónulega. Undirritaður hyggst ekki
elta ólar við Helgarpóstinn en
vekja athygli lesenda á því að
myndin af mér á forsíðu blaðsins er
fengin að láni frá mági Jóhanns G.
Bergþórssonar, Sæmundar Stefáns-
sonar ritstjóra Fjarðarpóstsins sem
ku vera fréttablað okkar Hafnfirð-
inga.
Þess má geta að eigandi myndar-
innar var ekki beðinn um leyfi til
að fá þessa mynd lánaða til birting-
ar og hyggst hann kæra málið til
höfundaréttarfélagsins Myndstefs.
Þá má og benda á þá staðreynd að
Ellert Borgar Þorvaldsson bæjar-
fulltrúi og samstarfsfélagi Jóhanns
Gunnars Bergþórssonar er fyrrum
eigandi Fjarðarpóstsins.
En ég vil taka það fram að það er
ekki bara ég einn sem orðið hef
fyrir árásum á undanförnum vik-
um, heldur hafa tugir alþýðuflokks-
félaga mátt sitja undir linnulausum
þvingunum og hótunum. Hér er um
pólitískar aftökur að ræða, mann-
orðsmorð, atvinnumissi, lögsókn,
fjölmiðlaofsóknir og fleira. Allt
þetta er vegna þeirra skoðana sem
viðkomandi aðhyllast. Meira að
segja hefur verið reynt að kaupa
fólk til að láta í ljósi aðrar skoðanir
og því miður hafa einhverjir Reyk-
ásar beygt sig undir slík gylliboð.
I þessu sambandi nægir að benda
á máltilbúnaðinn vegna undirritaðs
og máls Björns V. Ólasonar sem
var þvingaður niður á bæjarkontór
okkar Hafnfirðinga til að undirrita
yfirlýsingu í þeim eina tilgangi að
koma pólitísku höggi á Sverri Ól-
afsson. Einnig má benda á rætin
pólitísk skrif mágs Jóhanns G.
Bergþórssonar ritstjóra Fjarðar-
póstsins Sæmundar Stefánssonar í
garð einstakra stjórnarmanna Al-
þýðuflokksfélagsins og munu þau
skrif verða til meðferðar hjá siða-
nefnd Blaðamannafélagsins. Rétt
er að benda á, að í tíð kommúnista
austantjaldsríkja ríkti algjört bann
við skoðana-, mál- og ritfrelsi. Allt
þetta kom í ljós eftir fall kommún-
ismans. Spillingin hafði einmitt
þrifist í skjóli kúgunar og mann-
réttindabrota.
Athygli vekja miklar umræður
fjölmiðla um tap Hafnfirðinga
vegna Miðbæjarhússins þar sem
kaup Hafnarfjarðarbæjar á lóð að
Helluhrauni þar sem Jóhann labb-
aði með 7,5 milljónir út af bæjar-
kontórnum. Lóð sem hann átti
ekki, en seldi Hafnarfjarðarbæ.
Lóð þessi var í eigu íslandsbanka
og má leggja þetta að jöfnu við
viðskiptaafrek Einars Ben. þegar
hann seldi norðurljósin á sínum
tíma. Þá má nefna útrásarverkefnið
sem aldrei var framkvæmt og
hönnunarkostnaðinn vegna þeirra.
Önnur mál má nefna eins og Hyrn-
ingasteininn, Fórnarlambið og
gjaldþrot fjölda annarra fyrirtækja
og einstaklinga. Þá eru ótaldar
gjafir Sjálfstæðisflokksins til Jó-
hanns Gunnars Bergþórssonar, fyr-
ir hönd allra Hafnfirðinga, á togur-
um og fiskveiðikvóta uppá marga
milljarða sem meðal annars lagði
grunninn að stórveldi Hagvirkis og
Samherja á Akureyri á sínurn tíma.
Þá er og ótalin barátta Jóhanns
fyrir því að Hafnarfjarðarbær kaupi
fyrrum aðalstöðvar Hagvirkis að
Skútahrauni, illseljanlega eign og
sögunni fylgir að núverandi eig-
endur Skútahrauns muni umbuna
Jóhanni ríkulega, meðal annars
með niðurfellingu skulda á hann
persónulega, selji hann Skúta-
hraunið.
Þá má jafnframt benda á að sem
kjörinn fulltrúi tekur Jóhann út
fleiri hundruð þúsund úr bæjarsjóði
okkar Hafnfirðinga við hver mán-
aðamót, á sama tíma og hann er í
stórri skuld við sjóðinn.
Eitt af þeim málum, sem eru nú
til umfjöllunar hjá bæjarstjórn
Hafnarfjarðar er hin gamla stjórn-
Þá sáu nokkrir f jölmiðlar ástæðu til að hafa samband
við undirritaðan til að láta hann vita að verið væri að
reyna að fá þá til að birta umrædda frétt, sem þeir
töldu vera langt fyrir neðan öll velsæmismörk.
standa þó einhverjar eignir að baki
því tapi, á sama tíma og undarleg
þögn hefur ríkt um gjaldþrot fyrir-
tækja Jóhanns G. Bergþórssonar
sem valdið hefur okkur Hafnfirð-
ingum margfalt meira tjóni en tap
vegna miðbæjarframkvæmdanna.
Störf Jóhanns Gunnars Bergþórs-
sonar í Miðbæ Hafnarfjarðar er
skýrt brot á sveitastjórnarlögum.
Kjörnir fulltrúar geta ekki ráðið
sjálfa sig til starfa, né beitt áhrifum
sínum í þá veru innan sveitar-
stjóma.
Þá eru ótaldir reikningar verk-
fræðiþjónustu Jóhanns Gunnars
Bergþórssonar vegna ráðgjafar-
starfa við Miðbæ Hafnarfjarðar.
Hagtak, sem eru leifar aðstandenda
fyrirtækja Jóhanns Gunnars Berg-
þórssonar sem hafa farið á hausinn
þrisvar sinnum með ómældum
kostnaði fyrir Hafnfirðinga, hefur
meðal annars verið sett þar á stall
með virtum fyrirtækjum á borð við
ístak, J.V.J. og Sveinbirni Runólfs-
syni sem áratuga reynsla er komin
á í forvali hjá Hafnarfjarðarbæ. Þá
eru ónefndar aðrar leifar aðstand-
enda fyrirtækja Jóhanns svo sem
Hagvagnar sem liggja á spena
Hafnarfjarðarbæjar eins og alþjóð
veit. Þá hefur ekki verið spurt um
skipan austantjaldsríkjanna, sem
Ellert Borgar Þorvaldsson er sagð-
ur höfundur af en er að mestu sótt í
smiðju hugmyndafræðings fyrrum
Austur-Þýska alþýðulýðveldisins
Albrect Ulbrecht, eins og Björn V.
Ólason benti réttilega á í nýlegri
grein sinni. Gott dæmi um lausa-
göngu manna í sjóðum Hafnfirð-
inga er að nú nýverið var haldin
móttaka í listamiðstöðinni Straumi,
af Magnúsi Kjartanssyni formanni
menningarmálanefndar Hafnar-
fjarðar fyrir starfsmannafélög
Hrafnistu Hafnarfjarðar og Reykja-
víkur fyrir eitthvað á annað hundr-
að manns. Þar voru mættar tvær
rútur, sex þjónar og rausnarlegar
veitingar í boði sem væri að sjálf-
sögðu ekki í frásögu færandi nema
fyrir það eitt að kjörnir fulltrúar
Alþýðuflokksins og aðrir meðlimir
menningarmálanefndar höfðu ekki
hugmynd um þessa framtakssemi
Magnúsar Kjartanssonar. Þá vakna
eðlilega spurningar: Hver veitti
heimildina? Hver skrifaði uppá
reikningana? Og hver greiddi fyrir
þessa dýrindis menningarmessu?B
Höfundur er formaöur Alþýöuflokksfélags
Hafnarfjaröar.
t e m b e r
Fróðlegt verður að sjá hvemig Alþýðubandalagið þróar Kóka
kóla pólitík sína. En Alþýðubandalagsmenn ættu að geta sofið ró-
legir, því efamál er að nokkur reyni að laumast í „töfraformúlu“
þeirra. Einar Karl Haraldsson var fenginn til verka vegna eigin
verðleika og reynslu. Hróp sumra alþýðubandalagsmanna eru í
meira lagi annarleg með hliðsjón af því að honum var bolað úr
starfi framkvæmdastjóra Alþýðubandalagsins, þegar Margrét
keypti frið við Kóka kóla liðið í flokknum með því að snúast
gegn Einari Karli.
Einar Karl segir í viðtali við Dag-Tímann á laugardag að við-
brögð einstakra forystumanna Alþýðubandalagsins séu „pipa-
ijúnkuleg“ vegna þess að það er einsog „ekkert hafí sést af þessu
tagi í stjómmálum hingað til. Þetta em þá mikil siðferðiströll
þama í Alþýðubandalaginu ef þeir hafa ekkert séð af þessu áður.“
Vonandi komast „pipaijúnkumar“ yfír geðshræringuna, svo Al-
þýðubandalagið geti áfram framleitt sitt pólitíska Kóka kóla. ■
Atburðir dagsins
1894 Leigubílstjóri í Lundún-
um, George Smith, sektaður
fyrir að aka drukkinn, fyrstur
manna í heiminum. 1908
Fyrstu almennu leynilegu
kosningamar til Alþingis fóru
fram. 1908 Samþykkt í þjóðar-
atkvæðagreiðslu að banna inn-
flutning áfengis. 1911 Minnis-
varði um Jón Sigurðsson eftir
Einar Jónsson afhjúpaður við
stjórnarráðshúsið. 1942 Þýsk
sprengjuflugvél skaut á tvo bæi
á Breiðdalsvík og að fimm vél-
bátum úti fyrir Austurlandi.
Fólk sakaði ekki. 1945 Vidkun
Quisling forsætisráðherra Nor-
egs á stríðsárunum dæmdur úl
dauða fyrir samvinnu við nas-
ista. 1965 Yale-háskóli gefur út
„Vínlandskortið" sem á að
færa sönnur á Ameríkuferðir
norrænna víkinga. 1981 Meist-
araverk Picassos, Guernica,
flutt til Spánar eftir að hafa ver-
ið á safni í Bandaríkjunum í
fjörutíu ár.
Afmælisbörn dagsins
Giovanni Domenico Tiepolo
1727, ítalskur listmálari. Ro-
bert Wise 1914, bandarískur
kvikmyndaleikstjóri. Arnold
Palmer 1929, bandarískur
golfmeistari.
Annálsbrot dagsins
Kona fannst dauð bæja í mill-
um í Eyjafirði; var höfuð niður
í læk cður á, en handleggur
brotinn. Það illvirki var eignað
Magnúsi Benediktssyni.
Hestsannáll 1704.
Egg dagsins
Það liggur í eðli hins eigin-
gjama, að geta kveikt í húsi til
þess eins að steikja eggin sín.
Francis Bacon.
Málsháttur dagsins
Oft er deigt hjarta undir dýrri
brynju.
Girndarráð dagsins
Gimdarráð era algengari en áð-
ur, held ég. Þau byrja í bíó og
svo er keyrt út á Seltjamames:
bíó og bílar eiga sök á óham-
ingju alltof margra íslendinga.
Páll ísólfsson, 1893-1974, tón-
skáld.
Orð dagsins
Lífið manns er leiðindi,
lunti böl og andstreymi,
allra mesti óþarfi
sem ekki svarar kostnaði.
Þorleifur Kolbeinsson á Háeyri.
Skák dagsins
Skák dagsins var tefld í Sochi
árið 1981: Saunina hefur hvítt
og á leik gegn Chekova.
Hvemig færir hvítur sér í nýt
aðþrengda stöðu svarta kóngs-
ins?
Hvítur leikur og vinnur.
1. Rg5 Dg6 2. Dxh7+! Dxh7
3. Rxf7 Mát: svarti kóngurinn
er bókstafiega kæfður til bana.