Alþýðublaðið - 10.09.1996, Side 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996
3 ó i i t í k
V ÚTBOÐ
F.h. Borgarverkfræðingsins í Reykjavík og Vega-
máiastjóra, er óskað eftir tilboðum í gerð yirbygg-
ingar göngubrúar yfir Miklubraut í Reykjavík.
Helstu magntölur eru:
Stálsmíði: 50 tonn
Steypustyrktarjárn: 100 kg.
Mótafletir: 8,0 m2
Steinsteypa: 5,5 m3
Handrið utan brúar: 52 m.
Verkinu skal að fullu lokið 15. júní 1997.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri gegn kr. 10.000 skilatr.
Opnun tilboða: þriðjud. 15. október 1996 kl. 11:00 á
sama stað.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3- 101 Reykjavík
Sími 552 5800 Bréfsími 562 2616
1 ÚTB0Ð
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur, er óskað eftir tilboðum í
verkið „Mælaskipti". Verkið felst í því að skipta um
mæla í Reykjavík. Alls er um að ræða um 13.200 mæla.
Verkinu skal lokið fyrir 15. desember 1998.
Útboðið er opið fyrir alla pípulagningameistara, sem
löggildingu hafa í Reykjavík.
Útboðsgögn eru afhent á skrifst. vorri.
Opnun tilboða: þriðjud. 17. sept. n.k. kl. 14.00 á sama
stað.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3-101 Reykjavík
Sími 552 5800 Bréfsími 562 2616
Menntamálaráðuneytið
Laus staða deildar-
stjóra á fjármálasviði
Menntamálaráðuneytið auglýsir stöðu deildarstjóra fjárhags-
deildar á fjármálasviði ráðuneytisins lausa til umsóknar. Um-
sækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi, viðskiptamenntun og
nokkur þekking á skólamálum er æskileg.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil send-
ist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík,
fyrir 1. október nk.
Menntamálaráðuneytið, 4. september 1996
VINNUMÁLASKRIFSTOFA
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTISINS
(ATVINNU LEYSISTRYG GINGA-
SJÓÐUR OG ÁBYRGÐA-
SJÓÐUR LAUNA)
ER FLUTT í HAFNARHÚSIÐ V/TRYGGVAGÖTU Á 3.
HÆÐ. SKRIFSTOFAN VERÐUR OPNUÐ ÞANN 11. SEPT-
EMBER 1996.
NÝTT SÍMANÚMER VERÐUR 511 2500 OG NÝR BRÉFA-
SÍMI 511 2520.
VEGNA FLUTNINGSINS VERÐUR SKRIFSTOFAN LOK-
UÐ 9. OG 10. SEPTEMBER.
VINNUMÁLASKRIFSTOFA FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTISINS
Alþýðublaðið
Vertu með á nótunum fyrir
950 kall á mánuði
Sími 562 5566
MAIþýðublaðinu hefur borist yfirlýsing og grein frá Sigurði
Hjartarsyni og stjórn Tófuvinafélagsins
Dýraníðin
fyrirlitlegi
vesalinga
Tófan hafði verið að fílósófera um fegurð himins-
ins og hinstu rök tilverunnar á bak við hól þegar
Hræringsstaðahjónin birtust að óvörum... Ekki náði
bóndi að hreinsa allt grjót ofan af dýrinu og greip
hann því til eggjagrjóts og sargaði dýrið í sundur
neðan herðakambs.
- segir í yfirlýsingu Tófu-
vinafélagsins sem fer
fram á lögreglurannsókn.
Sigurður Hjartarson kom við á
ritstjórnarskrifstofum
Alþýðubiaðsins og afhenti
svohljóðandi yfirlýsingu fyrir hönd
Tófuvinafélagsins:
„Laugardaginn 7. september birtist
á samtengdum rásum Ríkisútvarpsins
fréttaviðtal við Jón bónda Þórarinsson
á Hræringsstöðum í Svarfaðardal. Þar
lýsti Jón bóndi því í samtali við ífétta-
mann hvemig, honum og konu hans
tókst með hetjulegum hætti að murka
Kfið úr einu tófugreyi.
Tófan hafði verið að fílósófera um
fegurð himinsins og hinstu rök tilver-
unnar á bak við hól þegar Hrærings-
staðahjónin birtust að óvörum. Lág-
fótu brá illa og stakk sér ofan í urð í
óðagotinu, en náði ekki að forða sér.
Jón bóndi náði í skott tófunnar og
annan afturfótinn. Bóndakonan bljúga
leysti því næst skóþvengi sína og fékk
bónda, sem batt um skott og fót lág-
fótu og var dýrinu þannig haldið með-
an bóndi ruddi gijóti úr urðinni. Ekki
náði bóndi að hreinsa allt gijót ofan af
dýrinu og greip hann því til eggja-
gijóts og sargaði dýrið í sundur neðan
herðakambs. Lýsti bóndi aðförum
þessum með auðheyrilegu stolti við
heillaðan fréttamanninn.
Hið íslenska Tófuvinafélag, fjölda-
samtök áhugamanna er vernda vilja
eina spendýrið sem á sér lengri sögu
en mannskepnan í þessu landi, for-
dæmir þessar aðgerðir bændanna
svarfdæisku. H.f.T. mótmælir einnig
fréttaflutningi útvarpsins af þessu ill-
virki, þessum villimanniega, miðalda
skepnuskap. H.Í.T. undrast þá þröng-
sýni og hið siðblinda hatur sem margir
bændur landsins bera til tófunnar.
Vissulega hefur tófan tekið lamb og
annað í tímans rás, en allir eru þó
samdóma um að tjón af völdum tóf-
unnar er aðallega sögulegt fyrirbæri
og réttlætir með engu móti þær 40-60
milljónir króna sem lagðar eru árlega í
herferðina gegn íslensku tófunni.
Eitt er að vinna skipulega og á fag-
legan máta gegn tjóni af völdum tóf-
unnar og annað að murka lífið úr
vamarlausu dýri í svarfdælskri urð.
Dýraníðingar eru fyrirlitlegustu og
jaínframt aumkunarverðustu vesaling-
ar í mannnlegu samfélagi. Sagan úr
Svarfaðardal er því miður ekkert eins-
dæmi. Svipaðar sögur birtast í fjöl-
miðlum öðm hvom.
Hvað segja dýraverndunarsamtök
við svona skepnuskap? Er það stefna
Bændasamtakanna að níðast svona á
vamarlausum dýmm? Em svona frétt-
ír jákvæðar fyrir ímynd bænda eða
þjóðarinnar í heild? íslendingar em
áratugum á eftir siðmenntuðum þjóð-
um í viðhorfúm til villtra dýra í náttúr-
unni.
íslendingar hafa undirritað Bemar-
sáttmálann um verndun villtra dýra
(líklega síðastir Evrópuþjóða), en
hvemig er framkvæmd okkar á sátt-
málanum? Þurfum við ekki að hlíta
ákvæðum þeirra alþjóðlegu sáttmála
er við undirritum? Alþingi hefur ný-
lega sett lög um vemdun villtra dýra
og er með öllu ljóst að aðfarir svarf-
dælsku hetjanna brjóta í bága við þau
lög.
Stjóm Hins íslenska Tófúvinafélags
krefst lögreglurannsóknar á ódæðinu í
Svarfaðardal og að máhð fái eðlilega
meðferð í dómskerfinu. Jafnframt
væntir stjóm H.Í.T. þess að fjölmiðlar
taki mál þessi til umfjöllunar og leggi
sitt af mörkum til að móta mannúð-
legri viðhorf til villtra dýra í náttúm
íslands.
Samtök og hagsmunaaðilar í ferða-
mennsku segjast vilja skapa landinu
ímynd hreinnar og ömengaðrar nátt-
úm. En hver em viðhorf þessara aðila
til villtra dýra í náttúrunni. Leggja þau
blessun sína á svona aðfarir? Leggja
þau blessun sína á dráp villtra dýra á
ftiðlýstum svæðum landsins?
Væri ekki vænlegra að bjóða út-
lendingum upp á refaskoðun í hreinni
náttúm íslands en að tíunda afrekssög-
ur af skynlausum mönnum að murka
lífið úr varnarlausum dýrum? Væri
það ekki jákvæðara fyrir Ferðaþjón-
ustu bænda að bjóða upp á gönguferð-
ir á refaslóðir en að samþykkja með
þögninni afrekssögur íslenskra tófu-
mðinga í fjölmiðlum eða jafnvel á Int-
emetinu?
Stjóm H.Í.T. skorar á ofangreinda
aðila að bregðast skjótt við og vinna
markvisst að tímabærum viðhorfs-
breytingum meðal þjóðarinnar. ís-
lenskir fjölmiðlar eiga mikið verk
óunnið. ÞEirra er ábyrgðin ekki
minnst.
Þess má að lokum geta að Hið ís-
lenska Tófuvinafélag getur boðið upp
á námskeið til andlegrar afeitrunar
fyrir tófuníðinga svo og endurhæfmg-
amámskeið fyrir vankaða fréttamenn.
Reykjavík, 8. september 1996
Stjóm H.í. T. “
Húsbréf
Utdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
f eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989 - 24. útdráttur
1. flokki 1990 - 21. útdráttur
2. flokki 1990 - 20. útdráttur
2. flokki 1991 - 18. útdráttur
3. flokki 1992 - 13. útdráttur
2. flokki 1993 - 9. útdráttur
2. flokki 1994 - 6. útdráttur
3. flokki 1994 - 5. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. nóvember 1996.
Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði.
Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum
hér að ofan birt í DV þriðjudaginn 10. september.
Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi í
Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni
á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfa-
fyrirtækjum.
cSg HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
I 1 HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 569 690