Alþýðublaðið - 25.09.1996, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐK)
3
s k o ð a n
v i t i m e n n
Nótulaus viðskipti eru
skiljanleg að því leyti að bæði
seljandi og kaupandi „hagnast".
Öðru máli gegnir um þegar farið
er hjá sjóðsvélinni. Neytandinn
greiðir fullt verð. Síðan greiðir
hann skólagöngu barna þess
sem stelur, sjúkrahúsvist hans
og allt annað sem velferöar-
kerfið veitir honum.
Stefán Jón Hafstein í leiðara
Dags-Tímans í gær.
Einkavæöing
strax!
Örvæntingarfullt heróp Heimdellinga
í DT í gær. Hljómar kunnuglega.
Biskup selur
sögu sína.
Biskupinn og kvennabósinn Roderick Wright
hefur selt sögu sína til slúðurblaðs fyrir 30
milljónir króna. Mogginn.
Við höfum hafið baráttu
Innlegg í Morgunstund
jafnaðarmanna í Borgar-
nesi 21. september 1996
Á þessum fyrsta fundi á vegum
þingflokks jafnaðarmanna fagna ég
því að við höfum lagt af stað, samein-
uð hreyfing fólks sem hefur lík við-
horf og lffsskoðanir og leggur áherslu
á að félagsleg velferð heildarinnar sé
höfð að leiðarljósi.
Pallborð
Gísli S.
Einarsson
Ég fagna því að þessi fyrsti fundur
er á Vesturlandi. Við þurfum og verð-
um að sameina krafta okkar hér. Ég
veit að hér er jarðvegur jafnaðar-
manna og við þurfum að yrkja hann af
alúð. Það er undarlegt að það þurfti
samstjórn íhalds og Framsóknar til
þess að við færum að vinna saman á
þennan hátt, en reynslan hefur sýnt að
það ríkisstjómarsamstarf hefur jafnan
leitt til lakari afkomu heimilanna og
nýjungar og framsýni sömuleiðis beð-
ið lægri hlut.
Stofnun þingflokks jafnaðarmanna
Alþýðuflokks og Þjóðvaka er upphaf.
Markmiðið er að JAFNAÐARMENN
Á ÍSLANDI sameinist um framboð,
ávinni sér traust þjóðarinnar og um-
boð til að fara með málefni hennar.
Við, sem að þingflokknum stönd-
um, verðum að starfa sem heild, leysa
okkar mál innbyrðis og koma fram
sem einn maður. Þá mun fólk úr öllum
flokkum leggjast á árar með okkur.
Að þessu verðum við að stefna og
leggja allt okkar af mörkum.
Eg er þess fullviss að meirihluti
þjóðarinnar er jafnaðarsinnað fólk
( Sanngjamari skiptingu þjóðar-
rdcáa#WSff--t!tír.- •.'
IVið höfum hafið baráttu, sigur mun vinnast. Við erum ekki fátæk af því að draumar
okkar hafa ekki ræst, frekar fyrir þá sök að eiga ekki draum.
Ég er þess fullviss að öll virðum við
framtak og frelsi einstaklingsins og
höfnum því að það hneppt í fjötra
hverskonar kerfis, - og minni ég þá á
fiskveiðistjórnunina þar sem yfirráð
yfir lögbundinni sameinaðri auðlind
eru á höndum alltof fárra.
Ég er þess fullviss að jafnaðarmenn
eru á móti þeim kerfisfjötrum sem
bændur landsins eru fastir í og hafa
leitt til þess að þeir hrekjast hver á
fætur öðrum af jörðum sínum og
mega um leið þakka fyrir ef þeir eiga
nokkuð eftir áramgabúskap.
Ég er þess fullviss að jafnaðarmenn
em sammála um að við eigum öll rétt
á að njóta auðæfa landsins í formi raf-
og hitaorku, auk annars þess sem
landið býr yfir, hvort sem þessi auðæfi
er að finna á láði eða legi innan ís-
lensks yfirráðasvæðis.
Ég er þess fullviss að jaíhaðarmenn
Islands em sammála um að orkulindir
og auðæfi landsins beri að nýta á sjálf-
bæran hátt, sem merkir að við ætlum
að skila landinu í hendur afkomenda
okkar í betra ástandi frá kynslóð til
kynslóðar. Þetta á einnig við um
skuldsetningu þjóðarinnar.
Við verðum að skila hlutverkum
okkar til afkomenda, án þess að við-
takendur séu á klafa óviðráðanlegra
skulda og auðlindir þurrausnar.
Ágæm fundarmenn, það er hlutverk
hvers okkar á þeim vettvangi sem við
störfum að vekja von um betri framtíð
á jafnari gmnni en er nú í dag. Mis-
munun í okkar þjóðfélagi er ekkert
annað en óhugnaður, afkoma vinnandi
fólks er víða svo léleg að sveitarfélög
og ríki verða að hlaupa undir bagga
með fjárframlögum.
Samanlögð fjámpphæð til félags-
legrar hjálpar á síðasta ári var um 1,4
milljarðar króna. Svo há upphæð í svo
litlu þjóðfélagi er óafsakanleg, og sýn-
ir ekkert annað en hversu misskipting
og ójöfnuður er mikill.
Eins og það er staðreynd að engin
rós er án þyma, verður engin bygging
til án þess að byijað sé á undirstöðun-
um. Það fæst aldrei allt fyrir ekkert, og
enginn sigur vinnst án baráttu. Við
höfum hafið baráttu, sigur mun vinn-
ast. Við erum ekki fátæk af því að
draumar okkar hafa ekki ræst, frekar
fyrir þá sök að eiga ekki draum.
Höfundur er þingmaður
Alþýðuflokksins.
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson
Talsvert uppistand varð í
síðustu viku þegar Stúd-
entaráð samþykkti samhljóða
ályktun þarsem hugmyndir
um að menntamálaráðherra
velji rektor Háskólans, fulltrúa í
háskólaráð og deildarráð voru
gagnrýndar. Þessar hugmynd-
ir höfðu komið fram á heima-
síðu ráðherrans, Björns
Bjarnasonar, en þar rabbar
hann um ýmsar hugrenningar
sínar, einsog kunnugt er. Björn
svarar á heimasíðu sinni nú
vikunni og er heldurfúll yfir
því að fá ekki að viðra allt sem
honum kemur í hug, og sakar
Stúdentaráð um það sem
Bandaríkjamenn kalla „politic-
al correctness" og felst í því að
skammta mönnum umræðu-
efni en banna önnur. Ráðherr-
ann er reyndar talsvert byrstur
og segir: „Mér sýnist Stúd-
entaráð vera að fikra sig inn á
þá braut að álykta um það,
sem menntamálaráðherra má
segja og hvað hann má ekki
segja, fyrir utan kröfu um það,
að hann segi hlutina með ein-
hverjum ákveðnum blæ, þegar
hann ræðir við fjölmiðla." Eftir
stendur hinsvegar að Björn
lýsti í upphafi afdráttarlaust að
hann ætti að skipa fulltrúa í
háskólaráð og deildarráð, og
bauð uppá umræður um að
ráðherra veldi rektor. Björn
fékk sannarlega umræðurnar,
en þær virðast ekki hafa verið
honum fyllilega að skapi; alltj-
ent er heimasíðan nú til marks
um að þar skrifi úfinn ráð-
herra...
IX nattspyrnuáhugamenn
ívbiða í ofvæni eftir úrslita-
leik Skagamanna og KR-inga á
Akranesi á sunnudaginn. KR-
ingum nægir jafntefli til að
tryggja sér íslandsmeistaratitil-
inn ifyrsta sinn síðan 1968.
Bið KR eftir titli er mikið
harmsefni í Vesturbænum, en
stuðningsmenn annarra liða
henda gaman að. Og þótt KR
virðist nú eiga góða mögu-
leika ættu stuðningsmennirnir
að hafa spádóm Þórhalls
Gudmundssonar miðils í
huga. Hann hefur látið svo um
mælt, að KR nái ekki titli fyrren
Islendingarfagna þúsundára
afmæli kristni á íslandi - sem-
sagt eftir fjögur ár! I þessu
sambandi má geta þess að
Sveinn Sveinsson stjórnar-
maður í KSÍ til margra ára hef-
ur gert að tillögu sinni að þján-
ingar KR-inga verði linaðar
með því að þeir verði hrein-
lega útnefndir íslandsmeistar-
ar árið 2000, - það sé eina leið-
in til koma bikarnum í Vestur-
bæinn...
Hinn nýi ritstjóri HP, Guð-
rún Kristjánsdóttir, vinn-
ur nú af kappi að útgáfu blaðs-
ins á morgun. Búið er að létta
helstu fjárhagsáhyggjum af
starfsmönnum, enda Oddi
vanur að standa í skilum. Að-
eins einn blaðamaður var eftir
á HP auk Guðrúnar, og hefur
hún staðið í ströngu viö að
ráða nýja menn. Þá mun hin
gamalreynda fréttakanóna,
Egill Helgason, hafa hlaupið
undir bagga með Guðrúnu í
vaktafríi frá Stöð2. Það munar
um minna, enda gjörþekkir Eg-
illtil á HP...
Tarsan í trjánum, Nanook konungur Norðurskautsins og
Egill í Eyðilandinu.
Hallgrímur Björgvinsson
kjallarameistari: Hann heitir
Finnur Jónsson.
Þorsteinn Aðalbjörnsson
vegfarandi: Það er fram-
sóknarmaðurinn Finnur Ing-
ólfsson.
Guðjón Stefánsson bíl-
stjóri: Hvemig í veröldinni á
ég að vita það?
Þórdís Þórhallsdóttir
nemi: Ég hef enga hugmynd
um það.
Magnús Böðvarsson
læknir: Það er sami maður og
gegnir starfi iðnaðarráðherra -
Finnur lngólfsson.
Aðgengisóknarbarna að
eigin safnaðarkirkju á að vera
hafið yfir allan ágreining.
Leiðarahöfundur Morgunblaösins vegna
deilna um hver ráöi því hvaða athafnir
mega fara fram í einstökum kirkjum.
Við skulum bara vona að
þessi blíða endist sem lengst,
en því getum við ráðið nokkuð
sjálf, því ef maður er í góðu
skapi er alltaf gott veður.
Forystugrein Eystra-Horns.
Nú þegar ber stjórnvöldum
að stöðva hinar skammsýnu
veiðar íslendinga og gerast
aðili að fjölþjóðlegu samkomu-
lagi um veiðistjórn á
Flæmingjahattinum.
Jónas Kristjánsson í forystugrein DV í gær.
fréttaskot ún fortíð
Öagadógó
Sjálfstæðum ríkjum í heiminum hefur
íjölgað mjög síðustu ár og teljast nú
191. Reynið að tengja saman nöfn
þessara 10 ríkja og höfuðborga:
Albanía Vadús
Belís Bratislava
Búrkína Fasó Kító
Bútan Tírana
Ekvador Kisínev
Hondúras Timfú
Kirgisistan Frunse
Lichtenstein Belmótan
Moldóva Tegúsígalpa
Slóvakía Óagadógó
eAB|Sj;eja :ei>|eAO|S 01
A8uisi>| :eAop|Oi/\| ‘6 snpeA :u!8jsu8jipn
8 asurn-j :uejs}si6j!>| 'i eet[e6jsn68jL
:sejnpuoH ‘9 oj)>i :jopeA>|3 g njai!i :ue
't' o6ope6eo :ose3 eui>|jna £ uedp
-iu|8g :sj|8g ‘Z euej/j. :ejueqiv 'L :JOas