Alþýðublaðið - 03.10.1996, Page 5

Alþýðublaðið - 03.10.1996, Page 5
FIMMTUDAGUR 3. OKTOBER 1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 Bessastaðabækurnar Dagur57 Fimmtudagurinn 26. september Forsetinn 2: Ríkisstjórnin 0. Það verður að segjast eins og er þetta er búinn að vera ójafn leikur það sem af er þessari viku. Fyrst kom blessunin hann Göran Persson og sagðist helst af öllu hlakka til að hitta herra mig, forseta lýðveldisins. Þetta mátti Davíð hafa í huga alla heimsóknina. Síðan kemur Emma Bonino í boði Þorsteins. Ég fylgdist með honum í fréttunum koma með hana að heimili sínu beint af flugvellinum. Flann gekk upp tröppumar og Emma á eftir. Þorsteinn stakk hendinni í buxnavasann, tók upp lykil og opnaði útidymar. I glugga á hurðinni mátti sjá að vinur hans hjá Securitas, Jóhann Óli, vaktar húsið. ÖIl þessi sena var klén. Það var eins og Þorsteinn hefði húkkað Emmu upp á Mímisbar og hefði tekist að tæla hana heim. Afhveiju mætti frú Páls- son ekki á tröppumar til að taka á móti þeim? Það hefði Búbba mín gert. En ég ætla nú ekki að vera pexa í þér, kæra dagbók, yfir heimóttarskap Þor- steins. Flins vegar vil ég benda þér á að Emma var ekki fyrr mætt en hún sagðist binda mestar vonir við að hitta herra mig, forseta lýðveldisins. Og þetta varð Þorsteinn að sætta sig við. Hann var eins og rótari í popphljóm- sveit sem hafði tælt grúpíu með sér heim eftir ball með þeim orðum að söngvari sveitarinnar kæmi seinna. Og söngvarinn - það er ég. Ég verð að segja það, ég er búinn að vera aðal- maðurinn á íslandi alla þessa viku. Fyrst benti Göran á það, síðan Emma. 2:0. Og leikurinn er rétt að byija. Dagur58 Föstudagurinn 27. september Mikið var gaman að hitta hana Emmu. Hún lék á als oddi. Talaði um cstríðsglæpi, kjarnorkuvá og kúgun ■kvenna, en: á þann hátt að manni fániíst þetta allt eitthvað svo viðkunn- anlegt. Við hlógum og hlógum. Hún er eitthvað svo glettin hún Emma. Ég lofaði henni að sjálfsögðu að styðja stríðsglæpadómstólinn. Hvað gat ég annað? Sagt nei? „Nei, Emma mín, ég verð nú að viðurkenna að ég hélt alltaf með Þýskurunum í Combat í gamla dag.“ Nei, kosturinn við mannúðar- málin er að maður þarf ekki að hugsa þegar maður vinnur að þeim. Maður verður einhvem veginn góður án erf- iðis. Emma hefur orðið framkvæmda- stjóri Evrópusambandsins án erfiðis. Hún hefur bara stutt mannúðarmálin. Ég ætla að styðja þau líka og guð má vita hvar ég verð framkvæmdastjóri. Annars hefur mér aldrei þótt titillinn hljóma vel á íslensku. Secretery er einhvem veginn tilkomumeira, gener- al secretery er stórkostlegt. En hvað um það. Við Emma skelltum okkur á Sögu eftir að hafa rætt hin erfiðu mál og hlustuðum á djass. Mér leiddist djassinn, þetta var eitthvert bíbob út í loftið, en ég naut þess að sitja þama með Emmu. Við vorum eins og ftjáls- lyndur menningaraðall Evrópu að njóta menningarinnar. Fómm ekki í óperuna að hlusta á Verdi heldur á Sögu að hlusta á djass. Sátum ekki í stúku heldur mitt á meðal fólksins. Og ég áttaði mig á að maður er einmitt stærstur, þegar maður er mitt á meðal fólks en samt sérstakur, áberandi, mikilúðlegur. Það geta allir verið yfir aðra hafnir ef þeir tylla sér í stúku. En það þarf karisma til að standa upp úr mannhafinu miðju. Undir djassinum sá ég eftir að hafa aldrei lært á hljóð- færi. Það hefði verið smart ef ég hefði stokkið upp á svið, gripið saxafóninn og impróviserað með hljómsveitinni. Lukkunarpamfíll hann Clinton. Hann hefur ábyggilega ekki séð það fyrir að saxafónninn nýttist honum seinna. Ég get því ef til vill ekki verið ergilegur út í sjálfan mig. Hvemig átti ég að vita að mér hefði verið nær að læra á trompett en taka aukatíma í algebm? En ég held það sé ljóst að ég muni aldrei auka fylgi mitt með algebru- kunnáttunni. En hvað um það. Ég sat þama við borðið og reyndi að mgga mér í takt við tónlistina án þess að mgla greiðslunni. Ég raggaði mér því ekki mikið. Nánast ekki neitt. En ég sló taktinn með fingrunum og klapp- aði þegar Emma klappaði. Ég var svo- lítið ’68-legur, valdsmaður sem ekki hefur gleymt uppmna sínum. Dagur59 Laugardagurinn 28. september Ég átti fund með Sigurði Guðjóns- syni. Hann kom með enn eina skýrsl- una. Dæmið lítur alltaf verr og verr út. Fyrst talaði hann um 14 milljónir, síð- an 18, þá 21 og nú 25 milljónir. 25 milljónir fyrir að vera forseti í ljögur ár. Það eru 5,2 milljónir á ári. Fyrir hvað? Að hafa Korm' sífellt hangandi yfir sér? Heilsa bændum? Tala við íþróttamenn? Fá einstaka sinnum að hitta siðað fólk eins og Emmu? Ég var í reglulegu sambandi við hana áður en ég varð forseti, svo um hvað snýst þetta eiginlega? Ég verð alltaf vankað- ur þegar Sigurður kynnir fyrir mér íjámuilastöðuna. Ég sé ekkert ljós. Ég finn að ég verð að treysta á Sigurð en hann kemur alltaf með hálf glataðar hugmyndir. Bókin og myndimar em orðnar að stjórnsýslukrísu og munu ekki skila okkur nema 3 til 4 milljón- um. Það er rétt upp í vexti. Nú vill Sigurður að ég bjóði fyrirtækjum að vera viðstaddur kynningar íslenskra fyrirtækja erlendis. Hann segir að þau séu tilbúin að borga 500 þúsund fyrir ferðina. 25 milljónir eru 50 ferðir. Þegar ég benti honum á þetta sagðist hann efast um að svo mörg fyrirtæki myndu kaupa forsetaferð. Hversu mörg? spurði ég. Ja, svona átta, sagði hann. Það eru 4 milljónir, þá standa eftir 21 milljón. Hvað á gera við þær? spurði ég. Við finnum eitthvað út úr því, ekki hafa áhyggjur, sagði hann. Ég veit svei mér ekki. Er það eðlilegt að forseti lýðveldisins sé kominn uppá einhvern lögmann út í bæ um fjár- hagslegt sjálfstæði sitt? Þegar Sigurð- ur var farinn var ég vonlaus og magn- þrota. Það féll á mig höfgi og mér rann í brjóst. Mig dreymdi að Marlon Brando kæmi til mín og minnti mig á að hann ætti hjá mér greiða og vildi að ég gerðist sérstakur vemdari einhvers glæpahrings. Ég hrökk upp með and- fælum þegar ég kyssti hring sem hann bar á litla putta hægri handar. Hvað hef ég gert? Er ég platforseti? Er Sig- urður Guðjónsson hinn raunvemlegi forseti eða einhver skjólstæðingur hans? Ég verð sjálfur að finna leið til að borga þessar 25 milljónir til að losna. Eg verð. Ég verð. Dagur60 Sunnudagurinn 29. september Mér leið skár þegar ég vaknaði í morgun. Ég var sannarlega forseti. Ég sá það um leið og ég leit í spegilinn. Ég spurði sjálfan mig hvað þessi mað- ur sem horfði á móti mér starfaði. Ja, ég myndi giska á að hann væri forseti eða aðalritari f einhverri alþjóðastofn- un, sagði ég. Það fyrra er hárrétt, svar- aði ég. Það síðara er líka rétt en samt ekki, þetta svar er á undan sinni sam- tíð. Þegar ég kom niður í morgunmat- inn lá dagskrá dagsins á borðinu. Körfubolti. Svolítið plebbalegt en allt í lagi. Körfubolti er bjánaleg íþrótt þar sem fólk horfir á alltof stóra menn reyna að hlaupa og sprikla. Ég þarf ekki að horfa lengi til að fullvissa mig um að það var rétt ákvörðun hjá mér að láta íþróttir vera. Hávaxið fólk ber sig eitthvað svo illa. Það liðast ekki áfram heldur slengist áfram. En hvað um það. Fólk horfir á körfubolta og þegar ég horfi á körfubolta þá horfir fólk líka á mig horfa á körfubolta. Ég kann vel við það. Svona hugsaði ég áður en ég fór. En í bílnum á leiðinni heyrði ég að 8 þúsund ntanns hefðu verið að horfa á Ingibjörgu Sólrúnu horfa á fótbolta upp á Akranesi. Ég var hins vegar sendur til Grindavíkur í íþróttahús sem tekur ekki nema 500 manns. Ég hringdi í Komí. „Hver er munurinn á körfubolta og fótbolta, Komí minn?“ spurði ég. ,Ja, í körfu- bolta reyna menn að koma boltanum ofan í körfu en í fótbolta...“ byijaði hann. „Komí,“ greip ég fram í, „mun- urinn er 7.500 manns. Skrifaðu það hjá þér.“ Síðan skellti ég á. Hvflíkur kjáni þessi maður. Ef borgarstjórinn í Reykjavfk fær 8 þúsund manns ætti forsetinn að fá 20 þúsund manns. Það sér það hver maður. Nema Komí. Og hann er helsti aðstoðarmaður minn. Er von nema ég sé óömggur. Dagur61 Mánudagurinn 30. september Debutið í þinginu á morgun lagðist á mig þegar líða fór á daginn. Ég hafði samið ræðu um síðustu páska sem ég ætlaði að flytja á morgun en þegar ég las hana leist mér ekki á hana. Ég hef þroskast í embætti. Þegar ég las þessi skrif im'n fannst mér þau galgopaleg, stráksleg, alls ekki forsetaleg. Ég sett- ist því niður og reyndi að klæða mál mitt í forsetalegan búning. Og um leið og ég byijaði að skrifa fann ég hvem- ig þjóð mín stýrði pennanum. Ekki þannig að ég hafi skrifað aðeins það sem þjóð mín vildi heyra heldur fann ég að þjóðin vildi heyra það sem ég skrifaði. Og á hárréttu augnabliki fann ég hvernig Ásgeir Ásgeirsson stillti sér uppvið hlið mér og tók að sér að senda Davíð tóninn, saka hann um Sturlungaaldarhugsanahátt. Þegar ég var búinn með ræðuna hljóp ég fram og sýndi Búbbu. Hún var hrifin. En hún sagði lítið. Ég spurði hana hvað henni hefði þótt best. Hún minntist á stflinn. Ég vissi að hann var góður, en hvað annað? Hún minntist á uppbygg- inguna. Ég vissi að hún var góð, en hvað annað? Hún minntist á greining- una á stöðu Alþingis. Ég vissi að hún var góð, en hvað annað? Ja, ég veit ekki, Óli minn, mér finnst öll ræðan góð. Sérðu ekki hvemig ég stilli sjálf- um mér upp sem manni nútímans og Dabba druslu sem einhverjum fom- manni með báðar fætur aftur í Sturl- ungaöld? spurði ég. Jú, einmitt, Óli minn, sagði hún. Þetta þurfum við for- setamir að lifa við. Jafnvel okkar nán- ustu skilja okkur aldrei fullkomlega. Ég fór aftur inn í herbergi til Ásgeirs. Til Kristjáns og Sveins. Mér finnst Vigdís ekki enn nógu fjarlæg til að ég fmni samkennd með henni. Dagur62 Þriðjudagurinn 1. október Bárðarbunga! Pælið í því! Bárðar- bunga! Hvað er eiginlega Bárðar- bunga? Þetta var minn dagur. Ég var með frábæra ræðu. Davíð hafði mis- tekist að troða sér í sviðsljósið. Ég var aðalmaðurinn - í raun eini maðurinn. En hvað gerist? Einhver Bárðarbunga ryðst ffam og tekur fyrstu frétt í öllum fréttatímum. Hvflík vonbrigði. Hvflík vonbrigði. Hvenær ætlar þjóð mín að meta sína bestu syni meira en sín óró- legustu fjöll? Ég skil þetta ekki. Ég get ekki skrifað meir. Ég get ekki meir. Dagur 63 Miðvikudagurinn 2. október Þeir ætla ekki að sætta sig við mig. Þeir em enn að reyna að grafa undan mér. Og þeir hafa Moggann á sínu bandi, helvískir. Fyrst birtir hann um mig óhróður í miðri kosningabarátt- unni. Síðan skrifar hann að Ólafur Ragnar Gn'msson hafi gert þetta og að Ólafur Ragnar Grímsson hafi gert hitt. En hvað gerir herra Ólafur Ragnar Grímsson? Það fær enginn að vita. Vigdís er enn frú Vigdís þótt hún sé hætt. Óli biskup er herra Ólafur þótt hann sé hættur en starfi áfram. En ég? Hvað með mig, sem sannarlega er herra Ólafur Ragnar Grímsson sam- kvæmt öllum hefðum? Nei, þeir kalla mig Ólafur Ragnar eins og ég væri einhver prívatmaður út í bæ. Það er eins og þeir séu að uppnefna mig. Ef mér tekst ekki að stoppa þetta munu þeir skrifa á næsta ári: Ávarp forseta Islands, Óla grís, við setningu Alþing- is í gær. Ef þeir munu þá minnast á það. Þeir birtu ekki einusinni ávarpið mitt óstytt. Þeir klipptu það til eins og ég væri einhver Elías Davíðsson sem þyrfti ritskoðun. Djöfuls ósvífni. Þeir gera allt svo ég fái ekki notið þess að vera forseti. Þeir ráðast beint framan að mér og ætla að svipta mig því sem ég á skilið. Og svo ræðst Sigurður Guðjónsson að baki mér og ætlar að taka það sem eftir er. Hvað á ég að gera? Kæra dagbók, hvað á ég að gera? ■ Styrkir til náms- efnisgerðar á framhaldsskólastigi Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til námsefnisgerðar í bóklegum og verklegum greinum á framhaldsskólastigi. Heimilt er samkvæmt reglum um úthlutun að verja allt að fimmtungi heild- arúthlutunar til að efla tiltekin svið. Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu, námefnisnefnd, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík fyrir 25. október nk. á þar til gerðum eyðiblöðum sem hægt er að fá í ráðuneytinu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.