Alþýðublaðið - 15.10.1996, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1996
s k o ð a n
UHNIUHI
21193. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Fréttastjóri Jakob Bjarnar Grétarsson
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín ehf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Tölvupóstur alprent@itn.is
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Höfuðból afturhaldsins
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins um helgina var mikið og
glæsilegt sjónarspil, og mjög í anda þess flokks sem r einu og
öllu leggur áherslu á umbúðimar en ekki innihaldið. Pólitísk
stefnumótun var í skötulíki, einsog við var að búast. Þannig er
ekkert að græða á samþykktum fundarins, en miklu athyglisverð-
ara að skoða þau mál sem sjálfstæðismenn hliðruðu sér hjá að
ræða af einhverri alvöm. Leiksýningin í Laugardalshöll sýndi að
Sjálfstæðisflokkur Davíðs Oddssonar er gamaldags íhaldsflokkur
sem hefur enga framtíðarsýn, og mun fram í rauðan dauðann
þumbast gegn umbótum í íslensku samfélagi. Hin fijálslyndu öfl,
sem á ámm áður höfðu sterk áhrif innan flokksins og mótuðu
stefnuna í veigamiklum málum, mega srn nú einskis. Sjálfstæðis-
flokkurinn er höfuðból aíturhaldsins í íslenskum stjómmálum.
Efab'tið er Davíð Oddsson harla glaður með sinn hlut. Hann er
óskoraður leiðtogi sjálfstæðismanna, og tök hans á flokknum
hafa aldrei verið sterkari. Þeir flokksmenn sem em á öndverðum
meiði við Davíð í grundvallarmálum höfðu sig lítt í frammi, enda
hefúr aldrei kunnað góðri pólitískri lukku að stýra að standa uppi
í hárinu á honum. Vestfirðingar gerðu virðingarverða tilraun til að
breyta steinmnninni sjávarútvegsstefnu Sjálfstæðisflokksins, og
höfðu óvænt sitt fram í sjávarútvegsnefnd fundarins. Guðjón A.
Kristjánsson varaþingmaður á Vestfjörðum sagði að í þessu mik-
ilvæga máli talaði flokksforystan ekki sama tungumál og grasrót-
in í flokknum. Formaðurinn svaraði þessari alvarlegu ásökun
með aulafyndni: Maður verður að passa sig á því að hlusta ekki
svo mikið eftir grasrótinni að eyrun fyllist af ánamöðkum.
Tillögur Vestfirðinga vom síðan kolfelldar á landsfundinum,
enda gerðust Davíð og Þorsteinn Pálsson fóstbræður í einn dag
og lögðust af hörku gegn nokkmm breytingum á ríkjandi kerfi.
Enn einu sinni sýndi forysta Sjálfstæðisflokksins með afdráttar-
lausum hætti, að hún gengur á blygðunarlausan hátt erinda hinna
fáu og stóm, á kostnað hinna mörgu og smáu. Það em hinsvegar
pólitísk tíðindi að Sjálfstæðisflokkurinn er nú eini flokkurinn sem
útilokar breytingar á sjávarútvegsstefnunni. Formaður Framsókn-
arflokksins hefur uppá síðkastið gefið ótvírætt til kynna að hann
sé til viðræðu um endurskoðun kerfisins. Þá er athyglisvert að
bera saman yfirlýsingar formanna stjómarflokkanna um utanrík-
ismál. Davíð hefur uppi stórfelldan hræðsluáróður gegn Evrópu-
sambandinu, og tilkynnti landsfundinum að aðild Islands kæmi
alls ekki til greina. Við annan tón kveður í herbúðum Framsókn-
ar. Halldór Ásgrímsson útilokar ekki að hagsmunum íslands
kunni í ffamtíðinni að vera best borgið innan ESB. I öllu falli tal-
ar formaður Framsóknar um Evrópumál af öllu meiri yfirvegun
og þekkingu en Davíð, sem virðist byggja málflutning sinn á víð-
tækri fáfræði og hræðslu við útlendinga.
Uppskrift að afbrotum
Hugsaðu þér, lesandi góður: Ef þér
er verulega illa við einhvem, ert
ofbeldishneigður að upplagi og langar
að veija þremur mánuðum á kostnað
ríkisins á afviknum stað - þá skaltu
lesa baksíðu DV síðasta laugardag.
E^t&o^^engur |
Þar var sagt frá ungum manni sem
Héraðsdómur Vesturiands dæmdi á
dögunum í 12 mánaða fangelsi, þar af
níu mánuði skilorðsbundið.
Það sem þú getur gert og fengið í
staðinn þriggja mánaða tugthús er eft-
irfarandi:
Nefbrotið tvo karlmenn. Valdið bíl-
slysi þarsem sjö unglingar slasast,
flestir alvarlega. Ognað tveimur
mönnum og veitt þeim högg og
áverka með riffilskefti. Síðast en ekki
síst skaltu fá tvo vini þína í lið með
þér og neyða einhvern sakleysingja
upp í bfl. Þegar þið hafið rænt mann-
inum og ekið í burtu getið þið snúið
uppá handleggi og eyrnasnepla og
reynt að stinga gat (með kúlupenna) á
vinstra eymasnepilinn. Síðan stöðviði
bflinn á afviknum stað, ríftð fómar-
lambið úr fötum að ofanverðu og mis-
þyrmið því með hrindingum, spörkum
og höggum. Þegar það er búið er til-
valið að úða málningu yfir manninn.
Fyrir þetta, lesandi góður, færðu að
dúsa í tugthúsi í þijá mánuði í mesta
lagi.
Ég þekki ekki unga manninn sem
Héraðsdómur Vesturlands dæmdi fyr-
ir ofangreind afbrot og ofbeldisglæpi.
DV segir mér að dómurinn hafi tekið
til þess að „brotavilji" unga mannsins
„væri greinilega einbeittur."
Jahéma. Hann hefði semsagt getað
sloppið með mánuð ef hann hefði með
hálfum huga nefbrotið, barið, pyntað
og málað fómarlömb sín.
Við sögðum frá því í Alþýðublað-
inu að fyrir skemmstu féll annar dóm-
ur í Héraðsdómi Vesturlands. Þá var
ung stúlka dæmd í tveggja ára fangelsi
fyrir ofbeldisverk sem hún framdi 18
ára gömul. Þetta mun vera einhver
þyngsti dómur sem kveðinn hefur ver-
ið upp yfir ungri stúlku á Islandi, að
minnsta kosti í seinni tíð.
Tvö ár. Óskilorðsbundið.
Nú er það opinber stefna stjórn-
valda að frelsissvipting eigi að vera
hegning og ekkert annað en hegning.
Ekki er litið svo á, að fangelsun eigi
að leiða til betmnar eða uppbyggingar
sakamanna. Það virðist ekki breyta
neinu þótt sýnt sé fram á, að enginn
hagnast af þessari stefnu og að þeir
sem einu sinni lenda í refsingarfang-
elsum íslenska ríkisins em mjög lík-
legir til að halda áfram á glæpabraut
og lenda aftur og enn aftur í fangelsi.
Ég hef aldrei skilið afhveiju ástríðu-
fullir áhugamenn um afkomu ríkis-
sjóðs hafa ekki tekið málið upp. Það
er nefnilega beinlínis þjóðhagslega
hagkvæmt ef hægt er að fá einn ungan
afbrotagepil til að snúa af villu síns
vegar. Hann hættir að valda öðrum
tjóni og armæðu, og hættir að vera
gistivinur íslenska ríkissjóðs. Og allir
yrðu mun ánægðari.
Sú kennd ristir djúpt í íslendingum
að refsingar eigi að vera harðar, brota-
mönnum megi ekki sýna neina lin-
kind. Þetta veit dómsmálaráðherrann
okkar, og þessvegna auglýsti hann ný-
lega eftir þyngri dómum fyrir ofbeld-
isglæpi. Ráðherrann vissi að svona
nokkuð kæmi honum í fréttimar, og
að bullurnar í þjóðarsálinni rnyndu
vísast verða harla kátar yfir þessum
röggsama stjómmálamanni.
Umræddur ráðherra fór óralangt út
yfir mörk velsæmis þegar hann heimt-
aði þyngri dóma. Hlutverk dómsmála-
ráðherra er ekki að ákveða refsingar.
Til þess em dómstólar. Alþingi setur
hinsvegar lög sem dómstólamir dæma
eftir. Maður skyldi ætla að dómsmála-
ráðherrann vissi það. En auðvitað er
hann fyrst og fremst tækifærissinnað-
ur pólitíkus á höttunum eftir stundar-
vinsældum. Blessaður karlinn.
Á Norðurlöndum eru unglingar
helst ekki dæmdir í fangelsi. Sama
máli gegnir um Skotland. Þar er reynt
að hjálpa þeim til að leggja af glæpa-
mennsku og snúa sér að einhverju
uppbyggilegra.
Ég veit ekki hvort einhveijum líður
betur af því að vita af ungu stúlkunni
að afplána tveggja ára fangelsisdóm
fyrir voðaverk, unnið í ölæði.
En það er eitthvað skrýtið í kýr-
hausnum þegar maður með „einbeitt-
an brotavilja", sem hann veitir útrás
með margvíslegum líkamsmeiðing-
um, slysum og pyntingum, fær þriggja
mánaða dóm.
Það er semsagt eitthvað skrýtið við
dóm-greind þeirra í Héraðsdómi Vest-
urlands. ■
(2l)O)(30>
KÍN«
SÍMINN SEM AIOREI SEFUR
Hsfit bó rta vitn«*kjsj um trétt,
hrlngda þi t n'ma 550 5555. Fyrk hv«rt
frétUskot. biftist e6a tt not»6 í DV,
3.000 fcrómjr, fyrit Þest* ffittaíkotíÓ
ÍÞverrí wfcö pe&mi 7,000, N'.mr
er gartt, Víö tékum «ð fréttéfcfcötum
sölíwhitnginn.
LAUGAROWSUfi 12. OKTÓ8ER 1996
Ungur Borgflröingur sem ákærður var fyrir miklar sakargiftir á skömmum tíma:
Dæmdur fyrir aö valda
tólf manns líkamstjóni
HéeaOaóómtir Vóéturiands
1 m* Biörgv te
oa, tvltugdis Borgftr<tg. i H má»
töa fer^eisi., þar af mónu&i skil-
rrtfcástövJið, tyrír að hafet vaJóíft
rnðæte íölf nmim ilkttmmrnMm
ko, tyrtr sð hS Mag! tíó m
mipí imm tmM mm< íávmv
iretatar og fietrs, Ktiíxlkiwuii Uk-
étíy m xMi & mm-
ua íasfé m vmí.
úmaám tytis- m
u£a nefisrutió tvo iMimmn i
mmð Miptm tmú þvt m zkma eg
iýia 1 anditt n 4rtt föts m í hm
feífttíð með þri »6 k;
taaan I anáUf.
Hatm var elnníg tlvsudur fyrír
aó tufa wkM þvi aó 7 umálnmr
sáömkist i fcílhlysl, ífe^tlr ai var-
léga, »?r Imnn ók & táMhmks fr&m
ör fcö og I vejs fyrtr börpió
im 1 \mm Xt msú vm<
Sex m&mnamm voru fiutt á
i Eeyfejavik, pm d tym
ur meó {tyrta. fckó þeessi
tprgvm hafir ra«kait vmS&twúr-
yjqsS o« rakM af
gAkysi
t Oðnt mált eru Bjórr*iit c*
fQnrtm Anm
UmiSmm, 21 ára. og Mimn Wúm
W árs/áííir íbxmúir
fyrtr fttits&sriptíttgtt og itfcams
íí'M með því hafa tefcið töáttR
nauOögan frfc bemínstöð Sfccll i
Ittft í fcíi C® tkið U&ð
\mm mMx Bet^tt^srðarfcrO, Á
k'WiMú vmtn \mt «Imtákwí
■ (ni ■ivynm.i v’i
táixm á vínstm eyrrmnf-itil
*a#ö fcfilsípTtM. Mlím mt sfMv-
aðtir i xmhmúfm ondir Hafu
hífta-ll m tvu þmmmúMgmúr
ttodfcr tyrir að latfa \é kiattt fcm-
jukasfcíð ör föiuœ stð oíanvvr&u ttg
|?vt mú fcrijaitogum,
MSfttáa og hfcggum o* aak fcess
úMð y fir tmmim múnit'Wn i Mr
hane o« íatnaó. tmmmisg&rriir
eni úmvúír bl irríðá togmim
1» þösuná krríntar I iæivtr.
Wxmfa var þrMrmú ézmáw
fjTör «6 fcaih ðgnafc og veitt
tvmrm m&mwn fcö«g og áverita
xmó tlSMtrfti immnm ¥& iii
þem «0 fcttáavUM vmi
Sn?injfcíga rinMttur. Hsrtft var
fittk i*v*s úmvMxr tytix Þivutv
u&krtw flg er sviptur
um i 4 tr.
KJfirtfta vaor ífaRmdnr i t Bsótsaóa
öusBshni. þttr af 6 ttúm&l skíksrM
hoof» tyrk trmmomteé fewd
mmtiá fcí úta iiá á mymki -
iaum Jóhaxm frfck fcsm xe&xr $
wminM xfokal&imtM
fcmnmnme»mif mt d*5*4h ttl
aó wmt&U þ rggtu mik&m
krtdu \
V«rS«*ídí xmmááa fxxMsmiþt-
Isga iaMi áösnirjaö að ÍM fcsnd iil
þm að áráshs fcéföí vwið sdruttik-
¥m rnváMm m mm-
vart perMnufc^fctí W
tí! tym feilin «5 valda raikiii!
hxtieMn og attdfcim ój»íhv*«i,
Aök þevsí Msri aft lita ti! þtm *5
þm vmi fcrir mmn tm sð SrmsM
IxÁiSt tMhMaxrm brvt, Á>tt
Barinn
Hjóla 500 km
■ ■■ me m
IÞegar þið hafið rænt manninum og ekið í burtu getið þið snúið uppá handleggi og
eyrnasnepla og reynt að stinga gat (með kúlupenna) á vinstra eyrnasnepilinn...
Allt ber að sama brunni. f hverju grundvallarmálinu á fætur
öðru er Sjálfstæðisflokkurinn fulltrúi fortíðarinnar, dyggur vörður
siðlausra og ranglátra kerfa. Hann hefur enga sýn til nýrrar aldar,
og uppá ekkert að bjóða nema úreltar lausnir gærdagsins. Fréttir
sjónvarpsstöðvanna á sunnudag af ályktunum landsfundarins
voru gott dæmi um þessa hugmyndalegu örbirgð. Tvennt þótti
markvert af samþykktum stærsta stjómmálaflokks landsins, sem
ekki hafði haldið landsfund í þrjú ár: Sjálfstæðisflokkurinn vill
afnema skylduáskrift að Ríkisútvarpinu og einkavæða ÁTVR.
Þessar ævafomu lummur em framlag Sjálfstæðisflokksins til pól-
itískrar umræðu á íslandi!
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins afhjúpaði í einu og öllu að
forysta hans er skipuð pólitískum nátttröllum, sem eiga ekki aðr-
ar hugsjónir en halda völdum og fresta framtíðinni. Þessvegna er
Sjálfstæðisflokkurinn höfuðandstæðingur jafnaðarmanna, og
þessvegna ber umbótasinnuðum öflum að sameina kraftana gegn
íhaldsflokki Davíðs Oddssonar. ■
Atburðir dagsins
1880 Viktorió, hernaðarsnill-
ingur og leiðtogi Apache-ind-
íána, lendir í gildru hersveita í
Mexíkó; berst uns skotfæri eru
á þrotum og fremur þá sjálfs-
morð. 1928 Loftskipið Graf
Zeppelin lendir í New Jersey
eftir fyrsta flug sitt yfir Atlants-
haf. 1940 Strandferðaskipið
Esja kom til Reykjavíkur frá
PeLsamo í Finnlandi. Hún flutti
heim 258 íslendinga sem höfðu
teppst í Evrópu vegna styijald-
arinnar. 1945 Franski stjórn-
málamaðurinn Pierre Laval,
leiðtogi Vichy-stjórnarinnar
sem vann með nasistum, tekinn
af lífi. 1964 Harold Wilson
leiðir Verkamannaflokkinn til
naums sigurs og verður yngsti
forsætisráðherra Bretlands á
20. öld.
Afmælisbörn dagsins
Virgill 79 f.Kr., rómverskt
ljóðskáld. Evangelista Torric-
elli 1608, ítalskur stærðfræð-
ingur sem hannaði loftvogina
árið 1643. Friedrich Nietz-
sche 1844, þýskur heimspek-
ingur. P.G. Woodhouse 1881,
enskur rithöfundur.
Annálsbrot dagsins
Þrír menn brenndir í Stranda-
sýslu fyrir galdragerninga,
bæði mönnum og fénaði gerða
með óheyrilegri og furðulegri
djöfulsins ásókn; fékk einn
þeirra góða iðran; á hinum sá-
ust lítil merki iðrunar, sérdeilis
þeim þriðja er Grímur hét. Þor-
leifur Kortsson hafði þá sýslu.
Þetta skeði um haustið í imbru-
viku.
Seiluannáll 1654.
Málsháttur dagsins
Sá kann ekki að bæta brók ann-
ars sem berlæraður er sjálfur.
Guð dagsins
Trúið þér og því, að guð er
miskunnsamur og mun hann
oss eigi láta brenna bæði þessa
heims og annars.
Njáll Þorgeirsson á Bergþórshvoli,
þá er eldur var borinn aö bæ
hans. Njáls saga.
Gieði dagsins
Við erum þannig gerð, að við
getum aðeins fundið ríka gleði
við andstæður, en mjög litla
við varanlegt ástand.
Sigmund Freud, 1856-1939.
Orð dagsins
Ég er frelsaður, Feigð,
ég hef faðmað og kysst.
Undir septembersól
brosti sumarið fyrsl.
Stefán frá Hvftadal, 1887-1933.
Skák dagsins
Æsispennandi barátta stendur
yfir á skákborðinu. Skuja er í
stórsókn á kóngsvæng með
hvítu mcnnina en Rozenberg
lætur ófriðlega drottningarmeg-
in. Hvítur á leik og verður fyrri
til.
Hvítur leikur og vinnur.
1. Dxf8+!! Hxf8 2. Hxh7+!
Kxh7 3. Hhl Skák og mát.