Alþýðublaðið - 15.10.1996, Síða 3

Alþýðublaðið - 15.10.1996, Síða 3
PRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 s k o ð a n Ullen-dúllen-doffarinn og draumsýn Kristjáns Meöan Úllen-dúllen-doffarinn gæti valið sér livern sem hann vildi úr hópi litlu flokkanna til þess að ganga undir sér í ríkisstjórn, væri ekki von á góðu fyrir jafnaðarmenn eða hugsjón jafnaðarstefnunnar. Norðurland heilsaði okkur al- hvítt, hreint, bjart og kalt Það var andleg upplyfting að komast úr útsynningi og grámósku borgar- haustsins í Skagafjörð, Sléttuhlíð og Fljótin sem skinu við sólu mjalla- hvít eins og ósnortin. En Siglufjörð- ur sló þó allt út í stafalogni, með Grímsey eins og hvítan bólstur út við sjóndeildarhring, horft frá Strákagöngum, og allir út að renna sér á sleða í fyrsta snjónum inn í bænum. „Mín draumsýn er að verða ein- hverntíma þátttakandi á flokksþingi jafnaðarmanna þar sem ég þekki ekki nema svona 10 til 20 % af fulltrúun- um,“ sagði Kristján Möller bæjarfull-’ trúi á Siglufirði á Hótel Læk þar sem efnt var til Síðdegisstundar jafnaðar- manna síðastliðinn laugardag. Þar kom Kristján í orði þeirri hugsun að gaman væri að vera einhvemtíma á landsfundi jafnaðarmanna sem jafhað- ist á við landsfund sjálfstæðismanna að fjölda og styrk. En það er ekki aðeins flokkajöfnuð- ur sem kallar á aukið samstarf. Sam- eining verkalýðsfélaga og sjóða þeirra er einnig talin nauðsyn og þar eru stíflur, sem tafið hafa framrásina, allar að bresta. Breyttar samgöngur, ný samskiptatækni, hraðar breytingar og þörf á símenntun og sérhæfingu eru allt atriði sem krefjast nýrri vinnu- bragða, sterkari og stærri heilda. Fortíðin víkur fyrir nútíð og framtíð Á Sauðárkróki ræddi áhrifafólk úr Alþýðubandalagi, Alþýðuflokki og Þjóðvaka saman af mikilli einlægni eina morgunstund um helgina. Það sem var athyglisvert við þær umræður var sú staðreynd hversu yfirvegaðar þær voru og bundnar nútíð og framtíð, en lausar við tilvísanir í fortíðina. Þannig háttar til að á Sauðárkróki er Alþýðuflokkurinn með Björn Sigur- bjömsson í meirihluta bæjarstjómar en Álþýðubandalagið með Önnu Kristínu Gunnarsdóttur í mjög einbeittri stjóm- arandstöðu. Samt sem áður var rætt fram og til baka um möguleika á sam- starfi þessara tveggja flokka í framtíð- inni, sérstaklega með tilliti til hugsan- legrar sameiningar sveitarfélaga í Skagafirði. Bæði Jón Karlsson, for- maður Verkalýðsfélagsins Fram, og Jóhann Svavarsson, formaður kjör- dæmaráðs Alþýðubandalagsins í Norðurlandi vestra, vom þess mjög hvetjandi að haldið yrði áfram að huga að þessum málum og í sama streng tóku frambjóðendur Alþýðu- flokks og Þjóðvaka í kjördæminu, þeir Jón Hjartarson, skólastjóri og Sveinn Allan Morthens, framkvæmdastjóri. Tímabært að ganga lengra Á Siglufirði tóku Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag saman höndum með ungu athafnafólki um endurreisn at- vinnulíl's og bæjarhags. Það hefur tek- ist vel enda þótt Ólöf Kristjánsdóttir bæjarfulltrúi ítrekaði í síðdegisstund- inni að um stöðugan líffóður væri að ræða vegna þess að atvinna og þjón- usta í bæjarfélaginu stæði tæpt. Signý Jóhannesdóttir, formaður Verkalýðs- félagsins Vöku, sagði í umræðunum á Hótel Læk að ef til vill væri tímabært að flokkamir öxluðu að öllu leyti pól- itíska ábyrgð á stjóm bæjarfélagsins. Það kom nokkuð á óvart á Siglu- firði að þar virðast menn tengja jafn- aðarmannahugtakið eingöngu við Al- þýðuflokkinn og krata. I mínum huga hefur það verið breiðara og almennara en svo, enda notað í ýmsum samteng- ingum fyrr og síðar og af nokkrum samtökum. En á Siglufirði lifir enn í glæðum gamalla elda og þar er talað um krata og komma eins og venja var áður. Nú er að grípa tækifærið Það em engir sérstakir málsheíjend- ur í Morgunstund jafnaðarmanna enda er lögð áhersla á pólitískar umræður og sneytt hjá prédikunum. Engu að síður hefur verið kappkostað að þing- menn mæti og á Sauðárkróki og Siglufirði vora Sighvatur Björgvins- son og Össur Skarphéðinsson úr þeirra hópi auk Marðar Amasonar varaþing- manns. Ekki verða þeirra innlegg tí- unduð hér, þó að full ástæða væri til. Samt má ég til að nefna það sem Öss- ur sagði um Úllen-dúllen-doffarann, sem fékk 90% stuðning á landsfundi Sjálfstæðisflokksins út á fimmaura- brandara. Meðan Úllen-dúllen-doffar- inn gæti valið sér hvern sem hann vildi úr hópi litlu flokkanna til þess að ganga undir sér í rikisstjóm, væri ekki von á góðu fyrir jafnaðarmenn eða hugsjón jafnaðarstefnunnar. Kosturinn við umræðumar á Siglu- firði og Sauðárkróki var augljóslega sá, að fólk er hætt að tala af vandlæt- ingu um Alþýðuflokk eða Framsókn- arflokk sem hafa svikið og gengið til samstarfs við íhaldið. Það er veikleiki flokkanna og samstöðuleysi, sem gerir Sjálfstæðisflokknum kleift að úllen- dúllen-doffa eftir hveijar kosningar. í stað þess að vera með ásakanir í garð einstakra forystumanna eða gera því skóna að Alþýðubandalagið færi einn- ig í íhaldssængina, ef það ætti þess kost, er áhugafólk um stjómmál reiðu- búið til þess að vega og meta mögu- leikana á samstarfi sem gæti leitt jafn- aðarmenn úr öllum flokkum til önd- vegis í landsstjóminni og í meirihluta- samstarf í bæjarstjórnum. „Ef við grípum ekki það tækifæri, sem nú býðst til þess að tengja saman jafnað- armenn, eigum við eftir að sjá eftir því alla ævi,“ sagði Sighvatur Björgvins- son bæði á Króknum og á Sigló. Og eitt er víst að ekki sáum við eftir heimsókninni á hið hvíta Norð- urland, er við ókum til móts við suðvesturhornið blauta þar sem þorri íslendinga hefur safnast Hún sannfærði okkur um að það er bjart framundan á braut jafnaðarmanna. JÓN ÓSKAR v i t i m e n n Ég fer bara á Vitabarinn og sé ekki annað. Líka reyndar stundum á Áslák í Mosfellsbæ. Vigdís Grímsdóttir skáld að svara spurningu dagsins í DV, um hvort hún stundi skemmtistaði borgarinnar. Ég geri það, var á Borginni, Astro, Píanóbarnum, Vitabarnum og 22 í gær. En það var reyndar tilviljun. Kristín Ómarsdóttir skáld að svara sömu spurningu. Ljóst er að Þjóðvaki á verulegan hlut í þeirri fyigisaukningu sem nú mælist Alþýðuflokknum, Jafnaöar- mannaflokki íslands. Úr forystugrein málgagns Þjóðvaka. Sjálfstæðisf lokkurinn minnir stundum meira á kirkju en flokk. Þar eru gömlu spak- mælin enn í fullu gildi, svo sem „stétt meö stétt“. Þar hlýða menn yfirboðurum sínum. Þar er hlut- verk kvenna að hella upp á kaffi og hinna greindustu meðal þeirra að rita fundargerðir. Jónas Kristjánsson sallaði Sjálfstæðisflokk- inn niður í forystugrein DV í gær. Það bregður nýrra við að þessir tveir helstu sjávarút- vegshrútar stjórnarflokkanna, Halldór og Þorsteinn, stangist á með þessum hætti. Birgir Guðmundsson í forystugrein DT á laugardag um skærur á stjórnarheimilinu. Viljum við ala upp eintóma letingja og aumingja eða fólk sem nennir að vinna? Pétur Blöndal alþingismaður að messa á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Fundurinn svaraði spurningu hans með háværu lófataki. DV. Hann leit ekki við staðreyndum, hlustaði ekki á úrtölur en sveiflaði sverðinu svoað biikaði á það, ekki sízt í myrkri. Hann rak styrjöldina af innblæstri og fimbulkrafti sem hann sótti í rómantíska veröld hugmyndaflugsins en í henni átti hann sínar beztu stundir. Matthías Johannessen um Winston Churchill. Helgispjall á sunnudag. fréttaskot úr fortíð Hljómleikur ungfrú Johanne Stockmarr í gærkveldi var ekki vel sóttur; - mun það önnum að kenna, því nú era mánaðamót, sláturtíð og búflutn- ingar. - Ungfrúin lék þó sérlega vel í þetta sinn, og það svo, að þessi hljómleikur var beztur þeirra, sem hún hefir haldið hér. hinumegin "FarSide" eftir Gary Larson Fyrirsjáanlegt er að nokkur fyrirtæki munu tapa upphæðum sem nema milljónum á við- skiptum sínum við Stöd 3. Það fer einkum fyrir brjóstið kröfuhöfum að fyrirtækin sem eiga Stöð 3 eru vel stöndug: Árvakur sem gefur út Moggann, Árni Samúelsson og GunnarJóhannssoní Holtabúinu. Dl/segirfrá því í fréttum að hálfur milljarður sé útistandandi. GunnarM. Hansson stjórnarformaður hefur farið fram á nauðasamn- inga og býðst til að greiða 35 prósent til kröfuhafa. Að öðrum kosti verði fyr- irtæi'ið tekið til gjald- þrotaskipta. Ef gengið verður að kröfunum sé hugsanlegt að fyrirtæki á borð við Eimskip og Sjóvá Almennar komi til skjal- anna sem hluthafar. Áætl- anir eru uppi um að fyrir- tækið skili hagnaði eftir um það bil þrjú ár. Meðal kröfuhafa eru auglýsinga- stofur og Alþýdublaðið heyrir að það sé tómt mál um að tala fyrir Stöð 3 að auglýsingastofur muni nokkurn tíma benda fyrir- tækjum á stöðina sem vænlegan miðil til auglýs- ingabirtinga... Nú fer að líða að haust- fagnaði þeim se.m Guðrún Agnarsdóttir boðaði til þegar hún lagði fram reikninga vegna for- setaframboðs síns. Þá kom fram að gjöld um- fram tekjur eru 5,6 millj- ónir. Fyrirhugað er að safna uppí það gat með veisluhaldi sem fram fer í Rúgbrauðsgerðinni 18. október. Miðaverð verður 2.500 krónur og stuðn- ingsmenn Guðrúnar ætla að bjóða gestum uppá söng, dans, tónlist, rímna- kveðskap og leikþátt. Veislustjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir leikhús- stjóri Borgarleikhússins og einnig er fyrirhugað að vera með uppboð en það mun hinn orðheppni Samúel Örn Erlingsson íþróttafréttaritari RÚV annast... r Utvarpskonan Hall- dóra Friðjónsdóttir gerði sér ferð til Danmerk- ur síðsumars og hafði með sér segulbandstæki og míkrófón. Hún tók við- töl við fjölda roskinna homma og lesbía sem höfðu orðið landflótta fyr- ir margt löngu og eru nú búsettir í Kaupmanna- höfn. Halldóra er að vinna úr þessum viðtölum og væntanlega mun hlust- endum Hásar 7 bjóðast forvitnilegur útvarpsþátt- ur þegar hún hefur sett saman það efni sem hún viðaði að sér í Danmerkur- ferðinni... „Já, það þýðir ekkert að horfa á mig, hálfvitinn þinn!... Það var ÉG sem vildi fljúga!" m m förnum vegi Hvað fannst þér um landsfund Sjálfstæðisflokksins? Sveinn Gunnarsson tölvumaður: Mér fannst voðalega lítið til hans koma. Þetta var alherjar halelúja- samkoma. Þröstur Valdimarsson raf- eindavirki: Ég fylgdist ekkert með honum. Krístín Eva Þórhallsdóttir nemi: Hann var litríkur, um- búðarmikill en innihaldslaus. Jón Hrafn Jónsson mál- ari: Eina sem ég man frá hon- um er að þar kom saman stærsta kvenfélag landsins. Jakob Árnason banka- maður: Ég hef bara ekkert heyrt frá honum.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.