Alþýðublaðið - 15.10.1996, Page 4

Alþýðublaðið - 15.10.1996, Page 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1996 ■ Elizabeth Barrett Browning hefur löngum verið talin ein merkasta skáldkona Breta. Hún var heilsulítil mestan hluta ævinnar, kúguð af harð- lyndum föður og elskuð af skáldi sem nam hana á brott úr föðurhúsum. Kolbrún Bergþórsdóttirsegirfrá skáldkonunni IUmennið í ástarsögu Elizabet- har Barrett og Robert Brown- ing er hinn harðlyndi faðir sem ætlaði dóttur sinni að lifa í einu og öllu eftir reglum sem hann hafði sett. Kvenhetjan er heilsulaus og hjálparvana, gáfuð og ofurviðkvæm og riddarinn er rómant- ískt skáld sem festi ást á henni um leið og hann leit hana augum. Faðirinn var Edward Moulton Barr- ett. Hann ólst upp á Jamaica þar sem Barrett ættin hafði auðgast á sykur- framleiðslu. Foreldrar Edwards slitu samvistum eftir átakamikla sambúð og hann hélt með móður sinni til Eng- lands. Móðirin hafði ofurást á syni sínum og þjónaði öllum dyntum hans. Fyrir vikið lærði hann aldrei að bera virðingu fyrir skoðunum eða tilfinn- ingum annarra. Mary, eiginkona hans, sem hann giftist þegar hann var 19 ára, lærði snemma að ganga ekki á móti vilja eiginmanns síns. Hún unni hon- um mjög en einræðistilburðir hans mörkuðu sálarlíf hennar og sviptu hana gleði. Hjónin bjuggu í Herfordshire þar sem Edward gerðist virðulegur og um- svifamikill landeigandi og gegndi þar jafnframt um tíma starfi sýslumanns. Bömin urðu ellefu. Elsta dóttirin, El- izabeth, fæddist árið 1806. Hún erfði erfiða skapgerð frá föður sínum og brást hin versta við ef umhverfið lét ekki að vilja hennar. Með árunum færðist þó yfir hana ró og hún lærði að hemja erfiða lund. Sex ára gömul var Elizabeth bytjuð að yrkja Ijóð. Hún sótti í bækur og sankaði að sér fróðleik og þeir sem kynni höfðu af henni töldu að hún Elízabeth Barrett Browning. Ástarsaga hennar og Roberts Browning hef- ur verið sögð í ótal bókum, leikriti og söngleik, enda er þar allt að finna sem prýða má eftirminnilega ástarsögu. væri undrabarn. Hún var afburða námsmaður og fyrir fimmtán ára aldur hafði hún lesið verk róttækra höfunda á borð við Paine, Maiy Wollstonecraft og Voltaire. Hún var ákveðin í því, þegar hún yrði fullorðin, að kiæðast karlmannsfötum og halda út í heim að ffeista gæfunnar. Hún var sjálfsöruggt og viljasterkt bam sem gjörbreyttist á unglingsáram, glataði sjálfstrausti, varð erfið í um- gengni og mjög grátgjarnt. Henni fannst sem hún myndi ekki geta upp- fyllt þær kröfur sem gerðar voru til hennar. Ofurviðkvæm, full höfnunar- tilfinningar þráði hún ást og viður- kenningu. Hún veiktist alvarlega, lá rúmföst mánuðum saman og hætti að mestu að nærast. Læknar stóðu ráð- þrota frammi fyrir veikindunum en allt bendir til að Elizabeth hafi þjáðst af anorexiu nervosa, geðrænni truflun sem veldur alvarlegu lystarleysi. Hún var send á heilsuhæli þar sem henni tókst að ná heilsu og andlegu jafhvægi á ný. Þegar heim var komið leitaði hún enn sem fyrr skjóls í ljóða- gerð og lestri bóka. Hún var einræn, fór sjaldnast úr húsi og forðaðist sam- skipti við aðra en nánustu fjölskyldu- meðlimi. Hún var ákaflega háð föður sínum og vildi ekkert gera honum á móti skapi enda var hún eftirlætisbam hans. „Enginn á eftir að elska þig eins og ég,“ sagði móðir hennar eitt við hana, en móðirin var henni aldrei jafn mikils virði og faðirinn. í návist dauðans Elizabeth leið venjulega illa innan um fólk nema hún þekkti það þeim mun betur. Hún eignaðist örfá vini á ævinni. Einn þeirra var Hugh Boyd, HafiB samband til ai fð samanburö Sími 511B000 Vátryggt aflBEX MOTOR POLICIES at LLOYD'S Klapparstíg 28 • 101 Reykjavík • Fax 511-6001 I I I I blindur fræðimaður, sem var helmingi eldri en Elizabeth. Hún kynntist hon- um þegar hún var tvítug og með þeim tókst áratuga langur náin vinskapur. Hin fáláta Elizabeth heillaðist af Boyd sem var giftur og átti eina dóttur. Skáldkonan unga, sem alla jafna leit- aði ekki eftir félagsskap að fyrra bragði, átti til að mæta í heimsóknir til Boyd klukkan sjö á morgnana við litla hrifningu eiginkonu hans. Elizabeth sá í Boyd hetjuímynd. Honum þótti sér- lega vænt um hana og sýndi henni æt- íð meiri ástúð og áhuga en eigin dótt- Annar vinur var George Hunter, prestur sem þótti fádæma mikill ræðu- skömngur. Hann bjó við mikla harma í einkalífi því eiginkona hans hafði misst vitið eftir fæðingu dóttur þeirra og var vistuð á geðveikrahæli. Eliza- beth leit á Hunter sem tragíska hetju og tók dóttur hans undir vemdarvæng sinn. Þegar Hunter varð ástfangin af skáldkonunni og bar sig illa þreyttist hún á honum. Hún hafði þá staðföstu skoðun að karlmenn ættu að bera sig vel hvað sem á gengi og síst af öllu væla utan í konum. Hún átti föður sinn, sem var henni eins og guð, en ást hans byggði á hlýðni og undirgefni hennar. Hún átti einnig hin blinda Boyd sem hún tilbað og var henni eins konar föðurímynd en hún var ekki ástfangin af honum. Hana dreymdi um að hitta mann sem yrði henni allt. Elizabeth leit þó hjónaband fremur tortryggnum augum. Hún var sérvitur, sérsinna og sjálfstæð og vissi vel að fmmkvæði í eigin lífi myndi hún að öllum líkindum glata með giftingu. Hún vildi yrkja, lesa og fræðast. „Eg virðist lifa meðan ég skrifa. Að yrkja er mér lífið sjálft,“ sagði hún. Og svo virtist sem hún ætti eftir að lifa lífinu einmitt þannig, ein við skriítir. Fjárhagserfiðleikar leiddu til þess að Edward Barrett fluttist til London

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.