Alþýðublaðið - 18.10.1996, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 18.10.1996, Blaðsíða 1
■ Fjármálaráðherra setur nýjar reglur eftir þrýsting frá tóbaksinnflytjendum Hörð átök innan stjórnarliðsins um tóbaksvarnir Heilbrigðisráðherra óskar eftir því að þingið rannsaki hvort fjármála- ráðherra fór út fyrir gildandi lög. Össur Skarphéðinsson: Enn eitt dæmi um hvernig Sjálfstæðis- flokkurinn snýr Framsókn niður í hverju málinu á fætur öðru. „Ég get ekki betur séð en heilbrigð- isráðherra sé að óska eftir því að þing- ið rannsaki hvort fjármálaráðherrann hafi farið út fyrir gildandi lög,“ sagði Össur Skarphéðinsson formaður heil- brigðisnefndar Alþingis, en í gær spunnust mjög harðar umræður á þinginu um tóbaksvarnir. Siv Frið- leifsdóttir þingmaður Framsóknar full- yrti að reglur sem Friðrik Sophusson - segir Kristinn sem lengi hefur haft áhuga á endurbættu flokksstarfi og segir sig njóta stuðnings innan flokksins. „Já, það stemmir. Ég er búinn að tala við alla þingmenn flokksins og senda öllum formönnum flokksfé- laganna bréf þar sem ég tíunda mín- ar hugmyndir," segir Kristinn T. Haraldsson, betur þekktur sem Kiddi rót, í samtali við Alþýðublað- t'ð. Hann hyggst sækjast eftir emb- ætti formanns framkvæmdastjórnar Alþýðuflokksins á komandi flokks- þingi. Talið er fullvíst að Guðmund- ur Oddsson, núverandi formaður framkvæmdastjórnar, muni ekki gefa kost á sér til áframhaldandi setu. Kristinn telur pottþétt að bitist verði um stöðuna og að þetta verði hitamál. „Það hleypur enginn í þessa stöðu. Ég hef heyrt að fleiri muni sækjast eftir henni en hef ekki heyit nein nöfn. Ég er ekki í þessu í pólitískum tilgangi heldur lít ég á þetta starf sem vélina í bílnum sem knýr áfram flokksstarfið. I þessu starfi eru engar pólitískar línur lagð- ar en það hefur verið viðvarandi misskilningur," segir Kristinn. Hann telur þetta vanþakklátt starf sem iðulega sætir gagnrýni enda eigi formaður framkvæmdastjórnar að tengja saman skrifstofu flokks- fjármálaráðherra setti muni stórauka reykingar. Þá kom fram að bæði tób- aksvamamefnd og heilbrigðisráðherra gerðu athugasemdir við reglumar, en ekkert tillit var tekið til athugasemda þeirra. Umræðumar spunnust vegna þingsályktunartillögu sem gerir ráð íyrir að tengsl vísitölu og tóbaksverðs séu rofin. Reglur um innfiutning á tóbaki, sem fjármálaráðherra hefur staðfest, vöktu harða gagnrýni, bæði stjómarandstöðunnar og framsóknar- manna. Friðrik Sophusson sagði að með reglunum ætti að gera nýjum síg- arettutegundum kleift að ná fótfestu á markaðinum en aðrar ættu að detta út. f máli ráðherra kom fram að umboðs- menn á vegum tóbaksfyrirtækisins ins, flokksfélög og þingflokk. En af hverju sækist hann þá eftir stöð- unni? „Það hefur alltaf verið áhugamál mitt að koma á almennilegu flokks- starfi. Formaður framkvæmda- stjórnar ber ábyrgð á því og ég tel löngu tímabært að hræra uppí starf- inu sem því miður er ekki mikið. Ég hef lagt fram hugmyndir mínar um hvernig hægt er að stuðla að betra flokksstarfi en tel ekki rétt á þessu stigi að greina frá því hvað felst í þeim hugmyndum. Ég veit að ég hef töluverðan stuðning þó að ég vilji ekki gefa það upp hvar hann liggur enda vil ég ekki blanda þessu starfi saman við pólitísk þrætuepli,“ segir Kristinn. - segir Gestur G. Gestsson for- maðurSUJ. , J>etta verður almennur eldhúsdagur þar sem farið verður yfir málefhastöðu ungra jafnaðarmanna,“ segir Gestur G. Gestsson formaður Sambands ungra jafnaðarmanna, en ungir jafnað- armenn halda sambandsþing sitt nú um helgina. Gestur segir að málefna- staða sambandsins og baráttumál þess Philip Morris óskuðu eftir endurskoð- un á reglunum. Þeir tóku sínar tegund- ir af markaði á íslandi þegar lögfest var að viðvaranir um skaðsemi reyk- inga skyldu settar á sígarettupakka. Friðrik sagði að nýju reglurnar væru byggðar á lögfræðiáliti, en þegar hann var knúinn svara um það atriði, kvaðst hann ekki muna betur en álitið hefði verið munnlegt. Siv gagnrýndi ráðherrann harkalega og sagði að reglurnar myndu auka reykingar og að með þeim væri unnið gegn forvarnarstarfi heilbrigðisráð- herra. Bæði Siv og Ingibjörg Pálma- dóttir heilbrigðisráðherra óskuðu eftir því að heilbrigðisnefnd Alþingis tæki reglumar til umfjöllunar, og Ingibjörg ■ Sókn sendir ríkisstjórn- inni harðorða ályktun Yfirþyrmandi óöryggi starfsfólks - segir Þórunn H. Sveinbjörnsdótt- irformaðurSóknar „Á fundinum voru 170 til 180 manns og þar var samþykkt að mótmæla harðlega þeim mikla niðurskurði sem nú á sér stað í heilbrigðiskerfinu. í fjárlaga- frumvarpinu kveður á um fleiri hundruð milljóna niðurskurð í þeim geira og við munum vissu- lega beita okkur í því máli í komandi kjarasamningum,“ seg- ir Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir í samtali við Alþýðublaðið Starfsmannafélagið Sókn hélt fjölmennan fund í Rúgbrauðs- gerðinni á miðvikudagskvöld. í séu mjög skýr. „Ungir jafnaðarmenn hafi á undanfömum árum skapað sér sérstöðu í mörgum mikilvægum mála- flokkum, og má þar nefna Evrópumál, landbúnaðar- og sjávarútvegsmál. Ólíkt öðrum ungliðahreyfingum hafa ungir jafnaðarmenn sett fram bæði lausnir og leiðir í þeim málum sem eiga eftir að móta samfélagið á næstu öld,“ sagði Gestur. dró í efa að þær væm nauðsynlegar út frá gildandi lögum. Þá lýsti Siv þeirri skoðun sinni að ríkislögmaður ætti að fara yfir reglur fjármálaráðherra, og rannsaka hvort staðhæfing fjármála- ráðherra væri rétt, um að nauðsynlegt hefði verið að setja reglumar vegna gildandi laga. Össur Skarphéðinsson gagnrýndi fjármálaráðherra harðlega fyrir að setja reglur um innflutning á tóbaki vegna þrýstings ffá tóbaksinnflytjend- um. Þá sagði hann að málið í heild væri enn eitt dæmi um hvemig Sjálf- stæðisflokkurinn sneri Framsókn nið- ur í hveiju málinu á fætur öðm, því ekkert tillit hefði verið tekið til at- hugasemda framsóknamianna. ályktun sem send var ríkis- stjórninni segir meðal annars: „Enn á ný ætlast ríkisvaldið til þess að velferðarkerfið verði skiptimynt í kjarasamningum. Fundurinn telur ólíðandi að verkalýðshreyfingunni skuli ætl- að að.semja í hverri samninga- lotunni á fætur annarri um áframhald þess velferðarkerfis sem alþýða þessa lands hefur skapað í áranna rás og fordæmir harðlega slíkan málatilbúnað.“ Þórunn segir ekkert nýtt að ábyrgðinni á velferðarkerfinu sé varpað á launafólk. „Við höfum þurft að kaupa þetta aftur og aftur. f vor sendum við ályktun þar sem við fórum fram á að ekki yrði um handahófskenndan niðurskurð í heilbrigðiskerfinu að ræða en það er ekki að sjá að tekið sé tillit til þess í fjárlaga- frumvarpinu. Við sjáum ekki fram á annað en að greiðsluþátt- taka verði miklum mun harðari en verið hefur. Réttindi starfs- fólk eru lítil sem engin. Það eru mjög erfiðir hlutir sem verið er að fara í gegnum,“ segir Þórunn. Ályktun stjórnar Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur frá 14. október Stjórn Alþýðuflokksfélags Reykja- víkur hvetur Jón Baldvin Hanni- balsson til að gefa áfram kost á sér til formennsku í Alþýðuflokknum - Jafnaðarmannaflokki íslands á komandi flokksþingi. FLOKKSÞING Hver verður formaður... framkvæmdastjórnar? Ungir jafnaðarmenn Samband ungra jafnaðarmanna heldur sam- bandsþing sitt dagana 18. og 19. október næstkomandi. Dagskrá 42. sambandsþings Sambands ungra jafnaðarmanna, haldið í Breiðabliks- skálanum í Bláfjöllum 18.19. október 1996: Föstudagur 18. október: Kl: 18:00 - 19:30: Greiðsla þinggjalda og afhending þinggagna. Kl: 19:30 - 19:45: Setning þingsins. Gestur G. Gestsson, formaður SUJ, flytur ávarp og set- ur þingið. Kl: 19:45 - 20:00: Kosning starfs- manna þingsins: Þingforseta, varaforseta, aðalritara, vararitara, þriggja manna kjör- bréfanefndar, 7 manna nefndanefndar, for- stöðumanna málefnahópa. Kl: 20:00 - 21:00: Skýrsla framkvæmdastjórnar SUJ, skýrsla framkvæmdastjóra SUJ, skýrsla gjaldkera SUJ, skýrsla formanns styrktarsjóðs SUJ, skýrslur forseta málstofa SUJ. Kl: 21:00 - 21:30: Umræður um skýrslur. Kl: 21:30 - 22:00: Lagabreytingar. Kl: 22:30 Kvöldvaka og uppistandsdagskrá í umsjá fráfarandi framkvæmdastjórnar. Laugardagur 19. október: Kl: 9:00 - 10:00: Morgunverður. Kl: 10:00 - 12:30: Fundir mál- efnahópa. Kl: 12:30 - 13:30: Matarhlé. Kl: 13:30 - 14:15: Álit málefnahópa, almennar umræöur. Kl: 14:15 - 15:00: Umræður og af- greiðsla ályktana. Kl: 15:00 - 16:00: Kosning framkvæmdastjórnar SUJ. Kl: 16:00 - 16:45: Kosningar í málstofur SUJ, stjórn styrktar- sjóðs SUJ, tveggja endurskoðenda og tveggja til vara. Kl: 16:45 - 18:00: Stjórnmála- ályktun 42. sambandsþings SUJ, umræöur og afgreiðsla. Kl: 18:00 - 18:15: Þingslit. Kl: 20:00 Hátíðardagskrá og kvöldverður! Heiö- ursgestir veröa Jón Baldvin Hannibals- son og Bryndís Schram. Allir jafnaðar- menn, ungir sem gamlir, eru velkomnir. Rúta fer frá Hverfisgötu 8-10 kl. 19:15 á hátíðar- dagskrána í Breiðabliksskálanum þann 19. október. Tilkynnið þátttöku í s.561 7750 eftir kl. 16:00 í dag, annars í s. 552 9244. ■ Kristinn H. Haraldsson sækist eftir for- mennsku í framkvæmdastjórn Alþýðuflokksins Eins og vélin í bílnum sem knýr flokksstarfið ■ Sambandsþing ungra jafnaðarmanna haldið um helgina Höfum skapað okkur sérstöðu Brauðostur kg/stk. 20% LÆKKUN VERÐ NU: 593 kr. kílóið. VERÐ ÁÐUR: kílóið. ÞU SPARAR: 149 kr. á hvert kíló. OSTAOG SMIÖRSALAN SE

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.