Alþýðublaðið - 18.10.1996, Síða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
u r
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996
Framleiðsla og sala á fiski-
kerum frá Borgarplasti hef-
ur stóraukist á síðustu ár-
um og hefur framleiðslan
verið seld til um 30 landa
auk innanlandsmarkaðar
Veltan á
þessu ári um
380 milljónir
- segir Þorsteinn Óli Sigurðsson
sölu- og markaðsstjóri
„Við reiknum með 35 - 40% veltu-
aukningu milli ára sem þýðir að veltan
fari í um 380 milljónir á þessu ári. Það
hefur þegar orðið 170% veltuaukning
í útflutningi á þessu ári og gera má ráð
Þorsteinn Óli Sigurðsson markaðsstjóri Borgarpiasts. Ljósm. e. ói.
fyrir að við flytjum út fyrir 120 til 130
milljónir króna á árinu,“ sagði Þor-
steinni Óli Sigurðsson sölu- og mark-
aðsstjóri Borgarplasts hf. í samtali við
blaðið.
Fyrirtækið framleiðir ýmsa hluti
fyrir sjávarútveg, þar á meðal einangr-
uð fiskiker, en gífurleg söluaukning
hefur orðið á þeirri framleiðslu, bæði
innanlands og erlendis. En hvað veld-
ur þessari aukningu á sölu fiskikera?
„Fyrir þremur árum fengum við
ISO 9001 gæðavottun. Til að lýsa því
hveiju það hefur breytt í starfseminni
héma innanhúss má nefna, að galla-
prósenta í framleiðslu var áætluð up-
pundir 5%. Núna erum við hins vegar
óánægðir ef hún fer upp fyrir hálft
prósent. Þetta þýðir að varan er mjög
jafngóð í framleiðslunni og gæðin
hafa aukist. Það er það sem er að skila
sér auk þess sem við höfum stóraukið
sölustarf okkar og það er orðið mjög
öflugt.“
Fer framleiðslan víða um heim?
,Já, ætli við höfum ekki selt til um
þijátíu landa og kaupendur eru útgerð-
FLOTTOGS HLERAR
FYRIR ALLAR FLOTTOGS VEIÐAR"
J. HINRIKSSON H.F.
SUÐARVOGI.4
104 REYKJAVIK
SÍMAR 588 6677 / 568 0775
MYNDSENDIR 568 9007
/ /
FRAMLEIÐENDUR TOGBUNAÐARIARATUGI"
■ t
ar- og fiskvinnslufyrirtæki eins og hér
heima. Ég get nefnt sem dæmi um
hvað kerin fara víða að um daginn fór
gámur frá okkur til Filippseyja og við
höfum selt til Argentínu, Suður-Afr-
íku og Perú. Við framleiðum sex
stærðir af kemm fyrir sjávarútveginn,
frá 300 lítra upp í þúsund lítra,“ sagði
Þorsteinn ÓIi Sigurðsson.
Borgarplast var stofnað fyrir aldar-
fjórðungi í Borgamesi og hóf þá fram-
leiðslu á frauðplasti. Sú framleiðsla er
enn í Borgarnesi en síðan er verk-
smiðja á Seltjamamesi þar sem hverfi-
steypan fer fram. Búið er að kaupa
nýjan vélbúnað til þeirrar framleiðslu
sem þrefaldar framleiðsluna.
Veiðarfærafyrirtækið
Dfmon hf. hefur sent frá
sér nýja flotlínu sem hefur
vakið mikla athygli.
Sníkjulínan
fiskar
og fiskar
„Menn hafa verið að veiða með
þessari nýju línu út af Reykjanes-
hryggnum. Hún er lögð lóðrétt og er
lögð á botn sem er mjög sár og menn
hafa ekki náð annarri línu uppaf. Það
er mjög stutt á milli króka á þessari
línu og fiskurinn virðist lesa sig upp
eftir henni. Menn em að vinna á mun
færri króka en áður og munar þar lík-
lega um þriðjung, sem þýðir mun
minni beitu,“ sagði Einar Sævarsson
hjá veiðarfærafyrirtækinu Dímon hf. í
spjalli við blaðið.
Hin nýja flotlína var sett á markað í
sumar. Éinar sagði að hún hefði verið
þróuð í samvinnu við norska veiðar-
færafyrirtækið A/S Fiskvegn sem
Dímon er í samstarfi við. Hann sagði
að línan yrði þróuð áfiram í samvinnu
við sjómenn, en hún hefði vakið mikla
athygli og ánægju meðal sjómanna.
Enda er það skiljanlegt í ljósi þess að
með nýju flotlínunni þarf kannski að-
eins að beita um 10 þúsund króka í
stað allt að 30 þúsund á venjulegum
línuveiðum.
Þeir hjá Dímon kalla þessa nýju
línu „sníkjulínu". Það nafn byggir á
gömlu norsku orði um tækni sem
þessa, en einnig er þetta gamalt ís-
lenskt heiti á hákarlaslóð. Veiðarfæra-
fyrirtækið Dímon hefur starfað í nokk-
ur ár og er nú til húsa að Austurbugt
við Reykjavíkurhöfn.
„Við erum með alls konar veiðar-
færi, mest fyrir báta. Auk línunnar
höfum við allt til netaveiða, grásleppu,
þorsk, ýsu og ufsanetaveiða. Við
íeggjum aðaláherslu á að þjóna báta-
flotanum,“ sagði Einar Sævarsson.
Aukin fullvinnsla á sjávar-
afurðum hérlendis eykur
ekki aðeins atvinnu í fisk-
vinnslufyrirtækjum og
verðmæti útflutnings, held-
ur hefur hún keðjuverkandi
áhrif í atvinnulífinu
Veruleg verð-
mætaaukning
í framleiðslu
fiskumbúða
-segir Eysteinn Helgason fram-
kvæmdastjóri Plastprents hf.
Aukin fullvinnsla sjávarafurða hér á
landi hefur keðjuverkandi áhrif í at-
vinnulífinu. Gott dæmi um það er er
að stærsti vaxtarbroddur í framleiðslu
Plasprents hf. er í umbúðum utan um
fisk sem unnin er á neytendamarkað
hér á landi. „Allar okkar fjárfestingar
um þessar mundir miðað að því að
þjóna þessum smásölupakkningum
betur, bæði hér innanlands og erlend-
is,“ sagði Eysteinn Helgason fram-
kvæmdastjóri Plastprents í samtali við
Alþýðublaðið.
„Það hefur orðið gjörbreyting hvað
þetta varðar á síðustu árum. Fram að
því vorum við með framleiðslu á
hefðbundnum umbúðum fyrir sjávar-
útveginn, en að undanfömu hefur orð-
ið vemleg verðmætaaukning á þessum