Alþýðublaðið - 18.10.1996, Page 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996
Unnið við iöndun úr Helgu RE í Reykjavíkurhöfn eftir fyrstu veiðiferðina
sem skilaði 64 milljónum í aflaverðmæti. Mynd E. ói.
Helga RE komin úr fyrstu veiðiferðinni
Aflaverðmæti
64 milljónir
„Skipið hefur reynst alveg sérstak-
lega vel og allur búnaður góður. Það
voru smá byijunarörðugleikar eins og
við mátti búast en nú er það að koma
úr sinni fyrstu veiðiferð og verið að
landa 350 tonnum af rækju að afla-
verðmæti um 64 milljónir króna,“
sagði Armann Armannsson forstjóri
Ingimundar hf. í spjalli við Alþýðu-
blaðið í síðustu viku.
Nýtt skip Ingimundar, Helga RE 49
kom til landsins I. september. Það var
smíðað í Slippen í Sandnessjoen í
Noregi og er allt hið glæsilegasta. Afl-
inn í fyrstu veiðiferðinni fékkst á
rækjumiðunum norður af Eyjafirði.
„Við verðum á eingöngu á rækju
alla vega næstu árin meðan stofnin er
svona sterkur. Við höfum sameinað
aflaheimildir fjögurra skipa í afla-
- heimild Helgu sem nemur um 2.700
þorskígildum og það nægir okkur al-
veg,“ sagði Armann. Hann sagði að
fréttir um verðlækkun á rækju á mörk-
uðum snerti lítið útgerð Helgu RE.
.JÞessi lækkun á eingöngu við pill-
aða rækju. Það er mjög h'tið af okkar
rækju sem fer til pillunar. Stærsta
rækjan er heilfryst um borð fyrir Jap-
ansmarkað og síðan er suðurækja sem
fer til Evrópulanda. Þessi rækja er seld
ópilluð og verð á henni hefur ekki
lækkað. Þetta er úrvalsvara."
í áhöfn Helgu eru ráðnir 30 menn,
20 um borð í einu, en tíu í fríi, enda
eru túramir oft langir. Ekki er hægt að
segja að mikil yfirbygging sé í útgerð
skipsins.
„Ég er einn í fullu starfi í landi, en
er með skrifstofumann í hálfu starfi
sem vinnur fyrir hádegi," sagði Ar-
mann Armannsson.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
Kosning fulltrúa á 48. flokks-
þing Alþýðuf lokksins - Jafnaðar-
mannaflokks Islands
Kosning fulltrúa félagsins á 48. flokksþing Alþýðuflokksins fer fram á
skrifstofu flokksins Hverfisgötu 8- 10 laugardaginn 26. október kl.
13.00-18.00 og sunnudaginn 27. október kl. 13.00-16.00. Listi upp-
stillingarnefndar um fulltrúa liggur frammi á skrifstofu flokksins frá
og með 17. október. Stjórnin.
Bæjarmálaráð
Alþýðuflokks Hafnarfjarðar
Fundur verður í bæjarmálaráði flokksins mánudaginn
21. október næstkomandi kl. 20.30. í Alþýðuhúsinu.
Dagskrá:
Tillögur að nýrri stjórnsýslu fyrir Hafnarfjörð
Ómar Smári Ármannsson
Mál fyrir bæjarráði
ÖNNUR MÁL
C
Landsvirkjun
ÚTBOÐ
Sandblástur og málun
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í að sandblása
og mála stálklæðningar í vatnsvegum Búrfellsstöðvar, í
samræmi við útboðsgögn BÚR-07.
Verkið felst í að sandblása og mála sográsir, snigla, þrýsti-
pípur og greiningu fjögurra af sex vélasamstæðum. Sam-
tals um 1563 fermetrar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar, Háa-
leitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá og með mánudeginum 21.
október 1996 gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 3000,-
m. VSK fyrir hvert eintak.
Tekið verður á mót tilboðum á skrifstofu Landsvirkjunar að
Háaleitisbraut 68, Reykjavík til opnunar miðvikudaginn 6.
nóvember 1996, kl. 14:00. Fulltrúum bjóðenda er heimilt að
vera viðstaddir opnunina.
■ Samstarfsnefnd jafnaðarmannaflokka og verkalýðshreyfinga á Norð-
urlöndum fundaði um síðustu helgi í Helsinki. Jón Baldvin Hannibals-
son varfulltrúi íslenskra jafnaðarmanna á fundinum
Atvi n n ustef na
og Evrópusamstarf
Jafnaðarmenn teija að sameinast beri um sáttmála sem hafi að markmiði
að draga úr atvinnuleysi, skapa fulla atvinnu og tryggja Evrópusamband-
inu þau stjórntæki sem þurfi til að fylgja fram slíkri stefnu," segir Jón
Baldvin, en þetta var ein af niðurstöðum fundar Samstarfsnefndar jafnað-
armannaflokka og verkalýðshreyfinga á Norðurlöndum sem haldin var
um síðustu helgi í Helsinki.
Samstarfsnefnd jafnaðarmanna-
flokka og verkalýðshreyfmga á Norð-
urlöndum (SAMAK) hittist nokkrum
sinnum á ári og um seinustu helgi hélt
hún fund sinn í Helsinki. f SAMAK
eiga sæti formenn jafitaðarmannaflokk-
anna á Norðurlöndum og forsetar al-
þýðusambanda annars staðar en á ís-
landi.
Paavo Lipponen var í hlutverki gest-
gjafans. Auk hans sóttu fundinn Göran
Persson forsætisráðherra Svía, Gro
Harlem Brundtland forsætisráðherra
Norðmanna, Ole Stavad varaformaður
danska jafnaðarmannaflokksins og Jón
Baldvin Hannibalsson formaður Al-
þýðuflokksins var fulltrúi íslenskra
jafnaðarmanna.
Forsetar alþýðusambandanna í lönd-
unum fjórum voru allir mættir, enda
var aðalmál fundarins atvinnustefna og
aðgerðir gegn atvinnuleysi innan Evr-
ópusamstarfsins. Ymis önnur mál voru
einnig á dagskrá. Þar má nefna mál er
varða samstarf Norðurlanda og grann-
svæða, stefnumótun er varðar Ríkjar-
áðstefnuna sem nú stendur yfir, áhersl-
ur í orkumálum og orkumarkaði á
Norðurlöndum og rædd voru drög að
skýrslu sem unnin hefur verið á vegum
verkalýðshreyfingarinnar um endumýj-
un opinbera geirans á Norðurlöndum.
Einnig var rætt um undirbúning að
fundi sem haldinn verður í Búdapest í
lok þessa mánaðar þar sem forystu-
menn jafnaðarmannaflokka í Vestur
Evrópu og forystumenn jafnaðarmanna
í Mið- og Austur Evrópu munu ræða
um opnun Evrópusambandsins til aust-
urs.
Jón Baldvin segir að umræðan um
aðalmál fundarins, atvinnustefnu og
aðgerðir gegn atvinnuleysi, hafi að
vemlegu leyti snúist um samspil ríkis-
Qármáia og atvinnustigs. „Athyglisvert
var að flestir þeir sem þessi mál reifuðu
af hálfu hinnar norrænu verkalýðs-
hreyfingar voru eindregnir stuðnings-
menn þess að þau Norðurlönd sem að-
ild eiga að Evrópusambandinu gerist
aðilar að peningamálastarfinu EMU,“
segir Jón Baldvin. „Menn telja að sam-
eiginlegur gjaldmiðill myndi hafa já-
kvæð áhrif á stöðugleika, draga úr
kostnaði við gjaldeyrisbreytingar, og
hafi þannig þegar á heildina er litið já-
kvæð áhrif á hagvöxt og þar með at-
vinnuþróun.
Á fundinum bentu menn á hversu
■ Innrás leikara í
viðskiptalífið
Ríðum
engum
feitum
gelti
- segir Öm Árnason leikari og hlut-
hafi í fyrirtækinu Hljóðsetning ehf.
„Við ríðum engum feitum gelti,
þetta er ekki stór markaður, en þetta
gæti kannski orðið ágætt þegar fram
líða stundir," segir Öm Ámason leik-
ari í samtali við Alþýðublaðid
Hljóðsetning ehf. er fyrirtæki sem
leikaramir Öm Ámason, Jóhann Sig-
urðarson og Sigurður Sigurjónsson
eiga ásamt gítarleikaranum Stefáni
Hjörleifssyni. Fyrirtækið hefur aðal-
lega einbeitt sér að talsetningum á
barnaefni fyrir sjónvarp og kvik-
myndahús en það er þensla í fyrirtæk-
gríðarlegir fjármunir færu nú í að
standa undir vaxtaafborgunum af
skuldum aðildamkjanna. Það hefði aft-
ur áhrif í þá átt að hækka vexti og
draga þannig úr fjáríéstingum og hag-
vexti. Þessi staða er í hag þeim fá-
menna hópi fjármannseigenda sem
byggir afkomu sína á vaxtatekjum, auk
þess sem sparnaði almennings væri
fremur beint að kaupum á ríkisskulda-
bréfum en til þátttöku í atvinnuh'fi."
Fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar
lögðu mikla áherslu á að félagsmála-
sáttmáli Evrópu, sem er hluti af Maast-
richsamkomulaginu, væri mikilvæg
réttindaskrá launþega. Því bæri að
stefna að því að fá hana í heild sinni
tekna inn sem skuldbindandi sameigin-
lega stefnu í grundvallarsáttmála Evr-
ópusamstarfsins. „Alveg eins og jafn-
aðarmenn telja að stefna skuli að sam-
runa gjaldmiðla og samræmdri pen-
ingamálapólitík þá telja þeir að samein-
ast beri um sáttmála sem hafi að mark-
miði að draga úr atvinnuleysi, skapa
fulla atvinnu og tryggja Evrópusam-
bandinu þau stjómtæki sem þurfi til að
fylgja fram slíkri stefnu," segir Jón
Baldvin.
„Það er vitað mál að það eru einkum
fulltrúar ríkisstjóma stærstu ríkjanna
sem standa í vegi fyrir því að þessi
stefna nái fram að ganga og þá einkum
og sér í lagi fulltrúar ríkisstjórnar
Kohls kanslara, Chiracs í Frakklandi
og Mayors í Bretlandi. Hins vegar hef-
ur mikið starf verið innt af höndum af
hálfu fulltrúa minni ríkja, ekki síst
Norðurlanda, Austurríkis, Spánverja,
Portúgala og fra.“
Tillögur í þessu máli liggja nú fyrir
en Jón Baldvin telur líkur á því að þær
nái fram að ganga á Ríkjaráðstefnunni
vera tvísýnar. „Þetta er þó dæmi um
það að sameiginleg stefnumótun á veg-
um jafnaðarmanna er farin að hafa um-
talsverð áhrif í starfi ríkisstjóma. Sama
mál, það er áhrif alþjóðavæðingar á at-
vinnustigið, var eitt af aðalmálum
þings Alþjóðasambands jafnaðarmanna
í New York í september. Niðurstaðan
er sú að þar sem jafnaðarmenn em við
völd í ríkisstjómum aðildarríkja Evr-
ópusambandsins þá reyna þeir nú að
samræma stefnumótun sína og taka
sameiginlega á vandamálum af þessu
tagi, og þá í ljósi þeirrar staðreyndar að
hvert og eitt þjóðríki hefur ekki lengur
tök á þeim þáttum sem úrslitum ráða
um atvinnustigið, svo sem eins og Ijár-
magnsflutningum, fjárfestingum,
vaxtaþróun og svo framvegis.“
Leikararnir Örn Árnason, Jóhann Sigurðarson, Stefán Hjörleifsson gítar-
leikari og Sigurður Sigurjónsson í fyrirtæki sínu Hljóðsetning.
inu því það hyggst gefa út hljóðbækur
á geisladiskum: Ljóð Davíðs Stefáns-
sonar í flutningi Arnars og Helgu
Jónsbarna, Smásögur og Vaski grí-
sinn Baddi er meðal efnis sem fyrir-
tækið sendir frá sér fyrir næstu jól.
>rJú, það er nóg að gera í listinni -
núna,“ segir Öm. Þegar fram í sækir
dofnar yfir því þegar ungt fólk ríður
fram á sjónarsviðið og við hættir að
vera ungir og fallegir. Verðurn bara
fallegir," segir Öm sem ekki vill gera
of mikið úr rekstrinum. Líkir þessu
við það að sumir em með súkkulaði-
eða bijóstsykursgerð í kjallaranum.
Öm tekur undir það að listamenn
verða seint taldir hafa viðskiptavit.
„Þess vegna höfum við Stefán með í
þessu. Hann er útskrifaður úr Versl-
unarskólanum. Hann hefur vit á því
að hugsa þetta eins og þeir hjá Eint-
skip - það er fimm ára áætlun í gangi.
Hugsanlega má hafa lífsviðurværi af
fyrirtækinu í framtíðinni,“ segir Öm.
Hljóðsetning ehf. var upphaflega
stofnað í kringum talsetningar fyrir
Stöð 3 og Örn segir ekki séð fyrir
endan á því ævintýri. Samkvæmt
heimildum blaðsins er Hljóðsetning
ehf. eitt af mörgum lyrirtækjum sem
tapar milljónum f nauðarsamningum
sem sjónvarpsstöðin hefur lagt fram.