Alþýðublaðið - 18.10.1996, Síða 7

Alþýðublaðið - 18.10.1996, Síða 7
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996 ALÞÝÐUBLAÐK) 7 myndir & skák ■ Listakonan Ragnheiður Jónsdóttir glímir við náttúruöflin, Ijós, skugga og hreyfingu Eins og að standa sjálf inm i mioju verkinu sunnudaginn lýkur í austur- sal Listasafns Kópavogs sýningu Ragnheiðar Jóns- dóttur á stórum kolateikningum en hún hefur hlotið frábæra dóma frá gagnrýnendum. Ragnheiður hefur unnið með risavaxnar kolateikning- ar frá árinu 1988 og haldið sjö sýn- ingar á slíkum verkum en alls er sýningin í Kópavogi átjánda einka- sýning Ragnheiðar og hún hlaut þriggja ára starfslaun á þessu ári. Ragnheiður Jónsdóttir var aðal- lega grafíklistakona fram að árinu 1988 en eftir það vann hún jöfnum höndum stórar teikningar og grafík. 1991 byrjaði hún á grafíksenu sem er byggð á Völuspá. Ein myndin í þeirri seríu varð kveikjan að þeirri nátturutúlkun sem er að finna í síð- ustu verkum listakonunnar. „Ég þráði að takast á við stóra fleti enda fannst mér ég vera heft af stærð pressunnar og það var lfka ágætt að losna að einhverju leyti við þau eiturefni sem fylgja graf- íkinni,“ segir Ragnheiður í samtali við Alþýðublaðið. Það er gerólík tilfinning sem fylgir því að takast á við svona verk sem eru nokkrir metrar. Það er hreinlega eins og að standa sjálf inni í miðju verksins." En hefur þig aldrei langað til að vinna með liti? „Ég málaði meðan ég var í námi og hélt eina sýningu á málverkum. En þrátt fyrir að ég hafi yndi af lit- um höfðaði grafíkin alltaf meira til mín. Það eru sömu lögmál að baki grafíkinni og kolateikningunum, það er að fást við ljós og skugga og hrynjandann í verkinu." En hvað eru þín megin viðfangs- efni í listinni? „Ég er alltaf að glíma við áhrif frá náttúrunni, síbreytileika hennar og hreyfingu. Ég hugsa að það komi sterkt fram í myndunum mín- um að ég er alin upp í eldfjalla- landi. Sjálfsagt myndi ég mála öðruvísi ef ég væri frá ólíku landi. Ég hef mótast af hrjúfu umhverfi. í þessari sýningu er ég að sýna í senn fast yfirborðið og þá óþreifan- legu orku sem yfir því býr og án afláts sverfur landið og umbreytir ásýnd þess.“ En hefurðu alltaf verið að glíma við náttúruöflin í myndunum þín- um? „Það var fyrir tuttugu árum síð- an, á tíma umbóta í samfélaginu, þegar konur voru í auknum mæli að vakna til meðvitundar um sína stöðu og taka við sér, að list þeiiTa mótaðist af þessum hræringum. Ég „Ég er alltaf að glíma við áhrif frá náttúrunni, síbreytileika hennar og hreyfingu," segir listakonan Ragnheiður Jónsdóttir. gerði myndir í þeim anda, til dæm- is tvær um kvennafrídaginn og myndröð sem hét ónefnd 1,2,3 4,5 og sýndi ólétta kjóla. Svo gekk þetta tímabil yfir og ég sneri mér að öðrum viðfangsefnum í kringum árið 1976. Þessar myndir voru börn síns tíma en þetta var einnig mjög áberandi tímabil. í heildina tekið held ég að konur vinni ekki öðru- vísi en karlar." Það fer hver að verða síðastur að sjá sýningu Ragnheiðar, í austursal Listasafns Kópavogs, eins og áður sagði lýkur henni á sunnudaginn. í vestursal Listasafnsins svo vert að minna á aðra sýningu, sýningu Þor- bjargar Höskuldsdóttur á olíumál- verkum, sem hefur einnig fengið einróma góða dóma, það er tólfta einkasýning Þorbjargar en að auki hefur hún tekið þátt í fjölda sam- sýninga hér heima og erlendis.H Rússneskir skákmenn í deildakeppninni Deildakeppni í skák er nú orðin stærsta einstaka skákmót sem Skáksamband Islands stendur fyrir. Keppnin hófst árið 1974 og hefur vaxið svo á rösklega 20 árlega líf- tíma sínum að nú er teflt í fjórum deildum, keppendur eitthvað í kringum þrjú hundriuð og því mik- ið starf fyrir skipuleggjendur. Fyr- irkomulag hefur verið í afar föst- um skorðum en hinn gríðarlegi áhugi á keppninni hlýtur að gefa Skáksambandinu færi á ýmsum endurbótum og nýjum útfærslum. Félagslegir erfiðleikar Taflfélags Reykljavikur hafa vakið mikla at- hygli að undanförnu og er nú svo komið að nær allir stórmeistarar landsins hafa yfirgefið félagið. Þá hefur TR einnig misst marga af sínum bestu félagsmálamönnum eins og Daði Örn Jónsson, Kjartan Ingvason og Þorfinn Björnsson. Málefni Taflfélgs Reykjavíkur eru það alvarleg fyrir skákhreyfinguna að full ástæða sýnist manni að for- seti Skáksambandsins Islands, Guðmundur G. Þórarinsson, beiti sér fyrir að leysa þau ágreinings- mál sem þar hafa komið upp. Þá er kannski von til þess svo hægt verði að halda upp á 100 ára afmæli þessa fornfræga taflfélags, sem Einar Benediktsson stofnaði ásamt fleirum, með sómasamlegum hætti. Formaður Ólafur H. Ólafsson greip til þess úrræðis að kalla til keppni fyrir TR tvo rússneska skákmenn og einn danskan al- þjóðameistara. Jafnframt því sem þessir þrír tefldu fyrir TR í deilda- keppninni eru þeir einnig meðal þátttakenda í haustmóti TR sem hefur þá einhverskonar alþjóðlega vigt í hugum forráðamanna taflfé- lagsins. Skák i Helgi L > - 3* Ólafsson skrifar í deildakeppninni tókst TR með þessum liðsstyrk að ná hálfs vinn- ings forskoti á helsta keppinautinn, Helli. Eftir fjórar umferðir er stað- an í 1. deild þessi: 1. TR 25 vinningar (af 32) 2. Hellir 24,5 3. Hafnarfjörður 15,5 4. Garðabær 14,5 5. Skákfélag Akureyrar 14 6. TR-b 13,5 7. Taflfélag Kópavogs 12,5 8. Tafl- félag Vestfjarða 8,5. í 2. deild hefur c-sveit TR ör- ugga forystu með 17 vinninga en b- sveit Akureyringa er í 2. sæti með 13 vinninga. Deildakeppnin er oft prýðistækifæri fyrir unga og efnilega skákmenn að sanna getu sína í keppni við þekkta meistara. Einar Hjalti Jenssson var í liði ís- lands sem vann eftirminnilegan sigur á Ólympíumóti unglinga 16 ára og yngri vorið 1995. Hann hef- ur tekið miklum framförum undan- farið og vann sinn fyrsta stórmeist- ara þegar í fyrstu umferð. Taflfé- lag Kópavogs hefur orðið að sjá eftir mörgum af máttarstólpum sín- um yfir til annarra félaga og fram- farir Einars Hjalta því góð tíðindi fyrir félagið. I 1. umferð deildar- keppninnar tefldi hann við nýjasta stórmeistarann í herbúðum Hellis- manna: Hvítt: Jón L. Árnason, Hellir Svart: Einar Hjalti Jensson T.K. Grunfelds-vörn 1. c4 Rf6 2. Rf3 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. e3 Bg7 6. Bc4 Rb6 7. Bb3 c5 8. d3 0-0 9. h3 Rc6 10. Re4 Rd7 11. 0-0 b6 12. d4 cxd4 13. exd4 Bb7 14. Hel Rf6 15. Rxf6+ Bxf6 16. Bh6 He8 17. d5 Rb8 (17. ... Ra5 strandaði á Ba4 og svartur tapar skiptamun.) 18. Re5 Rd7 (Hér lagðist Jón L. í þunga þanka. Veikleiki f7-reitsins kallar beinlínis á fléttuhugrenningar. Ég er ekki viss um að Jón hefði látið svo ófriðlega undir einhverjum öðrum kringumstæðum en hér lét hann slag standa. 19. Rc6 kemur sterklega til greina einnig 19. Rxd7) 19. Rxf7?! Kxf7 20. d6+ e6 21. Hxe6 Hxe6 22. Bxe6+ Kxe6 23. Dg4+ Kxd6 24. Hdl+ Bd5 25. Df3 (Sennilega hefur Jón séð þessa stöðu fyrir þegar han fórnaði á f7 en láðst að taka með í reikninginn næsta leik Einars Hjalta.) 25. ... Dg8! 26. Bf4+ Be5 27. Da3+ Kc7 28. Dc3+ Kd6 29. Da3+ Rc5 30. Bxe5+ Kxe5 31. Dg3+ Ke6 32. Dg4+ Kd6 33. b4 Rd7 34. Dg3+ Ke7 35. Hel+ Be6 36. Hdl De8 37. Dh4+ Rf6 38. b5 Hd8 39. Hel Dxb5 40. Df4 Kf7 41. g4 g5 - og Jón L. gafst upp. Jón L. var ekki af baki dottinn þrátt fyrr þennan skell, því næsta dag vann hann Margeir Pétursson með svörtu og sannaði þar með enn og aftur fyrir sjálfum og öðr- um hversu miklu betur honum gengur gegn hinum sterkari skák- mönnum. ■ Alþýðu- blaðið Alnetinu sendlð ókkur línu alprent(a)itn.is

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.