Alþýðublaðið - 13.11.1996, Qupperneq 1
Miðvikudagur 13. nóvember 1996 Stofnað 1919 171. tölublað - 77. árgangur
■ Leiðarahöfundur Morgunblaðsins segir að forystumenn Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðubandalags hljóti að íhuga samstarf vegna sömu stefnu í Evrópumálum og
andstöðu við veiðileyfagjald
Fylgir Davíð stefnu
Svavars og Hjörleifs?
- spyr Sighvatur Björgvinsson.
„Athyglisvert að Morgunblað-
inu finnst Sjálfstæðisflokkurinn
helst eiga eitthvað sameigin-
legt með tilteknum hópi í Al-
þýðubandalaginu.
„Það er mjög athyglisvert að leið-
arahöfundur Morgunblaðsins, sem
þekkir mjög vel til innviða Sjálfstæð-
isflokksins, og er honum alls ekki
alltaf sammála, skuli komast að þeirri
niðurstöðu að nú eigi Sjálfstæðis-
flokkurinn helst eitthvað sameigin-
legt með tilteknum hópi innan Al-
þýðubandalagsins," sagði Sighvatur
Björgvinsson formaður Alþýðu-
flokksins um leiðara Morgunblaðsins
í gær, þar sem sagði að forystusveitir
Sjálfstæðisflokks og Alþýðubanda-
lags hljóti að íhuga samstarf, vegna
þess að flokkarnir séu samstiga í
grundvallaratriðum á borð við Evr-
ópumál og andstöðu við veiðileyfa-
gjald.
Leiðarahöfundur Morgunblaðsins
segir að um leið og Framsóknarmenn
nálgist jafhaðarmenn, sé ekki óhugs-
andi að fleiri snertifletir finnist á af-
stöðu Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
bandalags en nokkum hefði órað fyr-
ir. Um þetta sagði Sighvatur enn-
fremur: „Þá er bara einni spumingu
ósvarað: Hvort telur leiðarahöfundur
að þessi hópur innan Alþýðubanda-
lagsins hafi verið að nálgast Sjálf-
stæðisflokkinn, eða að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi verið að nálgast þann
hluta Alþýðubandalagsins sem Íýtur
forystu Svavars, Steingríms og Hjör-
leifs? Kannski Davíð Oddsson geti
svarað þessu, ef Morgunblaðið er
ófært um það.“
Morgunblaðið ijallaði einnig nokk-
uð um Alþýðuflokkinn, og kvað Sig-
hvat eiga eftir að sýna hvemig hann
ætlaði annarsvegar að ná til kjósenda
Sjálfstæðisflokksins og hinsvegar að
mynda kosningabandalag á vinstri
vængnum. Aðspurður um þessi orð
Morgunblaðsins sagði Sighvatur:
„Við emm að beijast fyrir samstarfi
jafnaðarmanna. Jafnaðarmenn er
meðal annars að finna meðal kjós-
enda Sjálfstæðisflokksins. Við viljum
að þeir taki höndum saman við aðra
jafnaðarmenn, sem era meðal annars
í Alþýðuflokknum, Alþýðubandalag-
inu, Kvennalista, Þjóðvaka, Fram-
sókn og meðal óháðra kjósenda.
Það er ekkert óljóst hvar Alþýðu-
flokkurinn haslar sér völl í pólitík-
inni. Alger samstaða var um ályktanir
flokksþingsins sem era mjög afdrátt-
arlausar og skýrar. Enginn fer í graf-
götur með fyrir hvað Alþýðuflokkur-
inn stendur. Áherslur flokksþingsins
era í fullu samræmi við nútímafega
jafnaðarstefnu, sem hefur hagsmuni
fjöldans að leiðarljósi. Jafhaðarmenn
eru í andstöðu við stefnu Sjálfstæðis-
flokksins, sem orðin er stefna sér-
hagsmuna á kostnað almannahags,"
sagði Sighvatur Björgvinsson for-
maður Alþýðuflokksins.
■ Konur í meirihluta
framkvæmdastjórnar Al-
þýðuflokksins
Petrína
hlaut flest
atkvæði
Þrír ungir jafnaðarmenn náðu
kjöri þegar valdir voru sex
framkvæmdastjórnarmenn.
Petrína Baldursdóttir varaþing-
maður frá Grindavík varð efst í kjöri
til framkvæmdastjómar. Átján gáfu
kost á sér, en kosið var um sex sæti.
Formaður framkvæmdastjórnar er
kosinn beinni kosningu, en auk þess
skipa stjórnina formaður Alþýðu-
flokksins, varaformaður, ritari og
gjaldkeri.
Alls voru 357 á kjörskrá en at-
kvæði greiddu 312. Einn seðill var
ógildur.
Eftirtaldir hlutu kosningu til fram-
kvæmdastjórnar: Petrína Baldurs-
dóttur (235 atkvæði), Gestur G.
Gestsson (230),- Hólmfríður Sveins-
dóttir (174), Hervar Gunnarsson
(165), Reynir Ólafsson (151) og Að-
alheiður Sigursveinsdóttir (138).
Röð annarra frambjóðenda var
sem hér segir: Helga E. Jónsdóttir
(114), Steindór Haraldsson (112),
Oktavía Jóhannesdóttir (95), Krist-
mundur Ásmundsson (93), Gylfi Þ.
Gíslason yngri (88), Rúnar Geir-
mundsson (61), Cecil Haraldsson
(54), Ægir Hafberg (51), Kristinn T.
Haraldsson (37), Böðvar Gíslason
(36), Sólveig Adolfsdóttir (23),
Helgi Gunnlaugsson (9).
Úrslitin þýða að konur eru nú í
meirihluta í framkvæmdastjórn
flokksins, eða sex af ellefu. Þá náðu
ungir jafnaðarmenn mjög góðum ár-
angri. Gestur er formaður Sambands
ungra jafnaðarmanna, og þær Hólm-
fríður og Aðalheiður eru liðsmenn
SUJ.
Engillinn
Emelíana
Torrini heldur útgáfu-
tónleika í kvöld í ís-
lensku óperunni. Nýi
diskurinn heitir Mer-
man en fyrsti sóló-
diskurinn hennar, sem
kom út í fyrra, seldist í
9 þúsund eintökum.
Merman ertvískiptur
að því leyti að helm-
ingur laganna er eftir
Emelíönu og Jón Ól-
afsson en hinn er eftir
erlenda höfunda.
■ Menningarstofnun Bandaríkjanna á íslandi lögð niður
Bandaríkjamennverða
andlitslausir á íslandi
- segir Þórunn Jónsdóttir að-
stoðarframkvæmdastjóri.
„Sparnaðurinn jafngildir
nokkrum skrúfum í herþotu."
„Nú er komið á hreint að stofhunin
mun loka. Verst er að Bandaríkja-
menn verða andlitslausir hér á landi,
þegar menningartengslin rofna svona
algerlega. Það er svo komið að banda-
rísk stjómvöld vilja ekki heyra minnst
á orðið menning,“ segir Þórunn Jóns-
dóttir aðstoðarframkvæmdastjóri
Menningarstofnunar Bandaríkjanna
um þá ákvörðun bandarískra stjóm-
valda að hætti rekstri stofhunarinnar.
Menningarstofnunin hefur verið rekin
undirþessu nafni síðan 1971, og gegnt
veigamiklu hlutverki í samskiptum
Bandaríkjanna og Islands.
Þórunn sagði að deildin sem hún
starfaði við hefði lagt mikla rækt við
að auka menningartengsl landanna.
Þeir íslendingar skipta trúlega þúsund-
um sem gegnum árin hafa farið til
Bandaríkjanna á vegum stofnunarinn-
ar. Fjölmargir bandarískir listamenn
og rithöfundar hafa komið til íslands
fyrir atbeina Menningarstofnunarinn-
ar, sem auk þess hefur styrkt fyrir-
lestrahald, listviðburði, útgáfustarf-
semi, leiklist og margt fleira.
Richard Lundberg hefur veitt
Menningarstofnuninni forstöðu, og
þar hafa að undanfömu unnið fjórir ís-
Íendingar í þremur og hálfu starfi.
Samdráttur hefur sett mark sitt á
starfsemina síðustu ár, og 1993 var
Ameríska bókasafnið lagt niður. Þór-
unn segir að Bandaríkjamenn reki
stofnanir af þessu tagi um allan heim,
en víðast sé verið að skera niður.
Mestur er niðurskurðurinn í Vestur-
Evrópu, enda hafa Bandaríkjamenn
einbeitt sér að því að auka tengsl við
nýfrjáls ríki Austur-Evrópu.
Þórunn segir glapræði af Banda-
ríkjamönnum að skera með svo afger-
andi hætti á menningartengsl, enda
séu þau afar þýðingarmikil í samskipt-
um ríkja: „Þetta eru smáaurar sem
sparast - jafngilda nokkram skrúfum í
herþotu.“
■ Ungir jafnaðarmenn
eru sáttir eftir flokksþingið
Ný vopn í
hendurnar
- segir Gestur G. Gestsson for-
maðurSUJ.
„Þetta var mikil gleði, mikið gaman.
Ég er tiltölulega sáttur við hlut ungs
fólks. Við hefðum mátt koma fleiram
að í flokksstjóm en hlutur okkar í fram-
kvæmdastjóm er mjög góður. Við er-
um tvö til þijú þar inni eftir því hvemig
það er metið," segir Gestur G. Gests-
son formaður SUJ um flokksþingið.
Gestur var orðaður við flest þeirra
embætta sem kosið var um en sóttist
ekki eftir neinu þeirra.
„Ég er formaður SUJ, er í fullri
vinnu að auki og það er nóg fyrir mig.
Sólahringurinn er bara 24 tímar og ég
vil geta sinnt því sem ég tek mér fyrir
hendur," segir Gestur.
Niðurstöðumar í formannskjörinu
komu honum ekki á óvart, hann bjóst
við því að kosningin milli Guðmundar
Áma Stefánssonar og Sighvats Björg-
vinssonar yrði jöfn. „En það er mjög
ánægjulegt að tekist hafi að halda
flokksþing með formannskjöri án þess
að einhverjir eftirmálar séu. Það að
kunna að vinna og kunna að tapa er
vísir að betri tíð með blóm í haga.
Grandvöllur að stóram jafnaðarmanna-
flokki eru einmitt slík vinnubrögð,"
segir Gestur. Hann segir að næsta skref
hljóti að vera að standa við öll kosn-
ingaloforðin. „Hressa uppá flokksstarf-
ið, endurskipuleggja skrifstofuna, ráða
framkvæmdastjóra og svo framvegis.
Ungir jafhaðarmenn geta nú staðið að
því í gegnum hina sterku stöðu í fram-
kvæmdastjóm flokksins. Þar emm við
komin með í hendurnar nýja mögu-
leika - ný vopn í hendumar. Við erum
þrjú af ellefu en áður var einungis einn
fulltrúi frá okkur í framkvæmdastjóm."
■ Skapgerð
Árna Magnússonar
Skapmikill
safnari
„Um Ama Magnússon hefur lengst-
um verið fjallað í nokkurs konar dýr-
lingastíl. Hann er talinn hafa verið
heiðarlegur, hreinlyndur, með sterka
réttlætiskennd. Ég er ekki að halda því
fram að það sé rangt en í erindi mín er
ég að varpa á
Arna öðru
Ijósi en því
sem tíðkast
hefur og fjalla
um öfga-
kenndustu
viðbrögð
hans,“ segir
Már Jónsson
sagnfræðing-
ur sem í
kvöld klukk-
an 20.30 flytur erindi í Skólabæ, Suð-
urgötu, sem hann nefnir Skapgerð
Áma Magnússonar. Erindið ber upp á
333. afmælisdag Áma.
„Ég beini sjónum að hinum skap-
mikla Áma Magnússyni, manni sem
átti til að reiðast ógurlega," segir Már. f
því sambandi fjalla ég um tvö mál þar
sem viðbrögð hans gefa til kynna ofsa-
fengið skap. Annars vegar þegar hann
var rétt tæplega þrítugur og Þormóður
Torfason, sagnaritari konungs, vændi
hann um að standa sig ekki sem skyldi
í viðskiptum þeirra sem tengdust bóka-
kaupum. Við þessu brást Ámi ókvæða
og hellti sér yfir Þormóð. Síðara málið,
veigameira og frægara, er þegar Magn-
ús í Bræðratungu ber upp á Áma hór-
dóm með Þórdísi konu sinni. Almennt
tóku menn ásakanir Magnúsar ekki trú-
anlegar en Ámi brást óskaplega hart
við, saksótti Magnús fyrir áburðinn og
stóð í þriggja ára stappi vegna þessa
eða allt þar til Magnús dó. Eg ætla að
fjalla um þessi mál og setja þau í sam-
hengi við aðra þætti í karaktergerð
Árna, þar á meðal söfnunaráráttu
hans.“