Alþýðublaðið - 13.11.1996, Page 2
2
ALÞÝÐUBLAÐK)
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996
s k o ð a n
21211. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Simi 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Fréttastjóri Jakob Bjarnar Grétarsson
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín ehf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Tölvupóstur alprent@itn.is
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð (lausasölu kr. 100 m/vsk
Stórsigur kvenna
Alþýðuflokksmenn hafa lítt flíkað þeirri staðreynd, að það var
ekki fyrren árið 1978 sem kona var fyrst kosin á þing fyrir flokk-
inn. Alþýðuflokkurinn var stofnaður vorið 1916 og því liðu
hvorki meira né minna en 62 ár uns fyrsta konan náði kjöri sem
þingmaður á hans vegum. Og nú, þegar flokksmenn minnast 80
ára afmælis, gætu þeir spurt hvemig standi á því að flokkurinn
sem frá öndverðu boðaði jafnrétti kynjanna, getur aðeins státað af
tveimur konum sem náð hafa kjöri í þingkosningum - Jóhönnu
Sigurðardóttur og Rannveigu Guðmundsdóttur. Það er greinilega
ekki ófyrirsynju sem því var oft haldið fram, að konur ættu erfitt
uppdráttar í Alþýðuflokknum.
Nú eru sem betur fer teikn á lofti um að þetta sé að breytast.
Einhver athyglisverðasta niðurstaða flokksþings Alþýðuflokksins
um síðustu helgi er stóraukinn hlutur kvenna í forystusveit
flokksins. Ásta B. Þorsteinsdóttir var kjörin varaformaður flokks-
ins með miklum yfirburðum, Sigrún Benediktsdóttir var klöppuð
y_ inn í embætti gjaldkera og Valgerður Guðmundsdóttir var endur-
kjörin sem ritari. Petrína Baldursdóttir varð efst í kjöri til fram-
kvæmdastjómar, og Hólmfríður Sveinsdóttir og Aðalheiður Sig-
ursveinsdóttir náðu líka kosningu, og tryggðu þannig meirihluta
kvenna í þessari mikilvægu valdastofnun flokksins. Það er eftir-
tektarvert að konur á flokksþinginu náðu kjöri til allra embætta
sem þær sóttust eftir, og sigmðu karlkyns keppinauta með stæl.
Þrátt fyrir glæsilegan árangur kvenna í kosningum á flokks-
þinginu vom þær ekki nema um þriðjungur 350 þingfulltrúa. Því
er ekki um að ræða að konur hafi gert byltingu gegn körlum í
flokknum. AJmenn samstaða myndaðist um að rétta hlut kvenna,
og sýna afstöðu flokks jafnaðarmanna í verki. Niðurstaðan var
afgerandi: Staða kvenna í flokknum er nú allt önnur en áður, og
enginn af gömlu flokkunum hefur jafnmörgum konum á að skipa
í forystusveitinni.
Pólitískir steingervingar
Morgunblaðið sendir Davíð Oddssyni formanni Sjálfstæðis-
flokksins föst skot í leiðara í gær, og er ekki annað á blaðinu að
skilja en Davíð eigi helst heima í fóstbræðralagi með Hjörleifi
Guttormssyni, og öðmm pólitískum ellilífeyrisþegum Alþýðu-
bandalagsins. I forystugrein var því slegið fram að forystusveitir
Sjálfstæðisflolíksins og Alþýðubandalagsins væru orðnar svo
samstiga í gmndvallarmálum, að flolckarnir hlytu að huga að
samstarfi. Morgunblaðið tók tvö dæmi um sálufélag forystusveita
Sjálfstæðisflolcks og Alþýðubandalags: Harkalega afstöðu gegn
aðild íslands að ESB og andstöðu gegn veiðileyfagjaldi. Reyndar
hefðu Morgunblaðsmenn sem hægast getað tíundað fleiri mál,
þar sem er alger samhljómur í skoðunum klíkunnar í kringum
Davíð og þeirra fulltrúa fortíðarinnar sem ennþá ráða mestu í Al-
þýðubandalaginu.
Það em óneitanlega tíðindi þegar Morgunblaðið setur formann
Sjálfstæðismanna í flokk með pólitískum steingervingum. En þar
á Davíð Oddsson auðvitað heima og hvergi annarsstaðar, enda
hefur enginn stjómmálamaður barist af jafnmikilli einurð gegn
framtíðinni. ■
Verða smáskjálftar á vinstri
væng að stórhlaupi?
Ég er sannfærður um að það er best fyrir okkur Fram-
sóknarmenn að halda okkur á miðjunni sjá hverju fram
vindur og halda ró okkar. Við erum að byggja upp
flokkinn f takt við breyttan tíma.
Ég mætti hinum nýja formanni Al-
þýðuflokksins og ritstjóra Alþýðu-
bíaðsins á förnum vegi á dögunum
og skiptist á við þá nokkrum orðum
sem enduðu á því að ég lofaði rit-
stjóranum að senda honum línu. Mér
er ljúft og skylt að standa við það.
Ég vil byrja á því að óska Sighvati
Björgvinssyni til hamingju með for-
mannsembættið. Vandi fylgir veg-
semd hverri. Formennska í stjórn-
málaflokki er ekki á færi neinna
meðalskussa og það er eins gott að
menn hafi harðan skráp og góðar
taugar í slíkt embætti. Sighvatur hef-
ur marga hildi háð og er ódeigur bar-
dagamaður.
Hins vegar fylgja Sighvati þær
óskir í embættið að hann sameini
vinstri menn í landinu, enda fulltrúi
og andlit „nútíma jafnaðarstefnu".
Smáskjálftar sameiningarinnar hafa
verið tíðir á þessu sumri og hausti,
og er nú beðið eftir því hvort stíflur
Grímsvatna vanafestu og sérskoðana
springa og úr verður Skeiðarárhlaup
og nýtt pólitískt landslag.
Það getur verið hentugt að for-
ustumennirnir tali saman um að
rugla reitum sínum, en á einhverju
stigi sameiningarferilsins hlýtur þó
að þurfa að tala um málefhi.
Alþýðuflokkurinn og Jón
Baldvin.
Alþýðuflokkurinn skar sig úr öðr-
um flokkum undir stjóm Jóns Bald-
vins að því leiti að hann markaði þá
stefnu að rétt væri að ganga í Evr-
ópusambandið. Vafalaust eru skiptar
skoðanir í þessu í öllum flokkum, en
eindregnust andstaða við þessa inn-
göngu er þó í þeim flokkum sem
eiga að ganga fram undir sama merki
í næstu kosningum ef draumur sam-
einingarsinna rætist. Nú eru þær
fréttir af flokksþingi Alþýðuflokks-
ins að stefnan í Evrópumálum hafi
verið áréttuð.
Þetta er ekki hægt að afgreiða sem
smámál. Stefna flokkanna um sam-
skipti við erlend ríki er það sem
framar öðru skapar vatnaskilin í ís-
lenskum stjórnmálum og Alþýðu-
flokkurinn hafði óneitanlega sér-
stöðu og skýra stefnu að þessu leiti.
Kosningabandalag án skýrrar stefnu
um inngöngu í Evrópusambandið er
óhugsandi.
í innanlandsmálum er afstaðan til
sjávarútvegsmála heitasta málið um
þessar mundir. Alþýðuflokkurinn
hefur skipað sér í sveit með þeim
sem mæla með veiðileyfagjaldi, þótt
ekki Iiggi Ijóst fyrir mér hvaða af-
stöðu hinn nýi formaður hefur í þess-
um efnum. A þessu er ótal skoðanir
á vinstri væng stjórnmálanna, þótt
það megi vera að hægt sé að bjóða
upp á einhverja moðsuðu í þessum
efnum fyrir sameiginleg framboð.
Þessar tillögur eru hvort sem er óút-
færðar að öllu leiti.
IMýjar áherslur.
Eftir fréttum af ræðum forystu-
manna Alþýðuflokksins frá flokks-
þinginu að dæma hefur verið lögð
mikil áhersla á að marka andstöðu
við Sjálfstæðisflokkinn. Hins vegar
heyrði ég að hinn nýi formaður var
að biðla til fylgis flokksins. Hann
hefur vafalaust ætlað sér að fiska í
gruggugu vatni Evrópustefnu flokks-
ins. Ég er ekki viss um að þetta fisk-
irí rími mjög vel við sameiningartil-
raunir á vinstri vængnum.
Ég er sannfærður um að það er
best fyrir okkur Framsóknarmenn að
halda okkur á miðjunni sjá hverju
fram vindur og halda ró okkar. Við
erum að byggja upp flokkinn í takt
við breyttan tíma. Stefna framtíðar-
innar byggir á meiri alþjóðasam-
skiptum heldur en áður, þótt að sjálf-
sögðu sé ekki á stefnuskránni að
ganga í Evrópusambandið á þeim
forsendum sem nú er boðið upp á.
Við teljum að það sé ekki hægt að
létta innflutningsvemd af landbúnað-
inum í einum vettvangi né afnema
opinberan stuðning við hann einir
þjóða í Vestur Evrópu. Við teljum
einnig að það þurfi að hafa kostnað-
arvitund í framlögum til velferðar-
mála til þess að tryggja að þau fram-
lög komi þeim til góða sem þurfa á
þeim að halda og stuðla að jöfnuði í
þjóðfélaginu. Við viljum ná sem
mestum sáttum á milli dreifbýlis og
þéttbýlis meðal annars um kosninga-
réttinn. Við styðjum aflamarkskerfi í
sjávarútvegi, en útilokunt alls ekki
umræður um lagfæringar á því kerfi
til þess að ná sátt í þjóðfélaginu um
það.
Breyttir tímar krefjast endurmats
og nýrra viðhorfa. Það er skylda
stjómmálamanna að upplýsa grasrót-
ina í flokkunum um skoðanir sínar
og verja þær á þeim vettvangi. Með
því rækta þeir garðinn sinn. Hug-
myndafræðin um stóru flokkana er
dæmd til að mistakast ef þetta er lát-
ið undir höfuð leggjast.
Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins.
nóvember
Atburdir dagsins
1851 Skeytasendingar hefjast
millum Parísar og Lundúna.
1920 Fimmþúsund fulltrúar frá
41 landi hiltast á fyrsta fundi
Þjóðabandalagsins. 1939 Þýska
flutningaskipið Parana sökk út-
af Patreksfirði. 1945 Franska
þingið samþykkir í einu hljóði
að kjósa Charlcs de Gaulle for-
seta lýðveldisins. 1963 Hand-
ritastofnun og Háskólinn
minntust þess að þrjár aldir
voru liðnar frá fæðingu Árna
Magnússonar handrilasafnara.
1987 Hollenski stríðsglæpa-
maðurinn Pieter Menten deyr.
Hann höndlaði með listaverk á
stríðsárunum og var sakaður
um að hafa myrt fjölda Gyð-
inga og um lislaverkaþjófnað.
Afmælisbörn dagsins
Játvarður III 1312, konungur
Englands sem beið ósigur fyrir
Skotum. Robert Louis Ste-
venson 1850, skoskur rithöf-
undur, skrifaði meðal annars
Gulleyjuna og Dr. Jekyll og
Mr. Hyde. Eysteinn Jónsson
1906, formaður Framsóknar og
ráðherra um árabil. Varð fyrst
fjármálaráðherra 27 ára. Adri-
enne Corri 1930, bresk leik-
kona.
Annáisbrot dagsins
Á alþingi aftekinn Jón Ingi-
mundsson frá Tjarnarlandi,
austan úr Fljótdalshéraði, bóndi
þar, ógiptur, fyrir herfilegt
morð, er liann vann á þeim
manni, er Sigfús hét Eiríksson.
Vallaannáll 1729.
Ofbeldi dagsins
Þcgar kratarnir eru að telja
verkalýðnum trú um, að hann
megi ekki beita olbeldi, þá eru
þeir að leiða hann undir lallöx-
ina. Afneitun ofbeldis af verka-
lýðsins hálfu er sama sem að
beyja sig undir ok auðvaldsins
um aldur og ævi.
Brynjólfur Bjarnason, leiötogi
kommúnista, 1933.
Málsháttur dagsins
Á fótum skal frú þekkja.
Ferð dagsins
Menn ferðast um víða veröld í
leit að því, sem þeir finna þegar
þeir snúa heim aftur.
George Moore.
Orð dagsins
Lífs er orðinn lekur knör,
líka rœðin fiiin,
hdsetanna farið fjör,
en fonnaðurinn fhíinn.
Páll Ólafsson.
Skák dagsins
Hollendingurinn Van der Wicl
er sókndjarfur þegar vel liggur
á honum, en hann þarf lítið fyr-
ir hlutunum að hafa í skák
dagsins. Hann helur svart og á
leik gegn hinum seinheppna
Andruet, sem tellir undir fána
Frakklands. Einn leikur - og
allt er hrunið.
Svartur leikur og vinnur.
1. ... Dxh2+!I Andruet gafst
upp - hann er mát í næsta leik.