Alþýðublaðið - 10.12.1996, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o d a n
Leiðin til himnaríkis
Böðvar Guðmundsson:
Lífsins tré
Mál og menning 1996
Það er víst engu logið þegar sagt er
að ungt fólk hafi ekki ýkja mikinn
áhuga á ættfræði eða þjóðlegum fróð-
leik. Til eru dæmi þess að fólk geri sér
ekki almennilega grein fyrir því hvað
er að vera þremenningar, hvað þá
Bækur
Ingibjörg
Þórisdóttir
skrifar
„Sagnfræðilegt gildi bókarinnar er ótvfrætt,
en meiru varðar að Böðvar hefur með bókunum
tveimur skapað skáldverk sem tæpast á sinn líka
í fslenskum bókmenntum
skylt í þriðja og fjórða ættlið. Við lest-
ur bókarinnar Lífsins Iré eftir Böðvar
Guðmundsson verður manni ljóst
hversu mikilvægt það er fyrir smáþjóð
að þekkja uppruna sinn.
Lífsins tré er framhald bókarinnar
Hýbýli vindanna, sem hlaut næsta ein-
róma lof og gerði Böðvar í einni svip-
an að einum athyglisverðasta höfundi
okkar. Bækurnar tvær mynda órofa
heild, og er full ástæða til að hvetja
fólk að lesa þær báðar.
Sögumaður bókarinnar, söngvari
sem erft hefur tónlistarhæfileika sína
langt aftur í ættir, segir enskumælandi
bami sínu frá uppmna þess.
Sagan hefst á síðustu öld þegar íjöl-
margir fslendingar gáfust upp á harð-
ræðinu, og sigldu vestur um haf og
freistuðu gæfunnar vestur á sléttum
Kanada. Það er löng leið og erfið frá
íslandi til himnaríkis, segir Davíð
Stefánsson í Gullna hliðinu, og má
með sanni segja að ferð Vestur- ís-
lendinganna hafi ekki gengið þrauta-
laust fyrir sig. En sagan segir frá furðu
þrautseigu fólki sem þurfti að þola
ýmislegt til að ná settu marki að hefja
nýtt og mannsæmandi líf. Skilnaður
við ástvini sína og ættmenn heima á
íslandi var aðeins byijunin.
Böðvar lýsir frumherjabasli land-
nemanna á sannfærandi hátt, og liggur
greinilega að baki viðamikil heimilda-
vinna og rannsóknir. Að því leyti er
bók hans mikilsvert framlag til að
auka skilning okkar á kjömm og lífs-
baráttu Vestur-íslendinga. Það er al-
kunna að nánast til þessa dags hefur
verið grunnt á því viðhorfi að þeir sem
héldu til fyrirheitna landsins hafi verið
föðurlandssvikarar, þó fátt sé í reynd
skiljanlegra en að dugandi fólk hafi
freistað þess að slíta af sér vistarband
vonleysisins.
Böðvar dregur upp ótal myndir úr
fslendinganýlendunni og aðskiljanleg-
um störfum sem landar okkar tóku að
sér. Fyrsta íslendingadaginn í Gimli
var höfð uppi ýmis skemmtan. Þar
spilaði Ólafur fíólín fyrir dansi. Fiðl-
una, sem hann dregur viðumefni sitt
af, fékk hann heima á íslandi. Fiðla
þessi kom honum og konu hans, Elsa-
betu, til bjargar árið 1897 þegar þau
stóðu á Manhattan nýkomin frá Ellis-
eyju og áttu ekki fyrir farinu til Kan-
ada til asttingja sinna. Fiðluna fékk í
hendur Ólafur yngri Johnson sem féll
síðar í fyrri heimsstyijöldinni en fiðlan
týndist ekki.
Sumir fslendingamir hurfu ofan í
kolanámur eða gerðust gullgrafarar,
með misjöfnum árangri eins og hjá
Joe Ole, einum sona Ólafs fíólíns.
Sagnfræðilegt gildi bókarinnar er
ótvírætt, en meiru varðar að Böðvar
hefur með bókunum tveimur skapað
skáldverk sem tæpast á sinn líka í ís-
lenskum bókmenntum. Söguþráðurinn
er fimlega ofinn, aragrúi eftirminni-
legra persóna stígur fram á sviðið,
stillinn er þróttmikill og orðfærið auð-
ugt. I bókarlok hefur lesandi kynnst
fólki sem lifir áfram, og er hægt að
nefna af handahófi Elsabetu konu Ól-
afs fíólín; Jens Duffrín son þeirra sem
var á skjön við samfélagið, ólst upp
hjá Mammómtum og starfaði í sirkus
og kynntist þar systrunum íslensku
Wombu og Tombu, indjánum og eski-
móum; Jón Eyjólfsson góðtemplara
sem háði árangurslitla baráttu við að
gera Jens Duffrín að bindindismanni
og svo mætti lengi telja, því margar
aðrar sögupersónur gera ífásögn þess-
arar bókar í senn lifandi og fræðandi
um líf Vestur-íslendinganna. Hver
veit nema einhver vestanmegin Atl-
antshafsins sem ber eftimafnið Christ
hafi verið ættaður frá íslandi og heitið
Kristinsson, eða að Mr. Scagefirth sé
ættaður úr Skagafirði. ■
Haft er eftir háttsettum
mönnum í Sjálfstæðis-
flokknum að vænta megi
laun. Talið er útilokað að
Markús Örn Antonsson
setjist aftur í útvarpsstjóra-
stól, enda mun það
ekki í samræmi við
vilja Björns Bjarna-
sonar menntamála-
ráðherra. Davíð
Oddsson hefur hins-
vegar hug á að launa
Markúsi Erni dygga
þjónustu með því að
útvega honum
sendiherraembætti,
annaðhvort á Norð-
urlöndum eða hjá
Evrópuráðinu. Um
það þarf auðvitað að
semja við Halldór
Ásgrímsson og því
ekki að vita nema
Framsókn fái út-
varpsstjórastólinn í
staðinn...
talsverðra breytinga innan
Ríkisútvarpsins á næstunni.
Heimir Steinsson er vitan-
lega á leið í þjóðgarðinn
sinn og Pétur Guðfinnsson
mun senn komast á eftir-
Ekki verður annað sagt en
Máls og menningarveldið
geti vel unað við tilnefningar
til „íslensku bókmenntaverð-
launanna". MM gefur út sex
af þeim tíu bókum sem til-
nefndar eru, þrjár í flokki
bókmennta og þrjár í flokki
annarra rita. Fjögurforlög
skipta með sér jafnmörgum
bókum sem eftir eru: Iðunn,
Ormstunga, Fláskólaútgáfan
og loks Ólafur E. Friðriks-
son sem gefur sjálfur út bók
sína um skotveiðar í náttúru
íslands...
Ovenju mikið af skáldskap
kom til álita við tilnefn-
ingar til „íslensku bók-
menntaverðlaunanna" og
því sitja ýmsir höfundar eftir
með missárt enni. Þar má
nefna Ólaf Gunnarsson,
Þórarin Eldjárn, Ólaf Jó-
hann Ólafsson, Hallgrím
Helgason, Elisabetu Krist-
ínu Jökulsdóttur, Braga
Ólafsson, Jón Kalman
Stefánsson, IMínu Björk
Árnadóttur, Lindu Vil-
hjálmsdóttur og Geirlaug
Magnússon...
'FarSide" eftir Gary Larson
„Gerið bara það sem þið viljið við mig, ég tala ekkil...
Aldrei! Og á eftir mér koma aðrir - og aðrir - og aðrirl... Ha
ha ha!"
fimm á förnum vegi
Hvaða höfundur hlaut síðast „Islensku bókmenntaverðlaunin" fyrir skáldverk? steinunnsigurðardóttirfyrir.Hjartsstaö".
Signý Þorsteinsdóttir
kynningarfulltrui: Ég get
ómögulega munað það, enda
fylgist ég ekkert með þessum
bransa.
Ásgeir Jónsson nemi: Ég
bara man það ekki.
Bryndís Loftsdóttir leik-
kona: Steinunn Sigurðardóttir
fyrir skáldsöguna „Hjtulastað-
ur“.
Steindór Steindórsson
innheimtumaður: Það var
einhver kona, held ég.
Berglind Steingrímsdóttir
atvinnurekandi: Guð, ég
hef ekki hugmynd um það!
Málrómurinn verður því gjarnan
skrækur og nístandi hjá konunum.
Helga Ólafsdóttir er ekki par ánægö meö
kynsystur sínar á þingi. DV í gær.
0g ég er og verð einn þeirra
leiðinlegu lesenda sem vilja
skorinorð skáid sem taka afstöðu
til þjóðfélagsmála.
Þórarinn Hjartarson járnsmiöur svarar Guö-
mundi A. Thorssyni fullum hálsi og telur
hæpið að hægt sé að skræla þjóðfélagshug-
myndir Halldórs Laxness frá verkum hans
einsog hvern annan glassúr. DV í gær.
Þeir sem halda að þetta
sé bók um kynlega kvisti, sem
svo eru kallaðir, eða lítskúnstn-
era, sem eru leiðinlegasta fólk
sem um getur, þeir ættu ekki
að ná sér í hana.
Einar Kárason um smásagnasafn sitt, Þætti
af einkennilegum mönnum. DV í gær.
Gagnrýnandi kemur tvisvar
og borgar alltaf fyrir sig.
Auöunn Sæberg Einarsson veitingamaöur
leggur þeim reglurnar sem fást viö veitinga-
húsagagnrýni í ítarlegri grein. Mogginn á
sunnudag.
Ekki þarf annað en hlusta á
upphaflega hugmynd hans að
While My Guitar Gently Weeps til
að heyra að hann var og er ann-
ars flokks lagasmiður.
Árni Matthíasson um George Harrison
í fúllyndislegum pistli um Bítlana.
Mogginn á sunnudag.
Ég vona að atvinnuleit þín berí
skjótan árangur. Ég ber virðingu
fyrir þér og þínum líkum.
Páll Pétursson skrifaði vingjarnlegt
bréfkorn til Völu Dóru Magnúsdóttur
atvinnuleysingja sem birtist í Mogganum
á laugardaginn.
Ég hef þá kenningu að því oftar
sem spilað er við sterkara lið
styttist í sigur á móti því og við
lærum með hverjum ieik.
Þorbjörn Jensson handboltaþjálfari gerist
spekingslegri meö hverjum deginum.
Mogginn á laugardag.
smáa letrið
Gleðileg jól...
Gleðilig jól og gott nýggjár
God jul og gott nytt ár
Glædelig jul og godt nytár
Hyvaá jouloa ja onncllista
uutta vuotta
Jullimi ukiotaasamilu pilluaritsti
Merry Christmas and
a happy New Year
Fröliche Weihnachten und Ein
Glúckliches Neues Jahr
Joyeux Noél et Bonne Année
Feliz Navidad y Prospero Ano Nuevo