Alþýðublaðið - 16.01.1997, Page 1
■ Sighvatur Björgvinsson formaður Alþýðuflokksins segir gengi hlutabréfa í sjávarútvegsfyrirtækjum alltof hátt
Reynt að selja þjóðinni heimildir
sem úthlutað var ókeypis
- segir Sighvatur og hefur
fengið þakkir frá fjölda fólks
fyrir að segja það sem margir
hugsa.
,JEf við núvirðum aflakvótana sjö ár
fram í tímann erum við að tala um, að
það sé litið svo á á hlutabréfamarkað-
inum, að sameiginlegt verðmæti sjáv-
arútvegsfyrirtækja á Islandi séu 150
milljarðar króna. Ef gerð er sú krafa
að útvegurinn skili arði til eigenda
sinna sem miðast við slíkt mat, þá er
það útilokað," sagði Sighvatur Björg-
vinsson formaður Alþýðuflokksins í
samtali við blaðið.
Sú skoðun Sighvats að gengi hluta-
bréfa í sjávarútvegsfyrirtækjum sé
alltof hátt hafa vakið mikla athygli og
umtal. Hann sagðist hafa fengið við-
brögð frá fjölda fólks úr öllum stjóm-
málaflokkum alls staðar að af landinu.
„Þetta fólk hefur þakkað mér íyrir að
segja það sem margir hafa verið að
hugsa,“ sagði Sighvatur þegar hann
var spurður um viðbrögð við ummæl-
um sínum. En á hverju byggir hann
þessa skoðun?
„Nú er verið að selja varanlegan
þorskveiðikvóta á kvótamarkaði á sex
hundmð krónur kílóið. Það er gersam-
lega útlokað að reka neina útgerð á
slíku verði. Svo hátt verð á aflakvót-
um er svo úr takt við möguleika sjáv-
arútvegsins, að ekkert fyrirtæki getur
starfað á þeim gmndvelli. En á grand-
velli þessarar verðlagningar á afla-
heimildum, sem kunna að verða til
ráðstöfunar hjá viðkomandi fyrirtæki,
er verið að verðleggja hlutabréf í sjáv-
arútvegi. Með því að verðleggja hluta-
bréfin jafn hátt og raun ber vitni er
verið að gera algjörlega óraunhæfar
kröfur um arðsemi," sagði Sighvatur.
„Það er líka önnur hlið á þessu
máli. Með því að verðleggja fyrirtæk-
in langt umfram möguleika á að skila
arði og bjóða eignir til sölu á markaði
á þessu verði, er verið að reyna að
selja þjóðinni aflaheimildir sem ein-
staklingar fengu úthlutað frá henni
ókeypis. Það er verið að láta fólkið í
landinu kaupa þessar heimildir til
baka á sex hundrað krónur kítóið. Það
gengur ekki,“ sagði Sighvatur enn-
fremur.
Nú er sumir sem halda því fram að
þú sért með þessu að ráðast á sjávar-
útvegsjyrirtœki á landsbyggðinni og
varajölk við aðfjáifesta íþeim?
„Eg er ekki að því. Það á ekki að
láta „eigendur" kvóta komast upp með
það að selja almenningi kvótann sem
þeir fengu fyrir ekki neitt og það á
þessu ofurverði. Hingað til hafa út-
gerðarmenn verið að kaupa og selja
aflaheimildir sín á milli. Nú hafa þeir
dottið ofan á það snjallræði að láta
þjóðina kaupa þetta af sér, en halda
öllum stjómtaumum í sínum höndum.
Fyrir áramót var fólk að kaupa í hiuta-
fjársjóðum til að losna við skatt-
greiðslur. Nú standa þessir sjóðir með
fullar hendur fjár. Þeir verða að kaupa
hlutabréf fyrir peningana en það er lít-
ið framboð af nýjum ábatalegum
hlutabréfum. Menn era því alltaf að
kaupa og selja sömu bréfin. Það verð-
ur til þess að verðið á bréfunum hækk-
ar stöðugt burtséð frá því hvaða
möguleika fyrirtækin hafa til að greiða
arð af því verði. Ég á því ekki von á
að ábendingar mínar verði til að lækka
gengi hlutabréfa á markaðinum. En
það getur kannski orðið til þess að for-
ráðamenn sjóða hugsi sig betur um
hvar þeir velja að bera niður til að
ávaxta fé,“ sagði Sighvatur Björgvins-
■ Fyrsti fundur Dagsbrúnar og Fram-
sóknar með VSI hjá sáttasemjara
Höfum engan
áhuga á slímsetum
- segir Halldór Björnsson for-
maður Dagsbrúnar
„Við fórum ofurlítið yflr stöðu
mála á fundinum og lögðum
áherslu á að þessu yrði hraðað eft-
ir mætti svo menn sæu fyrr en
seinna hvort viðræður bæru ein-
hvern árangur. Við höfum engan
áhuga á slímsetum á fundum ef
þeir skila engum árangri og ég
held að sáttasemjari hafi það ekki
heldur,“ sagði Halldór Björnsson
formaður Dagsbrúnar í samtali
við Alþýðublaðið.
Dagsbrún og Framsókn mætti
til fundar hjá sáttasemjara í gær
ásamt fulltrúum Vinnuveitenda-
sambandsins. Halldór kvaðst ekki
búast við að annar fundur yrði á
vegum sáttasemjara í þessari viku.
Hins hefði sáttasemjari óskað eftir
því að félögin héldu áfram beinum
viðræðum við vinnuveitendur.
„Málin hafa í sjálfu sér ekki breyst
neitt nema að það er formbreyting
hver stýrir þessu,“ sagði Halldór
Björnsson.
Halldór Björnsson og
Þórarinn V. Þórarinsson voru
hressir í bragði við upphaf fundar-
ins í gær. Ljósm. E. Ól.
■ Diskasala ársins 1996. Emilíana Torrini langsöluhæst en platan Merman seldist í 11.700 eintökum
Við erum ekki eins blönk og við vorum
- segir Jón Ólafsson tónlistar-
maður og útgefandi.
,JÞað er vissulega gaman fyrir gaml-
an jaxl einsog mig að upplifa það að
tapa ekki á plötuútgáfu. Þessi sala seg-
ir manni fyrst og fremst hvað Emil-
íana er vinsæl," segir Jón Ólafsson í
samtali við Alþýðublaðið. Jón er með-
útgefandi Emilíönu Torriní að plöt-
unni Merman sem er söluhæsta plata
ársins 1996. Jón segist ekki enn vera
búinn að fá uppgjörsreikninga frá Jap-
is sem dreifir plötunni og segir að sér
reiknist ekki neitt til eða frá á þessu
stigi. „Við erum ekki eins blönk og
við vorum,“ segir Jón.
Emih'ana Torrini má vel við una og
nýtur langmestra vinsælda íslenskra
poppara. Plata hennar, Merman, seld-
ist í 11.700 auk þess sem Croucied’oú
Lá, plata Emilíönu frá 1995, seldist í
2,637 eintökum á árinu og er í 20 sæti.
Jón Ólafsson segir þennan árangur
einstæðan í poppsögulegu samhengi,
að stelpukom selji fyrstu plötu sína í
uin átta þúsund eintaka og Merman í
rúmum 11. Þá telur Jón engan vafa
leika á um að góð sala disksins Stone
Free haft mikið með vinsældir Emil-
íönu að gera.
Japis hefur verið að taka saman
sölulista síðasta árs á undanförnum
dögurn og að sögn Guðjóns Berg-
mann markaðsstjóra fyrirtækisins, era
þeir margir sem mega bíta í það súra
epli að hafa ekki uppí kostnað. „Það
var auðvitað vitað að margir sem
sendu frá sér plötu myndu ekki selja.
En auðvitað eru vonbrigði, til dæmis
með að diskar Kolrössu krókríðandi,
Megasar og Önnu Halldórsdóttur
skyldu ekki seljast betur miðað við þá
frábæru dóma sem þeir fengu. Kol-
rassa og Megas seldust í tæpum tvö
þúsund og Anna seldist minna."
Topp 20 listinn lítur þannig út:
1. Merman, Emilíana Torrini -
11.700 eintök seld.
2. Strumpastuð - 10,000 eintök.
Guðjóns segir þetta ótrúlegastu
diskasölu ársins en þetta er plata sem
Spor gefur út. Undirleikurinn er feng-
inn frá Bretlandi og síðan er settur ís-
lenskur texti við.
3. Pottþétt jól, ýmsir flytjendur -
8,900 eintök.
Þessi útgáfa er samkrull Spors og
Skífunnar, tvöfaldur diskur þar sem
annar er með íslensku efni og hinn er-
lendu.
4. Stone Free, lög úr söngleiknum
- 7,900 eintök.
5. Allar áttir, Bubbi Morthens -
7,400 eintök.
Guðjón segir þetta minni sölu en oft
áður hjá Bubba, sagt hefur verið að
hann eigi 8 þúsund áskrifendur.
6. Seif, Páll Óskar - 6,100 eintök.
Páll má vel við una að mati Guð-
jóns sem segir Pál koma á óvart að ná
þetta miklu fylgi með dansplötu.
7. Kvöldið er okkar, safnplata með
upptökum Ingimars Eydal heitins -
5,700 eintök.
8. til 12. Pottþétt plötur, safnplöt-
ur með vinsælum erlendum lögum í
bland við nokkur tslensk lög - 4,000
eintök.
13. Greifarnir dúkka upp, Grei-
famir - 3,400.
Greifamir vora ótvfræðir sigurveg-
arar á sveitaballamarkaðinum í sumar
og Guðjón telur þetta afrakstur þess
erfiðis. Þetta er „Best of“ plata auk
tveggja nýrra.
14. Óskalög sjómanna, ýmsir flytj-
endur - 3,200 eintök.
Þarna er söngkonan María Björk
Sverrisdóttir og félagar á ferðinni.
Guðjón segir þennan disk hafa komið
út rétt fyrir sjómannadaginn og selst
vel í kringum þann tfrna.
15. Pottþétt dans, ýmsir flytjendur
- 3,200 eintök.
16 til 18. Milli mín og þín, Bjami
Arason, Einsog er, Stefán Hilmarsson
og Sígildar sögur, Brimkló - 3,000
eintök.
19. Fólk er fífl, Botnleðja - 2,900
eintök.
■ Hetjan úrfrumskóginum
til sýnis í Þjóðarbókhlöðu
Tarzan á
íslandi í
75 ár
Richard Korn, kontrabassaleikari í
Sinfóníunni á sér ansi sérkennilegt
áhugamál en hann hefur safnað
bókum Burroughs um Tarzan apa-
bróður frá barnsaldri en afrakstur
þessar söfnunaráráttu gefur að líta
á sérstæðri sýningu sem opnar í
Þjóðarbókhlöðunni í næstu viku.
„Maður sagði mér þessa sögu
sem hafði engan hagnað af því að
segja mér hana, eða nokkrum öðr-
um.“ Með þessum upphafsorðum
hóf göngu sína ný framhaldssaga í
Alþýðublaðinu þann 21. janúar árið
1922 en hún hét Tarzan og var eftir
Edgar Rice Burroughs. Þar með
var landnám Tarzans hafið á ís-
landi. Maðurinn í sögu Burroughs
sem ekki hafði neinn hagnað af sög-
unni um Tarzan ætti að vera uppi á
okkar tímuni því að Tarzan er í dag
eitt uppáhaldsviðfangsefni safnara
og dýrasta frumútgáfa af fyrstu
bókinni um Tarzan er margra
milljóna virði. Richard Korn segir
þó að á sýningunni sé einungis eftir-
líkingu af henni. Á baksíðunni er að
finna viðtal við Richard Korn og
ágrip af sögu Tarzans. Sjá baksíðu.