Alþýðublaðið - 16.01.1997, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 16.01.1997, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 s k o ð a n i r ■ Opið bréf tii alþingismanna frá Skipstjóra- og stýrimannafélaginu Sindra á Eskifirði Uppstokkun og endurúthlutun kvóta á jafnréttisgrundvelli „Ef fram fer sem horfir kæmi mönnum ekki á óvart að innan fárra ára verði hér harðvítug átök um sameign þjóðarinnar..." Aðalfundur Skipstjóra- og stýri- mannafélagsins Sindra, sem haldinn var í Valhöll Eskifirði, harmar það ástand sem virðist vera æ ljósara með hverjum deginum sem líður. f dag klifa stjómmáiamenn á því að fiski- stofnanir í kringum landið sé sameign þjóðarinnar, en þegar menn líta á stað- reyndir mála þá kemur allt annað í ljós, sameignimar em aðeins til ráð- stöfunar íyrir fáa útvalda, og þá menn og félagasamtök sem ráða yfir fjár- magni og geta þar af leiðandi haft í hendi sér lífskjör manna og velferð heilla byggðarlaga. Stjómmálamönnum var fengið um- boð frá kjósendum til að tryggja vel- ferð þjóðarinnar og sjá um að gæðum landsins, bæði til lands og sjávar, verði réttlátlega skipt. En hvað hefur komið í ljós? Stjórnmálamennirnir gáfust upp og afhentu fáum útvöldum auðlindina sjálfum sér og sínum vild- arvinum til ráðstöfunar. Til hvers hefur kerfið leitt? Jú, þorskurinn er að vísu á uppleið en aðr- ir stofnar em mjög illa á sig komnir svo ekki sé meira sagt. Leiðarljós manna hefur verið ímynduð verðgildi hlutabréfa sem fáir hafa ráð á að höndla og jafnvel er um hringamynd- un að ræða. Ein er sú spurning sem brennur á mönnum, hvort byggja eigi allt landið fsland eða ekki. Hveijir eiga að lifa og hveijir eiga að deyja. Tökum samlík- ingu við sauðfjárbóndann sem velja þarf sér búsmala til lífs að hausti. Bóndinn tekur ákvörðunina og byggir upp sína lífsbjörg. Stjórnmálamenn- imir horfa í gaupnir sér og gera ekk- ert, hugsa bara um hugtökin hagræð- ing og sameiniug. Héref aðein'; horft til fárra, stórra útvaldra en ekki til fjöldans sem er dreifður um hinar söjálú byggðir landsins. Ef fram heldur sem horfir kæmi mönnum ekki á óvart að innan fárra ára verði hér harðvítug átök um sam- eign þjóðarinnar. Atök sem líkja mætti við átök sem urðu meðal smá- bænda og stóreignabænda í löndum Asíu og S-Ameríkuþjóða, þau átök hafa verið löng, ströng og illúðleg. Guð forði okkur frá slíkum tímum. Það sem við blasir, er nauðsyn þess að kvótaúthlutunin verði tekin til endur- skoðunar og endurúthlutunar og allir sitji við sama borð, hvort sem menn hafa keypteða ekki. t>áð vár aldrei ætlun manna með setnihgu' kvótalaganna að meginmark- mið laganna væri að braska með sam- eignina. Braskið er af hinu illa og verður fáum eða engum til góða, allra síst þeim sem starfa við sjávarútveg- inn. I ljós hefur komið hér á félagssvæði Sindra að atvinnuöryggi er afskaplega lítið, mönnum hefur verið sagt upp og skipin seld eða þeim lagt. Menn standa uppi atvinnulausir en í fjötmm eigna sinna sem eru verðlausar því enginn vill kaupa eignir á stað þar sem enga atvinnu er að hafa. Byggðarlögin fara í eyði og eftir standa minnisvarð- ar um mistök stjórnmálamanna sem stjóma áttu. Auðiindin er sameign þjóðarinnar, það er sagt, en er aðeins í orði, ekki á borði. Auðlindin færist æ meir á fárra manna hendur og þeir stóru verða stærri og sterkari og þeir smáu smærri og veikari, og þeir stóru bíða eftir að hremma þann smáa. Við höfurn á til- finningunni að ráðamenn þjóðarinnar gleðjist mest yfir því er einn smár verður hremmdur af þeim stóra. Krafan í dag er uppstokkun og end- urúthlutun kvótans á jafnréttisgrund- velli. Hver er réttur þess sem eytt hefur ævistarfi sínu til sjós? Hver er réttur þess manns til auðlindarinnar? Af hverju er hann enginn, en allur þeirra sem hafa yfir fjánnagni að ráða? Þetta ætti að vera mönnum til alvar- legrar umhugsunar. Þeir ættu að horfa til baka og reyna að gera sér grein fyr- ir því hvert stefnir í þeim málum er varða sjávarútveginn í heild. Menn þurfa að horfa á heilsteypta mynd af landi og þjóð en ekki horfa eingöngu á síður dagblaða sem hafa að geyma sölugengi einstakra stórfyr- irtækja. Ef ísland er fyrir fslendinga em bá ekki auðlindir fslands einnig fyrir fs- lendinga en ekki íyrir fáa útvalda sem hafa yfir að ráða fjármagni? ■ F Eru Islendingar frumstæðir? Getur verið að léleg menntun eigi sinn þátt í upp söfnuðum vanda þjóðfélagsins? ✓ Asíðasta sumri hringdi til mín rosk- inn hæstaréttarlögmaður og sagði mér í óspurðum fréttum að þegar hann var kominn í framhaldsnám erlendis hefði runnið upp fyrir sér að hér í Há- skólanum hefði hann ekki lært neina lögfræði. Hann var til dæmis spurður; til hvers eru lög og réttur? Þessu gat ég ekki svarað, því mér hafði ekki ver- ið kennt það, sagði hann. Rétt svar var; lög og réttur eru til þess að sá minniháttar geti náð rétti sínum. Fyrr í vetur sagði Árni Ibsen rithöfundur í blaðagrein frá örvinglan sinni við há- skólanám í útlöndum. Hann sagðist blátt áfram ekkert hafa kunnað þótt hann hefði hlotið verðlaun á stúdents- prófi hér. Það var ekki einungis náms- efnið sem.þvældist fyrir honum, hann kunni til dæmis ekki að njóta fagurra lista sém þótti sjálfsagður þáttur í menntuninni. Nú í vetur varð nokkurt fjaðrafok um stund útaf því að íslenskir nem- endur urðu meðal hinna neðstu í svo- nefndum raungreinum við fjölþjóð- lega athugun. Fyrir fáeinum ámm var mikið rætt um ólæsi í íslenskum skól- um. Var þá meðal annars talað um að Þjóðborð Jón Kjartansson frá Pálmholti I W' ; skrifar efna til sérkennslu í lestri og íslensku við Háskóla Islands tilað auðvelda nemendum að ráða við námsefnið. Loks er svo upplýst að próf úr íslensk- um grunnskóla er ekki tekið gilt sem inntökupróf í framhaldsskóla á Norð- urlöndum. Aftur á móti varð höfuð- borg íslands víðkunn fyrir drykkju- skap og skrílslæti barna um nætur í miðbænum. Hvergi í veröldinni þekkjast slíkir uppeldishættir, að minnsta kosti þar sem fólk telur sig siðmenntað. Kennarar segja að þetta tengist lágum launum þeirra og öðrum kjörum. Víst eru laun kennara lág, en hvar er orsakanna að leita? Fleiri hafa átt í basli með framhaldsnám og sumir fara ekki í slíkt nám og þá gjaman í kennslu. Hvernig er menntun þeirra og annar undirbúningur? Getur ekki verið að slæm menntun kennara eigi sinn þátt í bágum kjörum þeirra? Get- ur verið að léleg menntun eigi sinn þátt í uppsöfnuðum vanda þjóðfélags- ins? Ég hef reyndar ekki séð marga kennara taka undir rökstudda gagnrýni Helgu Sigurjónsdóttur í Kópavogi á íslenska skólakerfið. Það er til lítils að skamma kennara eina, því allt sýnist þetta spegilmynd af ríkjandi gildismati stórs hluta þjóð- arinnar. Og til dæmis hafa íslenskir ráðamenn lengi verið hagsmunatengd- ir gömlum atvinnuvegum einsog sjáv- arútvegi og landbúnaði og jafnvel reynt að berja niður aðrar atvinnu- greinar einsog lesa má í minningabók dr. Benjamíns H. J. Eiríkssonar. „Hefðbundnu atvinnuvegirnir hafa ekki aðeins fengið ótæpilega opinbert fé, heldur er ýmislegt varðandi upp- byggingu þjóðfélagsins miðað við dreifbýli og hugsunarhátt þar. Til dæmis er fyrst núna verið að koma á samfelldum skóladegi fýrir böm hér í þéttbýlinu! Enn er því starfandi margt fólk alið upp á hálfgerðum vergangi sem hefur slitið það úr tengslum við menningu og sögu þjóðarinnar, heim- ilisuppeldið að miklu leyti farið for- görðum, enda mæðumar á vinnumark- aði og enginn heima. Eitt einkenni þessa gildismats er of- uráhersla á hús, oftast á kostnað heim- ilanna. Húsið er þó aðeins umbúðir utanum heimilið. Leiguíbúðir hefur aldrei mátt byggja eða reka með skipulegum hætti, því fólkið á að fara svo illa með þær! Þeir sem það segja eru í raun að halda því fram að fólk beri enga virðingu fyrir heimili sínu og sé tilbúið að eyðileggja það. Virð- ingin sé aðeins bundin húsinu sem eign líktog bankaimiistæðu. Ef svo er þá hlýtur eitthvað alvarlegt að vera að og gildismatið meira en lítið ruglað. Hvemig líður til dæmis Svisslending- um þar sem um 70% þjóðarinnar hef- ur búið í leiguíbúðum að minnsta kosti lunganna úr öldimii? Annað ein- kenni er langur vinnudagur sem oft hefur virst vera flótti frá heimilinu og hlutverki þess. Fólk hefur jafnvel met- ið langan vinnudag til kjarabóta! Hér mætti auðvitað nefna eiturlyf og of- beldi, sem eru afleiðing þess sem nefnt hefur verið, afleiðing andlegrar fátæktar ef svo má segja. Hér þykir líka orðið sjálfsagt að fara illa með fólk. Ef í hlut eiga til dæmis hestar eða hundar eða jafnvel refir, þá bregðast margir við ef fréttir berast af illvirkj- um og er gott eitt um það að segja, en fáir bregðast við illri meðferð á fólki. Em Islendingar frumstæðir? Margt af því sem ég hef rakið þykir mér benda til þess, eða hver em sérkenni frumstæðra þjóða? Nefna má frum- vinnslu hráefnis, eftirsókn eftir hé- góma, slæmt skipulag og almenn hugsunarleysi og áhugaleysi um breytingar. Mér sýnist margt af þessu til staðar hér og ekki bætir úr að stjómvöld haga sér oft líkt og gamlir nýlendukúgarar. Ég tel að spumingin eigi að minnsta kosti rétt á sér. Höfundur er formaöur Leigjendasamtakanna

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.