Alþýðublaðið - 16.01.1997, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 16.01.1997, Blaðsíða 8
MWBUBLMD Fimmtudagur 16. janúar 1997 7. tölubiað - 78. árgangur Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk ITarzan apabróðir í Þjóðarbókhlöðunni Ég er ekkertTarzanfrík -segir Richard Korn við Þóru Kristínu Ásgeirsdótttur en hann safnar verkum eftir Edgar Rice Burroughs, skapara Tarz- ans apabróður. „Maður sagði mér þessa sögu sem hafði engan hagnað af því að segja mér hana, eða nokkrum öðr- um.“ Með þessum upphafsorðum hóf göngu sína ný framhaldssaga í Alþýðublaðinu þann 21. janúar árið 1922 en hún hét Tarzan og var eftir Edgar Rice Burroughs. Maðurinn í sögu Burroughs sem ekki hafði neinn hagnað af sögunni um Tarzan ætti að vera uppi á okkar tímum því að Tarzan er í dag eitt uppáhald- sviðfangsefni safnara og dýrasta frumútgáfa af fyrstu bókinni um Tarzan er margra milljóna virði en sjálfur segir Richard en á sýning- unni er þó einungis eftirlíking af henni. Richard Kom, kontrabassaleikari í Sinfóníunni á sér ansi sérkenni- legt áhugamál en hann hefur safnað bókum Burroughs um Tarzan apa- bróður frá barnsaldri en afrakstur þessar söfnunaráráttu gefur að líta á sérstæðri sýningu sem opnar í Þjóð- arbókhlöðunni í næstu viku. „Ég byrjaði að safna sem barn og gramsaði í gegnum allar tiltækar fornbókaverslanir sem barn og ung- lingur og hélt því áfram í mennta og háskóla," segir Richard. „Það má segja að undirbúningur sýning- arinnar taki allan minn frítíma, það er í mörg horn að líta.“ Hann segist safna öllum bókum ...,\I»SHÓKA>>AFN iöLANDS • IlASKÓLABfÍKAS.M'N Rti2l. janfiat l'W7 Tarzan á íslandi í 75 ár er yfirskrift Tarsansýningarinnar. eftir Burroughs og hafi byrjað á því sjö ára gamall þegar hann erfði fyrstu bækurnar eftir afa sinn Irving Kom. „Fyrir nokkrum ámm hvatti Ge- orge T. McWhorter, bókavörður við Burroughs safnið í Louisville í Kentucky mig til að kanna útgáfu- sögu verkanna á íslandi. Á sýning- unni er svo að finna efni sem ég hef safnað saman um verk Burroughs á ensku, íslensku og ýmsum öðrum rnálurn." En hvað er svona sérstakt við Tarzan? „Ég er ekkert Tarzanfrík en þetta voru skemmtilegar bækur og hann var ekta hetja. Það gekk allt upp hjá honum í lífinu, þrátt fyrir ýmsar vandræðalegar uppákomur í frum- skóginum. Og hver þekkir síðan ekki Tarzan, hefur lesið bækurnar eða teiknimyndasögur eða séð hann í bíó.“ En hvað með Jane? „Hún er alger aukapersóna og eftir fyrstu tvær til þrjár bækurnar setti höfundurinn hana til hliðar því að fólk vildi bara lesa um Tarzan og það var þreytandi fyrir hann að standa í því að bjarga henni til lengdar." Alþýðublaðið reið á vaðið með Tarzansögurnar en Ólafur Friðriks- son ritstjóri kom heim frá Englandi með eina Tarzanbók í vasanum og fékk Ingólf Jónsson til að þýða hana fyrir blaðið. Eftir að sögurnar höfðu birst í blaðinu hóf Ingólfur að gefa þær út í litlu vasabroti. Sig- urjón Sæmundsson fékk síðan út- gáfuréttinn og Siglufjarðarprent- smiðja byrjaði að gefa út Tarzan- bækurnar innbundnar árið 1945. Teiknimyndasögur um Tarzan birtust fyrst í Vísi seint á fjórða áratugnum og Leiftur gaf út sjö þeirra í bókarformi. Teiknimynda- sögur um Tarzan birtast enn reglu- lega í DV og einnig hafa Tarzan- sögur birst í æskunni. En það voru fleiri velunnarar Tarzan hér á Fróni fyrr á öldinni. Dr. Helgi Pjetursson nýalsinni átti gott safn af verkum Burroughs, en höfundurinn hefur verið kallaður afi vísindaskáldsagn- anna. Helgi ritaði höfundinum tvö bréf en svar Burroughs er á sýning- unni og birtist hér á síðunni. Á sýn- ingunni er einnig að finna svar Burroughs til aðdáanda síns í einu aðdáendatímarita Tarzans, þar sem hann svarar spurningunni um hvort Tarzanbækurnar séu sannar. Burro- ughs segir svo ekki vera en hins- vegar fyrirfinnist hópur fólks á ís- þnfist hér. Hún er með (jölda af agxtum Sa, sem íyratur rannsakaði líf- | myndum og lita yadum, og kostar I Olafur Friðrikuon. Prenumiðjan Gutenberg. Tarzan. Eítir Edgar Rtce Burrougfu. I. KAFLI 1 sjó. Madur sagði mér þessa sögu, sem hafði engan hagn- að af þvl að segja mér hana, eða nokkrura öðrum. En eg hlýt að játa, að gamalt vln hafði I fyrstu haft Shrif á söguraannninn, og sjólfur tortrygði eg ýmislegt í hinni undarlegu sögu. Þegar hinn skeratilegi hósráðandi fann, að hann hafði sagt mér full mikið, og að eg var f vafa, tók heimskuleg hreykni hans við þar sem áhrif gamia vfns- ins þraut, og hann gróf upp sannanir ritaðar í gamalt og myglað handrit, og þurrar opinberar skýrslur frá breska nýlenduraálurdðaneytinu, til stuðnings mörgum þýðingarroíkium atriðura í þessari merkilegu sögu. Eg segi ekki, að sagan sé sönn, því eg var ekki vitni að atburðunum, sem hún skýrir frá, en það aetti naegilega að sýna ykkur einlaegni mína og að eg trúi því að hún geti verið sönn, að eg breyti raunveruiegu nöfnunum, þegar eg nú segi ykkur söguna. --fLilhim-hlrtAnm riaahAlrar lAna.. ^in. Ef þið trúið henni ekki, munuð þið að nrinsta kosti verða mér samraála um það að hún er óviðjafnanleg, merkileg og skerotiieg. Við sjáuro, af skýrslu nýlendumálaráðuneytisins og »f blöðum lðtna mannsins, að ungtir enlkur aðalsmaður, sem við skulum nefna John Clayton, lávarð af Groy- stoke, var sendur til að grafast fyrir um ástandið í ný- lendu Breta á vesturströnd Afrfku, þar sera vitanlegt var, að annað Evxópustórveldi sflaði sér innfseddra ný- liða, og notaði þá í svertingjaher sinn, sem að eins fekkst við sð safna gummi og ffiabeini hjá villimönn- unum meðfrara Congo og Arunvimi. Sveitingjarnir i brezku nýlendunni sögðu, að roargir af ungum sonura þeirra hefðu með fögram loforðum verið gintir frá þeim, en fáir eða engir þeirra, ksemu aftur heira. Englendingarnir í Afrfku géngu jafnvei lengra. Þeir sögðu, að þessir vesliugar rxru beinllnis hafðir f þræl- dómi, þvf lausn þeirra v*ri alveg koroin undir hvitu herforingjuuum, sem notuðu sér fáfrteði svertiupjanna og segðu að mörg ár væru eftir af ráðuingstlma þeirra, endá þótt hann löngu væri útrunninn. NýlendumáIaráðuneyti^, útnefndi því John Clayton í nýja stöðu f nýlendu Breta 1 Vestur-Afriku, en heimu- iegar skipanir hans voru í þá átt að komast náhvæm- lega fyrir illa meðlerð herforingja vinveist Evrópunkis RrW. bafl 1 tvAftnm I \ kemnr bessari aftgn rkki Maður sagði mér þessa sögu sem hafði engan hagnað af því að segja mér hana, eða nokkrum öðrum. En ég hlýt að játa, að gamalt vín hafði í fyrstu haft áhrif á sögumanninn, og sjálfur tortryggði ég ýmislegt í hinni undar- legu sögu. Sagan sem markar landnám Tarrans apabróður á íslandi, en hún birtist í Alþýðublaðinu fyrir 75 árum. A sýningunni er einnig að finna bréf Burro- ughs til aðdáanda síns í einu aðdáendatíma- rita Tarzans, þar sem hann svarar spurning- unni um hvort Tarzan- bækurnar séu sannar. Burroughs segir svo ekki vera en hinsvegar fyrirfinnist hópur fólks á íslandi sem trúi því að hann sjálfur sé að- eins viðtæki sem verur á öðrum hnöttum taii og segi sögur í gegn- um." l)r. 1.1(1 rj.tor.. ■iMnu, lo.UM *»/» Richard Korn kontrabassaleikari í Sinfóníunni og áhugamaður um Tarzan heldur hér á plakati með Hollywoodleikaranum Johnny Weissmuller en fjöimargir bandarískir leikarar hafa spreytt sig á Tarzanleik. landi sem trúi því að hann sjálfur sé aðeins viðtæki sem verur á öðrum hnöttum tali og segi sögur í gegn- um.“ En Tarzanmyndirnar, nú ertu með bíóprógrömm og veggmyndir af Johnny Weissmuller og fleiri Tarzanleikurum? „Bíómyndirnar voru ekki trúar bókunum og höfundurinn var sjálf- ur aldrei ánægður með útkomuna. Tarzan var menntaður maður strax í lok fyrstu bókarinnar en í myndun- um er hann hálfgerður þumbi og villimaður sem segir mest þrjú orð á hálftíma fresti.“ Höfundurinn Edgar Rice Burro- ughs lést sjötíu og fimm ára að aldri, árið 1950 úr hjartaslagi. „Burroughs skrifaði ekki fyrir börn,“ skrifar George T McWhorter forstöðumaður Burroughssafnsins í Louisville. „Ritstíll hans er skýr og skáldlegur; Orðin voru valin af list- rænu innsæi til þess að örva tilfinn- ingar og vitsmuni samtímis og það skírskotaði til lesenda á öllum aldri. Af þessum sökum er ekki hægt að bera hann saman við aðra höfunda og hann sóttist ekki heldur eftir slíkum samanburði. Hann las sjaldnast skáldsögur en kaus heldur heimildasögur og ævisögur Uppáhaldsskáld hans voru Rudy- ard Kipling, Robert Service, Henry Herbert Knibbs. Hann dáði Jack London og lýsti sig einu sinni reiðubúinn til að skrifa ævisögu hans en hætti við það þegar hann komst að því að búið væri að setja Höfundur Tarzan svarar bréfi frá dr.Helga Pjetursyni nýalsinna sem trúði því að Burroughs væri ein- ungis viðtæki sem verur frá öðrum hnöttum notuðu til að koma boð- skap sínum á framfæri. saman ævisögu fyrir þennan rithö'f- und. Hann sá fyrir sér uppgötvánir á borð við ratsjá, hljóðsjá, sjónvarp, fjarrita, radíóvita, sjálfstýribúnað fyrir flugvélar, miðunarbúnað á sprengjur og tundurdufl, einrækt lífvera, líffæraflutninga, fráhrind- ingarkraft og margt fleira sem var talið fullkomlega fjarstæðukennt á þeim tíma. Stórkostlegt ímyndunar- afl hans, ásamt óskeikulli eðlisávís- un frásagnarsnillings tryggir Burro- ughs heiðursess meðal bandarískra rithöfunda á 20 öld.“ Sýningin opnar þann 21. janúar klukkan en þá eru nákvæmlega 75 ár liðin frá því að fyrsta Tarzansag- an birtist í Álþýðublaðinu. Almenn- ingur getur síðan komið og skoðað hana frá 22. janúar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.