Alþýðublaðið - 26.02.1997, Síða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997
Aðalfundarboð
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur heldur aðalfund sinn miðvikudag-
inn 26. febrúar næstkomandi í Komhlöðunni, Bankastræti.
Fundurinn hefst kl. 20.30.
Niðurstaða uppstillingarnefndar liggur fyrir á skrifstofu Alþýðu-
flokksins.
Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta. Stjórnin
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17,
sími 552 7277
Viltu starfa við daggæslu
barna í heimahúsi?
Dagmóðir-Dagpabbi
Frá og með 1. febrúar til 1. apríl er hægt að sækja um
leyfl til daggæslu barna í heimahúsi í Reykjavík.
Æskilegt er að viðkomandi geti starfað allan daginn.
Skilyrði til leyfisveitinga eru m.a.:
Umsækjandi skal vera orðinn 20 ára.
Hafa lokið 60 klst. grunnnámskeiði fyrir dagmæð-
ur/dagfeður eða hafa aðra uppeldismenntun.
Skila skal læknisvottorði og sakavottorði.
Húsnæði og útivistarstaða skal vera fullnægjandi.
Grunnnámskeið fyrir þá sem þurfa verður haldið í apríl
og maí næstkomandi.
Kennt verður tvö kvöld í viku. Skráning fer fram um leið og
sótt er um leyfi.
Takmarkaður fjöldi.
Þeir sem hafa áhuga á að fá leyfi til daggæslu i'
heimahúsi vinsamlega hafi samband við daggæslu-
ráðgjafa Dagvistar barna tíl nánarl upplýsingar í
síma 552 7277.
Rafmagnstækni-
fræðingur -
rafmagnsverk-
fræðingur
Staða tæknimanns á umdæmisskrif-
stofu RARIK í Stykkishólmi er laus
til umsóknar. Um er að ræða fullt
starf og er æskilegt að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi
opinberra starfsmanna.
Starfssvið
• Hönnun raforkukerfa
• Áætlanagerð
• Kerfisskráningar
• Viðhald tölvuteikninga
Menntunar- og hæfniskröfur
• Tæknifræði- eða verkfræðimennt-
un af sterkstraumssviði
• Æskilegt er að umsækjendur hafi
sveinspróf í rafvirkjun eða reynslu
af rafveitustörfum
• Góð þekking á CAD-vinnslu
• Góðir samstarfshæfileikar og
skipulögð vinnubrögð
• Viðkomandi þarf að geta unnið
sjálfstætt
Nánari upplýsingar veita Erling Garð-
ar Jónasson og Björn Sverrisson í
síma 438 1154.
Vinsamlegast sendið skriflegar um-
sóknir fyrir 28. febrúar nk. til
Rafmagnsveitna ríkisins, Hamraend-
um 2, 340 Stykkishólmi.
RAFMAGNSVEITUR
RÍKISINS tyuuUaít
LAUGAVEGI 118 • 105 REYKJAVÍK
SÍMI 91-605500 • BRÉFSÍMI 91-17891
ónarmið
■ Magnús M. Norðdahl skrifar
Er skylduaðild að lífeyris-
sjóðum verkalýðsfélag-
anna mannréttindabrot?
Rétturinn til að stofna og ganga í
verkalýðsfélög í því skyni að gæta lög-
mætra hagsmuna tilheyrir grundvallar-
mannréttindum og er varinn meðal ann-
ars af 11 .gr. Mannréttindasáttmála Evr-
ópuráðsins og staðfestur í 74.gr. stjóm-
arskrárinnar. Þessi sömu ákvæði fcla
jafnframt í sér réttinn til þess að standa
utan félaga. Sá réttur var talinn endan-
lega staðfestur í dómi Mannréttinda-
dómstólsins frá 30.6. 1993 í máli Sig-
urðar A. Sigurjónssonar gegn íslandi og
tekinn upp ( stjómarskrá með lögum
27/1995. Með öðmm orðum til er bæði
jákvætt og neikvætt félagafrelsi. Hér er
margs að gæta og rétt er að taka tvennt
skýrt fram í upphafi. f fyrsta lagi er það
er opin spuming hvort neikvæða félaga-
frelsið vcrður lagt að jöfnu við það já-
kvæða. Mannréttindadómstóliinn virðist
áskilja sér rétt til að meta það hvetju
sinni sbr. meðal annars dóm f málinu
Gustafsson gegn Svíþjóð frá 25.4. 1996
og orðalag stjómarskrárinnar bendir til
hins sama. í öðm lagi, að skylduaðild að
verkalýðsfélögum hefur ekki verið
dæmd ólögmæt í hcild sinni samanber
meðal annars umfjöllun Mannréttinda-
dómstólsins í málinu Sibson gegn Bret-
landi frá 20.4. 1993. Réttmæti og um-
fang skylduaðildar verður með öðmm
orðum að meta hverju sinni.
Tilefni þess, að ég velti þessu máli
upp, er umræðan um skylduaðild að líf-
eyrissjóðum vcrkalýðsfélaganna og sú
spuming hvort fyrrgreint neikvætt fé-
lagafrelsi feli í sér rétt til þess að standa
utan lífeyrissjóða eða rétt til að velja sér
lífeyrissjóð til aðildar að. Hér á íslandi
helst í hendur aðild að verkalýðsfélagi
og aðild að lífeyrissjóði þess félags.
Spuming er í fyrsta lagi hvort samning-
ar og lög um lífeyrissjóðamál séu “hags-
munir” í skilningi 11 .gr. Mannréttinda-
sáttmála Evrópuráðsins eða hlutverk í
skilningi 2.mgr. 74.gr. stjómarskrárinnar
og í öðm lagi hvort til séu sjálfstæð og
æðri mannréttindi. sem skapi rétt til að
standa utan lffeyrissjóðs eða rétt til að
velja sér lífeyrissjóð, Þessum spuming-
um hefur ekki beint verið svarað á vett-
vangi Mannréttindadómstólsins eða í
lögum hér á landi. Nú stefnir í, að á þetta
verði látið reyna og verkalýðshreyflngin
þarf að standa föst fyrir. Snúum okkur
að fyrri spumingunni fyrst.
Hvaða hagsmunir eru í
húfi?
Þeir hagsntunir, sem verkalýðshreyf-
ingin hcfur að verja hvað varðar lífeyris-
sjóðina eru miklir. Þeir tilheyra þeim
kjama. sem hreyfingin þarf að standa
vörð um. Alls staðar er sótt að. Ég hef í
fyrri greinum mínum um verkalýðsmál
hér á síðum blaðsins gert að umræðuefni
skipulegar árásir rfkisvaldsins og sam-
taka vinnuveitenda á þennan sama
kjama. í einfaldleik sfnum snýst þetta
mál um, að kjarasamningar á vinnu-
markaði skapa launafólki tryggingu fyr-
ir lágmarks launum, tryggja réttindi í
veikindum og slysaforföllum, mann-
sæmandi aðbúnað og hóflegan vinnu-
tfma svo eitthvað sé nefnt. En þeir fara
lengra. Þegar launafólk verður fyrir
óbætanlegum áföllum í leik eða starfi og
glata eða skerða möguleika til atvinnu-
þátttöku taka lífeyrissjóðimir við þar
sem launalið kjarasamninga lýkur. Þetta
verður aldrei of oft ítrekað. Taka má sem
dæmi Lífeyrissjóð Verslunarmanna.
Hann auglýsti helstu niðurstöður úr
rekstri sfnum á árinu 1996 í Alþýðublað-
inu 18.2. Lífeyrisgreiðslur skiptust
þannig að ellilífeyrir nam 54.1%, ör-
orkulífeyrir 29.3%, makalífeyrir 14.4%
og loks bamalífeyrir 2.2%. Eflist sjóð-
urinn njóta allir þess saman og verði
hann fyrir tapi axla allir það saman. Líf-
eyrissjóðimir em því samtryggingasjóð-
ir þar sem bræðralagshugsjón verkalýðs-
hreyfingarinnar lagði homsteininn. Þeir
em óaðskiljanlegur hluti heildarsamn-
inga á vinnumarkaði um hagsmuni
launafóiks, kaup þess og kjör. Þannig er
lífeyrisrétturinn hluti þeirra hagsmuna.
sem vísað er til í ll.gr. Mannréttinda-
sáttmála Evrópuráðsins og hluti lög-
mælts hlutverks verkalýðsfélaganna og
lífeyrissjóða þeirra sbr. 2.mgr. 74.gr.
stjómarskrárinnar.
Er skylduaðildin mann-
réttindabrot
Þá komum við að seinni spuming-
unni. Þýðir það, að þó samningar og lög
um lífeyrisrétt launþega séu hluti þeirra
hagsmuna eða hlutverks sem áður er vís-
að til, að því fylgi skylduaðild og ekki
síður skylduaðild að tilteknum lífeyris-
sjóði? Ef svo er ekki, telst annað eða
bæði, skylduaðildin og hömlur í vali á
lífeyrissjóði, brot gegn fyrrnefndri ll.gr.
Mannréttindasáttmálans og 74.gr. stjóm-
arskrárinnar.
Ég tel ekki nokkum vafa á því, að
skylduaðild að lffeyrissjóðum er bæði
lögmæt, nauðsynleg og ekki brot á
mannréttindum. Vil ég rökstyðja það
þannig. Við stofnun lífeyrissjóðanna
með kjarasamningum á vinnumarkaði
og síðari staðfestingu þeirra samninga í
lögum urðu þeir óaðskiljanlegur hluti al-
mannatrygginga hér á landi. Þeir era sú
leið, sem aðilar vinnumarkaðarins og
löggjafinn með setningu laga uxn
skyldutryggingu launafólks hafa valið til
að skipuleggja og tryggja afkomu launa-
fólks, maka þeirra og barna. Afnám
skyldutryggingar eða skylduaðildar að
lífeyrissjóði fæli í sér að taka þyrfti allt
almannatryggingakerfið til endurskoð-
unar. Jafnframt skal það haft í huga, að
greiðslur til lífeyrissjóða byggja á sömu
lögmálum og skattgreiðslur til ríkisins.
í báðum tilvikum tekur álagning til allra
og er byggð á jafnræði og málefnalegum
rökum og reglum. Sköttum er ætlað að
standa undir heilsugæslu, menntun og
almennt þeim samfélagslegu verkefn-
um, sem við eram sammála um. að ríkið
eigi að sinna. Á sama hátt er framiagi til
Iffeyrissjóðs ætlað standa undir afkomu
aldraðra og öryrkja, maka þeirra og
barna eftir því, sem við á hveiju sinni.
Þetta hlutverk er staðfest í samningum
og lögum. Það er grandvallaratriði í því
velferðarríki, sem hér hefur verið byggt
upp, að einstaklingum er ekki ætlað neitt
val um það hvort þeir greiða skatta eða
ekki. Þar greiðir hver eftir efnum og
ástæðum og tekur út eftir sömu lögmál-
um ef svo má að orði komast. Hið sama
gildir um lífeyrissjóðina og greiðslu-
skyldu til þeirra. Hér er um pólitískt val
að ræða, sem tekur til grundvallarupp-
byggingar samhjálpar í fslensku samfé-
lagi. Til þeirra verka nýtur hvert samfé-
lag víðtækra heimilda, sem ekki era tak-
markaðar af ákvæðum Mannréttinda-
sáttmála Evrópuráðsins svo fremi sem
grandvallarmannréttinda er gætt. Réttur-
inn til að standa utan stéttarfélaga er
ekki hluti þeirra grandvallarmannrétt-
inda heldur fyrst og fremst ákveðinn
hemill ef of langt er gengið og því túlk-
unaratriði hverju sinni. Með vísan til
þess, að lífeyrisrétturinn myndar einn af
homsteinum þeirra hagsmuna, sem
verkalýðsfélögunum er ætlað að vemda
og skylduaðildin er ein þeirra stoða, sem
lögbundið almannatryggingakerfi hér á
landí hvílir á, tel ég ekki nokkram vafa
undirorpið, að í henni felst ekki brot á
hinu neikvæða félagafresli sem ég gerði
grein fyrir í upphafi greinarinnar. Hún er
því ekki mannréttindabrot. Önnur túlkun
er ef eitthvað er. afbökun og rangtúlkun
sett fram til notkunar í þcim pólitfska til-
gangi að vega að samfélagslegu hlut-
verki og sjálfstæðri tilvera öflugrar
verkalýðshreyfingar og Iffeyrissjóða
hennar.
Rétturinn til að velja sér
lífeyrissjóð
Þá er því þó ósvarað hvort það sé óað-
skiljanlegur hiuti greiðsluskyldu til f lff-
eyrissjóð, að takmarka þurfi frelsi launa-
fólks til að velja sér Iffeyrissjóð. Leitum
svara við því. Fyrir það fyrsta er réttur-
inn til að skipa málum á vinnumarkaði
með kjarasamningum viðurkenndur hér
á landi og alþjóðlega, sem hluti grand-
vallarmannréttinda. Þar með cr talinn
réttur einstakra stéttarfélaga til að vinna
að hagstnunum sinna félagsmanna og
beita þeim úrræðum, sem nauðsynleg
era tíl vemdar þeim. f þessum rétti er
samningsréttur um lífeyrisréttindi inni-
falinn. Tiltekinn lífeyrisréttur er og verð-
Ur óaðskiljanlegur hluti umsamdra
launakjara og hluti sérgreindra kjara-
samninga hverju sinni. Þessi réttur getur
verið mismunandi, bæði samkvæmt
kjarasamningum og eins vegna breyti-
legrar samsetningar lífeyrissjóðanna.
Aldurssamsetning, fjöldi örorkulífeyris-
þega og fleiri þættir skipta hér veralegu
máli. Hér skiptir þó mestu, að áhættu
vegna mismunandi samsetningar axla
félagsmenn tiltekinna vcrkalýðsfélaga
og lífeyrissjóða saman, allir fyrir einn og
einn fyrir alla. Þess vegna sortera lífeyr-
issjóðimir ekki sfna félagsmenn. Þeir
taka við öllum, sem laun þiggja eftir
sama kjarasamningi, án tillits til aldurs,
menntunar, hjúskaparstöðu, heilsufars
eða annars og allir byggja upp þau rétt-
indi, sem þessir kjarasamningar ákvcða.
Upptaka valffelsis f þessu efni býður
Auglýsing um
kjörskrá
Kjörskrá Verkakvennafélagsins Framsóknar og Verkamannafó-
lagsins Dagsbrúnar vegna atkvæðagreiðslna um vinnustöðvan-
ir liggja frammi á skrifstofum félaganna. Um er að ræða skrá yfir
fullgilda félagsmenn, félagaskrár. Félagsmenn eru hvattir til að
kynna sér hvort þeir njóti atkvæðisréttar samkvæmt kjörskrán-
um. Kærufrestur er til loka kjörfunda, sem auglýstir verða síðar.
Kjörstjórnir Vmf. Dagsbrúnar