Alþýðublaðið - 12.03.1997, Blaðsíða 1
■ Hjálmar Árnason alþingismaður og björgunarlaun
Sjómenn hafa farist
- þegar beðið var eftir skipi sömu útgerðar, frekar en óska eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar
“Sagan sýnir að menn hafa dregið
að þiggja aðstoð Landhelgisgæslunn-
ar vegna hugmynda um björgunar-
laun. Ég get nefnt tvö dæmi, það var
togari sem fékk í skrúfuna. Þeir biðu
í tvo sólarhringa eftir að skip sömu
útgerðar kæmi þeim til aðstoðar,
þrátt fyrir að varðskip væri nálægt.
Annað dæmi, sem ég veit um og
gerðist fyrir nokkrum árum, var að
skip sem var að stranda vildi bíða
eftir skipi eigin útgerðar, þrátt fyrir
varðskip væri nærri. í þessu tilfelli
endaði skipið í fjörunni. Ég held að
það hafi farist tveir menn í því slysi,”
sagði Hjálmar Amason alþingismað-
ur, en hann hefur efasemdir um rétt-
læti þess að Landhelgisgæslan þiggi
björgunarlaun.
“Þá velti ég fyrir mér, af hverju út-
gerðaraðili sem í þessu tilfelli er rík-
ið, gerir kröfu um björgunarlaun.
Auðvitað þarf að taka tillit til kjara-
samninga sjómanna,” segir Hjálmar
Amason.
Hann veltir einnig fyrir sér öðm
máli, en það var þegar hluti áhafnar
Vikartinds, var sendur úr landi. „Af
hverju vom þeir sendir pappírslausir
úr landi? Það væntanlega skýrist eft-
ir að sjórétti er lokið.”
Hjálmar tók þátt í umræðu utan
dagskrár á Alþingi í gær um strand
Vikurtinds. Eftir umræðuna sagði
Hjálmar einnig, í viðtali við Alþýðu-
blaðið, að hann dragi í efa rauveru-
legt ákvörðunarvald skipstjóra, sem
er undir þrýstingi útgerðaraðila og
tryggingafélaga.
„Lögregla hér á landi hefur völd til
að grípa inn í atburðarrás, ef lífi og
limum borgara er stefnt í hættu og til
að koma í veg fyrir eignatjón. Þannig
ákvæði þarf líka að vera í þessum
málum. Samgönguráðherra og dóms-
málaráðherra tóku undir þetta. Ég tel
að neyðarúrræði þurfi að vera til
staðar.”
r
Björk heldur tryggð við Island
“Það er mjög mikilvægt fyrir
okkur að Björk Guðmundsdóttir
hefur ákveðið að halda tryggð við
STEF og láta það annast alla réttar-
gæslu varðandi höfundarrétt að
sínu efni um allan heim,” sagði
Magnús Kjartansson, formaður
STEF. „Fyrir okkur em það gleði-
tíðindi, ekki síst vegna þess að áður
en Björk tók þessa ákvörðun lét
hún lögfræðinga sína og fjármála-
ráðgjafa gera nákvæma úttekt á
STEF. Niðurstaðan var semsagt sú,
að hún telur okkur heppilega til að
sinna þessu fyrir sig.”
Magnús sagði að þetta þýddi að
allir peningar, sem kæmu inn fyrir
efni Bjarkar rynnu í gegnum ís-
lenska hagkerfið. „Þeir eru greidd-
ir hér, og myndast því hér á landi
sem verðmæti fyrir tónlistarafurð.
Við munum sem réttargæslumenn
hennar í þessum efnum sinna öll-
um vafamálum sem koma upp um
höfundarrétt að verkum hennar.
Það er auðvitað viss viðurkenning
fyrir STEF og við emm geysilega
ánægðir með þessa þróun.”
Hann sagði jafnframt að Björk
væri besta fyrirmynd sem hægt
væri að hugsa sér fyrir ungt tónlist-
arfólk að því leyti að hún hefði
alltaf passað sig á því að eiga höf-
undarrétt að sínum eigin smíðum.
„Hún gætir þess alltaf að hafa ráð-
stöfunarrétt á verkum sínum. Ungt
efnilegt fólk í tónlistinni er hins-
vegar alltaf að falla í þá gryfju að
semja hann frá sér.”
Magnús sagði að í kjölfar gífur-
legrar velgengni Bjarkar hefði hinn
alþjóðlegi tónlistarheimur upp-
götvað að á íslandi væri mýgrútur
af mjög efnilegu fólki, enda væra
samningar við ýmsar efnilegar
sveitir í gangi. „Þá rekast eðlilega
oft á hagsmunir unga fólksins og
svo hinna útlendu fyrirtækja, sem
oft reka eigin innheimtufyrirtæki
og vilja gjaman að Islendingamir
gefi STEF upp á bátinn og flytji
þessi viðskipti til þeirra. Þessvegna
erum við ekki síst ánægðir með
fordæmi Bjarkar. „
Hann sagði að til væru fræg
dæmi um ungt tónlistarfólk sem
hefði afsalað sér rétti að eigin verk-
um, og Bítlamir væm líklega það
þekktasta. „Rétturinn að verkum
þeirra gekk kaupum og sölum og í
dag er það Michael Jackson sem á
réttinn að mestöllum verkum
þeirra. Það er hann sem ræður,
hvort megi nota fræg Bítlalög í
auglýsingar eða annað, - og hann
sem græðir. í dag sjá Bítlamir ekki
jafnsárt eftir neinu og einsog þegar
þeir sömdu verkin af sér, - en þá
vom þeir ungir og fátækir. Svona
víti era til að varast.”
■ Skattapakki ríkisstjórnarinnar leiðir ekki til aukins jöfnuðar
Hátekjumennirnir græða mest
Það em fyrst og fremst hátekju-
menn sem geta hrósað happi yfir
þeim vinning, sem þeim er færður án
fyrirhafnar í skattapakka ríkisstjóm-
arinnar, sagði Sighvatur Björgvins-
son við Alþýðublaðið í gær. Hann
kvað erfitt að sætta sig við það, að
ríkisstjómin gæfi engar tryggingar
fyrir því að kjarabætumar héldust,
því engin „rauð strik” væm í pakkan-
um. Sömuleiðis væru engar trygg-
ingar gefnar fyrir því að ríkisstjómin
tæki ekki til baka með annars konar
álögum og niðurskurði þær bætur
sem væm togaðar úr henni núna.
Margrét Frímannsdóttir, formaður
Alþýðubandalagsins gagnrýndi
einnig hve lítið hinir lægra launuðu
fengju í sinn hlut úr pakka ríkis-
stjómarinnar, og breytingamar
leiddu ekki til aukins jafnaðar. „Það
sem stendur upp úr er að ekki gert
ráð fyrir að skattabreytingarnar geri
ráð fyrir jöfnun. Á tímabilinu verður
lækkun skatta, til dæmis þeirra sem
era með 75 þúsund krónur í laun, tvö
til þrjú þúsund til aldamóta. Mér
þykir þetta mjög lélegt.”
Sighvatur sagði furðu stóran hluta
þeirra liðlega fjögurra milljarða sem
væri varið í skattalækkanir fara til
hátekjufólks. Hann nefndi dæmi um
ójöfnuðinn, sem af þessu hlytist:
„Fjögurra
manna fjölskylda með 525 þúsund
króna mánaðartekjur fær í sinn hlut
16 þúsund króna skattalækkun. En
jafnstór láglaunafjölskylda með að-
eins 125 þúsund króna mánaðartekj-
ur fær í sinn hlut aðeins tvö þúsund
króna lækkun á mánuði. Ég segi nú
bara: Ef þetta er þeirra réttlæti,
hvemig er þeirra ranglæti?”
Hann sagði ekkert gert með óskir
ASI um lækkun innflutningstolla og
að markmiðum GATT-samningsins
yrði fylgt í raun, og sagði skondið, að
sá hluti tillagnanna sem lyti að mál-
efnum lífeyrisþega væm hugmyndir
stjómarandstöðunnar, sem stjómar-
liðið hefði fellt við atkvæðagreiðslu
um síðustu fjárlög. Sjá síðu 7.
■ Ungir Framsóknar-
menn krefjast afsökunar-
beiðnar frá Vikublaðinu
Sovéskar
norna-
veiðar
- segir Róbert Marshall.
“Ég held að Ámi Gunnarsson ætti
að gera sér grein fyrir því hversu al-
varlegt það er að brigsla blaðamönn-
um um að búa til heimildarmenn og
segja frétt vera lygi vegna þess að
hún kemur honum illa. Þetta sýnir
betur en flest annað að Framsóknar-
flokkurinn og SUF eru föst í fjötmm
fortíðar,” segir Róbert Marshall,
blaðamaður Vikublaðsins, um frétta-
tilkynningu sem Samband ungra
Framsóknarmanna hefur sent frá sér
þar sem því er haldið fram að for-
síðufrétt Vikublaðsins síðastliðinn
mánudag sé hreinn uppspuni.
í fréttinni, sem skrifuð var af Ró-
bert Marshall og Björgvini G. Sig-
urðssyni, segir frá urgi innan Fram-
sóknarflokksins vegna stöðunnar í
lánasjóðsmálinu.
Haft var eftir stjómarmanni í SUF
að hann myndi íhuga úrsögn úr
flokknum fyndist ekki lausn á mál-
inu.
í fréttatilkynningu frá SUF, sem
undirrituð er af Áma Gunnarssyni,
formanni SUF, segir að enginn
stjómarmaður kannist við að hafa
rætt við blaðamann Vikublaðsins um
þetta mál eða látið álit sitt í ljós. Em
vinnubrögð Vikublaðsins sögð for-
kastanleg og þess krafist að blaðið
biðjist afsökunar á fréttinni.
Róbert Marshall segir Vikublaðið
standa við frétt sína enda sé þar allt
haft rétt eftir.
“Það er eðlilegt að enginn stjómar-
maður í SUF vilji viðurkenna að hafa
rætt við blaðamann Vikublaðsins því
ef viðkomandi hefði viljað að fólk
vissi hver hann væri þá hefði hann
komið fram undir nafni,” segir Ró-
bert.
„Við töluðum við tvo þingmenn
Framsóknarflokksins og einn ung-
liða. í viðtali við þingmennina kom
fram að málið er farið að reyna vem-
lega á þingflokk Framsóknarflokks-
ins, sem hlýtur að gefa vísbendingu
um að það valdi einnig uppnámi í
herbúðum ungliða.”
Róbert furðar sig á fréttatilkynn-
ingu SUF og segir að af henni megi
ráða ólýðræðisleg vinnubrögð for-
manns SUF.
„Af þessari tilkynningu má draga
þá ályktun að formaður Sambands
ungra Framsóknarmanna hafi gengið
á hvem og einn stjómarmann til að
kanna hvort hann hafi rætt við blaða-
mann Vikublaðsins. Þetta minnir
óneitanlega á nomaveiðar í stíl Sov-
étvaldsins. Mér finnst slík vinnu-
brögð forkastanleg,” sagði Róbert.
í tilkynningu SUF segir ennfremur
að málið sé sérstaklega alvarlegt þar
sem þeir sem fréttina skrifuðu séu
stjómarmenn í Grósku. Um þá túlk-
un scgir Róbert: „Ég er ekki bara
stjómarmaður í Grósku heldur einnig
ákafur stuðningsmaður íþróttabanda-
lags Vestmannaeyja, sem veldur ef-
laust gífurlegum áhyggjum innan
Sambands ungra Framsóknar-
manna.”