Alþýðublaðið - 12.03.1997, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 1997
Arangur
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
önnur siónarmið
Reykjavíkurlistans
Árni Þór Sigurðsson borgarfull-
trúi skrifar í Vikublaðinu um ár-
angur Reykjavíkurlistans:
Skólamál
Skólaárið 1993-1994 voru fjórir
grunnskólar einsetnir í Reykjavík af
28 skólum. Haustið 1994 bættust
fjórir skólar í þann hóp og á yfir-
standandi skólaári eru 14 grunnskól-
ar einsetnir. Þannig hefur á skörnm-
um tíma náðst verulegur árangur í
einsetningu grunnskólans en Ijóst er
að mikið verk er þar enn óunnið þar
sem um helmingur grunnskólans er
tvísetinn... Fræðsluráð Reykjavíkur,
undir forystu Sigrúnar Magnúsdóttur
borgarfulltrúa, hefur unnið metnað-
arfulla áætlun um einsetningu allra
grunnskóla í Reykjavík fyrir árið
2003...
Dagvistarmál
í dagvistarmálum setti Reykjavík-
urlistinn fram afar metnaðarfulla en
löngu tímabæra áætlun um fjöl-
skylduvæna leikskólastefnu sem
gæft öllum bömum, eins árs og eldri,
kost á leikskóladvöl í samræmi við
óskir foreldra. Á tímum D-listans
gátu foreldrar og sambúðarfólk ekki
sótt um heilsdagsvist fyrir sín böm
sem hafði í för með sér margvíslegt
óhagræði. Reykjavíkurlistinn afnam
þetta misrétti. Árið 1995 fjölgaði
heilsdagsrýmum á leikskólum borg-
arinnar um 400, árið 1996 fjölgaði
þeim um 350 og á þessu ári mun
þeim fjölga um nálægt 300. Þessi
mikla fjölgun hefur að einhverju
leyti verið á kostnað hálfsdagsrýma
en á tímabilinu 1994-1997 hefur
nettó fjölgun heilsdagsrýma verið
um 800. Það er ljóst að þessar breyttu
áherslur hafa gjörbreytt aðstöðu
bamafólks í borginni og fá sveitarfé-
lög geta nú státað af jafngóðri þjón-
ustu í leikskólageiranum og höfuð-
borgin getur...
Atvinnumál
Þegar Reykjavíkurlistinn tók við
meirihlutanum í borgarstjóm
Reykjavíkur vom um 3500 manns á
atvinnuleysisskrá í höfuðborginni.
Atvinnu- og ferðamálastofa var sett á
laggimar til að búa betur að þessum
mikilvæga málaflokki í stjómkerfinu
en verið hafði. Verkefni þessarar
nýju stofnunar er að starfa að stefnu-
mörkun, þátttöku í stærri málum sem
snúa að ríkinu eða öðmm sveitarfé-
lögum og fyrstu ráðgjöf gagnvart
einstaklingum. Þá hefur stofnunin
starfrækt viðskiptaráðgjöf sem ætlað
er að stuðla að uppbyggingu atvinnu-
lífs með ódýrri ráðgjöf til einstak-
linga og fyrirtækja og hafa vel á
þriðja hundrað aðilar nýtt sér þessa
þjónustu....
Brýnasta verkefnið
Eins og ljóst má vera hefur margt
áunnist á þeim tæpu þremur ámm
sem Reykjavíkurlistinn hefur verið í
meirihluta í borgarstjóm Reykjavík-
ur. Ekki síst hefur verið unnið stór-
virki í málefnum fjölskyldnanna,
einkum þeirra sem em með ung böm.
Það er minnisvarði sem Reykjavíkur-
listinn getur verið afar stoltur af...
Árangur af starfi Reykjavíkurlist-
ans hefur einnig skilað sér á mörgum
öðmm sviðum. Þar ber hæst fjármál
borgarinnar. Einnig má nefna um-
Þess vegna er öruggur sigur Reykjavíkurlistans í
næstu borgarstjórnarkosningum brýnasta verk-
efni félagshyggjufólks - hvar í flokki sem það
stendur og hvar í landinu sem það býr.
hverfismál, almenningssamgöngur,
umferðaröryggismál, menningarmál,
aðgengi fatlaðra og síðast en ekki síst
jafnréttismál. Aðstandendur Reykja-
víkurlistans þurfa því ekki að kvíða
kosningabaráttunni þegar loforð og
efndir verða borin saman. Það er hins
vegar afar mikilvægt að halda til
haga öllu því sem áunnist hefur og
koma því til skila til borgarbúa.
Borgarstjómarkosningamar munu
fara fram laugardaginn 23. maí 1998.
Sjálfstæðisflokkurinn mun leggja allt
kapp á að vinna borgina aftur en
verkefni félagshyggjufólks er að
tryggja að þeim markverða árangri
sem náðst hefur nú þegar á kjörtíma-
bilinu verði ekki glutrað niður. Þess
vegna er ömggur sigur Reykjavíkur-
listans í næstu borgarstjómarkosn-
ingum brýnasta verkefni félags-
hyggjufólks - hvar í flokki sem það
stendur og hvar í landinu sem það
býr.
3
v i t i m e n n
“Þessi sýning er því nokkuð
misjöfn. Þetta er „leikarasýn-
ing” og hún geldur fyrir að
leikstjórinn virðist ekki halda
nógu fast um taumana.”
Gunnar Stefánsson, leiklistargagnrýnandi
DT, um sýninguna Köttur á heitu blikkþaki.
“Maður þessi var greinilega
vel við skál og því þótti ekki
annað fært en að kanna inni-
halds vagnsins og áthuga
hvort virkilega væri verið að
viðra hvítvoðung um miðja
nótt í þessu ástandi.”
Úr dagbók löggunnar á Akureyri, en í Ijós
kom að maðurinn var með persónulega
muni í barnavagninum, en ekki barn.
“Þetta er mjög skapandi,
alltaf eitthvað nýtt að prófa,
hægt að spjalia í rólegheitum
á meðan um saumaskapinn og
hvað sem er og veistu, líðanin
er bara engu lík.”
Vigdís Stefánsdóttir, að segja hvað sé
skemmtilegt við bútasaum, í Mogganum.
“Erum við, kristnir menn, ekki
kallaðir til þjónustu friðar og
sáttargjörðar? Er nokkurt verk-
efni kirkjunnar mikilvægara en
einmitt það?”
Séra Karl Sigurbjörnsson aö svara séra
Flóka Kristinssyni, í Mogganum.
“Er hugsaniegt að vara sé í
upphafi boðin á hærra verði
Ragnar Axelsson, eða Rax,
Ijósmyndari á Morgunblaöinu
er að setja saman, ásamt Ey-
þóri Sigmundssyni í Laxakort-
um og fleirum, litla flugvél sem
verður sérhönnuð til Ijósmynda-
töku. Vélin verður mjög góð til
flugs við fjallshlíðar og í gilum.
Vélin var keypt ósamsett í
Bandaríkjunum.
r
Ahaustdögum ársins 1995
var Guðbjörn Ólafsson
ráðinn að Hafnarfjarðarbæ sem
„ritari bæjarstjórnar og bæjar-
ráðs”. Það var gert að tilhlutan
Jóhanns G. Bergþórssonar þeg-
ar hann ásamt félögum úr Sjálf-
stæðisflokknum myndaði meiri-
hluta með Alþýðuflokknum í
Hafnarfirði. Ráðning Guðbjörns
var hinsvegar aðeins til sex
mánaða og þeir eru auðvitaö
löngu liðnir. [ síðasta mánuði var
svo samþykkt nýtt skipurit fyrir
stjórnsýslu bæjarins og í kjölfar
þess er búið að ganga frá ráðn-
ingu Guðbjörns sem bæjarritara
til frambúðar. Embættið er nokk-
uð mikilvægt, enda er bæjarritari
staðgengill bæjarstjóra, sem I
dag er Ingvar Viktorsson. Með
skipuritinu voru líka gerðar aðrar
breytingar, því Gunnar Rafn
Sigurbjörnsson sem áður var
bæjarritari, en settur í sérverkefni
til að rýma fyrir Guðbirni á sínum
tíma, er nú orðinn starfsmanna-
stjóri bæjarins, sem heyrir sam-
kvæmt skipuritinu undir Guð-
björn. Félagar Gunnars úr Al-
þýðubandalaginu, einkum
Magnús Jón Árnason una því
illa, og mun Magnús hafa lagt
fram breytingartillögur við skipu-
ritið. Þess má geta að Guðbjörn
er enginn nýgræðingur þegar
kemur að starfi bæjarritara, því
hann gegndi því með miklum
sóma á annan áratug upp úr
1970...
ó Guðbjörn Ólafsson hafi í
upphafi verið ráðinn aðeins
til sex mánaða, og ráðningin
framlengd sjálfkrafa, gildir slíkt
fyrirkomulag ekki um alla. Þegar
tímabundnir ráðningarsamningar
annarra hafa fallið úr gildi hafa
þeir sjálfkrafa fallið af launaskrá.
Þetta gildir til dæmis um stanga-
veiðimanninn og myndhöggvar-
ann Sverri Ólafsson sem hefur
verið mesti skelfir Jóhanns Berg-
þórssonar eftir myndun núver-
andi meirihluta...
Guörún Helgadóttir fær á
baukinn hjá formanni Al-
þýöubandalagsins Margréti Frí-
mannsdóttur vegna bókunar út-
varpsráðs um Dagsljósmálið
svokallaða, þar sem ávítur voru
samþykktar. Margrét segir í Viku-
blaðinu að bókunin sýni húmors
og andleysi þeirra sem að henni
standa og það sé sérstaklega
leitt að þekktur húmoristi eins og
Guörún Helgadóttir hafi stutt
bókunina sem formaður ráðsins
lagði fram. Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson segir að bókunin sé
ritskoðun og sýni að það eigi að
leggja ráðið niður...
Og þú þykist vera indíánil
Birna Smáradóttir, hús-
móðir:
“Nei, það er fáránleg hug-
mynd.”
Vala Káradóttir, nemi:
“Nei, auðvitað ekki. Hún er
búin að sanna ágæti sitt.”
Ólafur Magnús Magnús-
son, sölufulltrúi:
“Nei. Hún er búin að sanna að
hún er lífsnauðsynleg.”
Anna Dóra Hermanns-
dóttir, jókakennari:
“Nei, alveg örugglega ekki.”
Gunnar Jónsson, smiður:
“Nei, það ætti að kaupa þrjár
til viðbótar. Eina fyrir hvem
landsfjórðung.”
til þess að síðar sé hægt að
bjóða hana á tilboðsverði?
Þessi tilboðaþróun er óneitan-
lega merkilegt rannsóknarefni
fyrir neytendur.”
Víkverji í Mogganum. Þar sem Víkverji er
eflaust neytandi eins og við hin, er skoraö
á hann að taka sjálfan sig á orðinu og
rannsaka málið.
“Ég heid reyndar að menn séu
ekki svo víðáttuvitlausir að
reyna að bjóða okkur upp á
svipað og Iðja skrifaði undir.”
Halldór Björnsson, formaöur Dagsbrúnar, í
Alþýðublaðinu.
“Rétt fyrir tólf, þegar meira
að segja var búið að leggja
fyrir þá á borð á hótelinu voru
þeir sóttir án nokkurs fyrir-
vara.”
Borgþór Kærnested um skyndilegan brott-
flutning erlendu skipverjanna á Vikartindi.
s
Langt, langt í fjarska - þar sem
Norðanvindurinn ræður ríkjum og
norðurljósin ríkja glitra eins og
marglit tjöld á himninum - var einu
sinni eyja sem hét eyja vindanna. Og
þar bjó lítil stelpa sem hét Linda.
Þetta er sagan af því þegar Linda
hitti Vetur konung.
Úr bókinni Linda hittir Vetur Konung, eftir
Harald Sonesson
sem kom út fyrir skömmu hjá Vöku
Helgafelli.